Morgunblaðið - 01.11.1990, Síða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1990
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD KVENNA
Ingunn Bernótusdóttir lék vel með Fram gegn Val í gærkvöldi. Var marka-
hæst Framstúlkna með 6 mörk.
Meistaramir heppnir
Heimsmeistarar Þjóðverja í mestu vandræðum með
Luxemburg en sigruðu þó með eins marks mun
Heimsmeistararnir í knatt-
spymu, Þjóðverjar, áttu í
mestu vandræðum með áhuga-
mannalið Luxemburgar í undan-
keppni EM. Meistararnir komust í
3:0 en tvö mörk á tíu mínútna kafla
komu heimamönnum í gang og litlu
munaði að þeim tækist að jafna í
lokin.
Jiirgen Klinsmann og Uwe Bein
skoruðu í fyrri hálfleik fyrir Þjóð-
veija og Rudi Völler gerði þriðja
markið á 49. mínútu. Jean-Paul
Girres og Roby Langers minnkuðu
strax muninn og á síðustu mínútun-
um munaði litlu Luxemburg næði
að jafna.
Grikkland sigraði Möltu 4:0 í 6.
riðli og Ungveijar unnu Kýpveija
4:2. Kýpur byijaði mjög illa og fékk
á sig mark strax á fyrstu mínútu.
Við það bættust tvö mörk úr víta-
spymum og eitt sjálfsmark en lið
Kýpur kom þó á óvart með góðum
leik.
Útlitið er ekki bjart hjá Aust-
urríkismönnum. Þeir töpuðu fyrir
Færeyingum í fyrsta leiknum í 4.
riðli og fengu skell gegn Júgóslöv-
um í gær, 4:1 í Belgrad, þrátt fyrir
góða byijun. Andreas Ogris náði
forystuni fyrir Austurríki á 15.
mínútu en þijú mörk frá Darko
Panev og eitt frá Srecko Katanec
tryggðu Júgóslövum öruggan sigur.
Valur — Fram , ...15:20
Valsheimili, miðvikudaginn 31. október
1990, Islandsmótið í handknattleik.
Mörk Vals: Katrín Friðriksen 5, Guðrún
Kristjánsdðttir 3, Berglind Ómarsdóttir 2,
Ragnheiður Júlíusdóttir 2, Ama Garðars-
dóttir 1, Sigurbjörg Kristjánsdóttir, Una
Steinsdóttir 1.
Mörk Fram: Ingunn Bernótusdóttir 6/1,
Ósk Víðisdóttir 5, Sigrún Blomsterberg 3,
Guðríður Guðjónsdóttir 2/1, Hafdís Guð-
jónsdóttir 2, Inga Huld Pálsdóttir 1, Guðrún
Gunnarsdóttir 1.
Fram nýtti sér vel
mistök Vals
Valsliðið var betra liðið í byijun
og hafði yfirhöndina fram í
miðjan síðari hálfleik. Þá kom
slæmur leikkafli í sóknarleik liðsins
og Valsstúlkur gerðu ekki mark í
tíu mínútur. Framliðið gekk á lag-
ið, komst betur inn í leikinn og
náði fjögurra marka forskoti fyrir
leikhlé, 6:10. Síðari hálfleikur var
í járnum framan af en það gekk
illa hjá Val að vinna upp forskot
Fram. Um miðjan hálfleikinn kom
annar lélegur leikkafli hjá val og á
stuttum tíma breyttist staðan úr
10:13 í 10:18. Valsliðið lagaði stöð-
una aðeinsjindir lokin, en öruggur
sigur Fram var í höfn. Arnheiður
Hreggviðsdóttir átti stórleik í marki
Vals í fyrri hálfieik en dalaði aðeins
í þeim síðari. Hjá Fram voru I'ngunn
Bemótusdóttir og Ósk Víðisdóttir
bestar.
Víkingur — Selfoss 31:19
Laugardalshöll, miðvikudaginn 31. október
1990, íslandsmótið í handknattleik.
Mörk Vikings: Andrea Atladóttir 9, Inga
Lára Þórisdóttir 8/1, Halla Helgadóttir 4,
Svava Sigurðardóttir 3, Heiða Erlingsdóttir
2, Matthildur Hannesdóttir 2, Oddný Guð-
mundsdóttir 1, Erna Aðalsteinsdóttir 1,
Kristín Bjarnadóttir 1.
Mörk Selfoss: Hulda Bjarnadóttir 6, Guð-
rún Hergeirsdóttir 4, Lísa Yngvarsdóttir
3, Auður Hermannsdóttir 3, Hulda Her-
mannsdóttir 3.
Stórsigur Vfldnga
Yfírburðir Víkinga í fyrri hálf-
leik gegn Selfossi voru ótrúleg-
ir og staðan í leikhléi 19:5 segir
það sem segja þarf. Leikurinn var
nokkuð jafnaði í síðari hálfleik enda
sigur Víkinga í höfn eftir fyrri hálf-
leikinn og alltaf erfítt að halda ein-
beitingunni með slíka yfirburða-
stöðu. Víkingsliðið lék í heild vel
sérstaklega í fyrri hálfleik og Sel-
foss að sama skapi illa og mun
meira býr í liðinu.
FH — Stjarnan..............14:24
Iþróttahús í Hafnarfirði, miðvikudaginn 31.
október 1990, íslandsmótið í handknattleik.
Mörk FH: Kristín Pétursdóttir 4, Rut Bald-
ursdóttir 4/4, María Sigurðardóttir 2/1,
Hildur Harðardóttir 2, Berglind Hreinsdótt-
ir 1, Björg Gilsdóttir 1.
