Morgunblaðið - 12.12.1990, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 12.12.1990, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1990 55 Gamall maður hefur gengið sinn veg á enda, hann afi, nýorðinn níutíu og fimm ára gamall, samt svo ungur. Mér þótti svo gaman að honum og sagði oft: Hann afi er frábær. Hann var auðvitað einu sinni ungur og mundi allt svo vel. Hann sagði okkur frá lífinu fyrr á öld- inni, frá kreppuárunum, frá því þegar hann stundaði sjóróðra. Einn- ig þegar hann flutti frá Vestfjörðum og skapaði sér sitt lifibrauð í Reykjavík en hann var mörg ár fisk- sali hér í borg. Hann mundi tímana tvenna. Okkur krökkunum þótti svo skemmtilegt að fá að skjögta með honum um bæinn í kostulegu farar- tæki — grænúm bíi með góðkunnri fiskilykt. Það voru tvær hurðir aft- an á honum sem opnuðust þegar bíllinn fór til dæmis ofan í holu. Þá þurfti að hoppa út og loka. Og afi tók í nefið. Það var spenn- andi hér á árum áður að fylgjást með þegar hann var á fullri ferð í bílnum — og þurfti að finna tóbaks- klútinn sinn. Þá sleppti hann jafn- vel báðum höndum af stýrinu. Og okkur fannst með ólíkindum hversu margir „svínuðu“ á afa í umferð- inni. Það sagði hann að minnsta kosti. Hann var alltaf með hatt. Eftir að ég varð fullorðin kynnt- ist ég honum á nýjan hátt. Þá kynntist ég manni sem bjó yfir svo mikilli reynslu, svo miklum krafti og hafði hjartað svo sannarlega á réttum stað. Það var honum mikils virði að halda stórfjölskyldunni saman. Fyr- ir hans tilstilli voru skipulögð ættar- mót á heimaslóðum hans í Tálkna- firði. Á hveiju ári um langt árabil hélt hann akandi vestur á heima- slóðirnar. Hann var kominn yfir áttrætt þegar hann fór síðustu ferð- ina þangað og auðvitað á bílnum sínum — stytti reyndar ökuleiðina eftir því sem kostur var með því að fara sjóleiðina að hluta. Þar sem afi var og tilefni var til að gleðjast á góðum degi sannaðist málshátturinn: Maður er manns gaman. Honum þótti t.d. mjög gam- an að syngja og rammíslensk ætt- jarðarljóð urðu það helst að vera. Ég minnist þess þegar eitt barna- barna hans varð þrítugt fyrir nokkr- um árum. Um miðnætti var afi kominn í frakkann og með hattinn út að dyrum. Einhver fékk hann þá til þess að taka lagið og þar stóð hann til klukkan þijú, og söng margsinnis, Hvað er svo glatt... Það var gaman að spjalla við hann um alla heima og geima. Hann var vel inni í því sem var að gerast, fylgdist mjög vel með öllum í fjölskyldunni og tók þátt í sorgum okkar allra og gleði. Hann gerði sér einnig vel grein fyrir því að til þess að geta haldið reisn og haft gaman af lífinu á elliárunum þurfti hann að hlúa að bæði líkama og sál. Hvort tveggja gerði hann með þeim hætti að til fýrirmyndar er og ég er sannfærð um að aðgæsla hans í þeim efnum átti stóran þátt í hversu lífárin hans urðu mörg. Hann hafði það fyrir sið í mörg ár að dvelja einhvern hluta ársins á heilsuhælinu í Hveragerði, var þar meðal annars á áttatíu og fimm ára afmælinu sínu. Hann sóttist mjög eftir því sem þar var á boðstólum sér til heilsubótar en var að sama skapi ekki alltaf ánægður með það sem sneri að andanum. Honum þótti því þjóðráð að fara þess á leit við forráðamenn heilsuhælisins að slá upp balli af og til! Svona var afi. Fyrir rúmum 17 árum stofnaði afi minningarsjóð um konuna sína, Halldóru Kristjánsdóttur frá Sel- látrum í Tálknafirði, en hún dó árið 1958. Megintilgangur sjóðsins er að veija fé til þess að prýða kirkj- una að Stóra-Laugardal