Morgunblaðið - 12.12.1990, Blaðsíða 2
120 milljóna
kröfur í fjög-
ur þrotabú
Skiptum er nýlega lokið í þrota-
búi Sjónvarpsbúðarinnar hf.
Lágmúla 7, sem tekið var til
gjaldþrotaskipta í ágúst 1988.
Ekkert greiddist upp í lýstar
kröfur sem námu rúmum 49,6
milljónum króna, auk vaxta og
kostnaðar.
Skiptum í þrotabúi Pólarpijóns hf.
á Blönduósi, sem varð gjaldþrota í
janúar 1988 er lokið. Lýstar kröfur
námu rúmum 42,7 milljónum króna
og greiddust rúmlega 11,7 milljónir
upp í hluta veð- og forgangskrafna.
Þá er lokið skiptum í þrotabúi
Veitingahússins Torfunnar í
Reykjavík, sem varð gjaldþrota 28.
mars á þessu ári. Kröfur námu alls
um 13,4 milljónum króna, og upp
í þær greiddust rúmar 1,2 milljónir
króna.
Bú Stúdíóhússins í Reykjavík var
tekið til skipta í mars á þessu ári.
Ekkert greiddist upp í lýstar kröfur
sem námu 6,8 milljónum króna auk
vaxta og kostnaðar.
Þorláksmessuskatan undirbúin
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þeir Þórður Tómasson, Birgir Guðmundsson og Jakob Júlíusson hjá fiskbúðinni Sæbjörgu hafa verið að undirbúa Þorláksmessuskötuna. Þeir
reikna með að á þriðja tonn verði verkað hjá þeim að þessu sinni og eru hér að skera hana niður áður en hún er sett í útvötnun.
Bráðabirgðalögin til umræðu á Alþingi í gær:
Gaf ráðherrum ekki ráð-
stöfunarrétt á atkvæði mínu
- sagði Geir Gunnarsson
Happdrætti HI:
35 millj. kr.
gengu ekki út
25 miUjóna kr. trompvinning-
ur í Happdrætti Háskóla íslands
gekk ekki út þegar dregið var í
happdrættinu í gær.
Fimm milljónir kr. féllu á tvo
einfalda miða en tveir aðrir fimm
milljóna kr. vinningar gengu ekki
út. Alls gengu því ekki 35 milljónir
kr. út að þessu sinni.
Vinningsmiðarnir voru frá um-
boði happdrættisins í Sandgerði og
í Reykjavík.,
GEIR Gunnarsson, þingmaður Al-
þýðubandalagsins, gerði við um-
ræður á þingi í gær grein fyrir
‘afstöðu sinni til setningar bráða-
birgðalaga vegna kjaradeilu ríkis-
ins og BHMR og sagði að aldrei
hefði komið annað til greina en
að greiða atkvæði gegn staðfest-
ingu þeirra á Alþingi. Enda þótt
afstaða sín hefði Iegið fyrir hefðu
ráðherrar ekki innt hann eftir
afstöðu sinni fyrr en menntamála-
ráðherra gerði það 27. nóvember
síðastíiðinn.
Geir sagði að þegar Alþýðubanda-
lagið varð aðili að ríkisstjóm ríflega
ári eftir síðustu alþingiskosningar
hefði hann greitt atkvæði í miðstjóm
flokksins gegn þátttöku Alþýðu-
bandalagsins í ríkisstjórn, vegna þess
að um það var samið að láta viðgang-
ast að svo mánuðum skipti skyldu
gilda í landinu lög sem sviptu verka-
lýðsfélög þeim grundvallarmannrétt-
indum sem samningsrétturinn er.
Síðan segir: „Ég taldi ákvörðun
flokksins hættulegan undanslátt í
mannréttinda- og verkalýðsmálum
og hélt því fram að sú afstaða gæti
orðið upphafið að frekara fráhvarfí
flokksins frá_ grundvallarstefnu í
þeim efnum. Ég lýsti því jafnframt
yfir áður en aðild Alþýðubandalags-
ins að ríkisstjóm var samþykkt að
ég myndi hlíta meirihlutaákvörðun
miðstjórnar um þátttöku flokksins í
ríkisstjórn ef sú yrði niðurstaðan og
veija ríkisstjómina vantrausti með
atkvæði mínu. Þessi afstaða þýddi
að sjálfsögðu ekki að ég myndi sjálf-
krafa fylgja hveiju einasta frumvarpi
sem ríkisstjómin kynni að flytja í
stjórnartíð sinni. Ég gaf að sjálf-
sögðu ekki ráðhermm flokksins,
hvað þá heldur hæstvirtum forsætis-
ráðherra, ráðstöfunarrétt á atkvæði
mínu til hverrar þeirra lagasetningar
sem þeim kynni að hugkvæmast að
reyna að knýja fram eftir að and-
staða mín væri komin fram í þing-
flokki Alþýðubandalagsins, þannig
að mitt atkvæði væri til ráðstöfunar
jafnvel til gerræðisverka eins og
þeirra sem felast í því frumvarpi sem
hér er til umræðu.“
Geir kvaðst telja það hættulegan
undanslátt í mannréttinda- og verka-
lýðsmálum þegar Alþýðubandaiagið
lét af þeirri kröfu við síðustu stjórn-
armyndun að afnumin yrðu lög fyrri
ríkisstjórnar sem sviptu verkalýðsfé-
lögin samnings- og verkfallsrétti.
