Morgunblaðið - 08.12.1990, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1990
Aðventusamkoma
í Arbæjarsókn
Aðventuhátíð
í kirkju Óháða
safnaðarins
Á morgun, sunnudaginn 9. des-
ember kl. 20.-30, verður aðventu-
hátíð í kirkju Óháða safnaðarins.
Dagskráin verður íjölbreytt og
vönduð:
— Jónas Jónasson dagskrárgerð-
arstjór RÚV er ræðumaður kvölds-
ins. — Friðbjörn G. Jónsson syngur
einsöng. — Barnakór Melaskólans
(stóri kórinn) kemur í heimsókn.
Stjórnandi kórsins er Kári Krist-
jánsson. — Blásarabandið: Herbert
Hr. Ágústsson, Þorvaldur Stein-
grímsson, Björn R. Einarsson og
Jónas Þ. Dagbjartsson spila. —
Kirkjukórinn syngur undir stjórn
Jónasar Þóris. — Ritningarlestur
og bænir. — Ljósin tendruð. —
Veitingar í Kirkjubæ.
Reynt verður að fá alla kirkju-
gestina til þess að taka þátt í söngn-
um og mun kirkjukórinn í því til-
j Ý\ ■ I -h á i
-1 ■iKlÍII • 1
Kirkja Óháða safnaðarins.
efni dreifa sér um kirkjuna. Að-
ventuhátíðirnar hafa undanfarin ár
verið vinsælar og fjölsóttar og án-
ægja hefur ríkt í hjörtum þeirra,
sem hafa verið með.
Allir aldurshópar koma á að-
ventuhátíðina: Afar og ömmur,
pabbar og mömmur, börn og allir
aðrir.
Þórsteinn Ragnarsson,
safnaðarprestur.
Sunnudaginn 9. desember, annan
sunnudag í aðventu, verður að-
ventusamkoma haldin í Árbæjar-
kirkju og hefst samkoman kl. 20.30.
Að venju er dagskráin vönduð
og fjölbreytt bæði í tali og tónum
og verður sem hér segir:
1. Samkoman sett af sr. Kristni
Ágústi Friðfinnssyni og er hann
jafnframt kynnir. 2. Söngur kirkju-
kórs Árbæjarsóknar undir stjórn
kirkjuorganistans Jóns Mýrdal. 3.
Samleikur á fiðlu og píanó, Heiðrún
Heiðarsdóttir og Anna Þóra Bene-
diktsdóttir. 4. Oli Þ. Guðbjartsson
dóms- og kirkjumálaráðherra flytur
ræðu. 5. Dúfa Einarsdóttir syngur
einsöng við undirleik Guðbjargar
Siguijónsdóttur. 6. Skólakór Ár-
bæjarskóla syngur undir stjórn Ás-
laugar Bergsteinsdóttur tón-
menntakennara. 7. Helgistund í
umsjá sóknarprests. Unglingar úr
æskulýðsfélagi kirkjunnar lesa ritn-
ingarlestra, hugleiðing, aðventu-
ljósin tendruð, sameiginlegur söng-
ur viðstaddra.
Aðventan er undirbúningstími
okkar kristinna manna fyrir komu
jólanna. Sá undirbúningur er marg-
þættur. Síðustu vikurnar fyrir jól
einkennast af önn og erli vegna
hins veraldlega undirbúnings fyrir
þessa hátíð lífs og ljóss.
Kristnir söfnuðir hafa í síauknum
mæli gefið hinum andlega undir-
búningi aðventunnar gaum. Hann
miðar að því að menn geti eignast
heilög jól, hátíð friðar og gleði, birtu
og kærleika í hug og hjarta. I því
skyni eru aðventukvöld safnaðanna
haldin þar sem menn geta beint
hugum að fagnaðarefni jólanna,
hvers virði jólin eru raunverulega í
lífi okkar allra, og hvílík nauðsyn
það er hverjum manni að eignast
Árbæjarkirkja.
jólagestinn góða Jesú Krist í hjarta
og sál. Gleðileg er stóraukin þátt-
taka safnaðarfólks í helgistundum
aðventunnar sem ber þess vott, að
menn skynja mikilvægi þess að búa
hug sinn og hjarta undir komu jól-
anna, svo að þau verði þeim sönn
og heilög jól.
Fjölmennum á aðventusamkomu
Árbæjarsafnaðar á sunnudags-
kvöld. Eignumst kyrra og helga
stund til undirbúnings hátíðinni
æðstu, heilögum jólum. Tendrum
aðventuljósin í hug og hjarta. Verið
öll hjartanlega velkomin.
Guðmundur Þorsteinsson
>
. J-ÁÚ’ I.
ÆwSmf^sMm&kk(
'KT.'íiia-'M.ín'UIJ MQHR
-r.Ó-RMVÚS, MÓÐIR
|ggi
;gurna
ÁSTARSÖGURNAR
ELSE-MARIE NOHR
Hún hefur aldrei verið mikið fyrir börn, en
í fríi sínu verður hún ástfangin af manni
nokkrum og kynnist lítilli dóttur hans, sem
er hjartveik og bfður eftir þvf að komast
undir læknishendur.
