Morgunblaðið - 08.12.1990, Page 20
20
ofiei HaawaaaQ .8 huoaqaaouáj gi(3a1i3kuohow
MORGUNBLAÐIÐ LÁUGARDAGUR 8. DESEMBER 1990
Kópasel:
Skammsýni yfir-
valda - eða hvað?
eftir Birnu Friðriks-
dóttur, Ingu Þyri
Kjartansdóttur og
ArnórPálsson
5. desember sl. birtist í Velvak-
anda grein eftir Maríu L. Einars-
dóttur og fjallar hún um Kópasel,
leikskóla sem starfræktur er við
Lækjarbotna og ber greinin yfir-
skriftina Skammsýni yfirvalda. Er
greinarhöfundur ósáttur við þá ráð-
stöfun, að við rekstur leikskólans
skuli Kópavogsbær hafa fengið til
samstarfs aðila, sem í uppeldismál-
um vinna samkvæmt Waldorf-
kenningunni. í þessum skrifum eru
bæjaryfírvöld í Kópavogi ekki ein-
ungis sökuð um skammsýni, heldur
lýsir höfundur þeirri skoðun sinni
að hér sé um að ræða nánast glæp-
samlegt athæff. Þykir okkur hér
farið út yfír öll velsæmismörk og
W
ÍERSTÆÐIR
RÉniR
FLIÓTLEG
AFGREI
r\c
I HÁDEGÍNU
Asíuvagninn
7 heitir réttir
750,- krónur
SIÐDEGISKAFFÍ
rjúkandi heitt
m/vöfflum
og rjóma
KVÖLDVERÐUR
Hlaðborð
að hætti
Asíubúans
1.190,- krónur
Jólaglögg
m/piparkökum
allan daginn
LAUGAVEGI 10 • SÍMI 626210
viljum gera nokkrar athugasemdir
við umrædd skrif.
Kópavogsbær hefur nú í nokkur
ár rekið 7 leikskóla og Kópasel. í
öllum skýrslum og plöggum sem
um dagvistarmál fjalia, er Kópasel
tekið útúr heildarmyndinni, vegna
þess að um Kópasel hafa gilt önnur
lögmál en hina leikskólana. Starfs-
fólk hefur eindregið ráðið frá því
að þar væru yngri börn en fjögurra
ára, aðstæður sé of erfiðar fyrir þau
— börnin sofni þá í rútunni og á
veturna sé erfitt að bera þau í gegn-
um snjóskaflana. Vistunartími hef-
ur verið 7'A tími, annars staðar 4
eða 9 tímar. Starfsfólk Kópasels
hefur haft betri kjör en starfsmenn
á hinum leikskólunum, sem felst í
styttri vinnudegi fyrir sömu iaun.
Á undanförnum árum hefur gilt
sú regla á dagvistarstofnunum
Kópavogsbæjar, að deildir hafa ekki
verið aldursskiptar, þ.e. böm
tveggja til sex ára hafa verið saman
á deildum. Þetta hefur vissa kosti,
börnin læra að umgangast sér eldri
og yngri böm, en getur líka valdið
erfíðleikum í því starfí sem unnið
er með börnunum, vegna mismun-
andi þroska þeirra. Starfsfólk hefur
óskað eftir því að eldri böm hefðu
forgang við úthlutun plássa.
Þær breytingar hafa nú orðið á
þremur leikskólum, að komið hefur
verið á sveigjanlegum vistunartíma,
þar sem boðið er upp á 4, 5, 6 og
eða 9 tíma vistun. Jafnframt era
deildir aldursskiptar. Þessum breyt-
ingum hefur ekki verið komið á
erfiðislaust og ekki enn séð fyrir
endann á því hvernig ganga muni
að breyta þessu á hinum leikskólun-
um.
Með þeirri fjölgun leikskólarýma
í Kópavogi sem orðið hafði frá því
að rekstur leikskóla hófst í Kópa-
seli var svo komið, að í raun var
orðin samkeppni á milli leikskól-
anna um eldri bömin. Á síðastliðn-
um vetri var okkur tjáð að í Kópa-
seli, sem rúmar 42 börn, væru að-
eins 19 börn og rekstrarkostnaður
meiri en forsvaranlegt er.
