Morgunblaðið - 30.11.1990, Side 20
ORAFlT
20
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1990
verölækktm
ÁLAMBA-
tlMM JJMMt
I i'J
til
MÁNAÐA-
.......
Nú gefst þér tækifæri til að
spara, svo um munar, í matar-
innkaupum til heimilisins.
Um er að ræða takmarkað magn
af fyrsta flokks lambakjöti
úr A-flokki frá haustinu ’89.
Notaðu tækifærið
-áður en það verður um sei.nan
SAMSTARFSHOPUR
UM SÖLU LAMBAKJÖTS
Nokkur orð um tón-
listargagnrýni
eftir Steinunni B.
Ragnarsdóttur
Það ætti að fylgja því dálítil
eftirvænting að lesa ritdóma um
vandaðan tónlistarflutning á ís-
landi og þá einkum ef í hlut á
ungt og efnilegt listafólk sem hef-
ur lagt sig fram við að fylgja kalli
tónlistargyðjunnar. Sú eftirvænt-
ing er þó löngu orðin að hefð-
bundnum vonbrigðum.
Það fylgir því mikil ábyrgð og
um leið sérstaða að skrifa tónlistar-
gagnrýni og sá sem það gerir ekki
alltaf öfundsverður. Gagnrýnand-
inn er sá eini sem tjáir sig um
frammistöðu og hæfileika tónlist-
artúlkenda opinberlega og er það
því sjálfsögð krafa fiytjenda að það
sé gert af því næmi og kunnáttu
sem til þarf. Á þetta hefur mikið
vantað og varla farið framhjá nein-
um sem starfar að tónlist á Islandi.
Undirrituð hefur um skeið lesið
þessa umfjöllun með undrun og
oft skelfingu en þó sjaldan eins
og nú fyrir skömmu þegar tónleik-
Steinunn B. Ragnarsdóttir
„Undirrituð á þá ein-
lægu von að tónlistar-
fólk í landinu megi við
betra búa í framtíðinni
og að um starf þess
verði fjallað af innsæi
og natni. Er það ekki
löngu tímabært?“
ar Sigrúnar Eðvaldsdóttur voru |
gagnrýndir. Hér er á ferðinni vönd-
uð listakona, búin sérstæðum list-
rænum hæfileikum sem hún hefur
lagt hart að sér við að þroska. Hún
hefur þegar tekið þátt í virtum
tónhstarhátíðum erlendis og er nú
á leið til Finnlands til þátttöku í
Sibeliusar-keppninni. Það geta
varla talist viðeigandi kveðjur og
hvatning að fá opinbera „predik-
un“ í veganestið að heiman. Það
var einnig eftirtektarvert að píanó-
leikarans Selmu Guðmundsdóttur
var ekki getið, nema að hún hefði
„haldið í tempóið“ í einu verkanna,
og var þá ekki ljóst hvort það var
glæpur eða greiði. Slík umfjöllun
verður að teljast fádæma níska og
furðuleg, þegar höfð er í huga sú
vinna og alúð sem flytjendur leggja j
í verkefni sín.
- Undirrituð á þá einlægu von að
tónlistarfólk í landinu megi við
betra búa í framtíðinni og að um
starf þess verði fjallað af innsæi
og natni. Er það ekki löngu tíma-
bært?
Höfundur er píanóleikari.
^ ERRÓ 1983
ERRO
EINKASAFN
SÖLUSÝNING í GALLERÍ 'BORG
VIÐ AUSTURVÖLL,
LAUGARDAGINN 1. DESEMBER OG
SUNNUDAGINN 2. DESEMBER
KL. 14.00-18.00.
BOHG
Pósthússtræti 9
Sími 9(1)-24211, 101 Reykjavík