Morgunblaðið - 08.12.1990, Side 64
VOLVO
PENTA
Besti vinur sjómannsins!
LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1990
VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR.
Fundir um
lögfræðihlið-
ar álvers-
samninga
Fulltrúar frá fyrirtækjunum
þremur, sem mynda Atlantsáls-
hópinn, hafa undanfarna daga átt
fundi með samninganefnd iðnað-
arráðherra um áliðju og hefur þar
verið fjallað um lögfræðilegar
hliðar á samningi um álver á
Keilisnesi, fjármögnun þess, lóða-
og hafnarmál og fleira.
Samninganefnd Landsvirkjunar
fundar um helgina um raforkusamn-
ing með fulltrúm Atlantsáls í Atl-
anta í Bandaríkjunum. Einnig munu
Jóhannes Nordal og Gísli Gunn-
laugsson, í samninganefnd iðnaðar-
ráðherra, hitta fulltrúa úr aðalsamn-
inganefnd Atlantsáls þar að máli.
„Ég tel að þetta hafi allt gengið
vel,“ sagði Jón Sigurðsson viðskipta-
ráðherra. „Ég er vongóður um að
málinu megi ljúka í mars, eins og
til var stofnað, þannig að hið endan-
lega markmið stendur óhreyft."
Ekki samið um
bensínkaup
VIÐRÆÐUM um kaup íslendinga
á bensíni frá Sovétríkjunum á
næsta ári, sem fram fóru í Lund-
únum í gær og fyrradag, lauk án
þess að skrifað væri undir sam-
komulag. íslensku samninga-
mennirnir voru á heimleið í gær-
kvöldi og höfðu upplýsingar um
ástæður þess að ekki var skrifað
undir ekki borist viðskiptaráðu-
neytinu í gærkvöldi, að sögn Jóns
Ögmundar Þormóðssonar Iög-
fræðings í ráðuneytinu.
Siglufjarðarbær:
Viðræður við RAREK um sölu
Morgunblaðið/Sverrir
íjólaskapi
Mikið er um að vera á leikskólum landsins þessa dagana enda jóla-
undirbúningurinn hafinn af fullum krafti. Þessi hópur barna á aldrin-
um 3-4 ára, á dagheimilinu Laufásborg, var önnum kafinn við jólafönd-
rið þegar ljósmyndara bar þar að garði í gær. Á myndinni eru, talið
frá vinstri, Kawthar, Eyþór, Frosti Örn, Eva Brá og Sveindís Ösp.
Jónína starfsmaður aðstoðaði þau við jólaundirbúninginn.
Ráðuneytisstjóri viðskiptaráðu-
neytisins og fulltrúar olíufélaganna
ræddu við fulltrúa sovéska ríkisolíu-
félagsins í bensínviðræðunum.
I samningaviðræðum sem fram
fóru í Moskvu fyrir skömmu náðist
samkomulag um kaup á gasoHu og
svartolíu í Sovétríkjunum. Þá tókst
ekki að Ijúka samningum um bensín-
kaupin og tókst það heldur ekki í
Lundúnum nú. í Moskvu voru það
einkum spurningar um möguleika
Sovétmanna á að afgreiða bensínið
og hvort þeir gætu selt 95 oktana
blýlaust bensín í stað 92 oktana sem
keypt hefur verið.
á hitaveitunni og rafveituiuú
Skuldir bæjarsjóðs eru 400 milljónir
BÆJARSTJÓRN Siglufjarðar hefur skipað nefnd til að kanna hugs-
anlega sölu á Rafveitu og Hitaveitu Siglufjarðar í þeim tilgangi að
leysa fjárhagsvanda bæjarsjóðs. Einhvern næstu daga hefjast könn-
unarviðræður við fulltrúa Rafmagnsveitna ríkisins um hugsanleg
kaup á þessum eignum. Skuldir bæjarsjóðs Siglufjarðar eru um 400
milljónir króna.
Nefndinni, sem skipuð er fulltrú- I í bæjarstjórn Sigluijarðar, er ætlað
um úr öllum flokkum sem sæti eiga | að kanna hugsanlega sölu Skeiðs-
Áætlun gerð um viðbrögð
við Suðurlandsskjálfta
VERKFRÆÐINGAFÉLAG íslands og Almannavarnir ríkisins
hyggjast á næstunni gera áætlun um það hvernig bregðast skuli
við tjóni á mannvirkjum af völdum Suðurlandsskjálfta, þannig að
tæknimenn geti strax metið hvort óhætt sé að fara inn í skemmd-
ar eða hálfhrundar byggingar eða hvort það þurfi að jafna þær
við jörðu.
