Morgunblaðið - 01.12.1990, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 01.12.1990, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1990 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1990 31 - TT Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúarritstjóra Fréttastjórar Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið. Upplausn á hafinu Það er rétt, sem fram kom í ræðu Friðriks Pálsson- ar, forstjóra Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, á ráðstefnu Fiskiðnaðar í fyrradag, að kvótakaup og sala hafa ýtt undir hugmyndir um sölu veiði- leyfa, sem njóta nú mun meiri stuðnings en áður, jafnvel inn- an sjávarútvegsins sjálfs. Friðrik Pálsson benti á, að helztu rökin gegn sölu veiði- leyfa hefðu í upphafi verið, að útgerðin þyldi ekki slíkar álög- ur. Þessi röksemd stæðist ekki lengur vegna þess, að kvótinn gengi kaupum og sölum. Það eru ekki litlar upphæðir, sem útgerðin borgar fyrir kvótann. Þá var það einnig athyglisverð ábending, sem fram kom hjá forstjóra Sölumiðstöðvarinnar, að kvótakerfið ýti undir að sveitarfélög hefji afskipti af útgerð á nýjan leik. Reynslan af bæjarútgerðum var ekki góð eins og allir vita, en nú bregður svo við, að sveitarfélög sýna áhuga á að leggja fé í útgerð til þess að koma í veg fyrir, að kvóti verði seldur úr byggð- arlagi. Ástandið í þessum málum er óneitanlega undarlegt. Lög eru til í landinu, sem kveða á um, að fiskimiðin séu sameign þjóðarinnar. Þrátt fyrir það eru útgerðarmenn og handhafar kvóta að selja sín í milli veiði- réttindi að ákveðnu aflamagni, sem þeir skv. landslögum eiga ekki og eiga því ekki að geta selt eða keypt. Þeir, sem eru handhafar kvóta geta meira að segja boðizt til að borga skuld- ir sínar með kvóta, sem þeir eiga ekki skv. landslögum! Skattayfirvöld hafa lýst því yfir, áð kvótinn, sem gengur kaupum og sölum án þess að eigandi hans skv. landslögum, sem er þjóðin sjálf, fái nokkuð fyrir sig í þeim viðskiptum, skuli eignfærður hjá kaupand- anum. Hvernig er hægt að færa eitthvað til eignar í bók- haldi fyrirtækja, sem þau geta ekki átt vegna þess, að seljand- inn átti ekki skv. landslögum það sem hann seldi?! Og nú er syo komið, að bæj- arútgerðir, sem heyrðu for- tíðinni til, eru að byija að skjóta upp kollinum á ný í einhverri mynd vegna kvótakerfisins. Skattgreiðendur hafa orðið fyr- ir miklum fjárútlátum vegna bæjarútgerðanna á undanförn- um áratugum, en nú er bersýni- legt, að kvótakerfið er að end- urvekja þennan gamla draug, sem var kannski nauðsynlegur á sínum tíma en er núna algjör tímaskekkja. Þeir, sem standa í svona særingum nú á dögum væru orðaðir við ríkisafskipti og sósíalisma og væru jafnvel komnir úr tízku í Tékkó- slóvakíu og öðrum gömlum kommúnistaríkjum. Það verður að stöðva þessa vitleysu áður en lengra er hald- ið. Úr því, að útgerðarfyrirtæk- in geta borgað stórfé fyrir kvót- ann, sem þau hafa verið að kaupa af þeim, sem skv. lands- lögum höfðu í raun ekki rétt til að selja, geta þau eins greitt eiganda fískimiðanna, þjóðinni allri, endurgjald fyrir réttinn til þess að sækja fiskimiðin. Með kvótakerfinu er að verða einhver stórfelldasta eignatilfærsla, sem um getur í síðari tíma sögu okkar. Þau rök, sem menn hafa haft uppi, gegn því, að útgerðin greiði eitthvert endurgjald fyrir veiði- réttindin eru smátt og smátt að falla um sjálf sig í