Morgunblaðið - 01.12.1990, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1990
Hljómskálakvintettinn leikur á
Hótel Islandsplaninu.
Fjölbreytt dagskrá í
miðbænum:
Varðskip
hleypir af
tuttuguog
einu skoti
ÁHUGAHÓPUR um að miðbær-
inn endurheimti sinn fyrri sess
sem aðal menningar-, samkomu-
og verslunarstaður Reykjavík-
ur, stendur fyrir ýmsum kynn-
ingum fram til jóla. Hópurinn
nefnir sig Félagið í miðbænum.
Hugmyndin er að kynna ýmis-
legt sem tengdist jólaundirbún-
ingnum í miðbænum á árunum
frá fyrri heimsstyrjöld og fram
á hina síðari.
Ef veður og aðstæður leyfa.
laugardaginn 1. desember hefst
dagskráin við sólarupprás kl. 10.45
með því að flaggað verður öllum
gömlu íslensku fánunum fyrir
framan þau hús í miðbænum sem
tengjast fánunum á einhvern hátt,
sögulega séð.
Kl. Í2.00 verður minnst þess
merka atburðar 1. desember 1918
þegar ísland varð fullvalda ríki og
eignaðist sinn eigin þjðfána, með
því að varðskipið Týr, sem liggur
við Ingólfsgarð, mun skjóta 21
heiðursskoti.
Kl. 13.00. Óvænt uppákoma á
Lækjartorgi.
Kl. 14.00. Skólahljómsveit
Kópavogs leikur hressileg lög í
Austurstræti undir stjórn Björns
Guðjónssonar.
15.00. Grýla verður í Hlaðvarp-
anum og foreldrum er boðið að
koma með óþekktarangana til
flengingar. Grýla mun síðan vappa
um svæðið.
Kl. 16.00 slær Hljómskálakvint-
ettinn á létta strengi á Hotel ís-
landsplaninu og fólk getur fengið
sér snúning í ljósaskiptunum.
Á sunnudag gengur Páll Líndal
gamla rúntinn og segir sögu hans.
Lagt verður af stað kl. 13.30 frá
Hótel íslandsplaninu sem nú er
nefnt Hallærisplanið. Gönguferðin
tekur einn og hálfan tíma.
Málþing- um
bókmenntir
FÉLAG áhugamanna um bók-
menntir efnir til málþings um
íslenskar bókmenntir síðasta
áratugar laugardaginn 1. des-
ember undir yfirskriftinni: Bók-
menntir 1990: Hvað gerðist? —
Hvað gerist?
Þingið verður haldið í Norræna
húsinu og hefst kl, 10.00 og er
dagskráin sem hér segir:
10.00 Eysteinn Þorvaldsson:
Að nýju flæðarmáli.
10.30 Jóhann Hjálmarsson:
Ljóðið snýr aftur.
11.00 Kaffihlé.
11.15 Dagný Kristjánsdóttir:
Gerðist eitthvað?
11.45 Sigurður Pálsson: Síðasti
áratugur (Síðasti ára-
tugur?)
12.15 Matarhlé.
13.00 Gísli Sigurðsson: Frá
formi til frásagnar.
13.30 Jón Stefánsson: „Mér
stendur á andskotans
sama um mannkynið."
14.00 Kaffihlé.
14.15 Páll Baldvin Baldvins-
son: Mátturinn og dýrð-
in.
14.45 Sjón: Ur vöggunni í eld-
inn.
15.15 Pallborðsumræður.
Laugarneskirkja
Aðventu-
hátíð í
Laug’arnes-
kirkju
AÐVENTUHÁTÍÐ verður í
Laugarneskirkju sunnudaginn
2. desember kl. 11.00 árdegis
og hefst með messu og barna-
starfi og kl. 20.30 verður að-
ventukvöld.
í messunni mun Ragnheiður
Sverrisdóttir djákni predika en hún
er framkvæmdastjóri Æskulýðs-
sambands kirkjunnar í Reykjavík-
urprófastsdæmi. Hannes Guðrún-
arson leikur einleik á gítar og ungl-
ingar syngja. Eftir messuna munu
félagar úr Æskulýðsstarfi í Lau-
garneskirkju selja vöfflu-kaffi.
Á aðventukvöldinu verður fjöl-
breytt dagskrá að vanda. Ræðu-
maður er Friðrik Sophusson al-
þíngismaður. Barnakór Laugar-
nesskólans, bjöllukór og kirkjukór
Laugarneskirkju munu flytja tón-
list undir stjórn Ronalds V. Turn-
er. Börn úr barnastarfi kirkjunnar
munu hafa helgileik og samveran
mun enda á. því að ljósin verða
tendruð sem hver kirkjugestur fær
í hönd en sú athöfn á að vera tákn-
ræn fyrir boðskap kristninnar á
aðventu og það Ijós sem kom í
heiminn með Jesú Kristi.
Eftir samkomuna í kirkjunni
verður boðið upp á heitt súkkulaði
og smákökur en Kvenfélag Lau-
gamessóknar mun annast þann
hátt eins og oft áður, en það hefur
gefið aðventukvöldinu hlýlegt og
notalegt yfirbragð.
