Morgunblaðið - 10.11.1990, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1990
29
Ábendlngar frá
LÖQREQLUNNI:
Seinkun ökuréttinda
í reglugerð um ökukennslu, próf ökumanna og fleira er
lögreglustjóra meðal annars veitt heimild til að hafna
umsækjanda um próftöku ef hann á síðastliðnum 12 mánuð-
um hefur hlotið refsingu fyrir ölvun.
Lögreglustjóri hefur norfært sér þessa heimild þegar um er
að ræða ölvun við akstur, þ.e. er viðkomandi hefur verið stað-
inn að ölvunarakstri áður en hann sækir um leyfi til próftöku.
Þannig hefur mörgu ungmenningu komið mjög á óvart þegar
fyrri syndir eru rifjaðar upp og jumsókn um ökupróf hafnað á
grundvelli þeirra.
Mikilvægt er að ungt fólk geri sér frein fyrir þessum þætti,
svo og öðrum sem áhrif geta haft rétt til að öðlast ökuréttindi.
Verkalýðsfélög mótmæla
vaxtahækkun Islandsbanka
Framsókn átelur viðbrögð Dag'sbrúnar
VERKAKVENNAFÉLAGIÐ Framsókn og Félag járniðnaðarmanna
mótmæla vaxtaiiækkun Islandsbanka í ályktunum stjórna félaganna,
sem borizt hafa Morgunblaðinu. Verkakvennafélagið Framsókn átel-
ur þó viðbrögð Dagsbrúnar við vaxtahækkuninni.
„Stjórnin lítur þó svo á að við-
brögð verkalýðsfélaga, sem fela í
sér að þau dragi sig út úr bankan-
um, séu í eðli sínu neikvæð og
verkalýðshreyfingin hljóti þvert á
móti að leggja lið þeirri hagræðingu
í bankakerfinu sem hrundið var af
stað með Islandsbanka og verka-
lýðshreyfingin átti þátt í að stofna
til,“ segir í ályktun stjórnar Fram-
sóknar.
í ályktun málmiðnaðarmanna
segir: „Sú hækkun nafnvaxta sem
bankarnir eru með í undirbúningi
og komin er til framkvæmda að
hluta til hjá íslandsbanka byggir
m.a. á þeim litlu launabreytingum,
sem kjarasamningar gera ráð fyrir.
Með óbreyttri lánskjaravísitölu
Tnun t.d. 5% launahækkun leiða
sjálfkrafa til ca. 2,5% hækkunar á
lánskjaravísitölu og þar með hækk-
unar á nafnvöxtum.
Með kjarasamningunum í febr'ú-
ar hafa skapazt forsendur og nauð-
syn til að stöðva sjálfvirkar vaxta-
hækkanir vegna þeirra launabreyt-
inga sem samningurinn gerir ráð
fyrir.
Stjórn Félags járniðnaðarmanria
telur brýnt að niðurstaða fáist sem
fyrsts um afnám eða breytingar á
iánskjaravísitölu sem rjúfi bein
tengsl vaxtahækkana við kaup-
hækkanir ásamt lækkun raunvaxta
og minnir á yfirlýsingar ríkisstjórn-
arinnar í þeim efnum.
Kyrrðardag-
ar í Skálholti
SKÁLHOLTSSKÓLI gengst fyrir
kyrrðardögum 30. nóvember til
2. desember.
Kyrrðardagar eru öllum opnir og
henta þeim, sem lifa annasömu lífi,
leita slökunar og vilja rækta sinn
innri mann. Hrynjandi dags er líkt
og í klaustri. Þátttakendur hverfa frá
skarkala hversdagslífsins og ganga
á vit íhugunar, þagnar og tíðagjörða.
Sigurbjörn Einarsson biskup mun
miðla af trú sinni og hugsun á íhug-
arstundum og auk þess ræða við þá
sem óska samtala. Skráning fer fram
á Biskupsstofu í Reykjavík.
(Fréttatilkynning)
Rangt stöðuheiti
„Hver tekur kverkatak, Finnur?"
nefndist grein eftir Rannveigu
Guðnadóttur sem birtist í Morgun-
blaðinu sl. fimmtudag. Þar misritað-
ist stöðuheiti hennar. Rannveig er
hjúkrunarfræðslustjóri FSA. Hlutað-
eigendur eru beðnir velvirðingar á
mistökunum.
Leiðrétting
í frétt Morgunblaðsins í gær um
Kirkjuþingið var rangt farið með að
aðeins einn sóknarprestur í
Reykjavík hafi verið kosinn í ráðið.
Rétt er að Jón Þorvarðarson fyrrver-
andi sóknarprestur í Háteigs-
prestakalli var í ráðinu frá 1954-
1970. Morgunblaðið biðst velvirðing-
ar á þessum mistökum.
HELSTU SÖLUSTAÐIR:
Amaro, Akureyri • Embla, Hafnarfirði •
Fell, Mosfellsbæ • H. búðin, Garðabæ •
Kaupstaður I Mjódd • KF.Þ. Húsavik •
KF.VH. Hvammstanga • KF.H. Egilsstöðum
• Mikligarður v. Sund •
Perla, Akranesi • Rut, Glæsibæ/Kópavogi
• Vöruhús KÁ, Selfossi
Schiesser®
HEIMSENDI
Ný, glæsileg hesthús til afhendingar nú í haust
|fH#^ Verð á fullbúnu húsi að utan með taðþró, gerði, lögnum og steyptri stétt.
6-7 hesta hús með hlöðu 10-12 hesta hús með hlöðu 22-24 hesta hús með hlöðu 1.347.000 kr. stgr. 2.432.000 kr. stgr. . 4.865.000 kr. stgr. Einnig er hægt að fá húsin fulibúin með kaffistofu, salerni og vönduðum innréttingum.
ATH! Endurgreiddur er 19.68% virðisaukaskattur af hesthúsum fyrir atvinnustarfsemi
Hagstæðir greiðsluskilmálar t.d. 100.000 kr. útborgun og eftirstöðvar á skuldabréfi til allt að 5 ára.
Hesthúsin og sameiginleg svæði eru hönnuð og byggð af sama aðila. Byggðin er því í senn
samræmd og glæsileg. Verðgildi húsanna mun því að öllum líkindum verða hærra en gerist
annars staðar í framtíðinni. Hesthús á Heimsenda er góð fjárfesting,
Allar upplýsingar og teikningar á söluskrifstofu
SH VERKTAKA, sími 652221.
Sýning á laugardag og sunnudag kl. 14 -17. Ailir velkomnir.
Heimsendi er á milli Kjóavalla og Víðidals í landi Vatnsenda.
SH VERKTAKAR
SÖLUSKRIFSTOFA STAPAHRAUNI4, HAFNARFIRÐI, SÍMI 652221