í Tálkna- firði. Framtíð og viðgangur sjóðsins var afa mikið keppikefli og hann átti sér ávallt skýra framtíðarsýn og óskaverkefni hvað sjóðinn varðar °g sýndi honum mikla umhyggju. Hann var hans hjartans áhugamál í ellinni. Langri lífsgöngu hans er nú lok- ið. Það var bæði skemmtilegt og lærdómsríkt að eiga hann fyrir afa. Margrét Theodórsdóttir Guðmundur Helga- son - Minning Mig langar að skrifa fáeinar línur í minningu vinar míns, Guðmundar Helgasonar, sem lést sl. haust eftir langt og strangt sjúkdómsstríð. Mín fyrstu kynni af honum voru á árunum kringum 1960. Þá fór ég að vinna í Lysi hf. en þar var hann skrifstofu- og sölumaður. Þar kynntist ég þessum góða dreng sem alltaf var léttur, kátur og hress og hafði áhrif á alla um- hverfis sig. Alltaf var jafn gott að leita til hans með sinn vanda. Ef mann vantaði aura þá hafði hann leyfi til þess frá fyrirtækinu að mingra í okkur aurum fyrirfram úr kassan- um sem svo síðan var dregið af launum við næstu útborgun. Og ekki nóg með það, ef ekki var aur í kassanum þá var einkaveskið tek- ið upp og lánað úr því. Ennfremur get ég ságt með full- um sanni að eitt sumar þegar hann kom úr sumarleyfi og tók við af afleysingafólkinu þá sá hann það strax á reikningum að bóndi austan úr Laugardal hafði keypt 18 lítra fötu af fóðurlýsi og borgað að mig minnir 150 kr. meira en hann hafði átt að gera. Á hádegi daginn eftir var komin yfirstrikuð ávísun heim á hlað til bóndans sem nam mis- muninum. Annað lítið dæmi sem varð hjá Landsbankanum (með fyllstu virð- ingu fyrir starfsfólkinu, enginn er almáttugur). Þar sem Guðmundur sá um-' launagreiðslur hafði hann mjög mikil peningaviðskipti við Lands- banka íslands og kom þar yfirleitt á hvetjum degi og stundum oft á dag. I einni af þessum ferðum þegar hann kom til að sækja peninga fyr- ir launagreiðslum var hann með miða sem sagði til um hvað hann vildi fá í seðlum og skiptimynt. Hann tekur við því sem gjaldkeri réttir honum án þess að telja pen- ingana. Þegar hann kemur á skrif- stofuna og fer að telja í launaum- slögin þá passar ekki peningaupp- H ÚT ER komin hjá Erni og Örlygi bókin Heilun — orka — vitund — mannþroski sem Úlfur Ragnarsson læknir hefur þýtt og aðlagað íslenskum hugsunarhætti. í kynningu útgefanda segir m.a.: „Heilun er nýyrði, sem á sér samt rætur í gömlu máli og fornum skiln- ingi. í dýpsta skilningi falla undir heilun hverskonar aðgerðir sem miða að því að koma á samræmi við lífsheildina, en til þess notum við orku og vitund. Bókin miðar að því að gera nokkra grein fyir orku og vitund eins og þau fyrirbrigði hæðin. Gjaldkerinn hafði mistalið nokkrar krónui- framyfir. Guð- mundur hringir í bankann og biður um viðkomandi, býður góðan dag- inn með sínum venjulega léttleika og spyr hann hvernig kassinn hafi komið út í gær. Hún svarar að bragði að hann hafi nú ekki verið sem skyldi. Þá segir hann: „Þetta er allt í lagi vina mín, ég kem með þetta á eftir.“ Mér þótti miður að geta ekki verið við útför þessa vinar míns, þar sem ég var norður í landi, og meira að segja fótlama, komst ekki. Og að lokum langar mig til þess að segja frá okkar síðustu sam- skiptum. Sem voru þau að kvöldið áður en ég fór norður, hringdi ég í hann og talaði við hann og þá var hann alltaf eins hress og hann var vanur. Þá segir hann: „Ja, elsku Björn, þakka þér fyrir, sláðu nú á þráðinn þegar þú kemur til baka.