ljósi reynslunnar. Þess vegna er nauðsynlegt, að Alþingi taki þetta mál upp til nýrrar með- ferðar. Það dugar ekki að láta upplausnina á hafinu magnast svo mjög að hún verði óviðráð- anleg með öllu. Kvótakerfíð er í raun og veru sama eðlis og önnur hafta- kerfi, sem hér hafa verið við lýði. Það minnir á íjárhagsráð. Það kallaði á spillingu, eins og öll slík kerfi. Þá fengu þóknan- legir jeppa frá ríkinu og seldu svo jeppakvótann sinn þeim, sem voru ekki í náðinni. Kjarni þess er sá, að opinber aðili út- hlutar leyfi til ákveðinna gæða, sem menn kaupa síðan og selja eins o g þeim þóknast með sama hætti og menn seldu t.d. bílleyfí fyrir 30-40 árum og högnuðust vel á! Það er tími til kominn, að frjáls samkeppni og markað- söflin fái að njóta sín í sjávarút- veginum ekki síður en annars staðar og það gerist bezt með því, að útgerðarmenn borgi eitthvert endurgjald fyrir veiði- réttinn og þeir stundi sameigin- lega auðlind landsmanna, sem bezt eru til þess fallnir, geta nýtt hana bezt og með sem mestum hagnaði. Kerfí, sem kallar á siðleysi og brask í við- skiptum er afkvæmi sósíalisma en ekki útsjónarsemi og einka- rekstrar. Nýja ríkisstj órn til að tryggja þjóðarsátt eftir Þorstein Pálsson Ríkisstjóm Steingríms Her- mannssonar stendur nú frammi fyr- ir því að svo virðist sem hún hafi ekki nægan meirihluta á Alþingi til að fá bráðabirgðalögin á BHMR samþykkt. Þrír af þingmönnum stjórnarliðsins i neðri deild hafa lýst því yfir að þeir muni greiða atkvæði gegn lögunum. Þessi staða þýðir í reynd að ríkis- stjórnin nýtur ekki trausts eigin liðsmanna og hlýtur því að fara frá. Við sjálfstæðismenn teljum að þegar í stað eigi að mynda nýja ríkisstjórn sem leiti eftir viðræðum við BHMR til að finna lausn á þeim vandamálum sem upp geta komið falli bráðabirgðalögin og samningur BHMR og ríkisins taki gildi. Þingflokkur sjálfstæðismanna komst einhuga að þeirri niðurstöðu á fundi sínum sl. miðvikudag að greiða bæri atkvæði gegn bráða- birgðalögunum, Sú afstaða er ekki annað en rökrétt framhald af fyrri gagmýni okkar í þessu máli. Við deildum ' harkalega á setningu bráðabirgðalaganna síðastliðið sumar og höfum vítt vinnubrögð ríkisstjórnarinnar í samskiptum hennar við BHMR. Hroki og stífni ríkisstjórnarinnar gagnvart há- skólamenntuðum ríkisstarfsmönn- um hefur sannarlega ekki greitt fyrir farsælli lausn málsins. Styðjum þjóðarsátt Forystumenn ríkisstjórnarinnar og nokkrir áhrifamenn í verkalýðs- samtökunum og meðal vinnuveit- enda saka Sjálfstæðisflokkinn um að sýna ábyrgðarleysi með afstöðu sinni. Þetta eru furðulegar staðhæf- ingar og tilhæfulausar með öllu. Kjami málsins er auðvitað sá að það er ríkisstjórnin sem ber ábyrgð á bráðabirgðalögunum og á að tryggja þeim framgang á Alþingi. Raunar hefur forsætisráðherra full- yrt að fyrir þeim sé þingmeirihluti. Það á eftir að koma í ljós hvort hann hefur sagt Alþingi og hugsan- lega forseta íslands ósatt í þessu efni eða verið blekktur af sam- starfsmönnum sínum í stjórnarlið- inu. Skiljanlegt er að forystumenn atvinnurekenda og verkalýðssam- taka vilji að forsendur samninga þeirra við ríkisstjórnina haldi. En það er ekki verkefni stjórnarand- stöðunnar að tryggja það. Þeir eiga að beina skeytum sínum í rétta átt, að þeim mönnum sem gerðu samn- ingana við þá og fullyrtu að þeir gætu tryggt framgang þeirra. Við sjálfstæðismenn styðjum