Morgunblaðið - 10.11.1990, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1990
Opið bréf til fjármálaráðherra og
_J)ingmanna Reykjaneskjördæmis
Með bréfi þessu vill safnaðar-
stjórn Fríkirkjunnar í Hafnarfirði
koma á framfæri mótmælum við
fyrirhugaða skerðingu á safnaðar-
gjöldum annað árið í röð.
Þar sem nokkur umræða hefur
nú þegar átt sér stað um þetta mál
í fjölmiðlum og fríkirkjusöfnuðirnir
hafa nokkra sérstöðu í þessu máli
viljum við koma eftirfarandi stað-
reyndum á framfæri.
í Fríkirkjusöfnuðinum í Hafnar-
firði eru nú á þriðja þúsund manns
og hefur fjölgað verulega síðustu
árin. Söfnuðurinn starfar á sama
kenningargrundvelli og Þjóðkirkjan
en sérstaða hans er sú að söfnuður-
inn þarf einn og óstuddur að standa
straum af öllum kostnaði. Eini
stuðningur ríkisvaldsins er sá að
taka að sér innheimtu safnaðar-
gjaldanna skv. lögum sem Alþingi
hefur settt. Ekkert annað en þessa
aðstoð þiggur söfnuðurinn af ríkis-
valdinu og hefur aldrei farið fram
á neinn stuðning.
Það vekur því undrun að ríkis-
valdið sem sannarlega á ekkert inni
hjá okkar söfnuði skuli nú hafa
tekið um það ákvörðun að skila
-*kki til safnaðarins öllum þeim
gjöldum sem Alþingi hefur með lög-
um nr. 91 frá 1987 falið fram-
kvæmdavaldinu að innheimta fyrir
söfnuðinn. Að fengnu áliti sérfróðra
aðila er það skoðun okkar að með
fjárlögum sé ekki hægt að breyta
ákvæðum eldri laga og því sé um-
rædd skerðing 'ekki byggð á laga-
legum grunni.
I þessu sambandi er rétt að taka
fram að við samningu þessara laga
sem nú eru í gildi um sóknargjöld
»jUtu fríkirkjusöfnuðurinn engan
Tulltrúa í undirbúningsnefnd og
álits okkar á niðurstöðum í engu
leitað. Slíkt er auðvitað áhyggjuefni
í lýðræðisþjóðfélagi þar sem allir
eiga að standa jafnir gagnvart lög-
gjafanum. Við erum hins vegar
ekki vön því í þessum söfnuði að
hafa hátt þótt við teljum fram hjá
okkur gengið enda vorum við líka
sátt við þá niðurstöðu sem birtist í
hinum nýju lögum um sóknargjöld
og töldum að hún myndi tryggja
áframhaldandi uppbyggingarstarf.
í samræmi við þessi lög höfum við
líka aukið okkar þjónustu sem
margir aðrir en safnaðarfólkið
sjálft nýtur. Þannig er prestur safn-
aðarins nú kominn í fullt starf hjá
söfnuðinum en áður leyfði fjárhags-
leg geta aðeins að starfið væri hál-
flaunað. Annar starfsmaður til er
að auki kominn í hlutastarf hjá
söfnuðinum.
Mannahald segir þó ekki allt um
það hvernig þokasí hefur til réttrar
áttar í starfi og þjónustu. A það
má hins vegar benda hve margir
þeir eru sem njóta og þeim fer fjölg-
andi. Sem dæmi má nefna að á
einni viku hafa þeir verið meira en
fimm hundruð sem átt hafa leið til
kirkjunnar eða í safnaðarheimili til
þátttöku í guðsþjónustum, barna-
starfi, starfi aldraðra að ekki sé nú
minnst á þann þátt sem sjaldan fer
hátt, sálgæsluna sjálfa.
Það er hins vegar ekki ætlun
okkar að fara að réttlæta starf
okkar frammi fyrir ráðamönnum
þótt viðbrögð fjármálaráðherra við
athugasemdum biskupsins okkar
hafi gefið tilefni til slíks. Sem full-
trúum fríkirkjusafnaðar ber okkur
aðeins að gera slíkt á safnaðarfund-
um. En jafnframt ber okkur líka
sem fulltrúum þessa safnaðar að
veija málefni hans og réttindi og
það er tilefni þessara skrifa til þing-
manna og ráðherra.
