Morgunblaðið - 10.11.1990, Qupperneq 50
50
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1990
LYFTINGAR / NM UNGLINGA
Ingi Valur fékk
brons í Danmörku
kám
FOLK
■ MARSEILLE hefur aðeins
sigraði í þremur af sex leikjum
sínum í frönsku deildinni eftir að
Franz Beckenbauer tók við liðinu
og gengur hann nú undir nafninu
„Herra 50 prósent.“
■ GHEORGE Constantin hefur
sagt af sér eftir aðeins 11 vikna
starf sem þjálfari rúmenska lands-
liðsins í knattspyrnu. Liðið hefur
tapað báðum leikjum sínum í und-
ankeppni EM 1:2 gegn Skotlandi
og 0:3 gegn Búlgaríu.
M BRAIN McClair, framheiji
Manchester United, hefur varið
valinn í skoska landsliðið í knatt-
spyrnu, sem mætir Svíum á miðvik-
duaginn, í fyrsta sinn í hálft ár.
Hann var ekki með í HM en hefur
staðið sig vel síðustu vikur. Gary
Gillespie, varnarmaður Liverpool,
er einnig kominn aftur í liðið en
hann var ekki með í síðustu tveim-
ur leikjum.
INGI Valur Þorgeirsson frá
Borgarnesi vann bronsverð-
laun í drengjaflokki á Norður-
landamótinu í ólympískum lyft-
ingum sem fram fór í Næstved
í Danmörku um síðustu helgi.
Fjórir íslendingar tóku þátt í
mótinu; Akureyringarnir Snorri
Arnaldsson og Tryggvi Heimisson
og Borgnesingarnir Vilhjálmur Þór
Siguijónsson og Ingi Valur Þor-
steinsson.
Ingi Valur náði besta árangri
ijórmenninganna er hann hafnaði
3. sæti í drengjaflokki. Hann snar-
aði 87,5 kg, jafnhetti 110 kg og
því samaniagt 197,5 kg. Snorri
Arnaldsson keppti í drengjaflokki
eins og Ingi Valur og hafnaði í 8.
sæti.
Tryggvi og Vilhjálmur kepptu í
unglingaflokki. Tryggvi, sem keppti
í 75 kg flokki, hafnaði í 4. sæti .og
missti naumlega af verðlaunasæti.
Hann snaraði 105 kg, jafnhetti 125
kg og samanlagt 230 kg. Vilhjálm-
KNATTSPYRNA
ur, sem keppti í 56 kg flokki, varð
í fimmta sæti. Hann snaraði 60 kg
og jafnhetti 75 kg og því saman-
lagt 135 kg.
Árangur strákanna verður að
teljast nokkuð góður þar sem þeir
eiga enn nokkur ár eftir í unglinga-
flokki.
Um helgina
Handknattleikur
Laugardagur
1. deild karla:
Seltj’nes Grótta - Fram..........16:30
1. deild kvenna:
Garðabær Stjaman - ÍBV..........14:00
2. deild karla:
Akureyri Þór-ÍH.................14:00
Sunnudagur
1. deild kvenna:
Kaplakriki FH-Fram..............14:00
Selfoss Selfoss - Grótta........14:00
2. deild kvenna:
Grindavík UMFG-ÍBK..............18:00
Körfuknattleikur
Laugardagur
Úrvalsdeild:
Stykkish. Snæfell - Valur.......17:00
Sunnudagur
Úrvalsdeild:
Akureyri Þór-UMFN...............20:00
Höllin KR-ÍBK................. 20:00
Sauðárkr. UMFT - Haukar.........20:00
Seljask. ÍR - UMFG..............20:00
Júdó
Haustmót Júdósambands íslands
verður í íþróttahúsi Kennaraháskól-
ans í dag. Keppni hefst kl. 13, en
í flokki fullorðna kl. 15.
Borðtennis
Borðtennismót Víkings verður hald-
ið í TBR-húsinu á morgun. Mótið
er punktakeppni. Keppni hefst í 2.
flokki karla kl. 13, 1. flokki og
meistaraflokki karla kl. 16 og
meistaraflokki og 1. flokki kvenna
kl. 14.
Frjálsíþróttir
Kastmót í karla og kvennaflokki fer
fram í Mosfellsbæ í dag og á morg-
un, kl. 14.30. Pétur Guðmundsson,
kúluvarpari, mun þar reyna við
íslandsmet Hreins Halldórssonar.
Badminton
Unglingamót IA fer fram á Akra-
nesi um helgina. Eirmakeppni TBR
fer fram í TBR-húsinu á sunnudag.
Blak
Laugardagur
1. deild karla:
Akureyri KA-ÍS...............16:00
Digranes HK-Fram...HK-Fram....15:15
1. deild kvenna:
Akureyri KA-ÍS...............17:15
Digranes HKVíkingur..........14:00
Bordeaux til Róm
Franska félagið Bordeaux, sem Arnór Guðjohnsen leikur með, mætir
Roma í 16-liða úrslitum UEFA-keppninnar í knattspyrnu og leikur
fyrri leikinn í Róm 28. nóvember.
Fjögur ítölsk lið eru eftir í keppninni og var heppnin með þeim - þau
drógust ekki saman, þannig að að möguleiki er á að liðin fjögur verði í
pottinum þegar dregið verður í 8-liða úrslitin í Zúrich 18. desember.
Danska liðið Bröndby leikur gegn Bayer Leverkusen og leikur Bröndby
fyrri leikinn í Kaupmannahöfn.
UEFA-keppnin
Dregiðs var í 16-liða írslitum UEFA-bikarkeppninnar í gær:
Bröndby (Danmörk) - Bayer Leverkusen (V-Þýskaland)
Inter Milan (Italía) v Partizan Belgrad (Júgóslavía)
AS Roma (Ítalía) - Bordeaux (Frakkland)
Admira Wacker (Austurríki) - Bologna (Italía)
Anderleeht (Belgía) - Borussia Dortmund (V-Þýskaland)
Vitesse Arnhem (Hollands) v Sporting Lissbon (Portúgal)
Köln (V-Þýskaland) - Atalanta (ítaiia)
Torpedo Moskva (Sovétríkin) - Mónakó (Frakkland)
Leikirnir fara fram 28. nóvember og 12. desember.
IÆTAST VIÐ NYJAR VORUR I HVERRI VIKU
Á SPRENGHLÆGILEGU VERÐI
,
ÁÐUR NÚ ;
BARNAÚLPUR KR. 4.900 1.990
DÚNÚLPUR KR. 9.900 4.900
KRUMPUGALLAR KR. 0.900 3.900 1
HERRAGALLABUXUR KR. 3.990 1.990
DÖMUINNISKÍR FRÁ KR. 950
ÚTIGALLAR FRÁ KR. 1.990
BARNASKIÐAGALLAR FRA KR. 2.900
. ....
Wffism
SPORTSOKKAR -
5 í PAKKA
STÆRÐIR 23 TIL 34 KR. 359
STÆRÐIR 35 TIL 42 KR. 379
STÆRÐIR 41 TIL 45 KR. 399
VÖMDUÐ 6 MANNA
MATARSTELL KR. 3.200
SÉRTILBOD
SÆNGURVERASETT KR. 090
.00 TIL 10.00
SPRENGIMARKAÐURINN,
SNORRABRAUT 56, 2. HÆÐ