þjóðarsáttina svokölluðu heilshug- ar. En ólögmætar aðgerðir og bráðabirgðalög á dómsniðurstöðu geta ekki að okkar mati talist til hennar. Um slík vinnubrögð ríkis- stjórnar er ekki þjóðarsátt. Það er ríkisstjórnin sem hefur verið að bregðast fyrirheitum sínum um veigamikil atriði er lútá að þjóðar- sáttinni. í fyrsta lagi virðist hún ekki hafa styrk á Alþingi til að tengja BHMR við þjóðarsáttina. í öðru lagi virð'st hún ætla að íþyngja atvinnulífinu með tveggja milljarða króna nýrri skattheimtu. Vinnuveit- endur telja þau áform stríða gegn þjóðarsáttinni. Launalögin gilda fram í septem- ber á næsta ári og eru því í reynd frestun. Verði verðbólguheimsendir nú, falli lögin úr gildi, ætti hann einnig að verða í september. Hvað á -að gera þá, sem ekki er hægt að gera nú? Ríkisstjórnin bregst þjóðarsáttinni Lítum á þetta síðar nefnda atriði sem er svo lýsandi fyrir vinnubrögð ríkisstjórnar Steingríms Hermanns- sonar. Um sl. helgi náðust samning- ar um að framlengja þjóðarsáttar- samninga. Forsendur jieirrar end- urnýjunar eru tiltekin markmið að því er varðar þróun verðlags og afkomu útflutningsgreina. Framkvæmdastjóri Vinnuveit- endasambandsins lýsti því yfir í kjölfar þessara samninga að munn- Ieg yfirlýsing ráðherra liggi fyrir Þorsteinn Pálsson „Launalögin gilda fram í september á næsta ári og eru því í reynd frest- un. Verði verðbólgu- heimsendir, nú falli lög- in úr gildi, ætti hann einnig að verða í sept- ember. Hvað á að gera þá, sem ekki er hægt að gera nú?“ og að hann telji að áformum um skattahækkanir hafí verið vikið til hliðar. Hér er verið að vísa til ákvörðunar ríkisstjómarinnar um að hækka skatta um a.m.k. 2 millj- arða króna méð nýjum launaskött- um og sérstökum hafnarskatti. Af hálfu fjármálaráðuneytisins hefur því á hinn bóginn verið lýst yfir að engin áform séu um að falla frá þessari skattheimtu. Yfirlýsing- ar ríkisstjórnarinnar annars vegar og Vinnuveitendasambandsins hins vegar stangast því algerlega á í þessu efni. Þessa veigamikla for- senda fyrir framhaldslífi þjóðarsátt- ar er því í algerri óvissu. Ríkisstjórnin hefur'enn sem kom- ið er enga grein gert fyrir stöðu málsins á Alþingi, sem henni ber þó skylda til. Af hálfu fjármálaráðuneytisins hefur því með óljósum hætti verið lýst í blöðum að til greina hafi kom- ið að skera niður tekjustofna sveit- arfélaganna og hugsanlega að lækka vörugjald. Ríkisstjómin hef- ur lofað a.m.k. þremur sinnum í tengslum við kjarasamninga að lækka eða afnema vömgjaldið án þess að standa við þau fyrirheit. Hér er- um gífurlega stórt mál að ræða. Ríkisstjórnin virðist standa algerlega ráðalaus. Þær ákvarðanir sem fyrir liggja í fjár- lagafrumvarpi ríkisstjómarinnar stangast á við þau fyrirheit sem hún hefur gefið aðilum vinnumark- aðarins varðandi þjóðarsáttina. Ríkisstjórnin verður að fara að svara því hvort hún ætlar að standa við ákvarðanir fjárlaganna eða fyr- irheitin gagnvart þjóðarsáttinni. Sjálfstæðismenn gagnrýndu BHMR-samninginn Þegar kjarasamningurinn var gerður við BHMR vorið 1989 var á það bent af hálfu okkar sjálfstæðis- manna að efnahagslegar forsendur væru ekki fyrir þeim samningi og engu væri líkara en ríkisstjómin ætlaði að greiða hann með inni- stæðulausum ávísunum. Ráðherr- arnir töluðu á hinn bóginn um tíma- mótasamninga. Þeir börðu sér á bijóst og sögðu að samningarnir væm í samræmi