Morgunblaðið - 08.12.1990, Síða 1
72 SIÐUR B
280. tbl. 78. árg.________________________________LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1990________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Reuter
NATO haldi styrk sín-
um til að tryggja frið
Bandalagið reiðubúið til viðræðna um
samninga um umtalsverða fækkun
skammdrægra kjarnavopna í Evrópu
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
Varnarmálaráðherrar Atlantshafsbandalagsins (NATO)
ítrekuðu í lok sameiginlegs fundar í Brussel í gær nauðsyn
þess að bandalagið héldi styrk sínum til að tryggja öryggi og
frið í Evrópu.
Staðfest var nauðsyn þess að
kjarnavopn yrðu áfram í Evrópu
og að herir aðildarríkjanna styrktir
með myndun fjölþjóðlegra her-
deilda innan NATO. Ráðherrarnir
lýstu ánægju sinni með þróun í átt
til frelsis og lýðræðis í Mið- og
Austur-Evrópu en vöruðu við hætt-
unni á sundrungu og deilum meðan
breytingarnar ganga yfir.
Manfred Wörner sagði við blaða-
menn að endurskoðun á stefnu og
starfsháttum NATO yrði lokið fyr-
ir fund utanríkisráðherra banda-
lagsins í vor. Hann taldi ekki
ósennilegt að boðað yrði til leið-
Þrjár aldraðar konur í Moskvu bíða í tómri verslun í gær. Tekið hefur verið upp skömmtunarkerfi í
borginni og er íbúunum aðeins heimilt að versla í sérstökum verslunum á ákveðnum tíma dagsins.
Sovétríkin:
Hreyfíng liarð línu niaima vill
að herinn taki við völdunum
Moskvu. Reuter, Daily Telegraph.
Áhrifamikil hreyfing harðlínumanna á sovéska þinginu, Æðsta ráð-
inu, varaði í gær Míkhaíl Gorbatsjov, forseta Sovétríkjanna, við því
að honum kynni að verða steypt af stóli. Þeir kröfðust þess að þing
landsins yrði rofið og herinn tæki við völdunum.
Hreyfingin nefnist Bandalag
miðjumanna. Leiðtogar hennar sök-
uðu Gorbatsjov um að hafa verið
tvístígandi og dregið það of lengi að
taka pólitískar ákvarðanir, að sögn
sovésku fréttastofunnar Interfax.
„Hvers vegna áttar Gorbatsjov sig
ekki á því að honum kann að verða
steypt? Veit hann ekki hvað uppreisn
er?“ hafði fréttastofan eftir einum
leiðtoganna.
Þeir sögðu einnig að Gorbatsjov
hefði auðmýkt Sovétmenn með því
að þiggja matargjafir frá Vesturlönd-
um. Þeir kynntu kröfur sínar á fundi
með Ivan Laptev, forseta annarrar
af deildum Æðsta ráðsins. Þeir sögðu
að ijúfa bæri sovéska þingið, svo og
þing iýðveldanna fimmtán, og veita
hemum alræðisvald.
I Bandalagi miðjumanna eru meira
en tuttugu flokkar og hreyfingar,
meðal annars þingmannahreyfingin
Sojúz, sem segist njóta stuðnings um
þriðjungs Æðsta ráðsins.
Þjóðveijar hófu flutninga á mat-
vælum til Sovétríkjanna í gær er
sovéskar herflutningavélar fóru
þangað með 150 tonn af mjólkur-
dufti og. lyfjum. Alls verða 3.000
tonn af þessum varningi flut.t þangað
á næstu þremur vikum. Sovéski
sendiherrann í París hvatti Vestur-
lönd til þess að senda ýmis matvæli,
sem eru af skomum skammti víða í
Sovétríkjunum.
Vesturlandabúar í Kúvæt
fari ekki strax úr felum
Bagdad, Washingion, Lundúnum. Ileuter, Daily Telegraph.
ÍRASKA þingið samþykkti með miklum meirihluta atkvæða í
gær að allir útlendingar, sem urðu innlyksa í írak og Kúvæt,
fengju að fara heim. Sljórnarerindrekar í Bagdad sögðu líklegt
að þeir kæmust allir heim fyrir jól. Breska flugfélagið British
Airways sendi þotu til Bagdad í von um að fá að flytja gísla
heimleiðis en Irakar neituðu henni um lendingarleyfi. Vestur-
landabúar, sem verið hafa í felum í Kúvæt, fá að fara úr
landinu að sögn íraskra embættismanna en bresk og bandarisk
stjórnvöld ráðlögðu þeim að gefa sig ekki fram þegar í stað.