Já, til þingmanna Reykjaneskjör-
dæmis viljum við sérstaklega beina
þessum skrifum. Það er þeirra að
standa vörð um réttindi okkar sem
búum hér í kjördæminu og það er
líka þeirra að standa vörð um þau
lög sem þeir sjálfir setja og fylgjast
með því að þeim sé framfylgt.
Með þá von í huga að þeir taki
þetta mál upp á Alþingi biðjum við
þeim sem og öðrum ráðamönnum
blessunar í starfi.
F.h. Fríkirkjusafnaðarins i Hafn-
arfirði:
Sigurður Kristinsson,
Boði Björnsson,
Jóhannes Einarsson,
Auður Kristinsdóttir,
Gísli Jónsson,
Gunnar Linnet,
Kristbjörg Guðmundsdóttir,
Jón. 01. Bjarnason,
Guðrún Harðardóttir,
Hreiðar Sigurjónsson.
Verkalýðsfélag Stykkishólms:
Úrbætur í atvinnumál-
um forgangsverkefni
Stykkishólmi.
Verkalýðsfélag Stykkjshólms hefur undanfarið haldið fundi um
atvinnumál bæjarins. í samþykkt eins fundarins segir meðal ann-
Nú er farið að líða verulega á
árið 1990 og er það með verri
árum í atvinnusögu Stykkishólms
miðað við allt árið en þetta ár
hefur skráð atvinnuleysi verið
nokkuð hér. Einnig og jafnframt
því er tekjuminnkun hjá því fólki
sem er á almennum vinnumark-
aði. Erfiðleikar fyrirtækja, rýrari
vertíð, afli fluttur á fiskmarkað
úr byggðarlaginu ásamt fleiri
þáttum er orsök atvinnuleysisins
hér að áliti Verkalýðsfélagsins.
Verkalýðsfélagið skorar á bæj-
arstjórn Stykkishólms að hafa að
forgangsverkefni úrbætur í at-
vinnumálum þannig að allir hafi
vinnu við sitt hæfi. Félagið leggur
þunga áherslu á að fiskkvóti
Stykkishólmsbáta verði veiddur
af þeim og unninn hér á staðnum.
Verkalýðsfélagið er tilbúið til sam-
starfs eins og fyrr eftir því sem
það mögulega getur. - Arni
MOTTUR
Blóm vikunnar
Umsjón: Ágústa Björnsdóttir
190 þáttur
Þegar ég var við garðyrkjunám í
Noregi, ung að árum, vorum við lát-
in binda ósköpin öll af motturri til
þess að skýla gróðrinum með. Þar
var líka af nógu efni að taka þar sem
hálmurinn var. Bestur til þessara
nota þótti rúghálmur, hann var seig-
ur og molnaði ekki eins fljótt og
bygghálmur.
Einn snjóleysisvetur, áratugum
síðar, fór ég að hugsa um það í al-
vöru að koma mér upp-einhverskonar
mottum til þess að leggja yfir blóma-
beðin til skjóls, en vandinn var mest-
ur að fá hentugt efni í þær. Þá hug-
kvæmdist mér hvort ekki væri reyn-
andi að nota stöngla af brenninetlu,
sem hér var nærtæk, til þess að
binda úr mottur. Ég setti þegar upp
langbönd og fór að binda og gekk
það ágætlega. Síðan hef ég reynt
stöngla af fleiri tegundum: regn-
fangi, randagrasi og meira að segja
af njóla sem víðast hvar er nóg til
af. I motturnar má einnig nota af-
klippur af tijám og runnum, rótar-
sprota og hvers kyns efni sem til
fellur. Til þess að binda með notaði
ég svokölluð „baggabönd", en
hálmmotturnar voru bundnar með
tvöföldu seglgarni.
Mottur hafa marga kosti umfram
annað sem notað er til skjóls. Það
er fljótlegt að breiða þær yfir og
taka þær af. Þær eru það gisnar að
plöntur kafna ekki undir þeim, einn-
ig hlífa þær fyrir sólinni og drag
þannig úr þeirri hættu að jurtinar
komi alltof snemma upp og farist
svo í næsta hreti. Þá má og nota
HLUTAFJAR-
ÚTBOÐI
EIMSKIPS
EIMSKIP þakkar eldri hluthöfum þátttöku í hlutafjár-
útboðinu. Jafnframt býður félagið 1.450 nýja hluthafa
velkomna í hópinn. Hluthafar EIMSKIPS eru núna
um 14.200.
