Morgunblaðið - 27.11.1990, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 27.11.1990, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1990 HScholtes Ofn Yfir-undirhiti, blástur og grill, fituhreinsun, svart eða hvítt glerútlit, tölvuklukka með tímastilli. Helluborð Keramik yfirborð, svartur eða hvítur rammi, fjórar hellur, þar af tvær halogen, sjálfvirkur hitastillir og hitaljós. LV12 242 Uppþvottavél 12-manna, 4 kerfi, þar af eitt sparnaðarkerfi, efri körfu má hækka og lækka, lágvær (42 db), svört og hvít. Funahöfða 19 sími 685680 % 1 - ■ I-J-Ll- :lj ?pe< 3rK H H 1 1 44- 1 09 Wicanders £sL. Kork'o-Plast korkflísámerkin komin undirsama þak. Nú framleidd í sömu verksmiðju af IU( idoiito -ft tt flrmúla 29, Múlatorgi, sími 38640 Þ. ÞORGRÍMSSON & C0 Vefnaður Asu Olafsdóttur Ása Ólafsdóttir: Óður til landsins. 1990 Myndlist EiríkurÞorláksson Það er stundum rétt að rifja upp, að fyrr á öldum gegndu vef- listaverk ekki síst því hlutverki að vera hitaeinangrun á köldum hall- arveggjum heldri manna, og að fögur ásýnd efnismikilla veggtejjp- anna var fremur aukageta en aðal- atriði. Löngu eftir að þetta hlut- verk er horfið hefur góðum vef- listamönnum tekist að halda í tvo mikilvægustu éiginleika verkanna, hlýjuna og efnisgildið, sem engin önnur listgrein getur leikið eftir. Það er því alltaf ánægjulegt að skoða sýningar á myndvefnaði. Vefnaður er án efa sú grein myndlistanna sem krefst hvað mestrar þrautseigju og þolinmæði, og vegna þess hversu tímafrek gerð vefnaðarverka getur orðið eru færri listamenn starfandi á þessu sviði en vænta mætti. í sýningar- salnum Nýhöfn við Hafnarstræti stendur nú sýning á verkum Ásu Ólafsdóttur veflistakonu, en hún hefur á þessum áratug unnið sér sess sem einn af okkar fremstu veflistamönnum. Með sýningunni í Nýhöfn hefur Ása haldið tylft einkasýninga, og auk þess sem hún hefur tekið þátt í samsýningum víða um lönd er verk hennar að finna á ýmsum opinberum stöðum bæði hér á landi og í Svíþjóð, þar sem hún bjó um árabil. Síðasta stóra sýning hennar var haldin á Kjarvalsstöðum fyrir tvejmur árum. í verkunum á sýningunni nú þróar Ása áfram þau myndefni sem voru hvað mest ríkjandi þá, þ.e. landslagsminni af ýmsu tagi. Þetta eru ekki eftirmyndir ákveðinna staða, heidur samsettar myndir úr ijöllum, fossum, jöklum, fljótum og engjum, og yfir öllu ber ljósan him- in, allt fengið úr hugarfylgsnum listakonunnar. Verkin eru ofin úr ull, hör og mohair, og eru öll unn- in á síðastliðnum þremur árum. Þetta eru mildar myndir, sem skapa ró og friðsemd í umhverfi sínu, fremur en átök og ólgu. Það er við hæfi að náttúrulitir eru ríkjandi í verkunum, og myndefnið nær alls staðar góðu jafnvægi í fletinum vegna þessa. Hins vegar vekur athygli, að Ása notar lítið heila litfleti að þessu sinni, heldur eru sveiflur mismunandi litatóna ríkjandi. Þannig er stígandi litblær á ýmsum þáttum, t.d. himni og vatnsföllum í flestum verkanna, og jafnvel svartir klettaveggir reynast iðandi í örfínum litasveiflum, þegar nánar er aðgætt. Notkun mohair í svarta, grófa hliðarfleti, sem minna á litskotna kletta, eykur síðan íjöl- breytni áferðarinnar og litarins í myndunum í heild. Myndirnar á sýningunni eru mjög jafnar að gæðum, og eru í raun allar óður til landsins, þó að- eins eins þeirra beri þann titil (nr.7). í sumum verkanna setur listakonan köflótta reiti til hlið- anna, í forgrunn eða miðja mynd eins og til að minna áhorfandann á að hann stendur fyrir framan ofna mynd en ekki yfirborð mál- verks; í ,Eldur undan“ (nr. 6) er myndinni síðan flett til hliðar, ef svo má segja, iíkt og yfirborði jarð- ar, til að minna á þann loga sem kynntur er undir öllu lífi á jörð- inni. Ása speglar viðfangsefnið skemmtilega í ,Eldingarklettur“ (nr. 9), og þar er tónun litanna einna