Morgunblaðið - 10.11.1990, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 10.11.1990, Blaðsíða 36
£5 ABALONE ABALONE ABALONE ABALONE MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NOVEMBER 1990 Skátahreyfingin á íslandi: Öryggið er tryggt með áttavita Áttavitinn er góður ferðafélagi hvar og hvernig sem á stendur. Hann hefur bjargað mörgum ferðamanninum frá að villast og verða úti. Hann er ómissandi í hálendisferðum og uppi á jöklum og happadijúgur í dagsferðum Sólin er í suðri á hádegi. Hún kemur upp í austri og sést í VeStrÍ- NOROUR Kirkjur snúa nær alltaf með turninn í vestur en kórinn í austur. nærri byggð. Höfum hugfast að svæði eru misjafnlega villugjörn. Á veturna má oftar en ekki sjá fréttir í fjölmiðlum af ijallamönn- um, sérstak- lega rjúpna- skyttum, sem farið hafa af leið og rammvillst í lélegu skyggni. Með einum litlum áttavita er hins vegar hægt að halda ferðinni áfram og ná heill á húfi á áfangastað. Öryggið er tryggt. Lestu stefnuna á skífunni við aflestrarörina. Ef þú hefur áttavita getur þú fundið norður og snúið kortinu eftir því. RE YN SLUHORNIÐ Sigurður Sigurjónsson leikari „Ég var óbreyttur skáti í mörg ár og í skátunum steig ég mín fyrstu skref í útilegum og útivist. Leið- in lá síðan yfir í Hjálparsveit skáta en þar er ég nú varamaður, svonefndur B-maður. I Hjálparsveitinni var ég mikið jöklafrík. í nokkur sumur lagði ég það í vana minn, ásamt félögum mínum, að ganga upp á að minnsta kosti einn jökul og eru að baki flestall- ir jöklar landsins. Á jöklunum er áttavitinn aðalLekið enda getur þar skollið á þoka og slæmt skyggni líkt og hendi sé veifað. Ég minnist sérstaklega ferðar uppi á Vatnajökli þar sem áttavitinn kom mjög við sögu. Við vorum á Ieið í Grímsvötn og lentum í blinda- þoku. Við ákváðum engu að síður að halda ferðinni áfram með hjálp áttavitans. Eftir fjóra sólarhringa gengum við beint að skálanum í Grímsvötnum. Skyggnið var svo slæmt að það má segja að við höfum ekki séð skálann fyrr en við þreifuðum á honum. Upp frá þessu trúðum við allir blint á áttavi- tann og það skyldu allir gera. Ég hvet alla til að stunda oftar útivist í friðsæili náttúrunni og læra að rata með hjálp áttavita. Góð- ar gönguferðir, hvort heldur dagsferðir eða lengri ferðir, eru allra meina bót.“ Áttavitinn hefur bjargað mörgum frá að villast og verða úti. Hann er ómissandi sportveiðimönnum í fjallaferðum. með hjálp hans. Áttaviti er ferða- félagi sem fer lítið fyrir og ætti alltaf að vera með í för. Hann er margfalt virði þyngdar sinnar — og gott betur. Á kortinu hér að ofan er stefn- an frá A til B 40 eða 45 gráður. Það er til einskis að vera með áttavitann nema kunna á hann. Flestir nota kort og áttavita sam- an. Án korts er hægt að taka stefnuna á ákveðið kennileiti, til dæmis fjall, og halda þannig sínu striki þó skyggnið versni. Það er sáraeinfalt að lærá á áttavita og það er auðvelt að rata Segulnálin á áttavitanum bend- ir ekki í hánorður heldur segul- norður vegna miðflóttarafls jarðarinnar. Misvísunin er um 25 gráður. Dragðu hana frá þegar þú tekur stefnu á áttavi- tann og vilt finna hanaa á korti. (\J) Viðtalstlmi borgarfulltrúa % Sjálfstædisflokksins 1 Reykjavík $ Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða til viðtals í Valhöll, Háaleitisbraut 1, á laugardögum f vetur frá kl. 10-12. 1 . Er þá tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum K ' . ö og ábendingum. J!*svjÉL te Allir borgarbúar velkomnir. M iH Laugardaginn 10. nóvember verða til viðtals Júlíus Hafstein, formaður umhverfismálaráðs, for ur íþróxta- og tómstundaráðs, formaður ferðamálanefndar, í menningarmálanefnd, og Óla Magnússon, í stjórn Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur og heilsugæsluumdæmis Vesturbæ mað- fur F. ar. YYVYYYYYY'* - --- > > > ■ HÁSKÓLANEMAR halda upp- lestrarhátíð í Norræna húsinu laugardaginn 9. nóvember. Dag- skráin verður í þremur hlutum með hléum á milli og hefst kl. 15.00. Fyrst lesa Melkorka Tekla Ólafsdóttir, Börkur Gunnarsson, Gerður Kristný, Jón Stcfánsson, Þórarinn Torfason og ísak Harð- arson. í öðrum hluta sem gert er ráð fyrir að hefjist um kl. 16.00, lesa Ferdinand Jónsson, Margrét Lóa Jónsdóttir, Kristín Lofts- dóttir, Krislján Þórður Hrafns- son og Ólöf Ýr Atladóttir. Um kl. 17.00 hefst þriðji hluti. Þá lesa Hafliði Helgason, Magnús Gez- zon, Sigurður Ingólfsson, Úlf- hildur Dagsdóttir og Guðmundur Brynjólfsson. Allt áhugafólk um skáldskap er velkomið. (Fréttatiikynning)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.