Félagið þakkar Verðbréfamarkaði íslandsbanka hf. og
Fjárfestingarfélagi íslands hf. ágætt samstarf við sölu
hlutabréfanna.
EIMSKIP
IR LOKIÐ
Sölu á nýju hlutafé í
EIMSKIP að nafnverði
86 milljónir króna lauk
5. nóvember sl. Sölu-
verð hlutafjárins nam
477 milljónum króna.
____________Brids______________
Arnór Ragnarsson
Frá Bridsfélagi Hafnarfjarðar
A. Hansen mótið
Mánudaginn 5. nóvember var
spilað þriðja kvöldið af fjórum en
keppninni lýkur mánudaginn 12.
nóvember. Veitt verða vegleg verð-
laun sem gefín eru af veitingahús-
inu A. Hansen í Hafnarfirði. Næsta
mót er aðalsveitakeppnin sem hefst
þann 19.
A-riðill:
Erla Siyurjónsd. - Kristjana Steingrimsd. 126
Ólafur Gíslason - Sigurður Aðalsteinsson 121
Guðbrandur Sigurbergs. - Kristófer Magnús. 118
AnnaÞóraJónsd.-RagnarHermannsson 118
B-riðill:
Ingvarlngvarsson-KristjánHauksson 138
Júlíana Gísladóttir - Jón Gíslason 122
Óðinn Þórarinsson - Sigurjón Harðarson 121
Jón Þorkelsson - Kjartan Jóhannsson 121
Heildarstaðan er þvi þessi:
Guðbrandur Sigurbergs. - Kristófer Magnús. 375
Ólafur Gíslason - Sigurður Aðalsteinsson 353
Anna Þóra Jónsdóttir - Ragnar Hermannsson 352
Frá Bridsfélagi
V estur-Húnvetninga
Hvammstanga
Þann 3. nóvember var haldið 11.
Guðmundarmótið (Guðmundur Kr.
Sigurðsson) og var það í fyrsta
skipti í sögu þess að kona varð
Guðmundarmótsmeistari, en þau
sigruðu með glæsibrag Björk Jóns-
dóttir og Sigfús Steingrímsson,
hlutu 184 stig. Oftast hefur maður
hennar Bjarkar Jónsdóttur, Jón Sig-
urbjörnsson, unnið Guðmundarmót-
in, 4 sinnum, en 2 sinnum hafa
þeir unnið Ásgrímur Sigurbjörns-
son, Þórir Leifsson og Þorsteinn
Pétursson en alls hafa 16 einstakl-
ingar orðið Guðmundarmótsmeist-
arar.
Spilaform barómeter.
1. BjörkJónsd.-SigfúsSteingrimss.Sigluf. 184
2. Anton Haraldsson
-GrettírFrímannsson Akureyri 118
3. Valtýr Jónass. — Baldvin Valtýss. Sigluf. 115
4. SteinarJónss. — Jón Sigurbjömss. Sigluf. 108
5. Gunnar Sveinsson
-IngibergurGuðmundssonSkagastr. 94
6. Erlingur Sverrisson
— Unnar A. Guðmundsson Hvammst. 93
7. Jón Viðar Jónmundsson
— Sveinbjörn Eyjólfsson, Borgarf. 90
30'pör spiluðu, en boðið var spil-
urum frá 10 stöðum frá Akureyri
til Grundarfjarðar. Keppnisstjóri
var Jakob Kristinsson frá Akur-
eyri, en verðlaun voru gefin af
Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga,,
Hvammstanga, og afhenti Gunnar
Sigurðsson kaupfélagsstjóri verð-
launin. Hafin er 5 kvölda aðal-
tvímenningur félagsins, og hægt
er að bæta við pörum og hjálpa til
við að útvega einstaklingum makk-
er en vinsamlegast með fyrirvara..