við öll efnahagsleg markmið. Þegar þjóðarsáttarsamningarnir voru gerðir í byijun þessa árs varð ríkisstjórnin að viðurkenna að samningar BHMR samræmdust ekki þeim efnahagslegu markmið- um sem þar voru sett. Hún bauðst til þess að tryggja að háskóla- menntaðir ríkisstarfsmenn yrðu þátttakendur í þjóðarsáttinni. Við þær aðstæður var aðeins eitt að gera fyrir ríkisstjórnina. Það var að óska þegar í stað eftir viðræðum um breytingar á samningnum. For- sætisráðherra hefur viðurkennt að það hefði verið rétt aðferð en hún hafi mætt andstöðu í ríkisstjórn- inni. Og forsætisráðherrann kaus fremur að láta ríkisstjórnina sitja en að knýja fram þau vinnubrögð í þessu mikilvæga máli sem hann taldi sjálfur rétt og eðlileg. Við sjálfstæðismenn höfum hald- ið því fram frá upphafi að eina rétta leiðin í þessu efni hafi verið sú að óska eftir viðræðum. í dag getur enginn sagt hver niðurstaða slíkra viðræðna hefði orðið. Því var ein- faldlega hafnað að fara þá leið. Ef lagasetning var óumflýjanleg átti í kjölfar slíkra viðræðna að leggja það mál fyrir Alþingi sl. vor. Vinnubrögð ríkisstjórnarinnar dæmd ólögmæt Ríkisstjómin kaus hins vegar að taka ákvörðun um að hætta að framkvæma samninga sem hún hafði sjálf undirritað og kallað tíma- mótasamninga. Öllum mátti vera ljóst að slík vinnubrögð bmtu í bága við allar grundvallarreglur réttarríkisins. Félagsdómur úr- skurðaði að vinnubrögð ríkisstjórn- arinnar væru ólögmæt. Ríkisstjórnin átti að fara frá þeg- ar æðsti dómstóll í deilum um kjara- samninga hafði komist að þeirri niðurstöðu að vinnubrögð hennar í þessu mikilvæga máli væri ekki í samræmi við lög og rétt. Aðeins með því móti var unnt að skapa á ný traust á því að stjórnvöld gætu staðið við framkvæmd þjóðarsáttar- innar. A.m.k. tveir ráðherrar Iýstu yfir því, eftir að málið var komið í hend- ur Félagsdóms, að í kjölfar hans væri ekki hægt að grípa til úrræða með setningu bráðabirgðalaga. Fjármálaráðherra viðurkenndi að með því væri í raun réttri verið að setja bráðabirgðalög á dómstóla. Þrátt fyrir þetta ákvað ríkis- stjórnin að grípa til bráðabirgðala- gaúrræðisins. Það er venja þegar bráðabirgðalög eru sett að viðkom- andi ráðherra gengur úr skugga um að hann hafi tryggan meirihluta fyrir þeirri löggjöf. Við sjálfstæðis- menn gagnrýndum þessa málsmeð- ferð frá upphafi. Alit okkar var að það myndi draga úr líkum á því að unnt væri að viðhalda þjóðarsátt- inni til frambúðar ef gengið væri á svig við lýðræðislegar leikreglur við framkvæmd hennar. Alþingi vanvirt og blekkt í umræðum á Alþingi 23. októ- ber sl. sagði forsætisráðherra: „Ég sé ekki mun á því þótt Alþingi hefði sett þessi lög þegar búið var að ganga úr skugga um það að tryggt fylgi væri fyrir þessum lögum.“ í þessari yfirlýsingu fullyrðir forsæt- isráðherra að hann hafi tryggt fylgi meirihluta þingsins fyrir bráða- birgðalögunum. Það var ekki gert með viðræðum við Sjálfstæðisflokk- inn. Nú hefur komið á daginn að þingmenn úr tveimur stuðnings- flokkum ríkisstjómarinnar segjast ekki styðja vinnubrögð ríkisstjórn- arinnar í þessu máli. Þingmeirihluti er því ekki fyrir hendi. Sá einstæði atburður hefur því gerst að forsætisráðherra hefur gefið rangar upplýsingar á Alþingi um þingmeirihluta að báki útgáfu bráðabirgðalaga. Annað hvort hef- ur forsætisráðherra sagt vísvitandi ósatt ellegar að st-uðningsmenn hans hafa