Aðeins fimmtán af 250 þing-
mönnum íraska þingsins
greiddu atkvæði gegn tillögu
Saddams Husseins íraksforseta
um að leyfa meira en 2.'600 er-
lendum gíslum í landinu að fara
heim. Sendiherra íraks í Was-
hington sagði að þeir kæmust
úr frak „innan mjög, mjög
skamms tíma“. Latif Nassif al-
Jassem, upplýsingamálaráð-
herra íraks, sagði að hundruð
Vesturlandabúa, sem eru í felum
í Kúvæt, fengju einnig að fara
heim. „Þeir geta verið alls
óhræddir,“ bætti hann við.
Heimsþjónusta breska útvarps-
ins BBC flutti þó skilaboð til
þeirra frá breska utanríkisráðu-
neytinu, sem ráðlagði þeim að
vera áfram í felum um sinn.
Voice ofAmerica útvarpaði svip-
uðum skilaboðum til þeirra.
Talið er að fyrstu Vestur-
landabúarnir fari frá írak í dag.
íraska flugfélagið hefur leigt
risaþotu fyrir áætlunarflug sitt
til Amman í Jórdaníu í dag í
stað minni flugvélar sem venju-
lega er notuð á flugleiðinni.
British Airways sendi þotu til
Bagdad með matvæli, lyf og
kampavín í von um að _fá að
flytja gísla á heimleiðinni. írask-
ur embættismaður sagði hins
vegar í gærkvöldi að þotunni
hefði verið neitað um lendingar-
leyfi þar sem íraska flugfélagið
ætti að annast flutningana. Þot-
unni var flogið til Amman í Jórd-
aníu.
togafundar í því tilefni. Wörner
lagði áherslu á hlutverk NATO í ‘
að tryggja stöðugleika í Evrópu
og sem sameiginlegan vettvang
ríkjanna beggja vegna Atlants-
hafsins. Ráðherrarnir lýstu sig
reiðubúna til viðræðna um samn-
inga um umtalsverða fækkun
skammdrægra kjarnavopna í Evr-
ópu en lögðu áherslu á nauðsyn
þess að halda eftir lágmarks varn-
armætti til að tryggja öryggi aðild-
arríkjanna. Wörner sagði að ekkert
aðildarríkjanna væri hlynnt al-
gjörri afvopnun á sviði kjarna-
vopna. í yfirlýsingu sem birt var
í lok fundarins er sameiningu
Þýskalands fagnað og þá sérstak-
léga aðild sameinaðs Þýskalands
að NATO. Ljóst er að afvopnunar-
samningar kalla á nýjar aðferðir
og breyttar áherslur í varnarsam-
starfi aðildarríkjanna og að því
verður unnið fram á vor. Manfred
Wörner sagði að NATO þyrfti ekki
á óvini að halda, hætta á sundr-
ungu og ófriði væri alltaf fyrir
hendi. Markmiðið væri að koma í
veg fyrir að slíkt ástand skapað-
ist, að tryggja stöðugleika, öryggi
og frið. Það væri hrapallegt að
hugsa sér að fórna þeim sam-
starfs- og samráðsvettvangi sem
NATO væri ekki einungis fyrir
aðildarríkin heldur Evrópu alla.
Reuter
Bandarísk lijón í Bagdad fagna ákvörðun
stjórnvalda í írak uin að sleppa erlendum
gíslum í landinu.
Kína:
• •
Oflug spreng-
ing við stærstu
Maó-styttuna
__ Peking. Reuter.
ÖFLUG sprenging varð við
risastóra styttu af Maó for-
manni í borginni Chengdu í
suðurhluta Kína í gær með
þeim afleiðingum að rúta
sprakk í loft upp og allt að
tíu manns biðu bana.
íbúar í Chengdu sögðu að um
sprengjutilræði hefði verið að
ræða en lögreglan vildi ekki tjá
sig um málið. Sjónarvottar
sögðu að 4-10 manns hefðu
týnt lífi.
Sprengingin varð er strætis-
vagninn ók framhjá stæi-stu
styttunni af Maó formanni í
Kína, sem er 15 metrar á hæð
og gnæfir yfir helstu urhferðar-
götunni í miðborg Chengdu.
Mikið fjölmenni safnaðist sam-
an við hana í námsmannamót-
mælunum í maí og júní í fyrra.
Styttan mun ekki hafa
skemmst,