(Frcttatilkynning)
Búðardalur:
Húnvetnsk
börn heim-
sækja Dali
Búðardal.
TÓNLISTARSKÓLI Vestur-
Húnavatnssýslu var í heimsókn
hér um síðustu helgi og spiluðu
nemendur fyrir gesti og nokkur
börn úr Tónlistarskóla Dalasýslu
þökkuðu Húnvetningum fyrir
komuna með tónlist.
Þetta var mjög skemmtileg til-
breyting og verður vonandi til þess
að efla kynni milli skólanna, því
Tónlistarskóla Dalasýslu var boðið
norður og gefst vonandi tækifæri
til að þiggja boðið síðar.
Nú eru nemendur hér í Tónlistar-
skólanum að æfa fyrir aðventu-
guðsþjónustur, sem verða í þremur
kirkjum hér í sýslunni 2. desember.
- Kristjana.
Raddskúlp-
túr í Borgar-
leikhúsinu
NEMENDUR annars og þriðja
árs fjöltæknideildar Myndlista-
og handíðaskóla íslands flytja
Þrætubálk, verk Magnúsar Páls-
sonar myndlistarmanns, í and-
dyri Borgarleikhússins sunnu-
daginn 2. desember kl. 15, og á
mánudagskvöldið 3. desmeber
kl. 20.
Verkið er byggt á Ilionskviðu
Hómers og hefur Magnús sett text-
ann saman eftir þýðingu Svein-
bjarnar Egilssonar og umritun
Steinars Siguijónssonar á þeim
texta.
Þrætubálkur var frumfluttur í
Nýlistasafninu þann 17. október sl.
Aðeins verða tvær sýningar á verk-
inu.
Seltjarnarneskirkja
Aðventu-
hátíð Sel-
Ijarnar-
neskirkju
KIRKJUDAGUR I Seltjarnarnes-
kirkju verður sunnudaginn 2.
desember. Kl. 11.00 barnaguðs-
þjónusta, kl. 14.00 guðsþjónusta
og kl. 20.30 verður aðventuhá-
tíðin.
Ræðumaður kvöldsins verður sr.
Gunnar Kristjánsson prestur á
Reynivöllum. Elísabet F. Eiríksdótt-
ir flytur einsöng, barna- og safnað-
arkór Seltjarnarneskirkju syngja og
ijöldi annarra tónlistarflytjenda
mun koma fram. Vonást er til að
kvöldið verði ánægjulegt og ágætt
upphaf að jólaundirbúningi, segir í
frétt frá Seltjarnameskirkju.
Ljósmynda-
sýning' á
Sauðár-
króki
INGA Sólveig listljósmyndari
verður með sýningu á verkum
sínum í Gránu, húsnæði Kvenna-
smiðjunnar á Sauðárkróki, vik-
una 1.-7. desember.
Inga lærði ljósmyndun í San
Francisco Art Institute og hefur
haldið einkasýningar og samsýn-
ingar bæði hér heima og erlendis.
Sýningin er opin frá kl. 17.00-
22.00.
Landakotskir kj a
Aðventu-
kvöld í
Kristskirkju
FÉLAG kaþólskra leikmanna
gengst fyrir aðventukvöldi í
Kristskirkju, Landakoti, sunnu-
daginn 2. desember nk. kl. 20.00.
Leikið verður á kirkjuorgelið,
séra Jakob Rolland flytur ræðu,
Eiríkur Örn Pálsson leikur á tromp-
et, kirkjukórinn syngur, Erla Mart-
einsdóttir les upp og jólaguðspjallið
verður lesið. Halda kirkjugestir á
tendruðum kertum á meðan. Loks
syngja kórinn og kirkjugestir sam-
eiginlega Hljóða nótt í þýðingu
Matthíasar Jochumssonar. Að-
ventukvöldinu lýkur með orgelleik.
Fella- og Hólakirkja.
Aðventu-
samkoma í
Fella- og
Hólakirkju
HIN árlega aðventusamkoma í
Fella- og Hólakirkju verður hald-
inn 2. des., fyrsta sunnudag í
aðventu kl. 20.30.
Að vanda verður mikið um að
vera. Ræðu kvöldsins flytur Ragn-
heiður Sverrisdóttir djákni. Flautu-
leik annast Guðrún Birgisdóttir og
Martiel Nardeau. Skagfirska söng-
sveitin syngur undir stjórn Björg-
vins Þ. Valdimarssonar. Fermingar-
börn sýna helgileik undir hand-
leiðslu Jóhönnu Guðjónsdóttur.
Nemendur úr Söngskólanum í
Reykjavík syngja einsöng og
tvísöng. Þeir eru: Kristín R. Sigurð-
ardóttir, Metta Helgadóttir, Sigur-
laug Arnardóttir, Svanhvít Val-
geirsdóttir og Svava Á. Sigurðar-
dóttir. Þá syngur kirkjukór Fella-
og Hólakirkju, stjórnandi er Guðný
M. Magnúsdóttir. Einnig verður al-
mennur söngur, upplestur og ekki
má gleyma ljósatendruninni. Prest-
arnir munu einnig leggja sitt af
mörkum.