ekki sagt honum rétt og satt frá afstöðu sinni fyrirfram. Ábyrgð ríkisstjórnarflokkanna gagnvart Alþingi er jafnmikil hver svo sem skýringin er. Enn hefur ekki verið greint frá því hvort for- seta íslands var sagt frá því að meirihluti hafi verið tryggður eða hvort honum hafí verið gerð grein fyrir því að svo væri ekki þegar bráðabirgðalögin voru gefin út. En full ástæða er til að það mál verði upplýst. Ríkisstjórnin hafnaði því að fara réttar leiðir að því markmiði að fá háskólamenntaða opinbera starfs- menn til þátttöku í þjóðarsáttinni. Hún tók ein á sig þá ábyrgð að fara að ólögum í málinu. Hún verð- ur því að bera þá ábyrgð gagnvart Alþingi. Með öllu er útilokað að hún geti komið þeirri ábyrgð yfir á þá sem vildu fara aðrar leiðir til þess að tryggja varanlegan árangur í efnahagsmálum. Hann getur aldrei orðið ef hlutirnir eru knúðir fram með ólögmætum hætti eða með aðferðum sem stríða gegn almennri siðgæðisvitund. Sjálfstæðisflokkur- inn hefur frá upphafi varað við vinnubrögðum ríkisstjórnarinnar. Hann vill með öllum tiltækum ráð- um vinna að því að háskólamennt- . aðir ríkisstarfsmenn taki þátt í þjóð- arsáttinni en ekki með ótiltækum ráðum. Vilji ríkisstjórnin viðurkenna að hún hafi farið rangt að og njóti ekki einu sinni stuðnings í eigin liði þá ber henni að sjálfsögðu að segja af sér. Þá ber að mynda nýja ríkis- stjóm sem leiðir deiluna við BHMR til lykta og tryggir framhald þjóðar- sáttarinnar með lögmætum og lýð- ræðislegum hætti. Höfundur er formaður Sjálfstæðisflokksins. Bræðurnir Ormsson flytjast 1 nýtt 1900 fermetra húsnæði FYRIRTÆKIÐ Bræðurnir Ormsson hf. verður í dag, laugardag, opnað í nýju húsnæði við Lágmúla 8 í Reykjavík, gegnt eldra húsi fyrirtækisins við Lágmúla 9. Eitt ár er liðið frá því að skóflu- stunga var tekin að hinni nýju byggingu, sem er kjallari og tvær hæðir, samtals um 1900 fermetrar. Karl Eiríksson, forstjóri, sagði að fyrirtækið hefði fengið úthlutað lóð við Lágmúla 8 í febrúar 1986 og fyrir ári hefði byggingarleyfí verið veitt. Um svipað leyti tók eiginkona Karls, Ingibjörg Skúla- dóttir, fyrstu skóflustungu að hús- inu á vélgröfu. „Arkitekt hússins • er Gunnar Hansson, en dóttir hans, Helga, tók við verkinu að föður sínum látnum. Gunnar teikn- aði einnig eldra hús okkar við Lágmúla 9. Við sömdum við verk- takafyrirtækið Álftárós um fram- kvæmdir og sá samningur hefur staðist í einu og öllu. Húsið var fokhelt fyrir þremur mánuðum og í dag opnum við formlega á nýjum stað. Heildarkostnaður við bygg- inguna verður um 85 milljónir króna.“ Verkstæði Bræðranna Ormsson hf. verður áfram rekið í húsnæði á baklóð Lágmúla 9, eins og verið hefur, en verslun og skrifstofur, sem verið hafa í 900 m húsnæði, flytjast yfir í nýja húsið. Eldra húsnæðið hefur verið selt. Bræðurnir Ormsson hf. er í eigiy fjölskyldu Karls Eiríkssonar, en annar stofnanda þess, Eiríkur Ormsson, var faðir Karls. Fyrir- tækið er m.a. með umboð fyrir AEG heimilistæki og ýmsar raf- magnsvörur aðrar og er elsti um- boðsmaður AEG í Evrópu, frá 1922. Þá hefur fyrirtækið einnig umboð fyrir vörur frá Bosch, Tef- al, ísmet, Zwillingwerken Soling- en, OK þungavinnuvélar og er umboðsmaður japanska fyrirtæk- isins Sumitomo, en frá því fyrir- tæki verða allar vélar i Blöndu- virkjun. Þá má nefna, að fyrsta röntgentæki á íslandi var sett upp á vegum Bræðanna Ormsson. Nýtt hús