Morgunblaðið - 08.12.1990, Qupperneq 63
MÖRGONBLAÐIÐ
IÞRÓTTIR i
JR 8. DESEMBER 1990
63
HANDKNATTLEIKUR / DÓMARAR
Rögnvald og
Stefánfá
stórleik
Dæma í 8-liða úrslitum Evrópukeppninnar
RÖGNVALD Erlingsson og
Stefán Arnaldsson hafa fengið
erfitt verkefni í 8-liða úrslitum
Evrópukeppni bikarhafa íhand
knattleik. Þeir eiga að dæma
leik Saab og Milbertshofen í
Linköping í febrúar nk. og er
þetta mikill heiður. Gera má
ráð fyrir því að frammistaða
þeirra í HM kvenna í Seoul
hafa ráðið úrslitum en þar
stóðu þeir sig mjög vel.
etta er í annað sinn sem Stefán
og Rögnvald fá leik í 8-liða
úrslitum en í fyrra dæmdu þeir leik
Drott og Gdansk. „Það er þó svo-
lítið sérstakt að fá leik hjá þýsku
liði. Það er ákveðin viðurkenning,"
sagði Stefán. „Ég býst við að heims-
meistarakeppni kvenna hafí haft
eitthvað að segja og geri ráð fyrir
að þarna sé samhengi. En þetta er
fýrst og fremst spennandi verkefni
enda má búast við erfiðum leik,“
sagði Stefán.
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD
Ólafur ráðinn
þjalfan Fram
- stjórnar liðinu gegn Valsmönnum í dag
ÓLAFUR Lárusson, íþrótta-
kennari og fyrrum leikmaður
með KR og þjálfari ÍBKfyrir
þremur árum, yar í gær ráð-
inn þjálfari 1. deildarliðs
Fram í handknattleik. Ólafur
stjórnar liðinu í fyrsta sinn
gegnValídag.
Sigurður Tómasson, formaður
handknattleiksdeildar Fram,
sagði í samtali við Morgunblaðið
í gærkvöldi að gengið hafi verið
frá ráðningu Ólafs i gær. „Við
gátum ekki beðið lengur og- því
ekki eftir neinu að bíða,“ sagði
Sigurður. En Framarar höfðu
levtað til nokkurra erlendra þjálf-
ara, m.a. Bogdan Kowalczyk,
fyirurn landsliðsþjálfara, en það
bar ekki árangur.
Gústaf Björnsson sagði þjáif-
arastarfi ssínu lausú fyrir þremur
vikum eftir slakt gengi liðsins.
Þorbergur Aðalsteinsson, lands-
liðsþjálfari, hljóp í skarðið og
stjórnaði liðinu í þremur leikjum.
Jóhann Ingi Gunnarsson, fyrrum
þjálfari KR-inga, hafði síðan að-
stoðað Framara þar til að Ólafur
tók við liðinu í gær.
Ólafur Lárusson.
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD
LANDSLIÐIÐ
„Ef okkur á að takasta að vinna Víking verðum við að sýna
topp varnarleik,“ segir Guðjón Árnason, fyrirliði FH.
Fimm leikirí 1. deild karla:
Teksf FH adstöðva
sigurgöngu Vflcings?
FIMM leikir fara fram í 1. deildinni
í handknattleik í dag og ber þar
hæst viðureign FH og Víkings í
íþróttahúsinu í Kaplakrika. FH-ingar
hafa vaxið í síðustu leikjum og eru
nú í fjórða sæti, þrátt fyrir afleita
byrjun. Víkingar eru hinsvegar efstir,
hafa sigrað í öllum 14 leikjum sínum.
Guðjón Árnason, fyrirliði FH, er bjart-
sýnn fyrir leikinn. „Við stefnum að
því að stöðva sigurgöngu Víkings. Við
höfum verið á uppleið og náð upp sjálf-
strausti eftir sigur á Val og Stjörnunni,
en leikurinn gegn Víkingum verður erfiður
og kemur til með að ráðast á varnarleikn-
um. Ef okkur á að takasta að vinna verð-
um við að sýna topp varnarleik. Víkingar
hafa leikið gífurlega sterka vörn - þá
bestu sem ég hef séð lengi. Þetta verður
barátta og barningur og ég held að liðin
skori ekki meira en 20 mörk hvort.“
„Við erum búnir að vinna fyrstu þrjá
leikina í síðari umferð og stefnum á að
fara taplausir í gegnum hana. í fyrri
umferð töpuðum við fyrstu þremur leikj-
unum. Það er mikil stemmning fyrir leikn-
um í Hafnarfn-ði og ég á von á miklum
fjölda áhorfenda. Það hefur sýnt sig í
gegnum árin að áhorfendur styðja okkur
þegar mest á ríður og skiptir stuðningur
þeirra miklu máli og getur ráðið úrslit-
um,“ sagði Guðjón Árnason.
Víkingar gefa örugglega ekkert eftir
því ef þeir vinna FH-inga hafa þeir jafnað
Islandsmetið frá 1980, er þeir unnu 18
leiki í röð. Víkingar fóru þá í gegnum
íslandsmótið með stæi, unnu alla leiki
sína. Víkingur hefur unnið alla 14 leiki
sína í deildinni það sem af er þessu keppn-
istímabili, plús síðustu þrjá leikina í deild-
inni í fyrra, eða samtals 17 leiki í röð.
Víkingar og Valsmenn eru nær öruggir
um sæti í úrslitakeppninni og Stjarnan
og FH standa vel að vígi. KR, Haukar,
ÍBV og KA koma næst og beijast líklega
um þau tvö sæti sem eftir eru. Næstu
leikir hafa því mikla þýðingu í þeirri bar-
áttu.
