Morgunblaðið - 10.11.1990, Page 17

Morgunblaðið - 10.11.1990, Page 17
17 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1990 IAÍkjaran æL tw ispOHDiifiooyr SlÐUMÚLA 14 SÍMI (91) 83022 Gœði og þjónusta Linocolor er framleitt af Forbo-Krommenie Marmoleum® Plain Linoleum® Linocolor® Nuance® Linoflex® DeskTop® Bulletin Board® Corkment® Atlagan að kirkjunni eftir Birgi ísleif Gunnarsson Enn einu sinni hefur Ólafur Ragnar Grímsson, fjármálaráð- herra, rofið einhliða gerða samn- inga. í þetta sinn er það kirkjan sem verður fyrir barðinu á honum. Á sama tíma tekur hann sér orðið siðferði í munn í tengslum við þetta mál. Hann er þó ekki einn á ferð hér því að öll ríkisstjórnin, allir hin- ir ráðherrarnir, bera þarna ábyrgð. Um hvað snýst málið? Þótt mikið hafi verið ijallað um málið opinberlega er rétt að rifja upp um hvað málið snýst. Um lang- an tíma voru tekjur kirkna ákveðinn persónuskattur sem lagður var á alla þjóðkirkjumenn á aldrinum 16-67 ára. Tekjur þessar nægðu illa og eftir miklar umráeður voru sett ný lög um sóknargjöld sem tóku gildi 1. janúar 1986. Persónu- skatturinn var lagður af en sóknar- gjaldið ákveðið 0,20-0,40% af út- svarsstofni hvers gjaldanda. Síðan var heimild til að tvöfalda þessi gjöld ef tekjur hrykkju ekki fyrir nauðsynlegum útgjöldum. „Taka á hluta af inn- heimtum sóknargjöld- um og setja beint í ríkis- sjóð. Þessar sértekjur kirkjunnar eiga nú að fara í ríkissjóðshítina. Þetta er annað árið í röð sem höggvið er í þennan knérunn.“ Þessar breytingar bættu veru- lega fjárhag kirkjunnar. Þegar lög- in um staðgreiðslu voru samþykkt þótti nauðsynlegt að fella þessi gjöld inn í staðgreiðsluna, eins og gert var um önnur sérstök gjöld. Þetta átti við um útsvar sveitarfé- laga, sjúkratryggingargjald, gjald til Framkvæmdasjóðs aldraðra, sóknargjöld og kirkjugarðsgjald. Samkomulag gert Að því er sóknargjöldin snertir var ákveðið að ríkissjóður skyldi „skila 15. hvers mánaðar af óskipt- um tekjuskatti fjárhæð er rennur til þjóðkirkjusafnaða, skráðra trúfé- laga og Háskóla íslands". Gjald þetta átti að breytast í samræmi við hækkun á tekjuskattstofni ein- staklinga og var þannig verðtryggt. Um þetta var gert samkomulag milli fjármálaráðuneytis, kirkju- málaráðuneytis og þjóðkirkjunnar. Alþingi lögfesti þetta fyrirkomulag og var þingmönnum að sjálfsögðu öllum ljóst á hvaða samkomulags- grundvelli þessi lagasetning byggð- ist. OPIÐ LAU Minningarat- höfn um fallna hermenn í Fossvogs- kirkjugarði HIN árlega minningarathöfn um fallna hermenn breska samveld- isins verður haldin sunnudaginn 11. nóvember við hermannagraf- reitinn í Fossvogskirkjugarði og hefst athöfnin að venju kl. 10.45. Þarna gefst fólki tækifæri til að heiðra minningu þeirra milljóna manna sem í gegnum árin hafa látið lífíð í þágu friðar og frelsis. Séra Arngrímur Jónsson stjórnar minningarathöfninni og öllum er velkomið að taka þátt i henni. Flugvél úr konunglega breska flughernum mun fljúga yfir kirkju- garðinn kl. 10.55 til heiðurs hinum föllnu. í hermannagrafreit breska sam- veldisins í Fossvogskirkjugarði eru grafir 128 breskra hermanna og 84 grafir hermanna frá öðrum lönd- um, þar á meðal 47 Kanadamenn Og 5 Ástralir. (Frcttatilkynning) KL. 10-13 LINOCOLOR er endingargóður gólf- dúkur sem unninn er úr hreinum náttúruefnum og stafar frá sér hlýju og mýkt. LINOCOLOR fæst í miklu úrvali mildra, nýtískulegra lita. LINOCOLOR er á mjög góðu verði. Lítið iiun! SIGGEIRSS0N Hesthálsi 2 - 4 Birgir ísleifur Gunnarsson Samkomulagið rofið í ijárlögum og lánstjárlögum er nú boðið að ekki skuli staðið við þetta samkomulag. Taka á hluta af innheimtum sóknargjöldum og setja beint í ríkissjóð. Þessar sér- tekjur kirkjunnar eiga nú að fara í ríkissjóðshítina. Þetta er annað árið í röð sem höggvið er í þennan knérunn. Flestir töldu að á síðast- liðnu ári væri hér eingöngu gripið til þess ráðs í eitt skipti, en ljóst er að fjármálaráðherra ætlar að ganga á gerða samninga til fram- búðar. Þessu er kirkjan nú að mótmæla. Á Alþingi hljóta þessi mál að kotna til ítarlegrar umræðu í tengslum við afgreiðslu fjárlaga. Jafnframt er nauðsynlegt að íhuga hvort ekki er hægt að ganga betur frá hnútun- um í löggjöfinni, þannig að fjár- málaráðherra sé ekki unnt á þennan hátt að seilast í peninga kirkjunn- ar. I þessu máli mun reyna á hug alþingismanna til kirkjunnar. Höfundur er einn a f alþingismönnum Sjálfstæðisflokksins fyrir Keykjaneskjördæmi. OCOLOR GÓLFDÚKUR SEM KLÆÐIR HEIMILIÞHT VEL

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.