Morgunblaðið - 08.12.1990, Page 61
MORGUNBLAÐtÐ iLAUQARDAQUR 8. DESEMBER 199^0
61
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FOSTUDAGS
1\tr )/wmi jYr/ 'L) ir
Oviðunandi vinnubrögð
Til Velvakanda.
Á síðasta ári kærði ég Dagsbrún
fyrir skjalafals. Var kæran send til
heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytisins og síðan gekk hún á milli
ráðuneytanna þar til heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið svaraði
henni loksins og þá á þá leið að það
sæi ekkert athugavert við afgreiðslu
Dagsbrúnar. Þykir mér það mjög
skrýtið.
Það sem ég kærði Dagsbrún fyrir
var að hafa skrifað á vinnuveitanda-
vottorð sem vinnuveitandi á að fylla
út en 'ekki Dagsbrún. Eins og gefur
að skilja þá var skrifað inn á vottorð-
ið til að koma í veg fyrir greiðslu á
atvinnuleysisbótum. Er mér kunnugt
um að þeir hafi einnig gert það gagn-
vart öðrum félagsmanni sem ég
þekki, Kristni Eysteinssyni garðyrkj-
umanni.
Er mér kunnugt um að þeir hjá
Dagsbrún hafi skrifað inn á vottorð-
ið hjá umræddum manni að hann
hafi ekki staðið sig sem skyldi í vinn-
unni og þá að sögn verkstjóra. Var
það einnig orðað þannig hjá mér, en
í þessum báðum málum átti þetta
ekki við rök að styjast.
Síðan kom það í ljós að Dagsbrún
hafði ekkert haft samband við verk-
stjórann þegar Kristinn talaði við
hann. Mun verkstjórinn þá strax
hafa haft samband við Dag'sbrún til
þess að leiðrétta þetta mál og fá frek-
ari skýringar.
Hugsanlega eru til fleiri dæmi en
þessi tvö um menn sem hafa ekki
fengið bætur sínar strax eða með
eðlilegum hætti frá stjórn Atvinnu-
leysistryggingarsjóðs vegna þess að
Dagsbrún hefur þá haft þann háttinn
á að skrifa á vinnuveitandavottorðið
Til Velvakanda.
Eins og alþjóð veit, er Borgara-
flokkurinn nú í dauðateygjunum. En
merkileg eru hinztu kvik (lífsmörk)
forvígismanna þessa flokks. Svo lítur
út sem þau séu helzt merkjanleg í
rándýrum utanferðum. Þykir ýmsum
sem þar sé stungin tólgin í meira
lagi, og eru þó landsmenn ýmsu van-
til þess að koma í veg fyrir að menn
fengju greiddar atvinnuleysisbætur,
og þá hafa sumir hugsanlega sætt
sig við þann úrskurð að fá ekkert
greitt úr Atvinnuleysistrygginga-
sjóði.
Vonandi rennur upp sá dagur að
stjóm Dagsbrúnar verður felld og
þessari sviksamlegu starfsemi, að
skrifa á vinnuveitendavottorð, lögð
niður hjá félaginu, þar sem heilbrigð-
is- og tryggingamálaráðuneytið hef-
ur ekkert hugsað sér að gera til þess
að stöðva þessa starfsemi.
Þorsteinn Sch. Thorsteinsson
ir í þeim efnum. En segja má, að
steininn taki úr, þegar dómsmálaráð-
herrann fer í sínar frægu reisur.
Sem betur fer er hrakför þessa
flokks — ef flokk skyldi kalla — senn
á enda. Hann er löngu farinn að
berja nestið.
Kristín Sigurðardóttir
I dauðateygj unum
Sæktu þér þrótt
í ríki náttúrunnar með
Magna hvítlauksperlum!
Hvítlaukur hefur um aldir notið vinsælda sem
heilsujurt en hann er ekki algengur í daglegum
kosti íslendinga. Nú er komið ráð við því. í hverri
Magna hvítlauksperlu eru 10 mg af lyktarlausu
hvítlauksdufti, sem svarar til 3 g af ferskum
hvítlauk. Er ekki tími til kominn að þú leysir
starfsorku þína úr læðingi og sækir þér þrótt í ríki
náttúrunnar?
Grandavegi 42, Reykjavík, simi 91-28777.
Barnakuldaskór
í stærðum 24-34 úr vatnsheldu efni.
Verðfrá 4.385,-.
Opið ídagtil kl. 18.00.
smáskór
Skólavörðustíg 6B. Póstsendum. Sími 622812.
Jólatilboð í hádeginu
alla daga í desember
í desember verður sérstakt
jólatilboð í hádeginu.
Forréttur, aðalréttur og eftirréttur, sem hver velur
að vild af seðli dagsins.
■^$«0 Forréttir
Hreindýrapaté með púrtvínslauk
og rifsberjum
Laxaterrine með fennelkryddsósu
Blandaðir síldarréttir á íssalati
Súpa dagsins
Aöalréttir
Gufusoðin rauðsprettuflök með sveppamauki og hvítvínssósu
Eldsteikt stórlúða með blaðlauk
og rjómasauternssósu
Grísarilja með píkantsósu
Gljáður hamborgarhryggur
Nautahryggsneið með perlulauk og fleski
Eftirréttir
Jólapúns með munngæti
Mocca rjómaís
Forréttur, aöalréttur og eftirréttur frá
kr. 995
án þess að slakað sé á gæðakröfunum
Bergstaðastræti 37, sími 91-25700
Metsölublad á hveijum degi!