Morgunblaðið - 01.11.1990, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 01.11.1990, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1990 HANDKNATTLEIKUR Valur óskar eftir leikbanni á Dortmund Valur segir þýska liðið ekki hafa staðið við samninga vegna félagaskipta Sigurðar Sveinssonar. HSÍ heldur að sér höndunum HAIMDKNATTLEIKSDEILD Vals hyggst óska eftir því við alþjóða handknattleikssambandið, IHF.að þýska liðið OSC Dortmund verði dæmt í leikbann. Valsmenn, sem hafa sent HSÍ formlegt bréf, segja að félagið hafi ekki staðið við samn- inga þegar Sigurður Sveinsson fór frá Val og Dortmund eigi enn eftir að greiða um helming umsaminnar upphæðar, auk vaxta. Jón Hjaltalín Magnússon, formaður HSÍ, segir hinsvegar að HSÍ ætli að bíða eftir áliti lögræðinga áður en sambandið blandar sér í deiluna. V Bjarni Ákason, formaður handknatt- leiksdeildar Vals, sagði í samtali við Morgunblaðið að félagið hefði reynt allt til að útkljá málin en lítill áhugi virtist vera fyrir því hjá Dortmund. „Þeir hafa svikið samninga og við höfum reynt að semja við þá um greiðslur. En nú erum við búnir að fá nóg og höfum sent mál- ið til lögræðinga,“ sagði Bjarni. „Við getum hinsvegar lítið gert án þess að fá hjálp frá HSÍ.og viðbrögð þeirra hafa komið okkur á óvart. Félögin í landinu virðast ekki vera á sama báti á HSÍ,“ sagði Bjarni. „Ég vil ekki gefa neina yfírlýsingu strax. Við ætlum að bíða eftir áliti lög- fræðinga og áður en við förum að kanna málið. Okkur skilst að Dortmund hafi ekki staðið við sinn hluta samningsins en þetta er afar viðkvæmt mál,“ sagði Jón Hjaltalín Magnússon, formaður HSÍ. Gefum ekki eftir „Einhverra hluta vegna hefur HSÍ ekki séð ástæðu til að aðstoða okkur í þessari deilu, þrátt fyrir að þeir hafi vit- að um málavexti í tæplega hálft ár. Málið er í raun einfalt. Þetta er eins og hver önnur viðskiptaskuld og við ætlum ekki að gefa hana eftir,“ sagði Bjarni. Sigurður Sveinsson leikur nú með Atletico Madrid á Spáni. Hann fór frá Dortmund í fyrra, áður en tveggja ára samningur hans við félagið rann út enda hafði félagið ekki staðið við sinn hluta. Sigurður Sveinsson ____________________________________________I Evrópumót í burðarliðnum EVRÓPUKEPPNI landsliða í handknattleik er á góðri leið með að verða að veruleika. Á þingi Alþjóða handknattleiksambands- ins, IHF, sem fór fram á Madeira, var nefnd falið að semja drög að reglugerð fyrir Evrópusamband og Evrópukeppni og eiga þau að liggja fyrir ekki seinna en í júní á næsta ári. Verði þau sam- þykkt þarf að breyta reglugerð IHF og var rætt um að breyting- arnar yrðu bornar upp til samþykktar á næsta þingi, sem verður í tengslum við Ólympíuleikana í Barcelona 1992. Stef nt er að því að riðlakeppni Evrópumótsins hefjist síðan eftir HM í Svíþjóð 1993 og úrslitakeppnin fari fram um vorið 1994. Stofnun Evrópusambands og Evrópukeppni landsliða hafa verið í umræðunni í nokkur ár. „Við höfum barist lengi fýrir stofn- un Evrópusambands,“ sagði Gunn- ar Gunnarsson, varaformaður HSI, aðspurður um málið, en hann sat þingið ásamt Jóni Hjaltalín, form- anni HSI, og Birni Jóhannessyni, stjórnarmanni. „Nefndin átti að skila tillögum á þinginu, en þegar til kom hafði hún ekkert unnið í málinu. Við sættum okkur ekki við það, boðuðum til aukafundar og sögðumst taka málið að okkur, ef nefndin treysti sér ekki til þess. Það varð til þess að það var tekið fyrir á ný og stefnan mörkuð." Gunnar sagði að hugmyndin væri að halda Evrópukeppni annað hvert ár og svipuð mót færu fram í öðrum heimsálfum, sem kæmu þá í staðinn fyrir b- og c-keppni. Senni- lega yrði ofan á að raða liðum nið- ur eftir styrkleika áður en dregið yrði í riðla, en síðan væri stefnt að því að leika heima og að heiman í átta fjögurra til fimm liða riðlum og efstu liðin færu I úrálitakeppni. Með þessu fyrirkomulagi fjölgar „alvöru“ landsleikjum og virðist vera almennur áhugi á því. Gunnar Knudsen, formaður danska hand- knattleikssambandsins, benti á í því sambandi að Danir hefðu ekki leik- ið „afvöru“ landsleiki í Danmörku síðan á.HM 1978. Danir og Þjóðveijar hafa sýnt áhuga á að halda fyrstu úrslita- keppnina 1994 og telja Danir sig 'hafa pálmann í höndunum, en Gunnar Gunnarsson sagði að ekk- ert hefði enn verið rætt formlega um staðarval. Sjö „alvöru“ landsleikir á íslandi frá 1950 HANDKNATTLEIKSUNNENDURfágnafyrirhugaðri