Morgunblaðið - 27.11.1990, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 27.11.1990, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1990 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NOVEMBER 1990 29 JHwgMnfrlfiMfe Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúarritstjóra Fréttastjórar Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið. Sextugxir Landspítali Arið 1915 samþykkti Alþingi íslendinga lög um kosn- ingarétt og kjörgengi kvenna. Konur fylgdu þessari sjálfsögðu en síðbúnu réttarbót eftir með ýmsum hætti, m.a. og ekki sízt með baráttu fyrir byggingu og starfrækslu Landspítala og stofnun Landspítalasjóðs. Ingi- björg H. Bjamason, fyrsta kon- an sem kjörin var þingmaður, fylgdi baráttunni fast eftir á þingi. Og konurnar höfðu árangur sem erfiði. Bygging spítalans hófst árið 1925. Fimm árum síðar, 20. desember 1930, var fyrsti sjúklingurinn lagður inn. Frá þeim tíma hefur Lands- pítalinn verið eins konar horn- steinn íslenzkrar heilbrigðis- þjónustu: háskólasjúkrahús, miðstöð rannsókna og lang stærsti og fjölþættasti spítali landsins. Um tuttugu þúsund sjúklingar eru lagðir inn á Landspítala á ári hverju og þar fæðast árlega um 2.700 börn. Á ársfundi Ríkisspítalanna síðastliðinn laugardag afhjúp- aði forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, minningar- skjöld um stuðning íslenzkra kvenna við Landspítala, sem um þessar mundir heldur upp á sextíu ára starfsafmæli. Gef- endur_ voru Kvenfélagasam- band íslands, Bandalag kvenna í Reykjavík og Kvenréttindafé- lag Islands. Kvenfélagið Hring- urinn, sem lengi hefur látið gott af sér leiða í starfsemi spítalans, bætti enn um betur og gaf 2,5 m.kr. til tækjakaupa og 500 þúsund krónur í bygg- ingarsjóð barnaspítalans. Kon- urnar eru greinilega enn við sama heygarðshornið og þá þær létu draum fámennrar og fá- tækrar þjóðar um Landspítala rætast fyrir 60 árum. Davíð Á. Gunnarsson, for- - stjóri Ríkisspítala, sagði, er hann þakkaði þessar gjafir, að skjöldurinn hefði táknræna merkingu, auk þess að minna á lofsvert framtak kvenna: íslenzk heilbrigðisþjónusta ætti undir högg að sækja við ríkjandi aðstæður í efnahags- og þjóð- málum og hefði ríkuiega þörf fyrir skjöld almenningsálitsins — og raunar líka sverð þess. Guðmundur Bjarnason heil- brigðisráðherra kunngjörði á ársfundinum að ríkisstjórnin hefði ákveðið að færa Landspít- ala að gjöf vandað og fullkomið segulómtæki. Hér er um að ræða tæki, sem kostar lang- leiðina í 100 m.kr., og hefur valdið „byltingu“ í rannsóknum ýmissa sjúkdóma. Sá galli er þó á gjöf Njarðar að K-bygging Landspítala, sem átti að hýsa tæki af þessari gerð, hefur dregizt úr hömlu vegna ónógra fjárveitinga; allar áfangaáætl- anir hafa raskast og aðeins er risinn þriðjungur ráðgerðs húss. Tæki þessu verður því að koma fyrir i bráðabirgðahúsnæði; K-byggingu Landspítala er ætlað að hýsa skurðstofur, röntgendeild, gjörgæzludeildir og hluta af rannsóknarstofum. Hún á að vera eins konar mið- stöð hátæknilækninga í landinu — og „var í raun ein af forsend- um þess að talið var fært að taka upp hjartaskurðlækningar hér á landi“, eins og forstjóri Ríkisspítala komst að orði í út- varpserindi. En fleira tengist þessari byggingu, raunar flestir starfsþættir Landspítala. Lausnir á húsnæðisvanda, sem flestar deildir þessa stóra