Morgunblaðið - 27.11.1990, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1990
43
Ennþá um álver og
þetta blessaða land
eftir Guðrúnu
Brynjúlfsdóttur
Hef oft velt þeirri spurningu fyr-
ir mér, hvers vegna naut ég þeirrar
náðar að fæðast á þessu blessaða
landi? Einkum eftir að ég fór að
fylgjast með fréttum og hugsa um
börn, sem jafnvel deyja úr næring-
arskorti í sínu eigin föðurlandi.
Búið að fórna foreldrum þeirra í
þágu mannhaturs og styrjalda.
Við systkinin og öll börn, sem
ég þekkti til, þekktum ekki hvað
það var að vera svöng eða klæðalít-
il úti í kulda og enginn mátti láta
okkur heyra ljótt orðbragð hvað þá
meira af því, sem ljótt var.
Ég hef líka oftast lifað í ró og
spekt og borið traust til annarra
og gagnkvæmt. Það fólk, sem ég
hefi kynnst hefur verið flest eða
allt mjög traust og gott.
Þó ber ég nú ugg og kvíða síðan
farið var að tala úm stórt álver á
íslandi og milljóna lántökur erlend-
is frá, ofan á þær skuldir, sem fyr-
ir eru.
Ýmsir hafa talað og skrifað góð-
ar greinar á móti þessu álveri.
Svo sannarlega gleður það og
hressir okkur, sem erum á móti
því, svo koma líka fréttir, þar sem
kveður við annan tón, raddir sem
telja að búið sé að se'mja um lántök-
ur og fleira í því máli. Ég var svo
heppin að eiga símtal við gáfaða
menntakonu, sem ég treysti, og
tjáði henni mínar skoðanir og
áhyggjur í þessu efni. Hún svaraði:
„Já, við erum allar á móti því.“
Þetta svar gladdi mig og minnti á
frægt svar í íslandssögunni: „Vér
mótmælum allir. “ Mér finnst ég
verði að segja frá því og vona að
það beri þjóðinni mikla gæfu eins
og svar karlmanna á þjóðfundinum
forðum: „Vér mótmælum allir.“
Hvernig er hægt annað en að
vera á móti erlendum lánum, sem
ekki er trygging fyrir að hægt sé
að borga, ef fyrirtækið misheppn-
ast, þá væri ríkissjóður okkar ekki
nógu sterkur til að standa undir
því tapi, enda ætti hann skilið að
Guðrún Brynjúlfsdóttir
„Hvernig er hægt ann-
að en að vera á móti
erlendum lánum, sem
ekki er trygging fyrir
að hægt sé að borga,
ef fyrirtækið mis-
heppnast.“
fá að hvíla sig í smá tíma, ekki
hefur svo sjaldan verið hóað í hann,
þegar blessaður landinn hefur sett
á laggirnar fyrirtæki, sem hafa átt
að gerá þjóðina ríka, en flest hafa
mistekist, held ég að sé óhætt að
segja, allt frá karakúl ævintýrinu
til minka og fiskeldis.
Við vitum að þetta var allt gert
í góðri meiningu, þó að það mistæk-
ist fyrirgefst það ljúflega fyrst við
vorum svo lánsöm að eiga ríkissjóð,
sem gat hjálpað svolítið. — Það er
bara eitt: Að aldrei, að aldrei
„Að aldrei framar íslands byggð
sé öðrum þjóðum háð. “(Hulda).
Höfundur er rithöfundur.
f KRAKKARl
MUNÍÐ
AÐ BURSTA
.TENNURNAR
eru komm á alla
útsölustaði
• •
Oll Lionsdagatöl eru merkt.
Þeim fylgir jólasveinslímmiði og tannkremstúpa.
Allur hagnaður rennur óskiptur til líknarmála.
... lækkun á 500 g smjörstykkjunum.
Við komum til móts við heimilin
í jólaundirbúningnum...
Venjulegt verð kr.
0
Jólatilboð:
196.-
Jólaafslátturínn
nær til
smjörstykkjanna
í jólaumbúðunum.
AUK k9d22-542