Morgunblaðið - 10.11.1990, Síða 39

Morgunblaðið - 10.11.1990, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1990 39 jfleööur r a morgun Kristniboðsdagurinn REYKJAVÍKURPRÓFASTS- DÆMI: 50 ára afmælishátíð próf- astsdæmisins verður í Langholts- kirkju sunnudagskvöld kl. 20.30. Ávörp flytja biskup íslands, herra Ólafur Skúlason, Magnús L. Sveinsson forseti borgarstjórnar, Hólmfríður Pétursdóttir kirkju- þingsmaður. Dagskrá á vegum Æskulýðssambands kirkjunnar. Mótettukór Hallgrímskirkju og kór Langholtskirkju syngja. Kristniboðsdagurinn. Framlögum til kristniboðs veitt móttaka. ÁRBÆJARPRESTAKALL: Barna- guðsþjónusta kl. 11. Sr. Kristinn Agúst Friðfinnsson. Guðsþjón- usta kl. 14. Kristniboðsdagurinn. Friðrik Hilmarsson starfsmaður kristniboðssambandsins flytur stólræðu. Altarisganga. Tekið á móti framlögum til kristniboðs- starfsins í lok messunnar. Æsku- lýðshelgistund sunnudag kl. 20. Miðvikudag: Fyrirbænastund kl. 16.30. Sr. Guðmundur Þorsteins- son. ÁSPRESTAKALL: Barnaguðs- þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Kaffi eftir messu. Árni Bergur Sigurbjörnsson. BREIÐHOLTSKIRKJA: Barna- guðsþjónusta kl. 11. Guðsþjón- usta kl. 14. Organisti Daníel Jón- asson. Tekið við gjöfum til starfs Sambands ísl. kristniboðsfélaga. Þriðjudag: Bænaguðsþjónusta kl. 18.30. Sr. Gísli Jónasson. BÚSTAÐAKIRKJA: Barnaguðs- þjónusta kl. 11. Guðrún Ebba Ól- afsdóttir, sr. Pálmi Matthíasson. Fjölskyldumessa kl. 14. Barnakór, bjöllukór og unglingahljómsveit. Léttir söngvar. Fermingarbörn og foreldrar hvött til þátttöku. Organ- isti Guðni Þ. Guðmundsson. Sr. Pálmi Matthíasson. DIGRANESPRESTAKALL: Barnasamkoma í safnaðarheimil- inu við Bjarnhólastíg kl. 11. Guðs- þjónusta í Kópavogskirkju kl. 14;. Sr. Þorbergur Kristjánsson. DÓMKIRKJAN: í dag kl. 17 orgel- tónleikar. Við orgelið Marteinn Hunger Friðriksson. Messa kl. 11 sunnudag á tónlistardögum Dóm- kirkjunnar. Sr. Jakob Ágúst Hjálm- arsson prédikar, sr. Hjalti Guð- mundsson þjónar fyrir altari. Sungin verða messusvör Jóns Þórarinssonar tónskálds. Dóm- kórinn syngur, forsöngvarar Elín Sigurvinsdóttir og Halldór Vil- helmsson. Organleikari Marteinn Hunger Friðriksson. Altarisganga. Barnasamkoma í safnaðarheimil- inu á sama tíma. Kl. 17 tónleikar Dómkórsins. ELLIHEIMILIÐ Grund: Guðsþjón- usta kl. 10. Sr. Magnús Björns- son. FELLA- og Hólakirkja: Barna- guðsþjónusta kl. 11. Umsjón Jó- hanna Guðjónsdóttir. Guðsþjón- usta kl. 14. Prestur sr. Guðmund- ur Karl Ágústsson. Organisti Guðný M. Magnúsdóttir. Miðviku- dag: Guðsþjónusta með altaris- göngu kl. 20.30. Prestur sr. Guð- mundur Karl Ágústsson. Sóknar- prestar. GRAFARVOGSSÓKN: Barna- messa kl. 11 í félagsmiðstöðinni Fjörgyn. Skólabíllinn fer frá Húsa- hverfi kl. 10.30 í Foldir og síðan í Hamrahverfi. Guðsþjónu'sta kl. 14. Fermingarbörn og foreldrar þeirra sérstaklega hvött til þátt- töku. Eftir messu verður fundur með foreldrum og fermingarbörn- um (8. LS og 8. JB). Kaffi og veit- ingar. Organisti Sigríður Jónsdótt- ir. Sr. Vigfús Þór Árnason. GRENSÁSKIRKJA: Barnastarfið kl. 11. Eldri börnin uppi, yngri börnin niðri. Messa kl. 14. Prestur sr. Gylfi Jónsson. Organisti Árni Arinbjarnarson. Foreldrar ferm- ingarbarna sérstaklega velkomnir. Kynning á messu. Kaffisopi á eft- ir. Sr. Halldór S. Gröndal. Prest- arnir. HALLGRÍMSKIRKJA: Samvera fermingarbarna í dag kl. 10. Messa og barnasamkoma sunnu- dag kl. 11. Sr. Karl Sigurbjörns- son. Seldur matur eftir messu. Messa með altarisgöngu kl. 17. Guðspjall dagsins: Matt. 18.: Hve oft á ég að fyrirgefa? Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Þriðjudag: Fyrirbænaguðsþjón- usta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr. Bragi Skúlason. BORGAftSPÍTALINN: Guðsþjón- usta kl. 10. Sigfinnur Þorleifsson. HÁTEIGSKIRKJA: Útvarpsguðs- þjónusta kl. 11 í samvinnu við Kristniboðssambandið. Skúli Sva- varsson kristniboði prédikar. Börnin fara í heimsókn í Hall- grímskirkju. Sr. Tómas Sveinsson. Kirkjubíllinn fer um Suðurhlíðar og Hlíðar fyrir og eftir barnaguðs- þjónustuna. Rúta fer frá Háteigs- kirkju að Hallgrímskirkju og til baka. Hámessa kl. 14. Sr. Arng- rímur Jónsson. Kvöldbænir og fyr- irbænir eru í kirkjunni á miðviku- dögum kl. 18. Prestarnir. HJALLAPRESTAKALL: Messu- salur Hjallasóknar, Digranesskóla. Barnamessur kl. 11 fyrir yngri og eldri börn. Húsið opnað kl. 10.30. Almenn guðsþjónusta kl. 14. Fermingarbörn aðstoða. Kór Hjall- asóknar syngur. Organisti Elías Davíðsson. Sr. Kristján Einar Þor- varðarson. KÁRSNESPRESTAKALL: Barna- samvera í safnaðarheimilinu Borgum sunnudag kl. 11. Guðs- þjónusta í Kópavogskirkju kl. 11. Kristniboðsdagurinn. Organisti Guðmundur Gilsson. Sóknar- prestur. LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð- brands biskups. Óskastund barn- anna kl. 14. Söngur, sögur, leikir. Þór Hauksson guðfræðingur og Jón Stefánsson organisti sjá um stundina. Guðsþjónusta kl. 14. Prestur sr. Sigurður Haukur Guð- jónsson. Organisti Jón Stefáns- son. Kór Langholtskirkju flytur „Faðir vor“ eftir Malotte. 50 ára afmælishátíð Reykjavíkurpróf- astsdæmis kl. 20.30. Sóknar- nefndin. LAUGARNESKIRKJA: Messa kl. 11. Altarisganga. Barnastarf á sama tíma. Organisti Ronald V. Turner. Heitt á könnunni eftir messu. Fimmtudag: Kyrrðarstund í hádeginu. Orgelleikur, fyrirbænir, altarisganga. Sóknarprestur. NESKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11 í umsjón Sigríðar Óladóttur. Messa kl. 14. Orgel og kórstjórn Reynir Jónasson. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson. Miðvikudag: Fyr- irbænamessa kl. 18.20. Sr. Guð- mundur Óskar Ólafsson. Fimmtu- dag: Biblíulestur kl. 20. Sr. Frank M. Halldórsson. SEUAKIRKJA: Barnaguðsþjón- usta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Kjartan Sigurjónsson. Molasopi eftir guðsþjónustu. Sóknarprestur. SELTJARNARNESKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðs- þjónusta kl. 14. Organisti Gyða Halldórsdóttir. Samkoma mið- vikudagskvöld kl. 20.30. Söng- hópurinn „Án skilyrða", stjórnandi Þorvaldur Halldórsson. Sr. Guð- mundur Örn Ragnarsson. FRÍKIRKJAN, Reykjavík: Guðs- þjónusta kl. 14. Sérstaklega helg- uð kristniboðsstarfi. Séra Guðní Gunnarsson prédikar. Tekið verð- ur við framlögum til -Kristniboðs- sambandsins. Miðvikudag 14. nóv. kl. 7.30, morgunandakt. Or- gelleik annast Violeta Smid. Cecil Haraldsson. KRISTSKIRKJA, Landakoti: Lág- messa kl. 8.30. Stundum lesin á ensku. Hámessa kl. 10.30. Lág- messa kl. 14. Rúmhelga daga lág- messa kl. 18, nema á laugardög- um, þá kl. 14. Á laugardögum er ensk messa kl. 20. MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Mess- ur sunnudaga kl. 11. Rúmhelga daga kl. 18.30, nema fimmtudaga kl. 19.30 og laugardaga kl. 14. í messunni sunnudag verður vígt orgel kirkjunnar, en að messu lok- inni verður kaffi í safnaðarheimil- inu. HVÍTASUNNUKIRKJAN Ffladelf- fa: Almenn samkoma kl. 16.30. Ræðumaður sænski hjálpræðis- hermaðurinn Roger Larsson. Sunnudagaskóli á sama tíma. KFUM & KFUK: Samkoma Háa- leitisbr. 