spítala eiga við að stríða, skar- ast við þessa byggingu. Það háir nær allri starfsemi hans hve byggingaráform hafa brugðizt, hve seint byggingunni hefur miðað. Mál er að stjórn- völd láti hendur standa fram úr ermum og Ijúki henni. Heilbrigðisþjónustan hefur vaxið að umfangi og kostnaði síðustu áratugi — með fjölgandi þjóð og auknum heilbrigðis- kröfum. Ný þekking, ný starf- semi, ný tækni og ný lyf, sem þarfir hafa kallað á og vísindin fært okkur, kosta mikla fjár- muni. Það er eðlilegt, að fá- menn þjóð með takmörkuð fjár- ráð gæti aðhalds, hagræðingar og sparnaðar í heilbrigðiskerf- inu, eins og í öðrum útgjalda- þáttum. Það er hins vegar líklegra til árangurs og farsæld- ar að virkja þekkingu og hæfni heilbrigðisstétta til átaka á þessum vettvangi en beita ein- hvers konar ofan að komandi „skömmtunar- og skrifborðs- lausnum". Það má heldur ekki gleymast að tekjumegin í upp- gjör heilbrigðiskerfisins vantar veigamikinn póst: lengra líf og betra líf þúsunda einstaklinga, sem sótt hafa bata meina sinna að hluta eða fullu til þess, sem og fleiri vinnustundir þessa fólks í þjóðarbúskapnum. Fjölmenni á opnu húsi Landspítala: Landspítali eign- ast segulómtæki Minningarskjöldur afhjúpaður. Frá v.: Forseti íslands frú Vigdís Finnbogadóttir, Stefanía María Pétursdóttir formaður Kvenfélaga- sambandsins, Jónína Margrét Guðnadóttir varaformaður Kvenrétt- indafélagsins og Kristín Guðmundsdóttir formaður Bandalags kvenna í Reykjavík. Nokkrir starfs- menn heiðraðir MILLI fimm og sex þúsund full- orðnir og mikill fjöldi barna og unglinga sóttu „opið hús“ Land- spítalans sl. sunnudag í tiiefni af sextíu ára starfsafmæli sjúkra- hússins. Ársfundur Rikisspitala 1990 var haldinn daginn áður í anddyri K-byggingar. Forseti ís- lands afhjúpaði við það tækifæri minningarskjöld um stuðning íslenzkra kvenna við Landspítal- ann. Spitalanum bárust ýmsar góðar gjafir í tilefni afmælisins. Forseti íslands, frú Vigdís Finn- bogadóttir, afhjúpaði skjöld, sem Kvenfélagasamband íslands, Bandalag kvenna í Reykjavík og Kvenréttindafélag íslands gáfu til minningar um stuðning íslenzkra kvenna við byggingu Landspítal- ans. Stefanía María Pétursdóttir, formaður Kvenfélagasambandsins, flutti og ávarp af þessu tilefni. Guðmundur Bjarnason, heil- brigðisráðherra, kunngjörði, að ríkisstjórnin hefði ákveðið að færa spítalanum að gjöf fullkomið seg- ulómtæki, sem kæmi til 'landsins á fyrri hluta næsta árs. Slík tæki, sem kosta nær 100 m.kr., hafa valdið „byltingu“ í rannsóknum ýmissa sjúkdóma. Ragnheiður Viggósdóttir, for- maður Kvenfélagsins Hringsins, afhenti 2,5 m.kr. gjöf til tækja- kaupa fyrir barnaspítalann og 500 þúsund króna gjöf í byggingarsjóð hans. Þær Hringskonur hafa áður gefíð myndarlega í byggingarsjóð- inn. Víkingur Arnórsson, yfirlæknir barnaspítalans, þakkaði rausn Hringskvenna. Hann gat þess jafn- framt að hinn heimsþekkti leikari Paul Newman hefði sent bygging- arsjóði bamaspítalans tíu þúsund dala framlag og fréttir stæðu til þess að von væri á fímmtíu þúsund dala viðbótarframlagi hans. Guðmundur G. Þórarinsson form- aður stjórnamefndar Ríkisspítala greindi frá því að stjómarnefnd hafi ákveðið að færa starfsmanna- ráði sumarhús að gjöf og styrkja rannsóknir við spítalann með 1 m.kr. framlagi í vísindasjóð og 1 m.kr. til tækjakaupa. Stjórnarnefnd