Morgunblaðið - 08.12.1990, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1990
Bretadrottning heiðr-
ar Thatcher-hjónin
London. Reuter.
ELÍSABET Bretadrottning
sæmdi Margaret Thatcher, fyrr-
verandi forsætisráðherra, í gær
einhverri æðstu orðu Bretlanðs
fyrir störf hennar í þágu lands
og þjóðar. Denis Thatcher, eigin-
Þýskaland:
Heimilis-
feðranna
sárt saknað
Berlín< dpa.
ÞÚSUNDIR eiginkvenna og
barna á landsvæði því sem
áður var Austur-Þýskaland
leita nú eiginmanna og feðra
sem fóru til V-Þýskalands
gegnum Prag eða Búdapest
áður en Berlínarmúrinn
hrundi fyrir rúmu ári.
Margir heimilisfeður yfir-
gáfu konur sínar og börn fyrir-
varalaust og enn aðrir — frá-
skildir menn — flýðu meðlags-
greiðslur með börnum sínum
og fyrrverandi eiginkonum.
Frá falli Berlínarmúrsins 9.
nóvember á síðasta ári hafa
aðalstöðvum Rauða krossins í
Miinchen í Þýskalandi borist
beiðnir frá um 17.000 eiginkon-
um um hjáip við að hafa upp
á núverandi eða fyrrverandi
eiginmönnum sínum. Aðeins
um 1.500 þeirra sem stungu
af frá meðlagsgreiðslum hafa
fundist, að sögn Margit Piemic-
zek, starfsmanns Rauða kross-
ins._
Á sama tíma hafa um 20.000
manns í austurhluta Þýska-
lands beðið um upplýsingar um
náskyld ættmenni sín sem flutt-
ust til vesturhlutans fyrir og
eftir fali kommúnistastjómar-
innar í Austur-Þýskalandi.
Mikill fjöldi barna var skilinn
eftir í Austur-Þýskalandi og var
þeim komið fyrir á bamaheimil-
um. Foreldrar sumra þeirra
hafa komið og sótt þau eftir
sameiningu þýsku ríkjanna og
önnur hafa verið send vestur
til foreldra sinna.
maður forsætisráðherrans fyrr-
verandi, var hins vegar aðlaður
og gengur sú tign í arf.
Við því hafði verið búist að
Thatcher sem lét af embætti í
síðustu viku yrði með einhveijum
hætti heiðruð. En ekki var talið
koma til álita að hún yrði öðluð því
þá hefði hún misst rétt sinn til setu
í neðri málstofu breska þingsins og
fiust upp í Iávarðadeildina.
Drottningin sæmdi Thatcher orðu
sem nefnist „Order of Merit“. Ein-
ungis 24 einstaklingar er nú handha-
far orðunnar. Þeirra á meðal em
rithöfundurinn Graham Greene,
fíðluleikarinn Yehudi Menuhin og
Móðir Teresa. Af látnum handhöfum
orðunnar má nefna Winston Churc-
hill, fyrrum forsætisráðherra Bret-
lands. Harold Brooks-Baker, útgef-
andi Burke’s Peerage, skrár yfir
aðalsmenn, sagði í samtali við Reut-
ers-fréttastofuna að heiður sá sem
Thatcher hefði öðlast sýndi að allt
tal um að henni og drottningunni
hefði ekki komið vel saman væri
rugl.
Denis Thatcher, eiginmaður for-
sætisráðherrans fyrrverandi, var
aðlaður í gær og sæmdur nafnbót-
inni barónett, sem er lægsta aðals-
tign sem gengur í erfðir, æðri en
riddari en lægri en barón.
Tunku grafinn meðviðhöfn
Reuter
Útför Tunkus Abduls Rahmans fyrrverandi forsætis-
ráðherra Malasíu fór fram með mikilli viðhöfn í
Kuala Lumpur, höfuðborg landsins, í gær en hann
dó á fimmtudag á 88. aldursári. Tunku varð forsæt-
isráðherra er Malajar öðluðust sjálfstæði frá Bretum
31. ágúst 1957. Hann gegndi því starfi til ársins
1970 og var jafnan nefndur faðir Malasíu þar sem
hann var aðal hvatamaður að stofnun ríkjasambands
árið 1963 með Sabah, Sarawak og'Singapore, sem
einnig höfðu verið breskar nýlendur.