sterkust, og stóra myndin ,Fletir“ (nr. 8) nýtir reitina skemmtilega sem forgrunn í lands- laginu. í viðtali vegna sýningarinnar er látið að því liggja að í verkum Ásu komi viðhorf konunnar sérstaklega fram í þeirri kyrrð og þögn sem ríkir yfir myndunum. Þetta er ann- arleg kenning, þar sem ætla má að viðhorf manna á þessu sviði mótist frekar af reynslu einstakl- inga af landinu en kynferði þeirra. Fjöldi karla og kvenna hafa orðið fyrir djúpum áhrifum af landinu í æsku eins og Ása Ólafsdóttir, eða þá á fullorðinsárum; allir þeir ein- staklingar ættu að kunna að meta eiginleika þeirra verka, sem þarna er að finna. Sýning Ásu í Nýhöfn stendur til 28. nóvember. Frásögnin í fyrirrúmi Bókmenntir Ingi Bogi Bogason Einar Már Guðmundsson: Rauð- ir dagar. (226 bls.). Almenna bókafélagið 1990. Með þessari sögu virðist runnið upp nýtt skeið í skáldsagnaritun Ein- ars Más. Efniviðurinn er allt annar en í trilogiunni um Jóhann Pétursson og félaga, frásagnarmátinn töluvert frábrugðinn. Megindrættir sögunnar eru eitt- hvað á þessa vegu: Ung stúlka flytur til höfuðstaðarins frá fábreytilegu plássi fyrir norðan. Hún gengur í samtök Rauða hússins og verður ástfangin ef einum félaga samtak- anna. Hún þræðir með honum súrt og sætt, m.a. lenda þau oftar en einu sinni í átökum við lögregluna. í bak- sviði eru pólitískir óróatímar. Er nema von að Atómstöðin fljúgi í hug í þessu sámbandi? Eins og norðanstúlkan Ugla kemur Ragn- hildur í bæinn til að læra organleik mannlífsins. Og eins og fyrirrennar- inn er Ragnhildur eðlisgreind, rök- föst, hreinskiptin og spurul. Hún lætur m.ö.o. engan vaða yfir sig og tekur engri borgarvenju sem gefínni leikreglu. Eins og í mýmörgum öðrum sög- um, sem segja frá landsbyggðarbam- inu sem kemur í bæinn, er Reykjavík hér ákaflega fráhrindandi — beinlín- is fjandsamlegur íverustaður. I upp- hafi tapar Ragnhildur t.d. dqúgri fjárhæð til síbrotamanna sem segjast vera leigumiðlarar. Á tímum sögunn- ar er atvinnuleysi í Reykjavík, Ragn- hildur er hins vegar staðráðin í því að gefast ekki upp í atvinnuleit. Hún sækir m.a. árangurslaust um starf hjá borginni, sömuleiðis sækir hún um vinnu í tískuvöruverslun, ein í hópi stóreygðra stúlkna „með tyggjó og ótrúlega smáfríð andlit". í viðtali við verslunarstjórann neitar hún að fara úr kápunni, skilur ekki af hveiju karlinn vill sjá nánar sköpulag henn- ar og segir meiningu sína fullum hálsi: „Eg er hér að sækja um starf til að selja öðrum föt en ekki til að ganga í þeim sjálf. Ef þú vilt kanna hæfni mína ræðirðu við mig af skyn- semi.“ „Skynsemi!?" Og þar með gat hún haldið áfram að leita sér að vinnu. Persónusafnið er býsna sundur- leitt. Upp úr standa félagar Rauða hússins: Elskhuginn Eiríkur, Gunn- laugur sterki sem var betri en enginn í átökum við lögregluna, Jón veður- fræðingur sem reyndi að snúa veður- stofunni yfir til kommúnisma og svarkurinn Linda B. Aukapersónurn- ar ná flestar að lifna vel við á blaðs- íðunum, eftirtektarvert er hve Einari tekst að vekja samúð lesandans með þeim. í heildina má segja að þessi saga sé mun raunsæislegri en aðrar skáld- sögur Einars. Frá Riddurum hring- stigans að Eftirmálum regndropanna hefur stöðugt hægst á söguframvin- dunni sem þó hefur aldrei verið hröð í bókum Einars. í smásagnasafninu Leitin að dýragarðinum má hins veg- ar sjá frásagnartæknilegan aðdrag- anda að Rauðum dögum. í þeim báðum er söguhraði mikill. Tími og rúm Rauðra daga falla vel að ytri raunsæiskröfum. í þess- ari sögu er varla um að ræða ein- hvers konar tilraun með innri tíma sögunnar, allt fleygist fram á lárétt- um tímaási. Sömuleiðis koma flestir staðhættir í sögunni heim og saman við veruleikann. Raunsæisleg frásagnaraðferð býð- ur heim þeirri hættu að lesturinn verði eingöngu endurspeglun og