heiðraði nokkra starfsmenn svo sem venja er á árs- fundum: Ásdísi Sveinsdóttur skrif- stofustjóra, Ernu Guðmundsdóttur fulltrúa, Eystein Pétursson eðlis- fræðing, Gróu Ingimundardóttur hjúkrunarfræðing, Guðrúnu Ingi- mundardóttur skrifstofustjóra, Helgu Albertsdóttur hjúkrunar- deildarstjóra, Hildigunni Olafsdótt- ur cand. polit., Hjalta Þórarinsson prófessor, Ingileif Jónsdóttur líffræðing, Jóhönnu Ingólfsdóttur forstöðukonu og Þóra Tómasdóttur starfsmann lyflækningadeildar. Frá ársfundi Ríkisspítala. Á fremsta bekk: Vigdís Magnúsdóttir hjúkrunarforstjóri, Davíð Á. Gunnarsson forsljóri Ríkisspítala, Vigdís Finnbogadóttir forseti Islands, Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráðherra og kona hans, frú Vigdís Gunnarsdóttir. Á ársfundi Landspítala fluttu erindi Gunnar Guðmundsson pró- fessor, Snorri Páll Snorrason pró- fessor, Þorvaldur Veigar Guð- mundsson formaður læknaráðs, Bjarni Þjóðleifsson yfirlæknir og Ragnheiður Haraldsdóttir hjúkr- unarframkvæmdastjóri. Ávarp flutti Guðmundur G. Þórarinsson formaður stjórnarnefndar Land- spítalans. Söngfólk úr Söngskólan- um flutti Landspítalaljóð (texti Þor- steinn Gíslason, útsetning lags Jón Þórarinsson). Það kom fram í máli Davíðs Á. Gunnarssonar forstjóra Ríkisspítala á ársfundinum, að á Landspítala vinna hátt í þijú þúsund starfs- menn. Ár hvert eru lagðir þar inn um 20 þúsund sjúklingar. 60 þús- und að auki koma á göngudeildir sjúkrahússins. Þar fæddust síðast liðið ár um 2.700 börn. Um 500 aðstandendur sjúklinga koma í heimsóknir dag hvern. Og þar deyja á ári hvetju um 400 einstaklingar. Opið hús á Landspítala: hjúkrunarfræðingur fræðir gestkomendur. Morgunblaðið/Árni Sæberg Stefna Framsóknarflokksins og evrópska efnahagssvæðið eftir Björn Bjarnason Þegar rætt er um stöðu okkar íslendinga gagnvart Evrópubanda- laginu (EB) má ekki gleyma þeirri staðreynd, að við eru virkir þátttak- endur í samningaviðræðum aðild- arríkja Fríverslunarbandalags Evr- ópu (EFTA) og Evrópubandalagsins um evrópska efnahagssvæðið. Hef- ur núverandi ríkisstjórn og ekki síst Steingrímur Hermannsson, forsæt- isráðherra hennar, og Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra lagt höfuðáherslu á þátttöku okkar í þessum viðræðum. Þeir hafa ásamt ýmsum öðram lagst eindreg- ið gegn því, að teknar verði upp tvíhliða viðræður af okkar hálfu við EB. Innan EFTA-hópsins hefur ver- ið tekið ríkt tillit til sjónarmiða okkar, svo sem sést á þeirri stað- reynd, að í viðræðum í Brassel í síðustu viku settu EFTA-ríkin það sem skilyrði fyrir samningum við EB um evrópska efnahagssvæðið, að samið yrði um tollfrjálsan að- gang að mörkuðum EB fyrir sjávar- afurðir. í samningunum um evrópska efnahagssvæðið er rætt um mörg atriði, sem framsóknarmenn, eink- um Steingrímur Hermannsson og málgagn hans Tíminn, hafa nefnt sem ástæðu fyrir því, að ekki komi til áhta að ræða um aðild íslands að EB. í Morgunblaðsviðtali sem birtist hinn 19. ágúst síðastliðinn sagði Steingrímur meðal annars: „Ef við geramst aðilar að EB er Evrópubúum fijálst að eignast hér land og þá munar ekki um að kaupa landið okkar... Viljum við að landið komist í eigu erlendra aðila? Ekki ég.