Forsætisráðherra ísraels í Bretlandi:
SÞ geri Irökumljóst að lausn
gislanna sé ekki eina krafan
London, París. Reuter.
YITZHAK Shamir, forsætisráð-
herra Israels, ræddi við ráða-
menn í Bretlandi á fimmtudag
en hélt í gær til Washington þar
sem hann mun m.a. hitta George
Bush Bandaríkjaforseta að
máli. Öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna ræðir þessa dagana
drög að tillögum um alþjóðlega
ráðstefnu um lausn helstu deilu-
mála í Mið-Austurlöndum og
hafa heimildarmenn sagt að
Bandaríkjamenn séu reiðubúnir
að íhuga hugmyndina að settum
ákveðnum skilyrðum. „Eg tel
að ísraelar muni ekki sætta sig
við að nokkur erlendur aðili
ákveði örlög lands þeirra,"
sagði Shamir við fréttamenn er
hann hafði rætt við John Major
forsætisráðherra í London.
Shamir hvatti til þess að þrýst-
ingp á íraka yrði ekki hætt þótt
þeir létu alla erlenda gísla
lausa.
ísraelar hafa staðfastlega mót-
mælt öllum hugmyndum um ráð-
stefnu af áðurnefndu tagi og telja
að þeir muni óhjákvæmilega fara
■halloka í slíkum samskiptum. Vilja
þeir fremur eiga tvíhliða viðræður
við andstæðinga sína en standa
fast á ýmsum fyrirvörum þ.á m. að
GATT-viðræðurnar:
Þráðurinn tekinn upp að nýju í Genf
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
RAÐHERRAFUNDI aðildarríkja
GATT-viðræðnanna var slitið
' skömmu eftir hádegi í gær eftir
árangurslausar viðræður um
landbúnaðarmál. Svo virðist sem
'almennt áhugaleysi til að halda
viðræðunum áfram á grundvelli
málamiðlunartillögu sem lögð
var fram í fyrradag hafi valdið
mestu um. Talsmenn Evrópu-
bandalagsins lögðust gegn því
að fundinum væri slitið og vildu
halda áfram viðræðum um inni-
hald samningaviðræðnanná í
heild. Forseti fundarins, Hector
Gros Espiell, utanríkisráðherra
Uruguay, sleit fundi sjö mínútum
yfir tvö að viðstöddum aðal-
samningamönnum aðildarríkj-
anna.
Það var ekki laust við að Þórðar-
gleði ríkti í heimssýningarhöllunum
við Brussel í gær þegar ljóst varð
að enginn þyrfti að gera upp hug
sinn til helstu_ deiluefna Uruguay-
viðræðnanna. í rauninni koma þessi
endalok engum á óvart. Ofurá-
hersla á lausn á deilum um styrki
til landbúnaðar hefur dregið at-
hygli fjölmiðla og þátttakenda í
umræðunum frá öðrum ágreinings-
efnum sem t.d. varða greiðari við-
skipti á sviði þjónustugreina. Efast
verður um réttmæti þeirrar gagn-
rýni sem beint hefur verið að Evr-
ópubandalaginu (EB) en látið er í
það skína að tregða þess til að
skera niður styrki og útílutnings-
bætur í landbúnaði hafi siglt við-
ræðunum í strand.
Samningamenn EB lýstu sig
reiðubúna til að fallast á málamiðl-
unartillögu Svíans Mats Hellströms
sem grundvöll að frekari viðræðum.
Það var hins vegar ljóst að tillagan
var mjög brothætt og nauðsynlegt
væri að fjalla fyrst um þá þætti
hennar sem þolanlegt samkomulag
væri um. Hún þótti hafa alla kosti
góðrar málamiðlunar, hún var allt
í senn loðin, opin og óljós, auk
þess sem allir voru í rauninni
andvígir henni. Ríki Suður-
Ameríku sáu hins vegar ekki
ástæðu til þolinmæði og á fundi í
landbúnaðamefnd stilltu nokkur
þeirra talsmönnum EB upp við
vegg þar til ljóst var að þeir hefðu
ekki formlégt umboð til að ganga
lengra en samningsumboð ráðherr-
aráðsins gerði ráð fyrir, a.m.k. svo
nokkru næmi. Frá upphafí var Ijóst
að það umboð var langt frá því að
vera fullnægjandi. A grundvelli
þessa fór fundurinn út um þúfur.