Evrópu- keppni landsliða í handknattleik, sem yrði með svipuðu sniði og EM í knattspyrnu - leikið heima og heiman. Það eru nú liðin fimmtán ár síðan íslenska landsliðið í handknattleik lék landsleik í Reykjavík, sem hafði einhverja þýðingu — það var leikur gegn Júgóslövum 1975 í undankeppni fyrir Ólympíuleik- ana í Montreal 1976. KNATTSPYRNA Fer Carne- vale til Englands? Áfrýjun vegna eins árs banns hans vísað frá í Róm etta verður erfitt ár, en ég var búinn að undirbúa mig l'yrir að áfrýjun okkar yrði vísað frá,“ sagði ítalski landsliðsmaðurinn Andrea Carnevale, leikmaður með Róm, eftir að eins árs keppnisbann hans var staðfest fyrir dómi í Róm í gær. Carnevale og félagi hans Angelo Peruzzi voru á dögunum dæmdir í eins árs keppnisbann fyr- ir að hafa fallið í tvígang á lyíja- prófi. Carnevaie getur því ekki leikið knattspyrnu á Italíu í ár og eru uppi raddir um að hann fari til Englands og gerist leikmaður með Manchester United eða Arsenal, en blöð í Englandi hafa sagt frá því. „Það er ótímabært að ræða um þetta,“ sagði Carnevale, þegar hann var spurður um þennan möguleika. Camevale, sem er 29 ára, lék sem framheiji í landsliði Ítalíu í HM sl. sumar. Pemzzi er 21 árs markvörð- ur. Róma verður að greiða 7,3 millj. kr. ísl. í skaðabætur vegna málsins, sem kom upp eftir að Róma vann Bari, 1:0, með marki Camev- ale 23. september. Ólafur H. Jónsson var fyrirliði íslenska iandsliðsins í síðasta „ai- vöru“ landsleiknum — gegn Júgó- slavíu 18. desember 1975. ísland tapaði 24:18 og Ólafur var besti maður Isiands. Hann var einnig markahæstur með fimm mörk og hér er eitt þeirra í uppsiglingu. Ísland hefur leikið hátt í 600 landsleiki. Af þeim hafa aðeins verið leiknir sjö leikir á íslandi, sem einhveiju máli hafa skipt - leikir í undankeppni HM eða ÓL. Aðrir leikir sem hafa farið hér fram hafa verið æfinga- eða vin- áttuleikir, sem hafa enga þýðingu haft nema æfingu fyrir landsliðs- menn hverju sinni. ísland lék fyrst landsleik 1950 — í Svíþjóð, en fyrsti landsleikur- inn sem fór fram á íslandi var leikinn á Keflavíkurflugvelli 1964. Fyrstu alvörulandsleikirnir voru leiknir í Reykjavík 1966. Það voru leikir gegn Pólveijum og Dönum í undankeppninni fyrir HM í Svíþjóð 1967. Næsti alvöru- leikur var síðan leikinn 1969 gegn Austurríkismönnum — í undan- keppni HM í Frakklandi 1970. Þá voru leiknir tveir leikir 1973 í undankeppni HM í A-Þýskalandi 1974 — gegn Itölum og Frökkum. Síðustu alvöruleikirnir fóru fram í Reykjavík 1975, en þá var leikið gegn Lúxemborg og Júgóslavíu í undankeppni Ólympíuleikanna í Montreal 1976. Handkattleiksunnendur hafa því þurft að bíða lengi eftir að landsleikur, sem skipti einhveiju máli í mótum, færi fram á íslandi. INIorður- landa- þingá Islandi Norðurlandaþing forystumanna í handknattleik verður haldið á íslandi í maí nk. Um verður að ræða vinnuþing, sem kemur í stað ýmissa funda og er þetta í fyrsta sinn, sem þessi háttur verður hafð- ur á. Gert er ráð fyrir að um 10 fulltrúar komi frá hveiju landi. Þar á meðal verða formenn viðkomandi sambanda og framkvæmdastjórar, formenn helstu nefnda, einn lands- liðsmaður frá hveiju landi og ein landsliðskona. ÍÞRÚmR FOLX ■ COLIN Harvey hefur verið sagt upp eftir fjórtán ára starf sem framkvæmdastjóri Everton. Stjórnarformaður liðsins, Philip Carter sagði að liðið þakkaði Harv- ey vel unnin störf en árangurinn síðustu vikur væri óviðunandi.J- immy Gabriel, aðstoðarmaður Harveys, stjórnar Iiðinu til bráða- birgða. ■ JOHN Harkes, bandaríski landsliðsmaðurinn í knattspyrnu sem lék á HM á ítaliu, hefur skrif- að undir samning við Sheffield Wednesday í 2. deildinni í vetur. Harkes, sem er 23 ára og hefur leikið 37 landsleiki fyrir Banda- rikin, mun leika út þetta keppn- istímabil með Wednesday. Hann er níundi leikmaður landsliðsins sem leikur með evrópsku liði. Hinir eru: Tony Meola er markvörður hjá Watford, Tab Amos leikur með Figueras í spænsku 2. deildinni, John Doyle og Hugo Perez báðir hjá Ögryte í Svíþjóð, Paul Calig- iuri hjá Hansa Rostock í Þýska- landi, Steve Trittschuh hjá Sparta Prag í Tékkóslóvakíu og Phillip Gyau hjá Genk í Belgíu. ■ KURT Wadmark sagði af sér sem formaður tækninefndar IHF á þinginu á Madeira, en Svíinn hefur ráðið ferðinni undanfarna áratugi. Hann hætti einnig í stjórn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.