“ Þessi orð endurbirti Tíminn á dögunum, þegar þar var enn einu sinni endurtekið, að framsóknar- menn yrðu að standa gegn þeim áhrifum „sem nýkápítalismi og sós- íaldemókratískur aumingjaskapur 1 hafa þegar haft á pólitíska þjóð- rækni á íslandi." í Tímanum var þess ekki getið, að í samningunum um evrópska efnahagssvæðið verður einmitt samið um það með hvaða skilyrðum erlendir aðilar geti eignast land í þeim ríkjum sem eiga aðild að svæð- inu. Þessi skilyrði verða í meginat- riðum hin sömu og giltu ef um að- ild að EB væri að ræða. Þar eigum við íslendingar meðal annars mikla samleið með Finnum, sem vilja hindra að útlendingar geti keypt skóglendi eða eyjar í finnska skeija- garðinum. Verða væntanlega sett skilyrði um að þeir, sem ætla að kaupa land, hafi búið í viðkomandi ríki um ákveðinn tíma o.s.frv. í samningunum um evrópska efnahagssvæðið er einnig samið um atvinnu- og búseturétt í ríkjunum. í skýrslu Jóns Baldvins Hannibals- sonar til Alþingis um samningavið- ræður EFTA og EB segir, að athug- un á þeim um það bil 120 samþykkt- um og reglugerðum er varða at- vinnu- og búseturétt innan EB hafi ekki leitt í ljós, að aðlögun okkar að umræddum reglum EB þurfi að taka langan tíma. Kröfur EB séu yfirleitt mjög svipaðar þeim sem gerðar séu hérlendis. Þar segir einn- ig, að á fundum EFTA-ríkja með EB hafi verið margítrekuð sú af- staða íslands að unnt væri að fall- ast á grundvallaratriðið um frelsi til atvinnu og flutnings í kjölfar hennar, og allar þær reglugerðir og tilskipanir sem þetta svið varða gætum við samþykkt og tryggt að komist í framkvæmd fyrir 1. janúar 1993, en þó aðeins að tryggt væri að íslendingar gætu gripið til leyfa ef röskun yrði á vinnumarkaði vegna aðsóknar útlendinga. í skýrslunni kemur fram, að það sé erfitt fyrir EB að fallast á slíkt íslenskt öryggisnet en ekki er úti- lokað að bandalagið geri það. Mundu þá sömu meginreglur gilda, hvort heldur við yrðum aðilar að evrópska efnahagssvæðinu eða EB. íslendingar staldra sérstaklega við þessi tvö atriði, eignarhald á landi og rétt útlendinga til að flytj- ast hingað, þegar þeir ræða al- mennt um samninga við EB og horfa fram hjá fiskveiðum og sjáv- arafurðum, en á þeim sviðum er að sjálfsögðu ákaflega brýnt að Björn Bjarnason gæta sérhagsmuna okkar, þótt þeir verði ekki gerðir að umtalsefni að þessu sinni, enda er ekki rætt um þá nema að takmörkuðu leyti í EFTA-EB viðræðunum. Fleiri grundvallarhagsmuni þarf auðvitað að veija, svo sem eignarhald á orku- verum og á vatnsbólum, svo að minnst sé á vatnið, útflutningsvöru sem á eftir að verða enn verðmæt- ari, þegar fram líða stundir. Viðræðurnar um evrópska efna- hagssvæðið eru komnar vel á veg, þótt enn sé óvíst hvern enda þær fá. Ekki hefur komið annað fram en allir stjórnarflokkarnir, Fram- sóknarflokkurinn eins og aðrir, standi að baki þeirri stefnu sem hér hefur verið lýst. Hún hefur verið kynnt sem viðhorf íslands gagnvart samningum við Evrópubandalagið. Hvort sem samið yrði um evrópska efnahagssvæðið eða ekki myndi EB líta þannig á, að íslensk stjórnvöld væru reiðubúin að ganga jafn langt og þau hafa lýst í EFTA-viðræðun- um. Þeim sem áhuga hafa á því að kynna sér hina opinberu íslensku stefnu að þessu leyti er bent á að lesa fyrrgreinda skýrslu utanríkis- ráðherra til Alþingis, sem gefin var út í október síðastliðnum og hið mikla rit utanríkisráðuneytisins sem henni fylgir og hefur að geyma samanburð á lagagrundvelli evr- ópska