end- urtekning á fyrirbrigðum sem les- andinn þkekir af eigin reynslu ann- ars staðar frá. Eins konar ljúf upp- rifjun. Reykjavík um 1970 með hipp- um, hassi og heittrúarflokkum alls konar er vendilega lýst, stundum of smásmyglilega og án þess að lýsing- in standi föstum fótum í sögunni. Frásögnin líkist þá einna mest skýrslu sem að vísu er fyndin á köfl- um. T.a.m. er löggunum yfírleitt lýst sem sálarlausum föntum, einstaka sinnum sem illa gerðum hlutum, aldr- ei manneskjum. í Rauðum dögum notar Einar Már sérhvert tækifæri til að vefa sögu- þráðinn í óvæntar áttir. Hér gerast margar minnisstæðar frásagnir í einni sögu, og sumar hveijar ekki beint hversdagslegar. Hér er t.a.m. sagt frá forstöðumanni dýrasafnsins, Halldóri Ara, sem eitt sinn fékk þá hugmynd að koma uppstoppuðum hval fyrir á efri hæð safnsins. Eftir að hafa háifeyðilagt húsið var ljóst að tilraunin hafði mistekist. I ann- Einar Már Guðmundsson arri er sagt frá stúlku sem skar fram- an af fingri og týndi fingurfleiðrinu en forsetinn fann það aftur undir vörubíl! Gróteskan í sögum sem þess- um minnir á ýmsar nútímasögusagn- ir sem sagðar eru af þrótti víða um heim og safnað á bækur, (nefnast „Sagen" á þýsku og „urban legends" eða „contemporary legends" á ensku. Þetta eru eins konar þjóðsögur nú- tímans. Þótt þær séu fjarstæðu- kenndar, og raunar oftar en ekki haugalygi, gera þær kröfu um að vera tekið sem hvetjum öðrum sann- leika. Er það ekki einmitt einkenni íslenskra kjaftasagna?). I slíkum sögusögnum í Rauðum dögum reynir Einar Már til hins ýtrasta á þanþol trúverðugleikans. Einar Már sýndi það í Riddurum hringstigans að hann kann ýmsum öðrum betur að flétta harmræna dulúð saman við skoplegan einfald- leika. Eitt snjallasta atriðið í Rauðum dögum er af þessum toga. En ekki má ljóstra of miklu upp. Hér er sagt frá því hvernig athafnir Ragnhildar fléttast með undarlegum hætti sam- an við örlög föður hennar. Lands- byggðin, borgin, nýi tíminn og sá gamli — allt þetta lendir á einu augnabliki í heljarárekstri. Einar Már er í Rauðum dögum á forvitnilegu róli, hann sýnir á sér nýja hlið. Það sem skiptir máli er að með þessari bók er höfundurinn tilbúinn til að taka áhættu og um- breytingum. Það er spennandi að sjá hvert hann stefnir. Af Ignatíusi rugludalli Bókmenntir Jóhanna Kristjónsdóttir John Kennedy Toole: Aulabandalagið Formáli eftir Walker Percy Þýðing: Hannes Orn Blandon og Inga Blandon Útg. 1989 I upphafsorðum Walkers Percy um Aulabandalagið segir hann frá því að fyrir fjórtán árum hafi ókunnug kona farið að hringja til hans og hafði sonur hennar sem þá var látinn allmörgum árum áður skrifað skáldsögu og móðirin var áfjáð í að sagan yrði gefin út vegna þess hve mikið afbragð hún væri. Percy dróst á að lesa bókina og segir: „Ef til vill fer best á að kynna þessa bók, sem við þriðja lestur vekur meiri furðu en við hinn fyrsta.“ Sannleikurinn er sá að hvað mig varðar eiga þessi orð öldungis vel við. Þegar ég las bókina fyrst á ensku komst ég rétt með harm- kvælum í gegnum hana. Mér þótti persónur ýktar, fáránleiki aðalsögu- hetjunnar, hins kolruglaða og sjálf- umglaða Ignatíusar J. Reilly, ekki vitund sniðugur og söguþráðurinn hreint út í bláinn. En þegar ég fór svo að lesa bók- ina aftur og síðan hið þriðja skiptið fannst mér þetta birtast í allt öðru og nýju ljósi. Ignatíus J. Reilly, sá akfeiti sérvitringur, stórsjúklingur og auðnulaus hvort sem hann reyn- ir að selja pylsur, þjáist alvarlega veikur heima hjá sér og ofbýður aldraðri móður sinni og nánast öllu umhverfi með uppátækjum sínum, er eiginlega alveg óborganleg per- sóna. Absúrd en yfirgengilegur og það er eitthvað þrælekta við það hvernig höfundurinn byggir upp þessa persónu sem á sér varla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.