Morgunblaðið - 01.12.1990, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1990
41
ÓVINURINN
eftir Árna Helgason
Það er mikið rætt um djöfulinn
og jafnvel umræðan komin í kirkj-
urnar okkar, sem ekki er nein furða.
Kristur frelsari vor er ekki með
neina tæpitungu: Hræðist ekki þá
sem líkamann deyða en fá ekki
deytt sálina. Hræðist heldur þann
sem megnar að tortíma bæði sál
og líkama í helvíti. (Matth. 10—28.)
Og fékk ekki sjálfur frelsarinn
að reyna vélabrögðin:. Svo fór djöf-
ullinn með hann upp á ofurhátt
fjall, sýndi honum öll ríki veraldar
og dýrð þeirra, tilbúinn að gefa
honum þetta allt ef Jesús félli fram
og tilbæði hann. Ef við trúum því
að Jesús sé frelsari mannanna, þá
er það staðreynd að óvinurinn er
til. Við trúum því að Jesús hafi
verið meðal vor, hafi gengið um,
gert kraftaverk, og boðið okkur
handleiðslu og bent á mjóa veginn
sem liggur til lífsins, eins er hinn
illi óvinur mannkynsins alls staðar
á ferð, til að eyðileggja, setja glýju
í augu mannanna svo þeir álpist inn
á breiða veginn. Við þessu er Krist-
ur alltaf að vara. Og er jjandinn
„ Jesús er kærleikur,
það er satt, en hann
varar líka við þeim sem
er alltaf að eyðileggja
líf okkar, skrattanum.
Hann þarf að varast.“
ekki enn í dag að fara með menn
upp á ofurhátt íjall og bjóða þeim
alla skapaða hluti. Og eru þeir því
miður ekki alltof margir sem láta
freistast. Fjandinn býr þetta út í
‘ svo fallegar pakkningar, ekki vant-
ar það. Eru menn ekki alltaf að
segja hver öðrum að fara til fjan-
dans ogjafnvel til helvítis, en halda
því svo fram að þetta sé ekki til.
Þeir hljóta að vita hvert þeir eru
að benda. Jafnvei í útvarpi og sjón-
varpi flóir af þessu. Og svo eru
menn hissa á að heimurinn sé „djöf-
ullegur". Menn nota þessi orð við
öll möguleg tækifæri, jafnvel hvað
margt sé „helvíti gott, og fiott“ og
„djöfull skemmtiiegt" svo nokkuð
sé nefnt og meira að segja hefir
maður heyrt eftir messu: „Mikið
Árni Helgason
djöfull var ræðan góð.“ Og svo eru
menn hneykslaðir á að frelsarinn
okkar skuli vara okkur við djöflin-
um og öllu hans athæfi. Djöfullinn
er raunveruleiki, það fer ekki á
milli mála og hann opnar breiða
veginn og sópar þar saman, því
miður. Jesús þendir á hinn þrönga
veg og þar er lífsgæfa og farsæld.
Ef til vill ekki á veraldarstikuna?
En það skiptir minna máli. Fylgd
við frelsarann kostar bæði fórnir
og afneitun, en það borgar sig þeg-
ar lengra er litið og fyrirheit drott-
ins’ bregðast aldrei. Það vita þeir
sem reyna.
Það veitir ekki af að vara við
óvininum og öllu hans athæfi sem
birtist í svo óteljandi myndum og
dafnar best í vímuefnum sem þjón-
ar hans og ógæfumenn dreifa út í
hið mannlega líf. Varaðu þig, segir
rödd samviskunnar, íslenskt
mannlíf hefir ekki efni á að fita
púkann á fjósbitanum.
Jesús er kærleikur, það er satt,
en hann varar líka við þeim sem
er alltaf að eyðileggja líf okkar.
skrattanum. Hann þarf að varast.