Hann sagðist líta enn alvarlegri aug-
um þá ákvörðun flokksins sl. sumar
að styðja og hafa jafnvel fmmkvæði
að því innan ríkisstjómarinnar að
setja lög um réttindasviptingu af
sama toga.
Geir sagði að setning bráðabirgða-
laga þvert ofan í dóm Félagsdóms
væri með slíkum ólíkindum að hann
hefði ekki trúað því að óreyndu að
hann ætti eftir að sjá slíkri vald-
níðslu beitt gegn stéttarfélagi og
dómstólum landsins af nokkrum
stjórnmálaflokki og þá síst sínum
eigin. „Hér er ekki einungis ráðist á
samningsréttinn heldur er dómsvald-
ið bælt niður í einni og sömu aðgerð-
inni,“ sagði Geir. Hann sagði að þessi
lagasetning bryti gegn öllum lág-
markskröfum um samningsrétt
verkalýðsfélaga og gegn pólitísku
siðgæði.
Sjá einnig þingsíðu, bls. 37.
Vilhjálmur Jónsson forstjóri Olíufélagsins hf.:
Ræðst í þessari viku hvort
samið verður við Sovétmenn
Deilur um starfslok fjármálastjóra Stöðvar 2:
Yfhiýsingiim Hreins
Loftssonar mótmælt
Hreinn ítrekar að rangt var staðið að verki
JÓN Ólafsson varaformaður stjórnar íslcnska útvarpsfélagsins, sem
rekur Stöð 2 og Bylgjuna, segir að á stjórnarfundi í gær hafi það
verið einróma niðurstaða stjórnarmanna, að yfirlýsing Hreins Loftsson-
ar um ástæður starfsloka Kristjáns B. Ólafssonar fjármálastjóra Stöðv-
ar 2 hafi ekki átt'við rök að styðjast.
Olís býr sig undir markaðsviðskipti
„EINS og þetta stendur núna, biðum við eftir því fram eftir þessari
viku að sjá hvað gerist hjá þeim Sovétmönnum og þegar sá tími er
liðinn, ef það fer þannig að ekki verður samið við þá, þá auðvitað
fáum við bensín annars staðar, það er ekkert vandamál að fá bensín,"
sagði Vihjálmur Jónsson forstjóri Olíufélagsins hf. í samtali við Morgun-
blaðið í gær. Eins og fram hefur komið náðist ekki samkomuiag milli
íslendinga og Sovétmanna um verð á bensíni og var viðræðum hætt í
síðustu viku. Óli Kr. Sigurðsson forstjóri Olís sagði að félagið hafi um
nokkurt skeið búið sig undir að kaupa eldsneyti á alþjóðlegum markaði.
Vilhjálmur Jónsson sagði ekkert
vandamál vera að fá keypt bensín,
hvort sem væri um fastan samning
að ræða eða að kaupa það eftir því
sem kaupin gerast á eyrinni. „Ég
fullyrði það, að það er ekkert vanda-
mál fyrir okkur til dæmis, í þessu
félagi, að kaupa bensín," sagði Vil-
hjálmur.
ÓIi Kr. Sigurðsson sagði ekki
tíðkast í dag að einhver sjái öðrum
fyrir bensíni eða olíu, þegar hann
var spurður hvort samningar við er-
lend olíufélög tryggðu að hingað
væri hægt að fá eldsneyti. „Þetta
er bara ákveðinn markaður. Menn
geta bæði keypt á svokölluðum spott-
markaði og svo geta menn gert
langtímasamninga,“ sagði hann.