efnahagssvæðisins og ís- lenskri löggjöf. Ritið er 1038 blað- síður og er þar birtur útdráttur úr samþykktum EB, samanburður við gildandi íslensk lög og ábendingar um nauðsynlegar breytingar á þeim, ásamt aðlögunartíma og und- anþáguóskum. . Pólitískt sprengiafl Evrópuhugsjónin er pólitískt sprengiafl um alla álfuna um þessar mundir. Þjóðveijar líta þannig á að hún sé forsenda þess að þeim tókst giftusamlega að sameinast í eitt ríki. Nýfijálsu þjóðirnar i Mið- og Austur-Evrópu vilja tengjast EB sem fyrst og helst gerast aðilar að bandalaginu. Nýlega sprakk ríkis- stjórn borgaraflokkanna í Noregi vegna ágreinings um afstöðuna til lagabreytinga samkværht samn- ingaviðræðunum um evrópska efnahagssvæðið. Sænsku stjórn- málaflokkarnir era tilbúnir til þess að hverfa frá eða gjörbreyta inn- taki hlutleysisstefnunnar til að ger- ast aðilar að EB. Bæði í Finnlandi og hér hjá okkur blasir mismunandi afstaða til aðlögunar að samrunan- um í Evrópu við innan stjórnmála- flokka. Síðast en ekki síst hefur öflugasti og glæsilegasti stjórn- málamaður Evrópu undanfarin ár, Margaret Thatcher, orðið að víkja meðal annars vegna þess að hún hafði mikla fyrirvara á afstöðu sinni til samvinnu EB-þjóðanna. Eins og hér hefur verið lýst vinn- ur íslenska stjórnkerfið nú að því hörðum höndum að sníða íslenskri löggjöf þann stakk sem samræmist lögum og reglum Evrópubandalags- ins. Er sú vinna unnin í samræmi við pólitíska stefnumótun ríkis- stjórnar Steingríms Hermannsson- ar. Fyrir réttu ári höfnuðu forsætis- ráðherra og utanríkisráðherra því að Alþingi samþykkti umboð fyrir ríkisstjórnina í þessu máli. Ýmsar yfirlýsingar Steingríms Hermannssonar um Evrópumálin undanfarnar vikur vekja þær grun- semdir að einnig í þeim málaflokki ætli hann að beita þeirri aðferð að þykjast ekki kannast við störf eigin ríkisstjórnar. Framsóknarmenn ætli að sýna tvískinnung í Evrópumál- unum eins og öðrum málaflokkum í kosningabaráttunni. Forystugrein Morgunblaðsins 25. september 1990 hét: Er verið að semja um EB-aðild? Þar eru raktar breytingar á afstöðu einstakra EFTA-ríkja til aðildar að EB, en hvarvetna aukast nú dag frá degi líkurnar á því að EFTA-ríkjunum sem vilja aðiid að EB fjölgi, meira að segja Finnar eru teknir til við að búa sig undir skjóta ákvörðun í Varði doktorsrit- gerð í læknisfræði ÞANN 6. apríl sl. varði Gísli Ein- arsson læknir doktorsritgerð í læknisfræði við læknadeild Gauta- borgarháskóla i Svíþjóð. Ritgerðin er skrifuð á ensku og heitir „Muscle Adaptation and Dis- ability in late Poliomyelitis" og fjallar hún um aðlögun vöðva að langvar- andi sköddun og þar af leiðandi fötl- un. Var annars vegar rannsökuð aðlögunarhæfni skaddaðra vöðva og athöfnum daglegs lífs og hins vegar svörun vöðvans við skipulagðri styrktarþjálfun. Verkefnið byggir á rannsóknum á mænuveikisjúklingum sem lamast hafa á mismunandi aldri og áttu það allir sameiginlegt að hafa langvar- andi lömun. Þeir voru á aldursbilinu 40-65 ára. Niðurstöðurnar eru hinar fyrstu sem óyggjandi sýna fram á svöran slíkra vöðva og hafa vakið athygli, ekki síst í Bandaríkjunum, en þar býr um hálf milljón manna við alvar- lega fötlun vegna mænuveikilöm- unar, segir í frétt sem blaðinu hefur borist. Gísli fæddist í Reykjavík 5. júní 1948. Hann er sonur hjónanna Sigríðar Ásu Gísladóttur og Einars