Bræðranna Ormsson verður opið frá klukkan 9 í dag og er fólki boðið að líta við og kynna sér starfsemi fyrirtækisins. l,2prósenttapá botnfiskvinnslu Aukinni skattlagningu mótmælt BOTNFISKVINNSLAN er um þessar mundir, að mati Samtaka fiskvinnslustöðva, rekin með 1,2% tapi ef reiknað er með 2,83% launahækkunum 1. des- ember. I ályktun sem gerð var á sljórnarfundi samtakanna í gær, segir að flest bendi til að fiskvinnslan í landinu verði rek- in án hagnaðar á næsta ári þar sem ekki er útlit fyrir að afurð- ir hækki í verði frekar én orðið Hvatningarverðlaun Rannsóknarráðs: Verðlaun fyrir störf að plöntukynbótum RANN SOKNARAÐ ríkisins veitti í gær dr. Áslaugu Helga- Meulenberg biskup á bók ÞORLÁKSSJÓÐUR hefur sent frá sér bókina Marteinn Meulen- berg Hólabiskup sem Haraldur Hannesson tók saman til minn- ingar um fyrsta biskup kaþól- skra á íslandi eftir siðaskipti. Er hún tileinkuð hans herradómi dr. Alfred J. Jolson S.J. Þetta er 160 blaðsíðna bók, safn greina um Meulenberg biskup og sýnishorn af því sem haiyi skrif- aði. Höfundar eru: Guðbrandur Jónsson, séra Sigurður Pálsson, Sigurveig Guðmundsdóttir, Vil- hjálmur S. Vilhjálmsson (Hannes á hominu), Jónas Jónsson frá Hriflu og Þorsteinn Gíslason. Formála skrifar Gunnar F. Guðmundsson en Haraldi Hannessyni entist ekki aidur til þess. Margar myndir prýða bókina, sem er prentuð í Prentsmiðju St. Franciskussystra í Stykkishólmi. dóttur plöntuefðafræðingi Hvatningarverðlaun ráðsins fyrir frumkvæði, áræðni og dugnað i störfum, eins segir í fréttatilkynningu Rannsóknar- ráðsins. Verðlaunin eru 1,5 milljónir kr. og eru veitt efni- legum vísindamönnum 40 ára og yngri fyrir störf sem þykja vænleg í þágu atvinnulífsins. í forsendum fyrir veitingu verð- launanna segir meðal annars að Áslaug hafi lagt mikilvægan skerf til landnýtingar- og landgræðslu- mála á Islandi. Rannsóknir hennar og annarra sérfræðinga Rann- sóknastofnunar landbúnaðarins hafí leitt til þess að nú standi til boða mun betri grös en áður til túnræktar og uppgræðslu. Áslaug er fædd 1953 og stund- aði nám við háskólann í Manitoba og Reading á Englandi þar sem hún lauk doktorsprfoi í hagnýtri grasafræði 1982. „Ég hef einkum starfað við plöntukynbætur á grösum en á seinni árum á belgjurtum eins og hvítsmára og rauðsmára. Kynbæt- ur hafa það að meginmarkmiði að Morgunblaðið/RAX Grímur Valdimarsson afhendir dr. Áslaugu Helgadóttur Hvatningar- verðlaun Rannsóknarráðs í Háskólabíói í gær. aðlaga grös eða plöntur að því umhverfi sem þær vaxa við á ís- Iandi, bæði loftslagi og veðurfari og til þeirra nota sem þeim eru ætlaðar, til dæmis til túnræktar og uppgræðslu,“ sagði Áslaug. Hún hefur einkum unnið að kynbótum á vallarfoxgrasi til tún- ræktar og öðrum túngrösum. „Þá hef ég einnig unnið mikið við íslenska snarrót sem hefur reynst besta grasið sem við höfum til uppgræðslu. Einnig hef ég mikinn áhuga á belgjurtum því þær eru niturbindandi, vinna köfnunarefni úr loftinu, og eru því sjálfbjarga sem er mjög gott hér hjá okkur þar sem jarðvegur er svo snauður. Þær belgjurtir sem við þekkjum best úr okkar nánasta umhverfi er hvítsmári, rauðsmári og alaska- lúpínana sem hefur sannað gildi sitt í landgræðslustarfínu." Áslaug sagði að gildi verðlaun- anna fælust ekki síst í þeirri viður- kenningu á þeim störfum sem hún fengist við auk þess sem þau gæfu henni tækifæri til