Morgunblaðið - 08.12.1990, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1990
Brían Pilkington sendir frá sér bamabók:
til tveggja ára tekjum
Morgunblaðið/KGA
Hamrahlíðarkórinn á æfingu fyrir tvenna tónleika sem kórinn heldur í dag í Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar í tilefni af útkomu hljómdisksins Turtildúfunnar, Jarðarbersins og Úlfaldalestarinnar.
A disknum flytur kórinn tónlist sem byggir á þjóðlögum frá ýmsum löndum.
Hamrahlíðarkórinn í
Listasafni Sigurjóns
HAMRAHLÍÐARKÓRINN heldur tvenna tónleika i dag í Lista-
safni Siguijóns Ólafssonar í tilefni af útkomu hljómdisksins Tur-
tildúfunnar, Jarðarbersins og Úlfaldalestarinnar. Á disknum flyt-
ur kórinn tónlist sem byggir á þjóðlögum frá ýmsum löndum.
Fluttur verður hluti þess efnis sem er að finna á geisladisknum
á tónleikununm í dag undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur.
Heiti hljómdisksins vísar til
þriggja þjóðlaga, Turtildúfunnar,
sem er þjóðlag frá Englandi, Jarð-
arbersins, sem er finnskt þjóðlag
og Úlfaldalestarinnar, þjóðlags
frá ísrael sem sungið er á hebr-
esku. „Þetta verða fremur stuttir
tónieikar og mátulega hressandi
þegar fólk er önnum kafið við
undirbúning á aðventu. Við ætlum
að hafa tvenna tónleika, hvorn
um sig um klukkustundarlangan,"
sagði Þorgerður.
Hún sagði að tveir hljóðfæra-
leikarar úr röðum kórfélaga
kæmu fram með kórnum á tón-
leikunum á morgun, píanóleikari
og flautuleikari. „Við ætlum að
flytja þá tónlist sem við höfum
verið að æfa og vinna að í allan
vetur,“ sagði Þorgerður.
Alls eru kórfélagar tæplega
fimmtíu. Tónleikarnir hefjast í
Listasafni Siguijóns Ólafssonar
kl. 15 og kl. 17.
Kemur út í 10 lönd-
um á 8 tungumálum
Jöfnunarsjóður lánar til skuldbreytinga
NETTÓSKULDIR Siglufjarðar nema rúmlega tvöföldum árstekjum
kaupstaðarins af útsvörum, aðstöðugjöldum og fasteignagjöldum.
Kaupstaðir, sem næst koma að skuldsetningu, eru: Stykkishólmur
162%, Olafsvík 138%, Eskifjörður 114% og Hveragerði 101%, Blöndu-
ós 98%, Sauðárkrókur 97%, Neskaupstaður 97%, ísafjörður 96% og
Ólafsfjörður 87%.
Afi gamli hefur ýmis ráð með að halda skegginu snyrtilegu.
Framanjgreind skuldastaða kem-
ur fram í Arbók sveitarfélaga 1990,
sem Samband íslenzkra sveitarfé-
laga gefur út. Nettóskuld er reiknuð
þannig að veltufjármunir og
langtímakröfur sveitarfélags eru
dregin frá skuldum. Hjá Reykjavík-
urborg eru veltufjármunir og
Iangtímakröfur hærri en skuldir,
öfugt við það sem er hjá öðrum
kaupstöðum.
Ástæður skuldsetningar eru
einkum þrjár. Umsvif sveitarfélaga
(þjónusta og framkvæmdir) hafa
aukizt Iangt umfram hagvöxt í
Menntamálaráðuneytið:
Ný framkvæmdastjóm Listahátíðar
KJÖRIN hefur verið ný fram-
kvæmdastjórn Listahátíðar.
