Morgunblaðið - 08.12.1990, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1990
t
Basar í Maríukirkju
HAPPDRÆTTI, kaffisala og
basar verður í safnaðarheimili
Maríukirkju við Raufarsel sunnu-
daginn 9. desember kl. 15.00.
Meðal vinninga í happdrættinu
eru: Matur fyrir tvo á 10 stöðum í
Reykjavík, 3ja mánaða námskeið í
jazzballett í Jazzballettskóla Báru,
3ja mánaða dansnámskeið í dans-
skóla Jóns Péturs og Köru auk
margra góðra vinninga Engin núll.
Á basarnum verða seldir munir
til jólagjafa og ekki má gleyma
kaffinu og kökunum.
Allir eru velkomnir. Allur ágóði
rennur til safnaðarstarfsins.
Ath.: Messan verður kl. 14.00.
Engin messa verður kl. 11 árdegis.
Hafnarfjörður:
Ljósin á jólatrénu kveikt
LJÓSIN á jólatrénu á Thors plani
í miðbæ Hafnarfjarðar verða
tendruð klukkan 14 í dag, laugar-
dag. Tréð er gjöf frá vinabæ
Hafnarfjarðar í Danmörku,
Frederiksberg.
Fulltrúi frá danska sendiráðinu
afhendir tréð, Ingvar Viktorsson,
formaður bæjarráðs, flytur ávarp
og séra Sigurður Helgi Guðmunds-
son flytur hugvekju. Þá flytur
karlakórinn Þrestir nokkur lög.
Að lokinni athöfn verður bæj-
arbúum boðið upp á kaffisopa og
skemmtiatriðj í Iþróttahúsinu við
Strandgötu. í Álftafelli verður sýnt
nýtt myndband, „Bærinn í hraun-
inu“ af stórum skjá.
í Hafnarborg, menningar- og
listastofnun Hafnarfjarðar, verða
flutt nokkur tónlistaratriði klukkan
15.30. Þar stendur yfir sýning
Steinþórs Marinós Gunnarssonar
og Sigrúnar Steinþórsdóttur. Kaffi-
stofan í Hafnarborg verður opin.
Verslanir í Hafnarfirði verða opnar
til klukkan 18 í dag.
Orgeltón-
leikar í Bú-
staðakirkju
ORGELTÓNLEIKAR verða
haldnir í Bústaðakirkju annan
sunnudag í aðventu, 9. desember,
kl. 17.00. Þar mun Guðni Þ. Guð-
mundsson organisti kirkjunnar
flytja sína fyrstu einleikstónleika
á hið nýja orgel sem Bústaða-
kirkja eignaðist nú nýverið.
Þetta nýja orgel gefur mikla
möguleika hvað varðar fjölbreytni
á sviði orgeltónlistar. Það hefur 31
rödd, er með þijú hljómborð með
tónsveiflara í hveiju hljómborði og
í því eru tvö „svell“-verk sem breyta
styrk tónsins. Að auki eru í orgelinu
margar sólóraddii'.
Guðni flytur verk eftir Buxte-
hude, Pachelbel, Óskar Lindberg,
J.S. Bach og Max Reger. Þessi vei'k
hafa verið valin með það fyrir aug-
um að sýna mismunandi blæbrigði
hljóðfærisins. Aðgangur að þessum
tónleikum er ókeypis.
(Fréttatilkynning)
Játningabók Jóns Ottars
•• #
Orfáar athugasemdir
Guðni Þ. Guðmundsson, organisti
Bústaðakirkju.
eftirHalldór
Reynisson
Jón Óttar Ragnarsson, sviðs-
ljósamaður, er að gefa bók út um
þessi jól. Þar er að finna játningar
um líf og starf matvælafræðingsins
sem varð sjónvarpsstjóri. í bókinni
segir hann ennfremur sögui' af
sjálfum sét' og sögur annarra af
sjálfum sér. Af einhveijum sér-
kennilegum ástæðum ber mitt nafn
á góma í þessum sagnaflaumi eins
og lesa mátti í útdrætti er birtist í
Morgunblaðinu sl. sunnudag.