Þjóðverj-
ar koma
- leika tvo leiki í
Höllinni fyrir jól
ÞJÓÐVERJ AR leika tvo
landsleiki við íslendinga í
Laugardalshöll 18. og 19.
desember. Þetta verða
fyrstu landsleikir Þjóðverja
á erlendri grundu þar sem
þeirtefla fram sameiginlegu
liði, austur og vesturs.
Jón Hjaltalín Magnússon, form-
aður HSÍ, sagði í samtali við
Morgunblaðið að staðfestingar-
skeyti, þess efnis að Þjóðveijar
kæmu hingað, hafi borist til HSÍ
í gær. En áður hafði það verið
nokkuð óljóst hvort liðið myndi
leika einn eða tvo leiki, eða yfir-
höfuð kæmi til landsins.
Þýska liðið, undir stjóm Horst
Bredemeiers, kemur hinga 17.
desember og leikur tvo leiki, 18.
og 19. desember og heldur síðan
utan 20. desember ásamt íslenska
liðinu. Þjóðirnar mætast aftur í
Þýskalandi 21. desember í Liben
og 22. desémber í Schverin.
HANDKNATTLEIKUR / VIS-KEPPNIN
KA-ÍBV 23:18
íþróttahöllin á Akureyri, íslandsmótið, 1. deild - VÍS-keppnin, föstudaginn 7. des. 1990.
Gangur leiksins: 0:2, 3:3, 5:5, 7:9, 9:11, 11:13, 14:14, 16:16, 20:17, 23:18.
Mörk KA: Hans Guðmundsson 8/2, Jóbannes Bjamason 4, Guðmundur Guðmundsson
4, Pétur Bjarnason 4, Sigurpáll Árni Aðalsteinsson 2 og Erlingur Kristjánsson 1.
Varin skot: Axel Stefánsson 10. Utan vallar: 10 min.
Mörk ÍBV: Gylfi Birgisson 6, Haraldur Hannesson 3, Sigurður Gunnarsson 3, Þorsteinn
Viktorsson 2, Sigbjörn Óskarsson 2,. Sigurður Friðriksson 2.
Varin skot: Sigmar Þröstur Óskarsson 16/3. Utan vallar: 10 mín.
Dómarar: Gunnar Kjartansson og Árni Sverrisson. Áhorfendur: 190.
KA sterkari á endasprettinum
KA-menn unnu góðan sigur á Eyjamönnum í gærkvöldi og vænkaðist
við það hagur þeirra í deildinni. KA er nú með 11 stig, eða jafn mörg
og ÍBV, en hagstæðara markahlutfall og skaust því upp fyrir ÍBV og við
það minnkuðu möguleikar IBV á að komast upp í efri hlutá úrslitakeppn-
innar. ÍBV hóf leikinn af miklum krafti og skoraði tvö
Reynir fyrstu mörkin, en KA náði fljótlega að jafna og var leikur-
Eiriksson inn mjög jafn þar til á lokamínútum fyrri hálfleiks er ÍBV
skrifar sejg framúr og hafði tveggja marka forystu er flautað var
til leikhlés. Fyrri hálfleikur var fremur illa spilaður og
gerðu liðin sig sek um aragrúa mistaka.
Eftir hlé batnaði leikur liðanna mjög og eftir 10 mínútur höfðu KA-
menn jafnað og mikil spenna í loftinu. Jafnt var síðan á með liðunum þar
til nokkrar mínútur voru eftir að ÍBV missti hvern leikmanninn af öðrum
af leikvelli og var þar með allur vindur úr þeim. Heimamenn skoruðu
fimm mörk gegn einu marki ÍBV á síðustu míriútunum.
Hjá KA átti Hans Guðmundsson ágætan leik og einnig skilaði Jóhann-
es Bjarnason hlutverki sínu vel. Hjá ÍBV var Sigmar Þröstur í markinu
bestur og varði mjög vel. Einnig áttu þeir Gylfi Birgisson og Sigurður
Gunnarsson ágætan leik.
ÍÞRÚmR
FOLK
■ AXEL Stefánsson, markvörð-
ur KA, lék_ fingurbrotinn með liði
sínu gegn ÍBV í gærkvöldi. Hann
fingurbrotnaði í leik með U-21 árs
landsiiðinu í Danmörku í síðustu
viku. Varamarkvörður liðsins Iék
ekki með því hann er einnig meidd-
ur.
ÚRSLIT
ÍBV - Víkingur 19:15
íþróttamiðstöðin í Vestmannaeyjum, ís-
landsmótið í handknattleik -1. deild kvenna,
föstudaginn 7. desember 1990.
Mörk IBV: Ingibjörg Jónsdóttir, Judith
Estergal og Stefania Guðjónsdóttir 5 mörk
hver, Arnheiður Pálsdóttir og Sara Ólafs-
dóttir 2 hvor.
Mörk Víkings: Inga Þórisdóttir 6, Andrea
Atladóttir 4, Heiða Erlingsdóttir 2, Hanna
Helgadóttir, Svana Sigurðardóttir og Ema
Aðalsteinsdóttir eitt mark hver.
2. deild karla:
Völsugnur - HK..............20:28
Verð til
að taka eftir:
SKAUTAR (rá kr. 3.590.-
HOCKEY SKAUTAR frá kr. 4.830.-
HOCKEY KYLFIIR kr. 1.390.-
OPID FRÁ XL. 10-18
SPORTl
MARKAÐURINN
SKIPHOLTI 50C, SÍMI 31290
(Nýja húsið gcgnt Tónabíói)