Morgunblaðið - 01.12.1990, Page 60
i
VZterkurog
k J hagkvæmur
auglýsingamiðill!
LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1990
VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR.
Desember heilsar með 10 stiga hita
Morgunblaðið/RAX
Óvenjulega hlýtt loft hefur leikið um landið undanfarna daga,
með tíu og allt að tólf stiga hita. í gær var hlýtt veður og úr-
koma víðast hvar á landinu, en léttskýjað var austanlands. Erlend-
is var víðast hvar mun kaldara. Á Mallorka var frost og þriggja
stiga hiti var á Benidorm. I New York var tveggja stiga hiti í
gærmorgun. Á mánudag má búast við kólnandi veðri hérlendis
með rigningu sunnan- og vestanlands en léttskýjuðu fyrir norð-
an og austan. Aftur á að hlýna þegar líður á vikuna.
Jón Baldvin Hannibalsson:
Starfsstjóm getur sett bráða-
birgðalög á BHMR að nýju
VSÍ fundar eftir helgi með ríkisstjórn og sjálfstæðismönnum
JÓN Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins, segir að ákveði
forsætisráðherra að rjúfa þing og boða kosningar, muni ríkisstjórnhi
silja áfram sem starfsstjórn, og hafi þá umboð til að setja á ný bráða-
birgðalög á kjarasamning BHMR. Ólafur Ragnar Grimsson, formaður
Alþýðubandalagsins, segir að það sé spurning um vikur eða mánuði
hvenær þjóðin kveði upp dóm sinn yfir lögunum í kosningum.
ingum svaraði hann: „Ég tel að ríkis-
stjórnin hljóti að hugleiða í mikilli
alvöru að stuðla að því að dómur
þjóðarinnar fái að koma fram með
skýrum og ótvíræðum hætti."
Ákveðið hefur verið að forystu-
menn Vinnuveitendasambands ís-
lands hitti fulltrúa Sjálfstæðisflokks-
ins að máli á mánudag þar sem af-
staða til bráðabirgðalaga ríkisstjórn-
arinnar verður rædd. Samskonar
fundur VSI og ríkisstjórnarinnar
hefurverið ákveðinn áþriðjudaginn.
Sjá viðtöl á bls. 26.
Ekkert
þokast
í Moskvu
EKKI tókst að ná fundi með
sovéska aðstoðarforsætisráð-
herranum Sitaryan í gær, eins
og að hafði verið stefnt. Því er
enn óútkljáð um lúkningu
skulda Sovétmanna við íslend-
inga. Sovétmenn eiga eftir að
greiða 11,3 milljónir dollara, eða
sem svarar liðlega 600 milljón-
um króna, til að ljúka viðskipt-
um við Islendinga á grundvelli
gildandi viðskiptasamnings.
Ólafur Egilsson sendiherra i
Moskvu segir, að til hafi staðið að
fundurinn með Sitaryan yrði í
gærmorgun, en af honum gat ekki
orðið vegna anna aðstoðarforsæt-
isráðherrans á sovéska þinginu,
eða Æðsta ráðinu eins og það er
nefnt þar eystra.
Ólafur segir að góðar vonir séu
til að fundi Sitaryans verði náð
þegar þinginu lýkur og er búist
við að það verði fyrri hluta mánað-
arins. „Við höfum átt von á fundi
nánast á hveijum degi og tökum
upp þráðinn aftur á mánudag,“
segir Ólafur.
Hann segir erindi íslendinga
vera með efstu málum á blaði hjá
Sitaryan, þegar hann losnar úr
önnum þingsins.
DAGAR
TIL JÓLA
„Lögfræðilega spurningin er
þessi: Hefur starfstjórn sömu völd
og skipuð ríkisstjórn, þegar brýna
nauðsyn ber til að afstýra þjóðarvá?
" fíefur hún valdsvið til að setja bráða-
Nýtt búvöru-
verð ákveðið
NÝTT búvöruverð tekur gildi í
dag og hækkar þá verð á mjólk
og nautakjöti til framleiðenda
um 1,6% en verð á kjúklingum
lækkar um 3,6% og um 2,9% á
eggjum. Verð á flestum vöruteg-
^undum hækkar um 1% í smásölu
neytenda.
