Morgunblaðið - 10.11.1990, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1990
15
Skóla-
smiðja í
eðlisfræði
SKÓLASMIÐJA í eðlisfræði
heldur fræðslufund nk. þriðju-
dag, 13. nóvember, kl. 16-18 í
eðlisfræðistofu Kennaraháskóla
íslands. Skólasmiðjan er sam-
starfsverkefni Eðlisfræðifélags
Islands, Félags raungreinakenn-
ara, Háskóia Islands og Kennara-
háskóla Islands sem hefur það
meginmarkmið að styrkja
kennslu í eðlisfræði í grunn- og
framhaldsskólum.
Dagskrá fundarins er þessi: 1.
Þorsteinn Sigfússon prófessor,
formaður^ Eðlisfræðifélags íslands
og Þórir Ólafsson prófessor, stjórn-
arformaður Skólasmiðjunnar, skýra
frá stofnun og fyrirhugaðri starf-
semi Skólasmiðjunnar. 2. Páll Theó-
dórsson eðlisfræðingur á Raunvís-
indastofnun Háskólans segir frá
árangri af þróun kennslutækja við
stofnunina. 3. Kynnt verða ýmis
tölvutengd mælitæki, m.a. frá
Námsgagnastofnun, til notkunar í
verklegri kennslu.
Fundurinn er ætlaður eðlisfræði-
kennurum í grunn- og framhalds-
skólum en annað áhugafólk um
eðlisfræðikennslu er velkomið.
(Fréttatilkynning)
Spáð fyrir
vetri
Hnausum.
GAMLA bændasamfélagið ein-
kenndist af óöryggi. Islenski vet-
urinn hefur alltaf verið mislynd-
ur með afbrigðum. Aður var hey-
fengur yfirleitt það lítill að
bregða mátti til beggja vona að
hann dygði. Harðindi og kuldi
gat einnig þrengt að fólkinu. Það
var því ómetanlegt ef hægt var
að sjá fram í tímann og vita
hvernig veturinn yrði. Að skoða
garnirnar í þeirri kind sem fyrst
var slátrað að hausti þótti mörg-
um sjálfsagt. Átti mönnum þá að
gefast sýn til þess vetrar sem
framundan var.
Ég talaði við einn af meiri spám-
mönnunum hér sem ég hef fyrr leit-
að til fyrir Morgunblaðið, og þessi
var úrskurðurinn: Tíð verður góð
þar til í febrúar, þá kemur snjóa-
kafli fram í mars, svo verður ruslu-
tíð á einmánuði, sem nær fram á
sumarið. Svo mörg voru þau orð,
og það merkilega er að þessi spá-
dómur mun mjög álíka og sá hjá
skagfirsku frúnni sem kom fram í
Rás 2, og vissi þó hvorugt af öðru.
Að baki þessú er rammasta
heiðni.
Vilhjálmur
REX
skrifstofuh úsgögn
fyrir heimilið
og fyrirtækið
SMIÐJUVEGI9, KÓPA VOGI,
SÍMI 43500.
Prófkjör í Reykjaneskjördæmi
Tryggjum áfram-
haldandi störf
Hreggviðs
Jónssonar
á Alþingi.
Sjálfstæðisflokkurinn þarf
reynda og trausta þingmenn.
Stuðningsmenn.
Nýja BAMBO baby-soft buxnableyjan er meira samanþjöppuð
og tekur þess vegna minna pláss í hillunum.
Fjórar mismunandi stærðir, .sem spanna allt bleyjutímaþil
barnanna eru til. MAXI stærðin er síðan sérhönnuð í tvær
gerðir: Ein fyrir stelpur og ein fyrir stráka.
<
(f)
<
RÉTT FJÁRFESTING - A RÉTTUM TIMA
Nú í lok skattársins er rétti tíminn fyrir bændur til að huga að
fjárfestingu í atvinnutækjum.
Massey Ferguson eru mest seldu dráttarvélarnar frá Vestur-Evrópu hérlendis
enda hafa þær þjónað íslenskum bændum í hartnær hálfa öld. Fjórði hver bóndi
sem keypti dráttarvél á þessu ári valdi Massey Ferguson.
Við bjóðum þrjár meginlínur í Massey
Ferguson vélum.
- L í N A N
Einfaldar vélar sem hafa enst frábærlega
vel.
300-LÍNAN
Mjög vandaðar dráttarvélar, sem hafa
sannað ágæti sitt við erfiðar aðstæður.
Þetta er mest selda Vestur-Evrópu dráttar-
vélin á íslandi.
3000-LÍNAN
Hágæða dráttarvélar, búnar allri hátækni
sem á annað borð nýtist í dráttarvélum.
Innan þessara meginflokka er svo hægt að
velja um hestaflafjölda og margskonar
aukabúnað.
Allar þessar vélar eiga margt sameiginlegt
• Þær eru úrvals verkfæri, þar sem er
hugsað fyrir notagildi, öryggi og
þægindi í starfi.
• Varahluta- og viðgerðarþjónusta eru
viðurkenndar.
• Greiðslukjörin eru þau bestu á
markaðnum.
• Endursöluverð er mjög hátt og sala nær
örugg.
Láttu JÖTUN og MASSEY- FERGUSON koma til liðs við þig á komandi ári!
HÖFÐABAKKA 9
M lés 0fy
112 REYKJAVÍK SÍMI 91 -670000