Bridsfélag kvenna
Nú er 25 umf. af 31 lokið í baró-
meternum og er staða efstu para
þannig:
1. Ólafía Þórðardóttir—Hildur Helgadóttir 211
2. Ingibjörg Halldórsd. — Sigríður Pálsdóttir 210
3. Hrafnhildur Skúladóttir — Kristín ísfeld 150
4. Halla Bergþórsd. — Soffía Theódórsdóttir 145
5. ÓlafíaJónsdóttir-IngunnHoffmann 127
6. Nanna Ágústsdóttir—Júlíana ísebam 124
7. IngunnBernburg-GunnþórunnErlingsd. 123
Mestu skor síðasta kvöld náðu
eftirtalin pör.
Halla Bergþórsdóttir - Soffía Theódórsdóttir 90
2. Ingibjörg Halidórsd. — Sigríður Pálsdóttir 80
3. ÓlafíaÞórðardóttir — Hildur Helgadóttir 64
4. Sigriðurlngibergsd.-JóhannGuðlaugsson 58
5. SigrúnPétursdóttir-GuðrúnJörgensen 48
6. ÞorgerðurÞórarinsd. -Steinþór Asgeirsson 42
7. IngunnBernburg-GunnþórunnErlingsd. 35
Bridsdeild Barðstrendinga
Aðaltvímenningnum lauk með ör-
uggum sigri Kristínar Pálsdóttur og
Vilhelms Lúðvíkssonar en þau hlutu
2105 stig. Hæstu skor í síðustu umferð-
inni fengu hins vegar systurnar Guðrún
og Ágústa Jónsdætur, eða 483 stig,
en það var hæsta skor sem tekin var
í allri keppninni. Annars varð iokaröð
efstu para eftirfarandi:
Kristín Pálsdóttir - Vilhelm Lúðvíksson 2105
Valdimar Sveinss. - Gunnar Bragi Kjartanss. 2006
Friðjón Margeirsson - Einar Torfason 2003
Hannes Ingibergsson - Jónína Halldórsdóttir 1983
Friðbjörn Guðmundsson - Jóhann Lúthersson 1968
Þórarinn Ámason - Gísli Víglundsson 1968
Meðalskor 1820 stig.
Síðastliðinn mánudag hófst hrað-
sveitakeppni með þátttöku Efstu skor hlutu: 19 sveita.
Þórarinn Árnason 575
Sigurður ísaksson 573
Gyifi Ólafsson 567
Björn Árnason 535
Vigfús Gíslason 530
b
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1990
35
[ garðstofu Stellu og Róberts. Myndina tók Ámi Kjartansson.
þær til þess að skýla með snemm-
blómstrandi runnum. Norðmenn
hlífðu þeim með grenigreinum en
þær eru varla fáanlegar hér á landi
til slíkra nota. Fyrir þá sem sæmi-
lega aðstöðu hafa t.d. í bílskúr eða
geymslukjallara er vei þess virði að
reyna við þessa mottugerð.
Herdís Pálsdóttir, Fornhaga.
Því miður höfum við ekki getað
komist yfir glöggar leiðbeingar um
hvernig motturnar eru gerðar, en á
skrifstofu félagsins á Frakkastíg 9,
Reykjavík er hægt að fá ljósrit af
smáteikningu sem e.t.v. gæti komið
að einhveiju gagni.
Róbert Arnfinnsson, leikari, sem
kunnur er fyrir garðyrkjustörf sín
og góða nýtingu á hverskyns úr-
gangi og afklippum, sem víðast hvar
fer forgörðum, batt um langt árabil
mottur og notaði til skjóls með góð-
um árangri. í garðstofu þeirra Steilu
og Róberts var meðfylgjandi mynd
tekin á dögunum og hafa þau hjónin
lánað okkur mottu til að hafa til
sýnis á skrifstofan eropin mánudaga
og fimmtudaga kl. 2—6 og auk þess
á fimmtudagskvöldum kl. 8—10.
LILJA HALLGRIMSDOTTIR
húsmóöir
Prófkjör sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi
Lilju í öruggt sæti
B Y K O
B R E I D D
-riý;::v ." - '' ?■
BAÐIIMNRÉTTINGA
DAGUR
I BYKO BREIDDIIMIMII DAG
AFSLÁTTUR
BARIMAGÆSLA Á STAÐIMUM
OPIÐ FRA Kl_10-14
MJÓDDIN
IDPIN
§