Og kirkja guðs á að vera okkar
leiðbeinandi og taka þar einnig orð
Jesú alvarlega. Bijóstvörn samfé-
lagsins. Á hætturnar benda ákveðið
hinir „kristilegu sértrúarflokkar",
hópar innan kirkjunnar okkar, sem
svíður að sjá hvert líf á fætur öðru
verða hinu illa að bráð. Sjálfboðalið-
ar í ríki Krists og hans nafni og
krafti beina samferðamönnum
sínum hina réttu leið — leið lífsins.
Og er nokkur goðgá að hugleiða
þetta alvarlega?
Höfundur er fyrrverandi póst- og
símstöðvarstjóri í Stykkishólmi.
Husqvarna
HusÍv Lock
Loksaumavélin (over lock)
Áður 46.700.-
Nú 42.000,-
VÖLUSTEINNhf
Faxafen 14, Sími 679505
<AUGL YSINGAR
Hafnarfjörður
SJÁLFSBJÖRG
FÉLAG FATLAÐRA I REYKJAVÍK OG NÁGRENNI
Hátúni 12. pósthólf 5183, simi 17868
Jólabasar Sjálfsbjargar,
Reykjavík
verður haldinn í Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni
12, laugardaginn 1. desember og sunnudag-
inn 2. desember kl. 14.00 báða dagana.
Sjálfsbjörg, Reykjavík.
HÚSNÆÐIÓSKAST
4ra-6 herbergja íbúð
óskast á leigu. Við viljum borga sanngjarna
leigu, en lofum góðri umgengni og öruggum
greiðslum. Gjarnan austur- eða miðbær
Reykjavíkur.
Upplýsingar í síma 650305 eftir kl. 19.00.
Heimsókn á Alþingi -
hádegisverðarfundur
Landsmálafélagið Fram stendur fyrir heim-
sókn á Alþingi laugardaginn 8. des. nk. Að
lokinni heimsókn verður hádegisverðar-
fundur með Þorsteini Pálssyni, formanni
Sjálfstæðisflokksins, í Lækjarbrekku (Korn-
hlöðunni).
Fundarefni: Starfshættir Alþingis.
Farið verður með rútu frá Sjálfstæðishúsinu
við Strandgötu kl. 10.45. Mæting kl. 10.30.
Sjálfstæðismenn tilkynnið þátttöku í síma
52223 - 50565 Gunnlaugur eða 53530 -
54520 Tryggvi.
Landsmálafélagið Fram.
fHverfaskipulag borgarhluti 2
Vesturbær sunnan Hring-
brautar
Orðsending frá
Borgarskipulagi til íbúa
og hagsmunaaðila
Borgarskipulag Reykjavíkurborgar boðar til
fundar um drög að hverfaskipulagi borgar-
hluta 2, Vesturbæjar sunnan Hringbrautar.
Borgarhlutinn afmarkast af sjó og mörkum
Reykjavíkur og Seltjarnarness að vestan,
Hringbraut að norðan og Öskjuhlíð að aust-
an. Fundurinn verður haldinn í Hagaskóla,
Fornhaga 1, miðvikudaginn 5. desember kl.
20.30. Á fundinum verður kynning á byggð
í borgarhlutanum, umferð, leiksvæðum og
öðrum útivistarsvæðum. íbúar og aðrir hags-
munaaðilar á þessu svæði eru hvattir til
þess að mæta á fundinn.
TIL SÖLU
2ja herbergja íbúð
Til sölu nýuppgerð, glæsileg 2ja herb. ein-
staklingsíbúð með „mini“-eldhúsi, ný teppa-
og flísalögð og þvottaaðstaða í kjallara. Er
á fallegum stað við Skólavörðuholt. Ekkert
áhvílandi. Sanngjörn kjör.
Upplýsingar í síma 679381.
FÉLAGSSTARF
Sjálfstæðisfélagið f
Kópavogi 40 ára
I tilefni 40 ára afmælis Sjálfstæðisfélagsins í Kópavogi verður opið
hús í Fiamraborg 1 1. desember milli kl. 17.00 og 19.00.
Stjórnin.