að vinna að ákveðnum verkefnum í ró og næði. Hafsteini Guömundssyni veitt Hvatningarverðlaun Vísindaráðs VÍSINDARÁÐ ríkisins veitti í gær Hafsteini Guðmundssyni bókaútgefanda Hvatningar- verðlaunin fyrir útgáfu á verki sem heitir Islensk þjóðmenning Og verður í tíu bindum þegar yfir lýkur. Verkið fjallar um allar hliðar íslenskrar þjóð- menningar frá upphafi íslands- byggðar fram á okkar daga. Verðlaunin eru 2 milljónir kr. Þijú bindi þessa verks eru kom- in út og það fjórða er væntanlegt einhvern næstu daga. Að sögn Þóris Kr. Þórðarsonar, formanns Hugsvísinda- og félagsdeildar Vísindaráðs, er hér á ferðinni mik- ið af grunnrannsóknum á sviði íslenskrar þjóðmenningar og einn- ig eldri rannsóknir um þessa þætti. Verkið er hugsað sem að- gengilegt fræðirit fyrir almenning. Verðlaunin voru veitt Hafsteini að tillögu Hugvísinda- og félags- vísindadeildar Vísindaráðs og eru þaudiugsuð sem styrkur til áfram- haldandi vísindalegrar undirbún- ingsvinnu að verkinu í samráði við Hugvísinda- og félagsvísindadeild Vísindaráðs. Það er útgáfufyrir- tæki Hafsteins, Þjóðsaga, sem Hafsteinn Guðmundsson útgefandi hlaut Hvatningarverðlaun Vísindaráðs í gær. gefur verkið út og ritstjóri þess er Frosti Jóhannsson. Það var dr. Jóhannes Norðdal, formaður Vísindaráðs, sem afhenti verð- launin. „Ég er afskaplega þakklátur fyrir þessa viðurkenningu og hún hefur andlega þýðingu fyrir mig. Hvort verðlaunin hafi einhveija þýðingu fyrir verkið sjálft er erfið- ara að svara því enn er einungis 40% verksins komin út. Ég hætti ekki fyrr en ég verð kvaddur á æðri staði,“ sagði Hafsteinn Guð- mundsson, útgefandi og verð- launaþegi Vísindaráðs. er. Á fundinum var öllum áformum um aukna skattlagn- ingu á fiskvinnsluna harðlega mótmælt. í ályktuh fundarins segir að íslensk fiskvinnsla standi höllum fæti í samkeppni við fiskvinnslu margs konar siyrkja auk verndar- tolla og auknar álögur á fisk- vinnsluna auki enn á þennan að- stöðumun. Áform stjórnvalda um . álagningu launaskatts á sjávarút- veg og upptöku hafnarskatts veiki i samkeppnisaðstöðuna og dragi úr möguleikum fiskvinnslunnar til að bæta kjör þeirra er starfa við fisk- vinnslu hér á landi. Þá lýsti stjórnarfundurinn furðu sinni á þeim vinnubrögðum er við- höfð voru við gerð skýrslu Þjöð- hagsstofnunar um samanburð á hagkvæmni innlendrar fískvinnslu og ótakmörkuðum útflutningi á óunnum fiski á erlendan markað. „Sú staðreynd að Þjóðhagsstofnun skuli gefa sér það sem meginfor- sendu að verð á óunnum fiski rnuni ekkert lækka í Bretlandi og Þýskalandi ef allur botnfiskafli íslendinga fari óunninn á þá mark- - aði er með ólíkindum og dæmir skýrsluna sem marklaust piagg,“ segir í ályktun fundarins. Þessi meginforsenda Þjóðhagsstofnunar gangi þvert á reynslu undanfar- inna ára en verulegar takmarkan- ir á útflutningi á óunnum fiski frá íslandi hafi haldið uppi verði á erlendum uppboðsmörkuðum. „Stjórnin telur að Þjóðhags- stofnun hafi þarfara verk að vinna en að leggja í kostnað við gerð skýrslu sem er frá upphafi mark- laus þar gem meginforsendur hennar eru rangar. Stjórnin skorar á Þjóðhagsstofnun að koma nauð- synlegum leiðréttingum nú þegar á framfæri við almenning og árétta hveijar voru meginforsend- ur skýrslunnar. Annað væri hrein móðgun við alla þá er starfa við fiskvinnslu hér á landi.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.