Haft var eftir fulltrúum í land-
búnaðamefndinni að mörg þriðja
heinjs-ríkjanna hefðu takmarkaðan
áhuga á að fá yfir sig strangar
reglur um eftirlit með tollum og
ríkisstyrkjum auk þess sem hertar
reglur um höfundarrétt og einka-
leyfi á uppfínningum og fram-
leiðsluvörum, s.s. lyfjum, þjónaði
takmarkað hagsmunum margra
þeirra.
Gert er ráð fyrir því að fasta-
nefndir aðildarríkjanna taki upp
viðræður í Genf í næstu viku og
nokkuð víst er að mögulegar mála-
miðlanir verða óformlega á dagskrá
ársfundar GATT sem verður í Genf
12. desember nk. Augljóst virðist
að líkurnar á samkomulagi um
- Reuter
Carla Hills, adalsamning-amadur
Bandaríkjamanna í GATT-við-
ræðunum.
landbúnað hafa aukist vegna þess
að Bandaríkjamenn hafa fallist á
að hugsanlegt sé að semja um
minni niðurskurð en upphaflegu
tillögur þeirra gerðu ráð fyrir og
EB hefur fyrir sitt leyti gefið vil-
yrði fyrir því að rætt verði um
styrki í þrennu lagi, þ.e. sérstak-
lega verði fjallað um útflutnings-
bætur, innanlandsstyrki og aðgang
að mörkuðum. Áætlað er að halda
annan ráðherrafund til að ljúka
viðræuðnum snemma á næsta ári.
Frelsissamtök Palestínumanna
(PLO) séu óhæf til að vera mál-
svari Palestínumanna, þau séu ótínd
hryðjuverkasmtök. Saddam Hus-
sein íraksforseti hefur sett það sem
skilyrði fyrir samningum í Kúvæt-
deilunni að leyst verði helstu deilu-
mál í Mið-Austurlöndum, fyrst og
fremst ágreiningurinn um rétt Pal-
estínumanna til sjálfstæðs ríkis.
Shamir vísaði á bug öllum „bolla-
leggingum og sögusögnum“ um
sinnaskipti Bandaríkjamanna í mál-
inu en. þeir hafa stutt ísraela og
lagst gegn alþjóðlegri ráðstefnu.
í viðtali við breska útvarpið BBC
varaði Shamir Vesturlandabúa við
því að hygla Saddam fyrir að sleppa
gíslum úr landi en íraksforseti hef-
ur heitið því áð allir erlendir gíslar
fái að fara fyrir jól. „Gíslatakan var
óþolandi aðgerð einræðisherra og
láti hann þá lausa mun hann krefj-
ast launa fyrir vikið,“ sagði forsæt-
isráðherrann.
James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, hefur vísað því á
bug að Bandaríkjastjórn hafi breytt
afstöðu sinni málinu. Vestrænir
stjórnarerindrekar í París segja að
stórveldin fimm sem eiga fastafull-
trúa í öryggisráðinu eigi erfitt með
að ná samkomulagi um friðarráð-
stefnu um Mið-Austurlönd á vegum
SÞ. Eín áf ástæðunum sé innbyrðis
ágreiningur í Bandaríkjastjórn í
málinu.
Palestínumenn hyggjast minnast
þess á morgun að þá verða liðin
þrjú ár frá því að intifada, uppreisn-
in á hernumdu svæðunum, hófst.
Moshe Arens, varnarmálaráðherra
ísraels, sagði að gripið yrði til
harkalegra ráðstafana ef Paléstínu-
menn hæfu að beita skotvopnum í
uppreisninni. „Við munum svara
skothríð með skothríð,“ sagði hann
á fímmtudag en daginn áður var
gerð skotárás á langferðabíl á Vest-
urbakkanum og særðust þrír gyð-
ingar úr röðum Iandnema á svæð-
inu. Alls hafa ísraelar fellt 742
Palestínumenn í uppreisninni og 55
gyðingar hafa látist. Sjálfir hafa
Palestínumenn drepið 283 úr eigin
röðum, flesta vegna grunsemda um
að þeir hafí unnið fyrir Israels-
stjórn.