Morgunblaðið - 12.12.1990, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 12.12.1990, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1990 Hernámið — liin hliðin HJÁ Isafold er komin út bókin Hernámið — hin hliðin eftir Louis E. Marshall sem var ofursti í Bandaríkjaher á íslandi á árunum 1943-45. Frásögnin lýsir persónulegum viðhorfum höfundar til þess sem hann sá og reyndi meðan á dvölinni hér stóð. Hann hafði aðsetur í Trópólí-kampi, rétt við Háskólann, en fór í eftirlits- ferðir í um fimmtíu bandarískar herstöðvar víðsvegar um land. *. Louis E. Marshall er lögmaður í San Antonio í Texas en hefur auk þess lokið doktorsprófi í hag- fræði. Frásögnin grundvallast á endurminningum hans frá dvölinni hér en segir auk þess frá aðdrag- anda þess að hann kom hingað og frá því sem við tók þegar hann fór héðan. Einnig segir í bókinni frá ástum og einkamálum höfund- ar en hann á fjölskyldu hér á landi. Höfundur hins íslenzka texta sem byggður er á_ endurminning- um ofurstans er Áslaug Ragnars sem einnig hefur búið bókina til prentunar. Lífið er eins og slípaður steinn með marga fleti. Birtan fellur aldr- ei á alla þessa fleti samtímis. Það má snúa þessum steini á ýmsa vegu og sjá hann í því ljósi sem maður vill hverju sinni. En jafnvel tærasti eðalsteinn felur í sér lýti. Lakasti steinninn á líka sína feg- urð. Mannlífið er’eitt samfellt stríð og vopnin eru margvísleg, ekki síður þar en í vopnuðum átökum þjóða og hagsmunahópa. Mitt eigið litla líf er eins og klasi af flötum með misjafnlega bjartri endurspeglun. Nú orðið rennur hún saman í heildarmynd af stórum steini sem í upphafi vega var í nieðallagi, eftir því sem ég er maður til að meta það. Sem ég sit hér, í stofunni minni, með þennan stein í mínum gamla lófa og skoða hann í krók og kring, beini honum að dagsbirtunni og sný honum síðan undan henni ef hún verður of skörp fyrir öldung- inn sem þrátt fyrir allt hefur áunn- ið sér vissa helgi, þ_á stendur þessi steinn fyrir sínu. Ég bjóst aldrei við að hann yrði framúrskarandi. En ég reyndi að vanda mig. Eftir því sem ég hafi vit, þroska og hugrekki til á hveijum tíma. Ef ég rýni um of í þennan stein sé ég margt sem nístir mig. í hjartastað. Eftir á að hyggja er eitt og annað sem ég vildi Sreytt hafa en vonandi á það ekki fyrir mér að liggja að dómgreindin bregðist mér gjörsamlega, að ég fari að hrófla mikið við því sem ég fæ ekki breytt, sjálfum mér og öðrum til tjóns og skapraunar. Varnarræða? Já, auðvitað. Ég er lögmaður. Lífið er barátta sem snýst sitt á hvað um þetta tvennt: sókn og vörn. Og hví skyldi ég Langastræti í Trípólí-kampi. ekki nú sem endranær snúa vörn í sókn? Gagnvart sjálfum mér ekki síður en öðrum. Ég viðurkenni það. Steininum í lófa mér sný ég eins og mér sjálfum sýnist. Ljósið sem skín á hann núna, þessa stund, síðdegis í Texas, í hálf- rökkrinu í rólegu raðhúsahverfi í San Antonio, — þetta ljós er milt, jaðrar við að vera dauft. En ef ég sný stærsta fletinum upp.í ljósið verður þessi steinn, sem í raun og veru er rétt í meðallagi, svo skínandi bjartur og fagur. Þannig vil ég líka hafa hann að leiðarlok- um. Einn bjartasti flötur steinsins sem er lífíð í lófa mínum er hún Lauga. Fallega lífsglaða konan sem ég elska enn þann dag í dag. Þessi sterka og bjarta íslenzka kona sem ég hitti í hálfrökkrinu í Klúbbnum í Trópólí rétt eftir kom- una til íslands. Ég var ekki búinn að átta mig. Sandfokið í eyðimörkinni, stríðs- glæringar, hríðarbylur á Græn- landi, kvíðinn fyrir hinu ókomna, óljós beygur, krafan uin að standa sig eins og maður og taka því sem að höndum bæri, hrifningin yfir fegurð þessa nýja lands og svo þetta óþol. Uppreisnareðlið. Taka því sem að höndum bar? Hafði ég beðið um þetta stríð? Hafði ég eitthvað að segja? Var þetta þá ekki mitt líf? Átti ég ekki að verða annað en viljalaust peð á skákborði einhverra afla sem virtust hafa svo háleit markmið að ég eygði þau ekki einu sinni? Nei. Þrátt fyrir allan þennan Louis E, Marshall eins og hann leit út á stríðsárunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.