Það hlýtur flestum að vera ljóst,
að þeir sem stjóma bæjar- og sveit-
arfélögum hafa á herðum sér þá
ábyrgð að ráðstafa skattpeningum
íbúanna á þann veg, að það skili
sér í sem mestri þjónustu fyrir sem
flesta. Og þegar stefndi i það að
bærinn borgaði hálfa milljón á ári
með hverju barni í Kópaseli, var
ljóst að eitthvað varð að gera.
Það var vissulega úr vöndu að
ráða. Það fer ekkert á milli mála
og það er ég sammála greinarhöf-
undi, að umhverfí Kópasels er ein-
stakt og hlýtur að veita börnum sem
þar dvelja annan og betri skilning
•á þeirri náttúru, sem okkur öllum
er svo nauðsynlegt að vera í tengsl-
Um við. Á þessu ríkir fullkominn
skilningur hjá bæjaryfirvöldum og
þess vegna var ekki bragðið á það
ráð að hætta rekstri Kópasels, eins
og ranglega hefur verið hermt í
ýmsum skrifum hingað til. Við vild-
um einmitt tryggja, að Kópasel
'gæti áfram gegnt sínu þýðingar-
mikla hlutverki sem leikskóli fyrir
börn í Kópavogi! Til þess að svo
mætti verða, urðu að verða breyt-
ingar á rekstri.
Við voram svo lánsöm, að hópur
fólks með menntun í uppeldisfræð-
um kenndum við Waldorf, var og
er reiðubúið til þess að hjálpa Kópa-
vogsbæ við að halda áfram rekstri
Kópasels. María segir Waldorf-upp-
eldiskenninguna allra góðra gjalda
verða, en telur að þá hluti megi
alla framkvæma, eins og gert hafí
verið í Kópaseli, án þess að skýra
það einhveijum fínum nöfnum. Þar
eram við innilega sammála, en það
hlýtur að hafa farið fram hjá Maríu,
að í Kópaseli var sú þema-vinna,
sem hún heillaðist svo af, unnin
samkvæmt kenningum sem kallast
Reggio Emilio. Eins og fram kemur
í grein Maríu, þá eru uppeldisað-
„Foreldrar og starfs-
fólk hafa margsinnis
lýst þeirri skoðun sinni,
að það sé umhverfið
sem geri Kópasel svo
einstakt. Það umhverfi
hefur ekkert breyst!
Það eina sem breytist
er starfsfólkið. Og
Kópavogsbær mun ekki
síður hér eftir sem
hingað til fylgjast vel
með þeirri starfsemi .
sem þarna fer fram.“
ferðir Waldorf engin bylting, en þar
er lögð heldur meiri áhersla en við
höfum áður þekkt í Kópavogi — þar
með talið Kópaseli — á náin og
eðlileg tengsl við náttúrana og að
innandyra sé fyrirkomulagið eins
heimilislegt og framast er unnt.
Þess vegna er okkur algjörlega
óskiljanlegur sá nornaseiður sem
framinn hefur verið varðandi þetta
mál. Hver er glæpur bæjaryfírvalda
í Kópavogi? Hann er sá, að draga
úr rekstrarkostnaði, en tryggja
börnum í Kópavogi áframhaldandi
dvöl í Kópaseli. Kópavogsbær mun
greiða umtalsveran rekstrarstyrk
með hveiju bami úr Kópavogi og
þau eiga ótvíræðan forgang.
Foreldrar og starfsfólk hafa
margsinnis lýst þeirri skoðun sinni,
að það sé umhverfið sem geri Kópa-
OGLEYMANLEG BOK
DLA AUGU
OG DIKSVÖRT HEMPA
eftir Tryggva Emilsson
Tryggvi Emilsson varb þjó&kunnur þegar
bók hans Fáteekt fólk kom út. Nú
kemur hann enn á óvart meó skáldsögu
um stórbrotin örlög og sterkar persónur.
jtePM&i&ííÉ
I §p
UTGEFANDI: STOFN
TRYGGVI EMILSSON
Blá augu og biksvört hempa er
örlagasaga einstaklinga og
þjóóar þar sem raunsannir
atburóir og þjóösagnakenndir
renna saman í eina listræna
heild. Þetta er sagan af
prestinum sem missti hempuna
vegna vinnukonunnar meó bláu
augun. Frásagnarlist Tryggva er
einstök, tungumálib fjöl-
skrúðugt, gaman og alvara
haldast ávallt í hendur.