58 kl. 20.30. Birna G. Jónsdóttir og Guðlaugur Gíslason sýna myndir og segja frá ferð sinni til Eþíópíu. Ræðumaður Katrín Guðlaugsdóttir. HJÁLPRÆÐISHERINN: Helgun- arsamkoma kl. 11. Sunnudaga- skóli kl. 14. Samkoma í Fíladelfíu- kirkjunni kl. 16.30. Roger Larsson prédikar. MOSFELLSPRESTAKALL: Messa á Lágafelli kl. 14. Baldvin Steindórsson prédikar. Organisti Guðm. Ómar Óskarsson. Barna- starf í safnaðarheimilinu kl. 11. Sr. Jón Þorsteinsson. GARÐASÓKN: Barnasamkoma i Kirkjuhvoíi kl. 13. KAPELLA St. Jósefssystra, Garðabæ: Hámessa kl. 10. VÍÐISTAÐASÓKN: Barnaguðs- þjónusta í Viðistaðakirkju kl. 11. Guðsþjónusta á Hrafnistu kl. 13. Guðsþjónusta Víðistaðakirkju kl. 14. Kór Víðistaðasóknar syngur. Organisti Úlrik Ólason. Sr. Sigurð- ur Helgi Guðmundsson. H AFN ARFJ ARÐ ARKIRKJ A: Sunnudagaskóli kl. 11. Munið skólabílinn. Messa kl. 14. Þorvald- ur Halldórsson söngvari prédikar og sönghópur undir hans stjórn leiðir söng. Samvera í Álfafelli með fermingarbörnum og fjöl- skyldum þeirra eftir messuna. Sr. Gunnþór Ingason. KAPELLAN St. -»Jósefsspftala: Hámessa kl. 10.30. Rúmhelga daga lágmessa kl. 18. KARMELKLAUSTUR: Hámessa kl. 8.30. Rúmhelga daga messa kl. 8. KÁLFATJARNARKIRKJA: Guðs- þjónusta kl. 14. Organisti Frank Herlufsen. Barnasamkoma í dag kl. 11 í Stóru-Vogaskóla. Sr. Bragi Friðriksson. INNRI-Njarðvíkurkirkja: Barna- starf í safnaðarheimilinu kl. 11. Sóknarprestur. YTRI-Njarðvíkurkirkja: Barnastarf kl. 11. Barnakórinn syngur. Sókn- arprestur. KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnudag- askóli kl. 11 í umsjá Málfríðar og Ragnars. Munið skólabílinn. Messa kl. 14, altarisganga. Sr. Gunnlaugur Garðarsson messar. Kór Keflavíkurkirkju syngur, org- anisti Einar Örn Einarsson. Bifreið fer að íbúðum eldri borgara við Suðurgötu kl. 13.30 og síðan að Hlévangi við Faxabraut og sömu leið að lokinni messu. Sóknar- prestur. GRINDAVÍKURKIRKJA: Sunnnu- dagaskóli kl. 11. Barnakórinn syngur. KIRKJUVOGSKIRKJA: Kirkjuskóli í dag kl. 13 í umsjá Sigurðar Lút- hers og Hrafnhildar Gísladóttur. Messa kl. 14. Sóknarprestur. ÞORLÁKSKIRKJA: Barnastarf kl. 11. Tónleikar í kirkjunni kl. 15. Jónas Ingimundarson o.fl. Sókn- arnefnd. HVERAGERÐISKIRKJA: Barna- starf kl. 11. Sr. Tómas Guð- mundsson. EYRARBAKKAKIRKJA: Barna- guðsþjónusta kl. 10.30. GAULVERJABÆJARKIRKJA: Messa kl. 14. AKRANESKIRKJA: Kirkjuskóli yngstu barnanna í safnaðarheim- ilinu í dag kl. 13. Benedikt Arnkels- son talar. Föndur. Barnaguðs- þjónusta sunnudag kl. 11 og fjöl- skyldumessa kl. 14. Vænst þátt- töku fermingarbarna og foreldra þeirra. Nk. fimmtudag: Fyrirbæ- naguðsþjónusta kl. 18.30. Beðið fyrir sjúkum. Organisti Jón Ól. Sig- urðsson. Sr. Björn Jónsson. Þorsteinn B. Isleifsson, Vík íMýrdal - Minning Kveðjuorð: Sölvi Sigurðsson, Reyðarfirði Fæddur 23. desember 1909 Dáinn 31. október 1990 I dag kveðjurh við Steina hinstu kveðju. Ævidegi hans er lokið. Nú líður honum vel. Allar þjáningarnar eru horfnar. Brot minninga koma upp í