í DAG HEFST LÍFIÐ
ERIK NERLÖE
Aðeins sautján ára gömul er hún að verða
fræg og rík. Og margt er að gerast í lífi henn-
ar. Hún fær tækifæri sem söngkona; hún
verður ástfangin; hún hittir móður sína,
sem hún hefur aldrei þekkt, en hefur svo
oft dreymt um.
H AMINGJUHJARTAÐ
EVA STEEN
ÆVINTÝRI í MAROKKÓ
BARBARA CARTLAND
Nevada Van Arden var bæði mjög falleg og
vellrík, og hún naut þess að kremja hjörtu
ungu mannanna. Tyrone Strome varð æva-
reiður, þegar hann komst að raun um,
hvernig hún fór með aðdáendur sína, og
hve laus hún var við alla tillitssemi og
hjartahlýju.
f SKUGGA FORTÍÐAR
THERESA CHARLES
Ilona var dularfuíl í augum samstarfsfólks
sfns. Engu þeirra datt íhug, að hún skrifaði
spennusögur f frftíma sfnum, eða að þessi
„Nikulás" sem hún átti að vera trúlofuð,
væri aðeins til í hugarheimi hennar.
Hún er rekin úr ballettskólanum og fer því
til London, þar sem hún gerist þjónustu-
stúlka hjá fjölskyldu einni, og gætir lítillar
stúlku. Á leiðinni til London kynnist hún
ungum manni, sem sýnir henni mikinn á-
huga. - *
SKUGGSJÁ
BÓKABÚÐ OLIVERS STEINS SF í
GLEÐILEG JÓL!
Umjólablóm
Blóm vikunnar
Umsjón: Ágústa Björnsdóttir
193. þáttur
Við þurfum á blómum að halda
í skammdegisdeyfunni. Eitthvað
grænt, lifandi og litríkt sem nær
að lífga upp á heimilið og minna
okkur á sumar og yl. Blóm megna
þetta betur en nokkurt annað
skraut þegar sól er lægst á lofti.
Margir láta það eftir sér að kaupa
blóm fyrir jólahátíðina þó þeir geri
það kannski sjaldan annars. Á
þessum tíma árs er þó úrvalið fá-
tæklegra en á öðrum árstímum
enda er um birtusnauðasta mánuð-
inn að ræða. í ýmsum löndum er
siður að nota ákveðin blóm öðrum
fremur um jólahátíðina. í Noregi
er t.d. hin blómasæla jólabegónía
með rauðbleikum eða hvítum blóm-
um hefðbundið jólablóm, nefnist
þar jólagleði og þykir með öllu
ómissandi, þó hér á landi hafi hún
ekki náð útbreiðslu. Sums staðar
eru jólakaktusar í heiðri hafðir sem
jólablóm enda eru blóm þeirra fag-
urlega formuð oftast með rauðum
litblæ en geta einnig verið rauðgul
eða hvítleit. Jólakaktus er auðveld-
ur viðfangs, hann myndar blóm-
hnappa er hausta tekur, standi
hann um skeið við 15-18° hita og
sé hitastigið lægi’a blómgast hann
óháður árstíma.
Hér og þar er alparós mikið
notað jólablóm, einkum í Mið-Evr-
ópu. Einnig er alpafjólan alkunn,
en hún ber hvít, rauð eða bleik
blóm sem hún hagræðir tígulega
hátt yfir blöðunum. Annars staðar
er jólastjarna í mestum metum.
Með sínum stóru og litfögru há-
blöðum er hún tilkomumikil og
hrífandi jurt. Háblöð jólastjörn-
unnar e.ru oftast skærrauð en
geta einnig verið bleik eða hvít.
Á tiltölulega skömmum tíma hef-
ur jólastjarnan náð að verða
óhemju vinsæl sem stofublóm frá
hausti og fram yfir jól. Gildir þetta
einnig hér. Markvissar kynbætur
eiga sinn þátt í þessu.
Fá jólablóm munu þó eiga jafn
fjölmennan aðdáendahóp og
blómlaukarnir, en hér skipa hinar
ilmríku og forkunnarfögru hyas-
intur heiðurssess. í flestum lifandi
borðskreytingum jólahátíðarinnar
gegna þær meginhlutverki um-
vafðar grenigreinum, mosa,
könglum og öðru litríkara skrauti.
Hyasintur eru í ýmsum litum en
hér virðist sá bleiki vera vinsæl-
astur. Hyasintur eru seldar á lauk,
en þannig geta þær staðið fram
að nýári ef þess er gætt að hafa
þær hæfilega rakar og setja þær
á svalan stað að nóttu til.
Ýmis afskorin blóm eru notuð
um jól. Þau lifa því aðeins vel og
lengi að þeim sé sýnd nærgætni
og umhyggja, t.d. með því að
geyma þau ávallt á svölum stað
um nætur og fylgjast vel með
vatnsþörf þeirra sem er ótrúlega
mikil í hlýjum húsakynnum. Þá
skal og forðast að láta þau standa
þar sem dragsúgs eða hitastreym-
is kann að gæta.
ó.y.H.