Mörk Stjörnunnar: Ragnheiður Stephen-
sen 10/5, Margrét Theódórsdóttir 4, Herdis
Sigurbergsdóttir 2, Erla Rafnsdóttir 2,
Drífa Gunnarsdóttir, Ásta Kristjánsdóttir 1.
Góður endasprett-
ur Stjömunnar
FH hóf leikinn gegn Stjömunni
af krafti og náði fljótlega góðu
forskoti. Leikmenn Stjömunnar
fóru hinsvegar ekki almennilega í
gang fyrr en um
Katrín miðjan hálfleikinn.
Fríöríksen Stjarnan jafnaði þá
leikinn og náði
þriggja marka forsk
oti fyrir leikhlé, 9:12. í byijun síðari
I hálfleiks lék FH liðið vel og jafnaði
leikinn. Þá virtist úthaldið gefa sig
pg Stjarnan breytti stöðunni úr
(11:12 í 13:18 og öruggur sigur var-
höfn. FH liðið var mjög jafnt í
jiiknum en hjá Stjörnunni var
('agnheiður Stephensen langat-
/æðamest og Fjóla Þórisdóttir
\|irði vel á köflum.
skrifar
Kraftakarlar
í World Class
Þrír bandarískir kraftakarlar
sem staddir eru hér á landi
þeir, Bill Kazmaier, O.D. Wilson og
jAdrian Smith, verða í World Class
kl. 21.00 í kvöld. Þeir ætla þar að
sýna nokkrar „hrikalegar" lyftur
og leiðbeina áhugamönnum um
líkamsrækt.
Gunnar Már Gíslason og félagar
í HK eru efstir í 2. deild. Hann var
_ markahæstur í gærkvöldi.
Handknattleikur
2. DEILD KARLA
HK - Armann..................24:12
Gunnar Már Gíslason 8, Rúnar Einarsson 6
- Brynjar Einarsson 4.
ÍBK-IS.......................25:17
Afturelding - lH.............21:16
Knattspyrna
ENGLAND
Deildarbikarinn, 3. umferð:
Aston Villa—Millwall...........2:0
Chelsea—Portsmouth.............0:0
Covenrty—Hull..................3:0
Derby—Sunderland..............6 J)
Leeds—Oldham...................2:0
Manchester United—Liverpool....3:1
Oxford—West Ham................2:1
Plymouth—Nottingham Forest.....1:2
.Queen’s Park Rangers—Blackburn.2:1
Sheffield Wednesday—Swindon....0:0
KNATTSPYRNA / EM
LYFTINGAR
BORÐTENNIS
BTÍ sendir lið á
HM í Japan í vor
Fyrirhugað að dvelja hálfan mánuð í æfingabúðum í Kína
Borðtennissamband íslands ætl-
ar að senda fjóra landsliðs-
menn í karlaflokki til þátttöku í
heimsmeistaramótinu í Japan, sem
fram fer frá 24. apríl til 6. maí á
næsta ári. Fyrirhugað er að liðið
dvelji í hálfan mánuð fyrir mótið í
æfíngabúðum í Kína undir Ieiðsögn
landsliðsþjálfarans kínverska, Hu
Dao Ben. Liðið verður valið í næsta
mánuði. Áætlaður kosnaður við
hvem keppanda er um 150 til 170
þúsund krónur og greiða keppendur
sjálfir fjórðung kosnáðarins.
ísland hefur fímm sinnum tekið
þátt í heimsmeistaramóti, fyrst
1977 og síðast 1989 í Dortmund í
Þýskalandi, en þá hafnaði ísland í
63. sæti af 69 þjóðum. Besti árang-
ur íslands á HM náðist í Novi Sad
í Júgóslavíu 1981 er liðið varð í 48.
sæti af 59 þjóðum. Á HM í Japan
á næsta ári verða 80 þátttökuþjóðir
og hafa þær aldrei verið fleiri. Svíar
eru núverandi heimsmeistarar.
Gunnar Jóhannsson, formaður BTÍ,
sagði að stefnt væri að því að ís-
land næði 50. sæti í Japan.
Næsta verkefni landsliðsins í
borðtennis eru vináttulandsleikir
gegn Færeyjingum 17. til 20. nóv-
ember. Send verða A- og B-lið og
verða valdir fjórir karlmenn og þijár
konur í keppnisliðið. Síðan tekur
landsliðið þátt í 3. deild Evrópu-
deildarinnar 7. - 9. febrúar, sem
fram fer í Grikklandi. Líklegir mót-
heijar íslands í Grikklandi eru:
Guernsey, Isle og Man, Jersey, San
Marínó, Kýpur, Lichtenstein, Port-
úgal og ísrael auk heimamanna.
Gunnar Jóhannsson, formaður
Borðtennissambands íslands.
KR og Víking-
urmætast
íbikarnum
Dregið var í undanúrslit bik-
arkeppni Borðtennissam-
bands íslands í gær. Annarsveg-
ar leika KR (A-lið) og Víkingur
(A-lið) og hinsvegar Stjarnan
og Víkingur (B-lið). KR og
Víkingur leika á þriðjudagskvöld
kl. 19.00 í TBR-húsinu og
Stjarnan og Víkingur annan
föstudag kl. 20.00 í Ásgarði í
Garðabæ.
Úrslit í 1 umferð bikarkeppn-
innar voru sem hér segir:
KR-b - Víkingur-a..........3:4
Víkingur-c - Stjarnan......3:4
Víkingur-d - KR-a..........0:7
Öminn - Víkingur-b.........2:5