Framkvæmdastjórnina skipa:
Atli Heimir Sveinsson, tónskáld,
Sjón (Sigurjón B. Sigurðsson),
rithöfundur, Selma Guðmunds-
dóttir, píanóleikari, Valgarður
Egilsson,Iæknir, og Helga Hjör-
var, skólastjóri, og verður hún
jafnframt formaður. Selma er
kosin af fulltrúaráði, Valgarður
af Reykjavíkurborg og Helga af
menntamálaráðuneytinu.
Listahátíð verður næst haldin
árið 1992 en kvikmvndahátíð lista-
hátíðar verður haustið 1991.
I fréttatilkynningu frá Mennta-
málaráðuneytinu s.egir að á full-
trúaráðsfundi hafi komið fram hug-
myndir um breytingu á samþykkt-
um hátíðarinnar, meðal annars um
lengri ráðningartíma framkvæmda-
stjóra sem hefur verið ráðinn til að
sinna einni listahátíð, lengri undir-
búningstíma til að auðveldara verði
að fá hingað listafólk sem bókað
er langt fram í tímann og til að ná
hagstæðari samningum. Fulltrúa-
ráðið mun koma saman eftir ára-
mót til að ræða þessi mál.
Svavar Gestsson, menntamála-
ráðherra, er nú formaður Listahá-
tíðar en borgarstjóri og mennta-
málaráðherra skiptast á um for-
mennsku.
landinu og í sumum tilvikum langt
umfram samtímatekjur þeirra.
Rekstrarleg staða atvinnulífsins,
einkum sjávarútvegsfyrirtækja,
hefur bitnað illa á sumum sveitarfé-
lögum. Loks hefur Jöfnunarsjóður
sveitarfélaga verið skertur um langt
árabil sem nemur hundruðum mill-
jóna króna. Sjóðurinn var á hinn
bóginn ekki skertur í ár. Hann hef-
ur lánað sveitarfélögum á árinu um
500 m.kr., þar af 300 m.kr. til
skuldbreytinga. Það skilyrði mun
hafa verið sett fyrir þessum lánveit-
ingum að sveitarfélögin standi ekki
jafnframt í framkvæmdum.
Meðaltekjur kaupstaðanna á
hvern íbúa, annarra en Reykjavík-
ur, voru kr. 77.500 árið 1989 en
meðaltekjur höfuðborgarinnar á
hvern fbúa sama ár voru kr. 98.200.
Rekstrargjöld Reykjavíkur á hvern
íbúa voru kr. 74.000 árið 1989 en
meðalrekstrargjöld annarra kaup-
staða tæpar kr. 60.000. Útgjöld
Reykjavíkur á hvern íbúa vegna
félagsmála, gatnagerðár og um-
hverfismála eru verulega hærri en
meðalútgjöld annarra kaupstaða til
sömu hluta. Hins vegar var kostn-
aður við yfirstjórn borgarinnar á
hvern íbúa verulega lægri (kr.
3.400) en meðalkostnaður annarra
kaupstaða (5.490).
í formála Árbókar sveitarfélaga
1990 segir „að enn gæti nokkurs
misræmis í bókhaldi sveitarfélaga
þannig að samaburður á ársreikn-
ingum sé ekki að fullu sambærileg-
ur“. Stykkishólmur hefur gert at-
hugasemd við frásögn Árbókar af
skuldastöðu kaupstaðarins.
BARNABÓK Brians Pilkington, „Afi gamli jólasveinn" kemur út í tíu
löndum, á átta tungumálum, fyrir þessi jól. Líklega hefur íslenzk bók
aldrei verið gefin út í jafnmörgum löndum á sama tíma. Ugplagið er
um 50.000 eintök alls, og eru prentuð álíka mörg eintök á Islandi og
í Bandaríkjunum. íslenzki útgefandinn er Iðunn.
