Morgunblaðið - 10.11.1990, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 10.11.1990, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1990 Opið bréf * til stjórnar Sinfóníuhljómsveitar Islands eftir Hjálmar H. Ragnarsson Auglýsing Sinfóníuhljómsveitar íslands um starf framkvæmdastjóra hefur vakið athygli stjórnar Tón- skáldafélags íslands. I auglýsing- unni er þess getið að umsækjandi þurfi „að hafa menntun og reynslu á sviði stjórnunar og fjármála". Önnur skilyrði, t.d. varðandi reynslu og kunnáttu á sviði tónlistar, eru ekki tilgreindar í þessari auglýs- ingu. Það er öllum ljóst, sem hafa starfað eitthvað við listir hér á landi, að listir og listastarfsemi eiga og hafa lengi átt undir högg að sækja. Þrátt fyrir nokkuð almennan áhuga á listtím hafa yfirvöld ekki sýnt listastarfemi meiri áhuga en svo, að opinber framlög til .lista á íslandi eru hlutfallslega með þeim Hjálmar H. Ragnarsson lægstu sem þekkjast í hinum vest- ræna menningarheimi. Þessa hefur Sinfóníuhljómsveit Islands mátt gjalda. Síðustu ár hafa stjórnvöld í síauknum mæli skorast undan þeirri ábyrgð að útvega nægilegt fé til reksturs stofnana eins og Sin- fóníuhljómsveitar íslands og þess í stað vísað þeim á gullkálfa einka- geirans til fjármögnunar á starf- semi sinni. Samfara þessari þróun hefur sá hugsunarháttur náð auk- inni útbreiðslu, að best sé að fela sérfræðingum á sviði fjármálavið- skipta yfirstjórn listastofnana. Af auglýsingu Sinfóníuhljómsveitar Is- lands um starf framkvæmdastjóra að dæma þá hefur þessi hugsana- háttur náð tangarhaldi á stjórn hljómsveitarinnar. Sinfóníuhljómsveit íslands er ekki einkafyrirtæki, sem hefur þann tilgang að skila eigendum sínum „Sinfóníuhljómsveit ís- lands er fyrst og fremst samfélag listamanna með háleit listræn markmið. Fram- kvæmdasljóri hljóm- sveitarinnar þarf auð- vitað að skilja þessi markmið ef þau eiga að nást.“ flárhagslegum gróða, né heldur venjuleg ríkisstofnun, sem gegnir þjónustuhlutverki á einhveiju ákveðnu sviði. Sinfóníuhljómsveit íslands er fyrst og fremst samfélag listamanna með háleit listræn markmið. Framkvæmdastjóri hljómsveitarinnar þarf auðvitað að skilja þessi markmið ef þau eiga að nást, og hann þarf að búa yfir a.m.k. neista af því báli sem knýr listafólkið áfram í sinni listrænu sköpun. Framkvæmdastjórinn er í fjölmörgum tilfellum andlit hljóm- sveitarinnar út á við og sem slíkur þarf hann að geta aflað hljómsveit- inni velvildar á meðal almennings og meðal ráðamanna þjóðarinnar. Það getur hann ekki nema að hann búi yfir sannfæringarkrafti og út- geislun og að hann hafi hlotið ótví- ræða viðurkenningu sem listamaður og sem forystumaður í menning- arlífi landsmanna. Þá þarf fram- kvæmdastjórinn að hafa afdráttar- lausa stefnu hvað varðar hlutverk hljómsveitarinnar í íslensku menn- ingarsamfélagi og hann þarf að hafa skýrar hugmyndir um það hvernig hljómsveitin megi í meiri mæli en nú er ná til þeirra kynslóða sem nú vaxa úr grasi. Stefnuleysi býður hættunni heim og ef heldur áfram sem horfir má búast við því, að hljómsveitin einangrist enn frek- ar frá fólkinu í landinu og í kjölfar- ið fari pólitískur vilji fyrir rekstri