DREIFING: VAKA-HELGAFELL
sel svo einstakt. Það umhverfí hefur
ekkert breyst! Það eina sem breyt-
ist er starfsfólkið. Og Kópavogsbær
mun ekki síður hér eftir sem hingað
til fylgjast vel með þeirri starfsemi
sem þarna fer fram. Á það hefur
verið bent að það sé slæmt fyrir
börnin að skipt sé um starfsfólk.
Við vildum svo gjarnan koma til
móts við foreldra og börn í þessu
efni og óskuðum eftir því við starfs-
fólk að nokkur þeirra yrðu áfram
með börnunum í Kópaseli til vors,
þá mun um helmingur barnanna
fara vegna aldurs og hin börnin
hafa aðlagast nýju fólki. Þessari
ósk hafnaði allt starfsfólkið! Og eins
og fram kemur hjá Maríu, þá hafa
foreldrar tekið þá ákvörðun að láta
börnin fara úr Kópaseli, til þess að
fylgja starfsfólkinu á nýja leikskóla
niðri í bæ.
Ef bæjaryfirvöld hefðu ákveðið
að loka Kópaseli, hefðum við ekki
orðið hissa á svona blaðaskrifum.
En við viljum spyija Maríu: Hveijir
eru það sem umtuma lifi barnanna?
Ekki er það Kópavogsbær, sem vill
einmitt gera börnunum kleift að
dveljast áfram í Kópaseli, í því
umhverfi sem þau era vön og allir
hafa rómað!
Lokaorð Maríu í garð samstarfs-
aðila okkar era smekklaus. Þetta
er vel menntað fólk, sem hefur þá
hugsjón að veita börnum uppeldi
og aðhlynningu, í sem nánustum
tengslum við náttúruna. Þau ganga
til þessa samstarfs við Kópavogsbæ
með áhuga og fómfýsi. Að reyna
að koma inn hjá þeim sektarkennd,
með því að tala um að færðar hafí
verið fómir, til þess að rýma fyrir
þeim, er ekki stórmannlegt. Ef fórn-
ir hafa verið færðar, er það ekki
að frumkvæði Kópavogsbæjar eða
Waldorf-hópsins. Óllum börnunum
stóð til boða að vera áfram í Kópa-
seli. Kópavogsbær óskaði eftir því,
sem áður segir, að nokkrir starfs-
menn yrðu áfram til vors og var
það með fullu samþykki samstarfs-
aðila okkar. Að enginn starfsmaður
skyldi fást til þess, er svo önnur
saga. Við getum alveg tekið undir
það með Maríu, að Kópasel er ákjós-
anlegur vinnustaður, bæði vegna
staðhátta og þeirra kjara sem
starfsfólk hefur notið. En Kópasel
er leikskóli og sem slíkur er hann
til vegna barnanna. Og öllu starfs-
fólki Kópasels hefur verið tryggð
vinna á öðram leikskólum bæjarins
og getur það tæplega talist slæm
meðferð.
Alþýðubandalagsmenn í Kópa-
vogi hafa gagnrýnt mjög þann sam-
starfssamning sem gerður hefur
verið við Waldorf-hópinn, enda þótt
þeir hafi sjálfír átt frumkvæðið að
honum og hófu á sínum tíma við-
ræðurnar við þá aðila. Þeim viðræð-
um og ákvörðun um rekstrarfyrir-
komulag á Kópaseli var frestað,
vegna óska starfsfólks um að fá
að ljúka þeirri þema-vinnu sem í
gangi var í Kópaseli. Þeirri. vinnu
lauk á síðastliðnu sumri.
Við viljum að lokum benda Kópa-
vogsbúum á það, að Kópasel er leik-
skóli fyrir þeirra börn. Vonandi átta
menn sig á því að gildi staðarins
hefur ekkert breyst og þeim sem
áhuga hafa á því að börn þeirra fái
að njóta þeirra kosta sem þar eru,
er bent á að dagvistunarfulltrúi
Kópavogsbæjar gefur hér eftir sem
hingað til upplýsingar um Kópasel,
sem og aðra Ipikskóla í Kópavogi.
Höfundar eiga sæti í
félagsmálaráði Kópavogsbæjar.