Skuldugustu kaupstaðirnir:
Skulda sem svarar eins
ég tengdi skrýtlurnar saman í sögu,
og mér finnst það hafa komið vel út.“
Aðspurður hvernig hann hafi farið
að því að koma bókinni svona víða
á framfæri, segir Brian að það sé
verk sænsks umboðsmanns síns, sem
hafi kynnt hana fyrir útgefendum í
ýmsum löndum. Bókin er nú komin
út í þremur enskum útgáfum; í
Bandaríkjunum, Bretlandi og
Kanada, og á sænsku, dönsku,
norsku, færeysku, þýzku og Jioi-
lenzku, auk íslenzku. Þar að auki
hefur Brian undirritað samning við
finnskt útgáfufyrirtæki, sem mun
gefa bókina út í Finnlandi fyrir jólin
á næsta ári.
Afi gamli jólasveinn hefur nú þeg-
ar verið prentaður í 40-50.000 ein-
tökum, að sögn Brians. Hann segir
að það sé nokkuð skondið að bókin
hafi verið prentuð í hér um bil sama
upplagi á íslandi og í Bandaríkjun-
um; hér á landi seljist bækur af
þessu tagi miklu betur en í öðrum
löndum.
Brian segist ekki eiga von á að
bókin verði gefin út í fleiri löndum
en þeim ellefu, sem þegar hefur
verið samið við. Jólin séu líka með
öðrum hætti í suðrænum löndum,
og varla sé hægt að selja bókina í
löndum, þar sem menn þekki til
dæmis ekki jólasveininn. Hins vegar
hefur hann þegar undirritað sjö
samninga um útgáfu á framhalds-
bók um afa gamla fyrir næstu jól.
Hinir útgefendumir þrír ætla að sjá
hvernig bókin selst fyrir jólin i ár.
Brian Pilkington er enskur að
uppruna, en hefur búið hér á landi
um árabil. Hann hefur teiknað
myndir í fjölda bóka, einkum
barnabækur, og einnig samið sögur
sjálfur, til dæmis Örkina hans
Nonna, sem kom út fyrir tveimur
árum.
í „Afa gamla jólasveini" segir á
gamansaman hátt frá Haraldi
gamla, sem er með feiknamikið hvítt
skegg og hefur atvinnu af því að
leika jólasvein í desember, en aðra
mánuði ársins gengur honum brösu-
lega að fá vinnu af því að skeggið
þvælist alltaf fyrir honum, festist í
dyrum eða sogast upp í ryksuguna.
Hann er því þess vegna fegnastur
þegar jólin koma aftur. Bókin er
skreytt flölda mynda eftir Brian.
„Eg er mjög ánægður með þessa
bók, enda hef ég unnið í henni í
mörg ár. Ég fékk hugmyndina fyrir
íjórum eða fimm árum, og það tók
ein þijú ár að koma henni á blað,“
sagði Brian í samtali við Morgun-
blaðið. „Þegar ég byrjaði að gera
skissur var ég fyrst og fremst með
brandarabók í huga, með litlum sem
engum texta. Svo fannst mér það
ekki koma nógu vel út, þannig að
Morgunblaðið/Júlíus
Brian Pilkington með mismun-
andi útgáfur af bók sinni.
Akureyri:
Jólahlaðborð
í Sjallanum
TVÆR næstu helgar mun
Sjallinn bjóða upp á jóla-
hlaðborð og skemmtiatriði
til að ná fram jólastemmn-
ingu.
Á jólahlaðborðinu verður
m.a. boðið upp á danska rifjas-
teik, úrval síldarrétta, hangi-
kjöt og laufabrauð, heysoðna
skinkú, danska sveitakæfu og
margt fleira.
Söngkonurnar Berglind
Björg Jónasdóttir og Guðrún
Gunnarsdóttir sjá um jólasöng-
inn við undirleik Níelsar Ragn-
arssonar. Föstudagskvöldið
14. desember verða verslanir
á Akureyri jafnframt með
tískusýningar.
Hunangstunglið leikur fyrir
dansi fyrri helgina, en hljóm-
sveit Geirmundar Valtýssonar
þá síðari.