Þeir sem staífa við kirkjuna
hvetja fólk til að koma og fagna
með okkur hátíðinni sem í hönd
fer. Komum saman á aðventu til
að lofa Guð í helgidómi hans, búum
okkur þannig undir komu jólanna.
Að lokinni athöfninni í kirkjunni
er öllum boðið að þiggja veitingar
í safnaðarheimilinu.
(Frcttatilkynning)
Leikskóla-
lögin
komin út
LEIKSKÓLALÖGIN nefnist
plata og snælda sem Almenna
bókafélagið hefur gefið út. .
Meðal laga á plötunni má nefna:
Fílaleik, Einn hljómlistarmaður, Ég
á gamla frænku, Strætóvísur, Kisa
mín, Pompulagið og Þrír litlir her-
menn.
Leikskólalögin eru sett fram sem
samsöngur og samtal barnanna
Tótu og Sölva og það eru þau Ása
Hlín Svavarsdóttir og Örn Árnason
sem tala og syngja fyrir þeirra
hönd.
Hljóðfæraleikarar eru hljóm-
sveitin Fílabandið en hana skipa
Stefán S. Stefánsson sem leikur á
flautur, saxófóna, hljómborð og
slagverk, Ari Einarsson sem leikur
á gítar og Gunnar Hrafnsson sem
spilar á bassa. Aðstoðarhljóðfæra-
leikari var Sigurður Rúnar Jónsson
sem lék á orgel.
Utsetningar og stjórn upptöku
annaðist Stefán S. Stefánsson.
Hljóðmaður var Sigurður Rúnar
Jónsson, upptökur fóru fram í
Stúdíó Stemmu.
Hljómplatan Leikskólalögin
■ MOGENS Koktvedgaard,
prófessor við Kaupmannahafnar-
háskóla, heldur fyrirlestur á vegum
lagadeildar Háskóla Islands mánu-
daginn 3. desember 1990 kl. 11 í
stofu 103 í Lögbergi, húsi laga-
deildar. Fyrirlesturinn verður flutt-
ur á dönsku og nefnist Immaterial-
retten udvikling og aktuelle
problemer. Prófessor Koktved-
gaard er víðkunnur fræðimaður og
hefur ritað nokkrar bækur um efni
á sviði hugverka- og einkennaréttar
m.a. um einkaleyfi. Auk þess liggja
eftir hann fjölmargar fræðigreinar
í tímaritum. Honum var boðið hing-
að til fyrirlestrahalds í tilefni af
því, að nú liggur fyrir Alþingi frum-
varp til laga um einkaleyfi.
(Fréttatilkynning)
■ LANDSFUNDUR OA-sam-
takanna á íslandi verður haldinn
í húsi ÍSÍ í Laugardal sunnudaginn
2. desember kl. 10.00-15.30. Hann
er opinn öllum OA-félögum á
landinu. Þátttökugjald er kr. 800
og er þá hádegismatur og kaffi/te
innifalið. Opinn kynningarfundur
OA-samtakanna á íslandi verður
haldinn sama dag á sama stað kl.
16.00. Þangað eru allir velkomnir
meðan húsrúm leyfir. OA-samtökin
eru félagsskapur fólks á öllum aldri
sem á við matarfíkn að stríða. Þau
hafa verið starfandi á íslandi 1982
og í Bandaríkjunum voru þau stofn-
uð árið 1960.
M JÓLAMERKI Lionessuklúbbs
Njarðvíkur er komið út. Þetta er
í annað sinn sem jólamerkið er gef-
ið út. Á jólamerkinu 1989 var mynd
af félagsmerki klúbbsins. Lionessu-
klúbbur Njarðvíkur hefur sett sér
að markmiði, að nota framvegis
ýmis myndræn tákn úr Njarðvíkum
á jólamerkið. Að þessu sinni varð
kirkjan í Innri-Njarðvík fyrir valinu.
Félagskonur munu sjá um sölu jóla-
merkjanna. Allur ágóði af sölu
merkjanna rennur til líknannála á
Suðurnesjum.
■ DANSKAR kvikmyndir fyrir
börn verða sýndar sunnudaginn 2.
desember kl. 14.00 í fundarsal
Norræna hússins. Myndirnar heita
Trylle og tojdyrene eða Trilla og
tuskudýrin og Kan du li at lave
tegnefilm? eða Langar þig til að
gera teiknimynd? Sýningartími er
um ein klukkustund. Fyrri myndin
segir frá Trillu og tuskudýrum
hennar, en þau lenda í ýmsum
ævintýrum. Síðari myndin sýnir
hvernig teiknimyndir verða til, en
við gerð þeirra má nota ýmis efni,
svo sem módelleir, samfelluhug-
myndir, túss og fleira. Aðgangur
er ókeypis og börnin frá ávaxtasafa
í hléi.