„Það er nauðsynlegt að hafa
fyrirliggjandi áætlun um það
hvemig bregðast skuli við ef jarð-
skjálfti verður. Ákveðnir aðilar
hafa sérþekkingu á þessum málum
og með þessari áætlanagerð gætu
þessir aðilar verið undir þetta bún-
ir og gengið beint til verks sam-
kvæmt ákveðnu skipulági," sagði
Þórarinn Magnússon, formaður
Verkfræðingafélags íslands, í
samtali við Morgunblaðið.
Þórarinn nefndi sem dæmi að
hefði slíkt skipulag legið fyrir í
upphafí áttunda áratugarins, hefði
það stuðlað að markvissari aðgerð-
um og auðveldað tæknimönnum
að bregðast strax við eftir að eld-
gosið varð í Vestmannaeyjum árið
1973.
„Með þessari áætlanagerð
hyggjumst við tryggja að ur.nið
sé faglega og skipulega að mati
og uppbyggingu strax eftir nátt-
úruhamfarir," sagði Þórarinn.
Að .sögn Þórarins hefur þegar
verið gerð áætlun fyrir Almanna-
varnir ríkisins um það hvernig
haga beri björgun mannslífa ef
Suðurlandsskjálfti verður.
„Það er löngu ljóst að það er
nauðsynlegt að hafa slíkar áætlan-
ir fyrirliggjandi, því þótt við vitum
ekki hvort Suðurlandsskjálftinn
verður á morgun eða eftir fimmtíu
ár, þá vitum við að hann kemur
þar sem stöðugt er að byggjast
upp spenna í jörðinni á Suður-
landi,“ sagði Þórarinn.
fossvirkjunar, sem er raforkuvirkj-
un í eigu Siglfirðinga, flutningslín-
unnar frá virkjuninni til Sigluijarð-
ar, dreifikerfis Rafveitu Sigluijarð-
ar og Hitaveitu Sigluijarðar. Nefnd-
in skilar af sér áliti fyrir 31. janúar
næstkomandi en könnunarviðræður
við Rafmagnsveitur ríkisins hefjast-
einhvern næstu daga. Nefndina
skipa Kristján Möller, forseti bæjar-
stjórnar, Björn Jónasson sparisjóðs-
stjóri, Sverrir Sveinsson veitustjóri
og Björn Valdimarsson bæjarstjóri.
Kristján Möller, formaður nefnd-
arinnar, sagði að hún yrði í viðræð-
um við ríkisvaldið um vissar ráð-
stafanir vegna Hitaveitu Siglufjarð-
ar. „Við teljum okkur eiga inni vissa
endurgreiðslu vegna þess að Raf-
veita Siglufjarðar hefur alla tíð
greitt svokallað verðjöfnunargjald.
Nefndin hefur það tvíþætta hlut-
verk að vera í þessum viðræðum
við ríkisvaldið og hins vegar hefur
hún víðtækt umboð til að ræða við
tiltekna aðila um hugsanlega sölu
á Skeiðsfossvirkjun, flutningslín-
unni, dreifikerfinu og hugsanlega
Hitaveitu Siglufjarðar," sagði
Kristján.
Björn Valdimarsson, bæjarstjóri
á Siglufirði, sagði að rúmlega 200
milljóna króna skuld hvíldi á Hita-
veitunni og 150 milljónir á Rafveit-
unni. „Það verður ekki farið út í
sölu nema það verð fáist að það
rétti verulega af fjárhagsstöðu bæj-
arsjóðs. Þetta er í sjálfu sér leið sem
er mjög algeng í rekstri, að lækka
skuldir með því að selja eignir og
þetta er leið sem við teljum rétt að
kanna,“ sagði Björn.
Björn kvaðst ekki telja að bæj-
arbúar yrðu varir við eigendaskipti
ef af þeim yrði og sagði hann að
heildarhagsmunir bæjarins yrðu
látnir ráða í þeim viðræðum sem
fyrirhugaðar væru. „Það er ekkert
sérstaklega gott að leggja upp í
svona viðræður með því að setja
fyrst fram einhver skilyrði. Við
ætlum að heyra hljóðið í fulltrúum
RARIK og sjá hvernig málið blasir
við þeim,“ sagði Björn.
Hann sagði að ekki væri hægt
að nefna söluandvirði þessara eigna
bæjarins að svo komnu máli.
DAGAR
TIL JÓLA