huga minti. Ég var mikill morgunhani sem barn en það var alveg sama hvað ég vaknaði snemma, það var alltaf komið ljós í eldhúsgluggann hjá Steina. Hann var líka morgun- hani. Steini er mér svo ljóslifandi gang- andi til eða frá vinnu með nestis- töskuna sína eða á leið vestur í Urð með lundaháfinn sinn, en þangað fór hann ófáar ferðir og veiddi margan lundann. Ef hann var heima þegar ég kom í heimsókn þá rétti hann upp aðra hendina og eins og veifaði, brosti og sagði á sinn hátt „halló". Hann Steini var svo góður maður. Hann hafði skemmtilegt skopskyn og var líka óskaplega stríðinn. Það var ansi oft sem Steini gerði að gamni sínu. Hann átti líka oft mola að stinga í munninn. Hann var rólegur og yfir- vegaður og meðvitaður um það hvað aðrir voru að fást við hverju sinni. Hann fylgdist vel með og það breyttist ekki þó hann væri orðinn mikið veikur. Steini var heima eins lengi og mögulegt var og í raun og veru miklu lengur og það á hann allt henni Daddý að þakka sem hugsaði svo vel um hann í veikindum hans. Síðastliðið ár hefur Steini verið á Vífilsstaðaspítala, en hugur hans var alltaf í Vík og oftar en ekki hafði hann fréttir að færa að aust- an. Hann var svo stoltur af barna- börnum sínum og þreyttist ekki á að segja af þeim fréttir. Ekki gerði Steini miklar kröfur um veraldleg gæði og ef hann var spurður hvort hann vantaði eitthvað var svarið alltaf: „Mig vantar ekkert. hvað ætli ég þurfi?“ Það má nærri geta hvort dagarnir hafi ekki oft verið langir. Eina dægrastyttingin fyrir utan útvarp var að hlusta á upplest- ur af hljóðsnældum en smám saman dvínaði áhuginn á því vegna þess að hann gat ekki kveikt og slökkt á tækinu sjálfur og vildi ekki ónáða aðra til þess. Þegar ég kveð elsku Steina minn langar mig að þakka honum fyrir allt og bið góðan guð að geyma hann. Daddý, Lofti og Kristínu Önnu votta ég innilega samúð. Stína Kveðja frá sveitarstjórn Reyðarfjarðar Með vit'ðingu og þökk minnast Reyðfirðingar Sölva Sigurðssonar sem jarðsunginn er frá Reyðar- fjarðarkirkju í dag. Hann hefur í tvo áratugi starfað sem skrifstofu- stjóri hreppsins og sem slíkur hafði hann meiri samskipti við íbú- ana en flestir aðrir. Á sama hátt kynntist fólkið honum og allir mátu hann mikils. Þeir voru ófáir sem fóru af skrifstofunni léttari í skapi en er þeir komu þangað. Þannig voru áhrifin af návistinni við Sölva. Gamansemín var einstök og honum var einkar lagið að sjá broslegu hliðarnar á málunum jafnvel þótt alvarleg virtust. Ákveðnar skoðanir hafði hann á þjóðmálum og fór ekki dult með að hann væri íhaldsmaður og taldi slíkt enda vera besta eiginleika sem nokkur maður gæti haft. Víst kom sér vel aðhaldssemi í starfinu sem hann rækti af trúmennsku og áreiðanleik. Sveitarstjórnarfólk mun sakna þess að geta nú ekki lengur sest við borðið hjá Sölva áður en farið er á fundi. Slík voru áhrifin af stuttum samræðum við hann að allt virtist léttara á eftir og oft var þar nefnd sú leið sem á fundum var valin. Bridsspilari var hann góður og% í þeirra hópi verður hans saknað. f Tilþrifin og tilsvörin eru landsfræg. Við biðjum Guð að veita Heiðu og dætrunum styrk í sorginni og þökkum jafnframt það hlutskipti okkar að fá að starfa með Sölva j Sigurðssyni. Blessuð sé minning J hans. * t Hilmar Sigurjónsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.