Þar sem sögur af þessu tagi eru
sjaldnast mjög nákvæmar vil ég
upplýsa Jón Ottar og aðra sem
kunna að hafa lesið þetta greinar-
korn um örfáar staðreyndir:
1. Ég hef aldrei búið á Smára-
götu, né undir sama þaki og nefnd-
ur Hans Kristján Árnason.
2. Þegar þetta vímuteiti á að
hafa farið fram var ég hættur störf-
um sem forsetaritari og orðinn
14
PHILIPS
TOMMU PHILIPS LITASJÓNVARP
FRIÐARSTILLIR A
J0LATILB0DI
TVÆR STÖÐVAR UM JÓLIN
Vegna hagstæðra samninga viö }
stærsta sjónvarpsframleiðenda í
heimi, PHILIPS í Hollandi, getum við boðið
þetta frábæra 14 tommu PHILIPS
litasjónvarp á sérstöku jólatilboði.
• Nýttútlit • Frábær hljómgæði
• Eðlilegir litir • Betraverð
Heimilistæki hf
SÆTÚNI8 SÍMI691515 ■ KRINGLUNNISÍMI691520
- sanauttífuito
sóknarprestur úti í sveit.
Svo þarf ég vitaskuld ekki að
fjalla um það sérstaklega, en ég
reyni yfirleitt að vera með fullum
sönsum og með skýran hug. Þó
getuí þurft að hnykkja hér á, þvi
aldrei er að vita nema kerlingin
Gróa á Leiti leynist í holti.
En fyrst ég er nú farinn að masa
þetta þá langar mig til að bæta
örlitlu við varðandi bókmenntagrein
þá sem mjög hefur rutt sér til rúms
á síðustu árum hér á landi og sum-
ir nefna ,játningabókmenntir“.
.-Eftir því sem ég kemst næst var
það sviðsljósafólk í Hollywood sem
hóf þessa bókmenntagrein til vegs
og virðingar, svo og frægasta port-
kona Bandaríkjanna, Xaviera Holl-
ander. í þessum bókum lýsti fræga
fólkið gjarnan skrautlegum veisl-
um, freyðandi víni og sínu nánasta
einkalífi sem gjarnan snerist um
helgustu parta mannslíkamans. Svo
var það gjarnan látið fylgja hvar
menn áttu sér bólstað og með hveij-
um.
Þegar við íslendingai' urðum for-
framaðir og fengum aðra sjón-
varpsrás og helling af útvarpsstöðv-
um, ijölgaði mjög í sviðsljósaliðinu.
Ekki gátum við verið minni menn
en fræga fólkið í útlöndum og brátt
fóru játningabækur þekktra Ijöl-
miðlaandlita að flæða yfir jólabóka-
markaðinn. Gömlu góðu æviminn-
ingarnar, ritaðar í ungmennafé-
lagastíl, hopuðu undan enda ekki
þekktar fyrir bersögli á sviði ást-
arlífsins.
Ég er einn þeirra sem reyni að
sniðganga þessar játningabækur
enda eru þær oftast medri að magni
en gæðum (það er helst að ég grípi
í Játningar Ágústínusar kirkjuföð-
ur...). Hins vegar get ég ekki
annað en beðið væntanlega jóla-
bókalesendur um að taka þessum
bókum með hæfilegri varúð. Alla
vega held ég að athugasemdir
mínar hér að framan sýni að ekki
er alltaf að treysta að bækur þessar
Halldór Reynisson
„Þegar við Islendingar
urðum forframaðir o g
fengum aðra sjón-
varpsrás og helling af
útvarpsstöðvum, fjölg-
aði mjög í sviðsljósalið-
inu.“
séu skrifaðai' af mikilli nákvæmni.
Auk heldur lýsa þær lífsstíl sem oft
er bæði falskur og öfgakenndur -
og stundum beinlínis hættulegur
lífi og-heilsu manna. Samt verðui'
hann eftirsóknarverður á blöðum
þessara bóka.
Ég læt í þessu sambandi fljóta
með vísu eftir Kristján heitinn Eld-
járn, fv. forseta, sem segir það sem
segja þarf:
Að eyða sínum ævidögum
við átveislur og diykkjuklið,
er synd gep Guði og lífsins lögum
er liggur dauðarefsing við.
Höfundur er prestur í Hruna og
fv. forsetaritari.
I
I
I
I
I
í
I
I
I
I
>
I
I
\
\
\
I
I