hennar dvínandi. Hljómsveitin þarf að snúa vörn í sókn, en það gerir hún ekki nema undir forystu dugmikils fram- kvæmdastjóra, sem hefur metnað fyrir hönd hljómsveitarinnar og getu til þess að fylgja hugsjónum sínum eftir. Hvort framkvæmda- stjórinn hefur víðtæka reynslu á sviði ijármála eður ei er ekki aðalat- riði. Við hlið framkvæmdastjórans gæti einfaldlega starfað fjármála- stjóri, sem hefði það hlutverk að sjá um flármál hljómsveitarinnar frá degi til dags og veita fram- kvæmdastjóranum og stjórn hljóm- sveitarinnar aðstoð og leiðbeiningar varðandi þá þætti í rekstrinum sem lúta að Ijármálum. Æskilegast væri, að framkvæmdastjórinn hefði sjálfur til þess vald að velja mann í embætti fjármálastjóra því að þá yrðu meiri möguleikar á því en ella að þessir tveir menn gætu starfað saman í sátt og samlyndi að fram- gangi hljómsveitarinnar. Að lokum þetta: Auglýsing Sin- fóníuhljómsveitar Islands um starf framkvæmdastjóra er byggð á þeirri tálsýn, að einhver sérfræðing- ur á sviði fésýslu geti veitt hljóm- sveitinni þá styrku forystu, sem henni er nauðsynleg ef hún í fram- tíðinni á að dafna og vaxa af verk- um sínum. Stjórn Tónskáldafélags íslands varar við þessari tálsýn og skorar á fulltrúa í stjórn hjómsveit- arinnar að þeir endurskoði þá af- stöðu sem birtist í umræddri aug- lýsingu. Reykjavík 2. nóvember 1990. Höfundur er fornm ður Tónskáldafélags íslands. PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS í REYKJANESKJÖRDÆMI Reynsla í stjórnmálum, vandvirkni og ósérhlífni eru kostir sem prýða Salome Porkelsdóttur. Með störfum sínum á Alþingi íslendinga hefur hún sannað að hún er traustsins verð. Við kunnum að meta verk hennar og í prófkjörinu 10. nóvember setjum við Salome í 2. sætiö Þengill Oddsson heilsugæslulæknir Reykjalundi Kristján Oddsson bónai Kjósarhreppi Jón Bjarni Þorsteinsson heilsugæslulæknir Garðabæ Ólína Ragnarsdóttir frkvstj. öldrunarráðs Grindavík Jónína Guðmundsdóttir kennari Keflavík Magnús Sigsteinsson forseti bæjarstjómar Mosfellsbæ Hildur Axelsdóttir fóstra Kjósarhreppi Magnús Erlendsson framkvæmdastjóri Seltjamarnesi Björgvin Lúthersson stöðvarstjóri Hafnarhreppi Tómas Tómasson sparisjóðsstjóri Keflavík Þórdís Sigurðardóttir skrifstofustjóri Mosfellsbæ Halldór Jónsson verkfræðingur Kópavogi Áslaug Harðardóttir skrifstofustjóri Seltjarnarnesi Halldór Guðmundsson framkvæmdastjóri Njarðvík Sigurður Bjarnason hafnarstjóri Sandgerði Helga Richter kennari Mosfellsbæ Birna Friðriksdóttir bæjarfulltrúi Kópavogi Árni Grétar Finnsson hrl. Hafnarfirði Sigríður Aðalsteinsdóttir husmóðir Njarðvík Halldóra Ingibjörnsdóttii kennari Sandgerði Sigríður K. Jónsdóttir hjúkranarfræðingur Kjalarneshreppi Kristín Guðnadóttir fóstra Kópavogi Valgerður Sigurðardóttir fiskverkandi Hafnarfirði Sigurður Valur Ásbjamarson sveitarstjóri Bessastaðahreppi Sigrún Oddsdóttir husmóðir Garði Bjöm Jónsson bóndi Kjalarneshreppi Sigrún Gísladóttir skólastjóri Garðabæ Eðvarð Júlíusson forstjóri Grindavík Erla Sigurjónsdóttir fyrrv. oddviti Bessastaðahrepps Helga Ragnarsdóttir nemi Vogum Tlutasicr Heílsuvörur nútímafólks

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.