“ Þetta voru okkar síðustu orðaskipti. Ég votta öllum ættingjum hans og vinum mína innilegustu samúð vegna fráfalls hans. Sigurður Björn Arason, Hátúni 10. birtast mannverunni og hefur verið lýst af fólki, sem þekkir fyrirbrigð- in af eigin raun. Tilgangurinn er að koma því til skila að hér eru ekki á ferðinni skottulækningar eða kukl, heldur er gerð grein fyrir því sem styður að heilbrigði. Bókin veitir upplýsingar um þessi efni: Orka og jafnvægi. Greinargóð lýs- ing á árunni og orkustöðvum mannsins ásamt leiðbeiningum um hvernig sú þekking megi að gagni koma. Heilun og mannþroski. Hvernig heilun kemur í veg fyrir sjúkdóma og styrkir heilsuna.11 t Móðir mín, ÁSTRÍÐUR STELLA GEIRSDÓTTIR, Sólbakka, Stafholtstungum, andaðist 30. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð. Sérstakar þakkir eru færðar læknum og hjúkrunarliði B-deildar Sjúkrahúss Akraness fyrir fróbæra umönnun. Fyrir hönd vandamanna, Ragnar Jónsson. t Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar SIGURLINAR G. GUÐMUNDSDÓTTUR frá Efri-Miðvík, Aðalvík, Suðurgötu 12, Keflavík. Börn, tengdabörn, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. t Minningarathöfn um ástkæra móður, tengdamóður og ömmu, KRISTÍNU JESPERSDÓTTUR frá Suðureyri, fer fram í Fossvogskirkju fimmtudaginn 13. desember kl. 10.30. Jarðsett verður að Stað í Súgandafirði föstudaginn 15. desember kl. 14.00. Kristján Normann, Gréta Þórs og barnabörn. t Þökkum auðsýnda samúð við fráfall móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐNÝJAR INGIBJARGAR BJÖRNSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunardeildar Vífilsstaða fyrir góða umönnun. Auður Aðalsteinsdóttir, Erlendur Björnsson, Ragnheiður Aðalsteinsdóttir, Bessi Aðalsteinsson, Sigrún Ágústsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. 1 Móðir okkar og terigdamóðir, ■H GUNNLAUG KARLOTTA EGGERTSDÓTTIR, Kársnesbraut 46, Kópavogi, er lést 6. desember, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni fimmtu- daginn 13. desember kl. 15.00. Snorri Karlsson, Sigríður Guðmundsdóttir, Hörður Karlsson, Maria Karlsson, Rósa B. Karlsdóttir, Hjörtur Hjartarson, Sigurlaug R. Karlsdóttir, Páll B. Helgason. t Faðir minn, fósturfaðir, tengdafaðir og afi, GUNNAR ÁRMANN BJÖRNSSON, húsasmíðameistari, Gilsbakka, Blesugróf, Reykjavík, sem andaðist í Landakotsspítala 5. desember sl., verður jarðsung- inn í Bústaðakirkju á morgun, fimmtudaginn 13. desember, kl. 13.30. Björn Gunnarsson, Maria V. Gunnarsson, Jakob Jakobsen, Þórunn Lárusdóttir, Kristjana Jakobsen, Björgvin Björgvinsson og barnabörn. t GUÐBRANDUR SKARPHÉÐINSSON, Dagverðarnesi, Skorradal, sem andaðist 7. desember sl., verður jarðsunginn frá Hvanneyrar- kirkju laugardaginn 15. desember kl. 14.0Q. Fyrir okkar hönd og annarra vandamanna, Kristín Guðbrandsdóttir, Jón Jakobsson, Jón Óskar Jónsson, i Sólrún Konráðsdóttir, Sæþór Steingrímsson. t Innijegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför bróður okkar, INGIMARS ÓLAFSSONAR, Jaðarsbraut 39, Akranesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks og eigenda Hafarnarins. Þórunn Ólafsdóttir, Stefán Ólafsson, Kristmundur Ólafsson. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför mannsins míns, föður okkar og tengdaföður, ÁGÚSTS INGVASONAR, Hraunbraut 38, Kópavogi. Ragna Friðriksdóttir, Jóhann Ágústsson, Ingunn Kristjánsdóttir, Garðar Ágústsson, Ásta G. Guðbrandsdóttir, Ingvar Ágústsson, Svava Magnúsdóttir, Loftur Ágústsson, Unnur Pétursdóttir og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.