Ásgrímssonar, sem bæði eru látin. Hann lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1968 og Dr. Gísli Einarsson læknaprófi frá Gautaborgarháskóla 1976. Gísli hlaut sérfræðiviðurkenn- ingu í skurðlækningum 1983 og í endurhæfingarlækingum 1986. Hann er nú lektor í endurhæfing- arfræðum við læknadeild Háskóla íslands og yfirlæknir við Heilsuhæli Náttúrulækningafélags íslands í Hveragerði. Gísli er kvæntur Sigrúnu Benediktsdóttur sjúkraþjálfa og eiga þau tvö börn. Tónlistarskóli Hafnar- fjarðar fjorutíu ára TÓNLISTARSKÓLI Hafnarfjarðar við Strandgötu er 40 ára um þessar mundir og sérstök afmælisdagskrá er af því tilefni. Meðal annars verð- ur „opið hús“, í skólanum þar sem foreldrar eru hvattir til að koma, tónfundir verða á sal skólans og á föstudag verða sérstakir hátiðartón- leikar. í kvöld, þriðjudag og á fimmtudag verða tónfundir í sal Tónlistarskólans klukkan 18. Einnig verður tónfundur í Hafnarfjarðarkirkju á morgun, mið- vikudag, klukkan 18. Margir af kennurum skólans fara með nemend- um sínum í heimsóknir, til dæmis í dagvistunarstofnanir, skóla, fyrir- tæki og sjúkrahús í Hafnarfirði. Hátíðartónleikar Tónlistarskólans verða í Hafnarborg á föstudag. Að tónleikunum loknum verður gestum boðið að þiggja veitingar í húsnæði skólanbs. Allir nemendur, foreldrar ogvelunnarar skólans eru velkomnir. í desember verða jólatónleikar í Hafnarborg fimmtudaginn 6. des- ember klukkan 20 og í Víðistaða- kirkju föstudaginn 14. desember klukkan 20. 1 Forsætisráöherra segir þær hugmyndir, sem viöraðar hafa veriö að undanförnu um aö (slendingar eigi aö íhuga aðild aö Evrópu- | bandalaginu, lýsa uppgjöf við það verkefni að tryggja hér lífkjör: Engin rök hníga að aðild að EB þessu efni, ef samningarnir um evrópska efnahagssvæðið renna út f sandinn. Þeir vona þó enn að þeir veiti þeim svigrúm til að búa sig betur undir aðildina. Fyrrnefndri forystugrein lauk með þessum orð- um: „Er ríkisstjórn undir forsæti Steingríms Hermannssonar reiðu- búin til að standa að samningum EFTA og EB, sem í raun jafngilda samningum um aðild að EB? Ef ríkisstjórnin er ekki tilbúin til þess, hvenær ætlar hún þá að velja aðra leið en EFTA-ríkin, Austurríki, Finnland, Noregur, Sviss og Svíþjóð?“ Þorsteinn Pálsson, for- maður Sjálfstæðisflokksins, héfur orðað sömu hugsun og kemur fram í þessum spurningum á þann veg, að samningarnir um evrópska efna- hagssvæðið séu farnir að snúast um aukaaðild að Evrópubandalag- inu. Framsóknarstefnan, sem Stein- grímur Hermannsson boðar, þegar hann talar á leiðtogafundum Atl- antshafsbandalagsins og Ráðstefn- unnar um öryggi og samvinnu í Evrópu veldur því að lítið mark er á okkur tekið. Það þýðir ekki að láta eins og afvopnun á höfunum sé á dagskrá í næstu lotu afvopnun- arviðræðna, þegar maður hefur sjálfur samið um að þar skuli ekki rætt um takmörkun vígbúnaðar á höfunum. Tvískinnungur af þessu tagi skaðar almennt hagsmuni íslensku þjóðarinnar á alþjóðavett- vangi. Ef í ljós kemur að hugur fylgi ekki máli í stefnumótun ríkis- stjómar Steingríms Hermannsson- ar varðandi evrópska efnahags- svæðið vegna einkafyrirvara fram- sóknarmanna eða þekkingarleysis, skaðar það íslenska hagsmuni og traust rikisstjórnar Steingríms Her- mannssonar út á við skerðist enn frekar. Höfundur er aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.