Smásöluverð á algengum mjólk-
urvörum og kindakjöti í heilum og
hálfum skrokkum hækkar um 1%
en verð á eggjum lækkar um tæp
2,9%.
Kjúklingabændur féllust á að
„ lækka strax afurðir sínar þrátt fyr-
^g^r að lækkun á kjarnfóðurgjaldi
komi ekki til framkvæmda fyrr en
um áramót.
birgðalögin á aftur? Ég er þeirrar
skoðunar að svo sé,“ sagði Jón Bald-
vin Hannibalsson í samtali við Morg-
unblaðið í gær. Hann sagðist þar
styðjast við álitsgerð Björns Bjarna-
sonar, aðstoðarritstjóra Morgun-
blaðsins, þar sem niðurstaðan væri
sú að starfsstjórn hefði þetta vald.
Jón Baldvin sagði að rökin fyrir
því að starfsstjórn setti bráðabirgða-
lögin á ný, væru þau að með því
væri málinu um þjóðarsáttina vísað
til þjóðarinnar; þjóðin kysi þá um
hana í kosningunum. Jón Baldvin
viðurkenndi að gerð kjarasamnings-
ins við BHMR hefði verið klúður,
en sagði að fyrir þau mistök hefði
verið bætt með. því að setja bráða-
birgðalögin.
Ölafur Ragnar Grímsson sagði í
samtali við blaðið í gær að þjóðin
yrði æðsti dómari í þessu máli. „Það
er búið að stilla málunum þannig
upp að annars vegar er ríkisstjórnin
og þjóðarsáttin, hins vegar er Sjálf-
stæðisflokkurinn. Það er bara spurn-
ing um einhveijar vikur eða mánuði
hvenær þjóðin kveður upp sinn úr-
skurð," sagði hann. Aðspurður hvort
hann væri að spá þingrofi og kosn-
11 ára stúlka á Grundarfirði vann verðlaun:
Býður bekkjarfélögum
sínum í Bandaríkjaferð
Grundnrfirði.
I TILEFNI 50 ára afmælis Íslensk-ameríska félagsins í október
sl. stóð félagið fyrir sérstökum getraunaleik fyrir grunnskólanem-
endur. Vinningshafinn, 11 ára nemandi í grunnskóla Grundar-
fjarðar, fær að bjóða bekkjardeild sinni í þriggja daga ferð til
Bandaríkjanna.
Getraunaleikurinn fjallaði um
Leif heppna Eiríksson og sam-
skipti íslands og Bandaríkjana.
Leiknum var stýrt af sérstakri
nefnd íslensk-ameríska félagsins
með aðstoð Landsbankans og
Samvinnubankans. Flugleiðir
lögðu til vegleg verðlaun, far fyr-
ir vinningshafann til Banda-
ríkjana og fær hann leyfi til að
bjóða öllum bekkjarfélögum
sínum með.
Ýmis íslensk fyrirtæki í Banda-
ríkjunum munu greiða götu ferða-
langanna á leiðinni og Sjóvá/Al-
mennar munu leggja til ferða-
tryggingu fyrir allan hópinn.
Mikil spenna ríkti í íþróttasal
skóians þegar Ólafur Stephensen,
formaður íslensk-ameríska fé-
lagsins, las upp nafn vinnings-
hafa, en það var Svanborg Kjart-
ansdóttir, Setbergi í Eyrarsveit.
Taumlaus fögnuður greip um sig
meðal bekkjarfélaga Svanborgar.
Sumir hoppuðu og dönsuðu en
aðrir klöppuðu saman lófum og
hrópuðu.
Snemma á næsta ári mun svo
hin heppna bekkjardeild leggja
af stað vestur á bóginn eins og
landi þeirra Leifur heppni gerði
forðum. Heppnina eiga börnin
sameiginlega með Leifi en ferða-
mátinn verður ólíkt þægilegri og
varla hefur Leifur haft alhliða
ferðatryggingu.
Hallgrímur.