„Þegar okkur vantar olíu, sem oftast
nær er, þá höfum við samband við
fimm, sex aðila og þeir gera okkur
tilboð. Við erum í tölvusambandi við
verðlagningu og hún getur breyst
yfír allan ,daginn.“
Óli sagði að menn frá Olís væru
nýkomnir úr námsferð erlendis, þar
sem þeir kynntu sér hvernig markað-
urinn vinnur. „Við höfum unnið að
því í langan tíma að læra á þetta
kerfi.“
Óli sagði markaðinn vera mjög
fjölbreyttan, til dæmis sé hægt að
kaupa í dag olíu sem ekki kemur upp
úr jörðinni fyrr en kannski eftir tvö
ár. Hann sagði Olís ekki vera skuld-
bundið til að kaupa af ákveðnu er-
lendu olíufélagi. „Þetta er alltaf
spuming hvort menn gera langtíma-
eða skammtímasamninga og annað.
Þessi markaður er allur svo hverfull
í dag að ég hugsa að ekki sé ráðlegt
að hlaupa út í samning í dag,“ sagði
Óli Kr. Sigurðsson.
Hreinn Loftsson lögfræðingur
gekk úr stjóminni á mánudag vegna
óánægju með brottvikningu Krist-
jáns, og sagðist telja ástæðu brott-
vikningarinnar þá, að Kristján hefði
mótmælt því að Stöð 2 var látin
greiða kostnað af persónulegum
víxlum sem fjórir af stærstu hluthöf-
um stöðvarinnar höfðu tekið vegna
hlutafjárkaupa. Hreinn sagðist í
gærkvöldi ítreka það mat sitt að
rangt hefði verið staðið að verki
gagnvart Kristjáni og því hefði í
engu verið hnekkt. Hann sagðist
ekki hafa lagt mat á viðskipti þess-
ara tilteknu aðila gagnvart Stöð 2
en það sé eftir sem áður sín afstaða
að ráðandi hópur innan félagsins
hafi komið fram í málinu með þeim
hætti að hann treysti sér ekki til að
starfa með þeim innan stjórnarinnar
og bera ábyrgð á verkum hennar.
Morgunblaðið hefur upplýsingar
um að Steingrímur Ellingsen, sem
tók sæti Hreins í stjórninni, hafi einn-
ig gert athugasemdir við þessi atriði
á stjórnarfundum
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins samdi stjórn Stöðvar 2 við
hluthafana fjóra um að gangast í
persónulega ábyrgð fyrir ýmsum
skammtímaskuldum stöðvarinnar.
Fyrir þetta munu hluthafarnir hafa
innheimt ábyrgðarþóknun sem nú
nemur samtals um 7 milljónum
króna, sem lögð var inn á viðskipta-
reikning hjá stöðinni. Af þeim reikn-
ingi munu jafnframt hafa verið
greiddir vextir og kostnaður af
víxlum hluthafanna, samtals rúm-
lega 9 milljónir króna.
Jóhann J. Ólafsson stjórnarfor-
maður sagði að þessi viðskipti væru
þess eðlis að staða reikningsins væri
stundum jákvæð og stundum nei-
kvæð. Hann sagði að staðan hefði
verið athuguð í gær og þá hafi mun-
að nokkur hundruð þúsundum sem
yrði jafnað þegar í stað.
Jóhann sagði í Morgunblaðinu á
þriðjudag að Kristján B. Ólafsson
hefði aldrei gert athugasemdir vegna
þessa við stjórn Stöðvar 2. En Kristj-
án sagði við Morgunblaðið í gær, að
hann hefði í haust gert athugasemd-
ir við þáverandi framkvæmdastjórn
félagsins, sem skipuð var Þorvarði
Elíassyni sjónvarpsstjóra, Jóhanni J.
Olafssyni og Jóni Ólafssyni.
í 112. grein hlutafjárlaga segir:
„Félagi er einungis heimilt gegn full-
nægjandi tryggingu, og aðeins að
því marki, sem eigið fé félagsins er
hærra en bundið eigið fé, að veita
hluthöfum, stjórnarmönnum eða
framkvæmdastjórum félagsins eða
móðurfélags þess lán eða setja trygg-
ingu fyrir þá.“
2_________________________
Gísli og
Birna koma
heim í dag
London. Frá Jóhönnu Kristjónsdóttur,
blaðamanni Morgunblaðsins.
GÍSLI Sigurðsson læknir og eig-
inkona hans, Birna Hjaltadóttir,
koma heim frá London síðdegis
í dag.
Hjónin notuðu gærdaginn til að
heilsa upp á vini sína frá Kúvæt
sem búa í London og svo var litið
í búðir. Gísli og Bima hafa ásamt
blaðamanni Morgunblaðsins notið
höfðinglegrar gestrisni Helga
Ágústssonar sendiherra í London
og eiginkonu hans.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKÍJDAGUR 12. DESEMBER 1990