Akureyri - Akureyri
Næstkomandi laugardagskvöld halda sjálf-
stæðisfélögin á Akureyri fullveldisfagnað í
Kaupangi við Mýrarveg.
Tómas Ingi Olrich flytur ávarp í tilefni dagsins.
Við hvetjum allt sjálfstæðisfólk til að mæta
og minnast fullveldisins.
Flúsið opnað kl. 21.00. Léttar veitingar.
Sjálfstæðisfélögin á Akureyri.
Jólafundur Hvatar
mánudaginn 3. desember
Hinn árlegi jólafundur Hvatar, félags sjálfstæðiskvenna i Reykjavik
verður haldinn i Átthagasal Hótels Sögu mánudaginn 3. desember
og hefst kl. 20.30.
Dagskrá:
Jólahugvekja, séra Pálmi Matthiasson. Ræða Lára Margrét Ragnars-
dóttir, hagfræðingur. Einsöngvari Anna Júlíana Sveinsdóttir og undir-
leikari Gyða Halldórsdóttir. Jólahappdrætti. Kynnir Hrefna Ingólfs-
dóttir. Alit sjálfstæðisfólk velkomið.
Stjórnin.
Wélagslíf
□ MÍMIR 599012037 -1 AtkFrl
«Hjálpræðis-
herinn
y Kirkjustræfi 2
I kvöld kl. 20.30 fyrsta desember
fagnaður. Hugvekja: Séra Jakob
Hjálmarsson. Eldsloginn syngur.
Kaffi og meðlæti. Allirvelkomnir.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533
Dagsferð sunnudaginn
2. desember:
Kl. 13.00 Kjalarnes -
Músarnes
(stórstraumsfjara)
Ekið að Brautarholti á Kjalarnesi
og gengið þaðan um Músarnes
og síðan eftir fjörunni að Ár-
túnsá. Skemmtileg og fjölbreytt
fjöruganga fyrir alla fjölskylduna.
Utivera og holl hreyfing í göngu-
ferð með Ferðafélaginu er góð
tilbreyting í skammdeginu.
Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin. Farmiðar við
bíl. Fritt fyrir börn að 15 ára
aldri. Verð kr. 1.000,-
Mánudagskvöldið 3. des. kl. 20.
Tunglskinsganga og blysförí
Setbergshlíð. Tilvalin fjölskyldu-
ganga. Nánar auglýst í sunnu-
dagsblaði.
Miðvikudaginn 5. desember er
næsta myndakvöld F.í. Myndir
úr sumarleyfisferð nr. 9 i áætl-
un.
Ferðafélag Islands.
□ GIMLI 599003127 = 1
Hútivist
•ÓFINHI1 • REYKJÁVÍK • SÍMI/SÍMSVARI14606
Sunnudagsganga
Kl. 13.00,2. des. Gengin strönd-
in frá Kollafirði meðfram Þern-
eýjarsundi og í Víðines. Skoðað-
ar gamlar mannvistaminjar og
fjárborg. Hressandi strand-
ganga fyrir alla fjölskylduna um
mjög skemmtilegt svæði. Brott-
för frá BSÍ-bensínsölu. Stansað
við Árbæjarsafn. Einnig hægt
að koma í rútuna í Mosfellsbæ.
Sjáumst!
Útivist.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Bænastund í kvöld kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagskrá vikunnar framundan:
Sunnudagur: Safnaðarsam-
koma kl. 11.00. Ræðumaður:
Svanur Magnússon. Almenn
samkoma kl. 16.30. Ræðumað-
ur: Garðar Ragnarsson. Sunnu-
dagaskóli á sama tíma.
Mánudagur: Systrafundur kl.
20.30. Allar konur hjartanlega
velkomnar.
Miðvikudagur: Biblíulestur kl.
20.30.
Föstudagur: Æskulýðssam-
koma kl. 20.30.
Laugardagur: Bænastund kl.
20.30.
Hvítasunnukirkjan Völvufelli
Sunnudagur: Sunnudagaskóli
kl. 11.00.