Morgunblaðið - 12.12.1990, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1990
27
Þorvarðar Helgpsonar, sem ber svo
augljós merki vandaðra bókmennta.
Ég hef hinsvegar verið við öllu
búinn varðandi aðra bók, Mefistó á
meðal vor, sem ég gæti ekki varið
vegna persónulegra skoðana minna.
En Mefistó er furðuleg bók, samin
af verkakonu í svo undra liprum
og léttilega skrifuðum tóni og fljúg-
andi hugmyndaflugi. Sjálfum finnst
mér hún ógeðfelld, en ég viður-
kenni að hún sprettur með furðuleg-
um hætti upp úr samfélagi okkar
og það eru í henni bráðgóðir kafl-
ar. En ég tel það skyldu útgefanda
að koma slíku verki fyrir almenn-
ingssjónir. Það á ekki að vera í
okkar verkahring að ritskoða hug-
sjónir og beisla hugmyndaflugið og
vil ég í því sambandi benda á
hneykslismái það sem nýlega kom
upp í Bandaríkjunum, þar sem hátt-
settir forstjórar ætluðu að hindra
útkomu á bók Bretans Eastons EU-
is „American Psycho“, sem er nokk-
uð álíka furðubók og Mefistó.
Ég ef nú mátt þola það í tvígang,
að gagnrýnendur blaðsins hafa það
sem ég kalla „dæmt bækur mínar
til dauða“ og ég vona að það sé
augljóst, hvað ég meina með því
orðalagi. Það gerðist í fyrra, að
gagmýnandi blaðsins „varaði fólk“
við að lesa bók mína Tópagjöf. Nú
munu nærfellt 4.000 íslendingar
hafa eignast bókina og ég mæti
hvarvetna þakklæti og vináttu fyrir
hana. Nú síðast hefur Guðmundur
Emilsson, tónlistarstjóri, greint mér
frá því, að hann noti hana jafnvel
sem hjálparrit í endurmenntun-
arnámskeiði við Háskólann. Ekki
af því að hann sé sammála öllu sem
þar stendur, heldur einfaldlega af
því hún komi að góðu gagni. Þetta
er bókin sem varað var við!
Nú gerist þetta í annað skipti,
með bókina Bleikfjörublús, sem ég
gef út. Sagt er að hún sé ekki einu
sinni „verð að prentast á endurunn-
inn pappír“! Ég spái því að síðar
verði litið á hana sem eina betri
bókmenntatilrauna ársins 1990.
Ritstjórar eiga auðvitað ekki að
vera með almenna afskiptasemi af
ritsmíðum gagnrýnenda, en það
fríar þá ekld af ábyrgð á því, ef
gagnrýnendur fara langt út fyrir
mörk siðsemi og dæma bækur, höf-
unda og útgefendur „til dauða“ með
einhæfum og órökstuddum illyrðum
og dónaskap.
Höfundur er rithöfundur og
útgefandi.
yfir á stjórnarflokkana. I þessu
sambandi verður að minna á það
að hver einstakur alþingismaður
vinnur eið að Stjórnarskránni. Ef
þingmaður telur að lagasetning
brjóti í bága við hana ber honum
skilyrðislaust að greiða atkvæði
gegn lögunum.
Annað mál er svo að í ljósi
breyttra þjóðfélagsaðstæðna er
löngu orðið tímabært að endurskoða
28. grein Stjórnarskrárinnar er
kveður á um rétt forseta til að setja
bráðabirgðalög milli þinga. Fagna
ber lagafrumvarpi Kvennalistans
um afnám þessa réttar.
Ahrifamáttur fjölmiðla er mikill
nú á dögum. Þetta á ekki síst við
um okkar fámenna þjóðfélag, þar
sem þorri landsmanna sameinast
um tiltölulega fáa Ijölmiðla. í gegn-
um þessa fjölmiðla virðist því nú
hafa verið komið inn hjá fólki að
málið snúist annars vegar um stað-
festingu bráðabirgðalaganna og
þjóðarsátt, og hins vegar um afnám
laganna og upplausn í þjóðfélaginu.
Það er kannski skiljanlegt að þjóð,
sem veit hvernig það er að búa við
óstöðugleika og verðbólgu, faili fyr-
ir svona málflutningi. Eg held þó
og vona að þegar fram líður, muni
flestir átta sig á hversu röng þessi
framsetning er. Eflaust munu ýms-
ir áhrifamenn, sem hafa tjáð sig
opinberlega, eiga erfitt með að við-
urkenna rangan málflutning. Aðrir
munu sjá að ef mistök hafi átt sér
3tað, verður að leiðrétta þau á lög-
legan hátt. Þannig og aðeins þann-
ig sköpum við stöðugleika í þjóðfé-
laginu og komum í veg fyrir upp-
lausn.
Hafa miðann við h
Hringja í síma 6|
uu
BYLGJAN
Barnavinningar
hafa komið á
eftirtalin númer:
4. des. 522
22409
119149
65685
10656
v
9. des. 167902
20939
69496
41799
58416
Stilla á Bylgjuna kl. 14.30.
65900
104913
133104
183648
197878
2. des
44938
181180
13783
37742
191039
3. des.
178560
30937
39888
122919
56027
5. des.
94914
93497
123456
20849
23596
6. des.
83062
19557
17241
128713
22522
7. des.
157915
194621
114586
179866
57232
8. des.
150430
155021
33235
11483
4980
10. des.
123823
8 42
22077
112178
49924
11. des
165910
70896
124623
65167
187076
fasdóttir
stæðu 6. desember. Auðbjörg Péturs-
dóttir vann hljómtækjasamstæðu
7. desember. Stefanía Jónsdóttir vann
sjónvarp 8. desember. Valgarð Sigmars-
Mundu:
989
Ides.
Hulda Jakobsdóttir vann myndbandstæki
4. desember. Gunnar Kristjánsson vann
sjónvarpstæki 5. desember. Ásta Ragn-
hildur Ólafsdóttir vann hljómtækjasam-
son vann myndbandstæki 10. desember.
Dorothea Grétarsdóttir vann myndbands-
nar
tæki 11. desember. Og
stórvinningana.
nú styttist í
Höfundur er nemi í verkfræði.
tSUNSKAAUGlíSINGASTOFAN HF