Morgunblaðið - 12.12.1990, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 12.12.1990, Blaðsíða 39
MORGUNBþA,ÐIÐ MIÐVIKUPApUR 12. DESEMBER 1990 39 Morgunblaðið/Trausti Þorsteinsson Unnið er af krafti við byggingu ísstöðvar við Dalvíkurhöfn, en ráð- gert er að taka stöðina í notkun í mars á næsta ári. Tveir sækja um stöðu jafnréttisfulltrúa TVÆR umsóknir bárust um stöðu jafnréttisfulltrúa hjá Ak- ureyrarbæ, en umsóknarfrest- ur rann út fyrir helgi. Báðar umsókirnar eru frá kon- um. Þær sem sækja um stöðuna eru Anna Sigurðardóttir, nemi í félagsvísindadeild Háskóla. ís- lands, en hún lýkur námi næsta vor og Valgerður Bjarnadóttir, félagsráðgjafi. Hugnín Sigmundsdóttir, form- aður jafnréttisnefndar sagði að gert væri ráð fyrir að gengið yrði frá ráðningu í stöðu jafnréttisfull- trúa á fundi nefndarinnar í næstu viku, en rætt yrði við umsækjend- ur fljótlega. J ÓLATÓNLEIKAR í L AN GHOLTSKIRKJU Græn tónleikaröð fimmtudaginn 13. desember kl. 20.00 laugardaginn 15. desember kl. 15.00 Efnisskrá: Árstíöirnar efiir Vivaldi Svita nr. 2 efitir Respighi Pulcinella svítan efitir Stravinskí Einleikarar: Bryndís Pálsdóttir (vor) Laufiey Siguröardóttir (sumar) Lin Wei (haust) Andrzej Kleina/GuÖný Guðmundsdóttir (vetur) Hljómsveitarstjóri: GuÖmundur Oli Gunnarsson AthugiÖ að tóleikarnir verÖa í Langholtskirkju. Áskrifiendur eiga merktar sœtaraöir i kirkjunni. UPPSELT á fimmtudag. Tónleikarnir verða endurteknir laugardaginn 15. desember kl. 15.00. MiÖar eru seldir á skrifistofu Sinfióníuhljómsveitarinnar í Háskólabíói, sími 622255. Sinfóníuhljómsveit íslands. = r = er styrktaraÖili SÍstarfsáriö 1990-1991. Bygging ísstöðvar á Dalvík: ísinn verður afgreiddur beint um borð í skipin Dalvík. HAFIN er bygging ísstöðvar við Dalvíkurhöfn. í haust var stofnað hlutafélag um byggingu og rekstur ísstöðvar á Dalvík. Hluthafar í félaginu eru allir útgerðarmenn á Dalvík ásamt fleiri aðilum. Stefnt er að því að hlutafé verði um 16 milljónir króna og er enn unnið að söfnun hlutafjár. Frumkvöðlar að stofnun Isstöðvar- innar hf. eru tveir vélstjórar við Frystihús Kaupfélags Eyfírðinga á Ðalvík. Kynntu þeir hugmyndir sínar fyrir útgerðarmönnum á Dalvík, en Iðnþróunarfélagið hafði gert athug- anir á rekstrargrundvelli fyrir ísstöð- ina. Sýndu útgerðarmenn á Dalvík strax mikinn áhuga á hugmyndinni og var ákveðið að stofna hlutafélag til að starfrækja ísstöð við Dalvíkur- höfn. Oft á tíðum hefur verið erfitt að fá ís á Dalvík og með stækkun bátaflota og aukinni umferð skipa um höfnina hefur skapast meiri þörf fyrir ís. Kaupfélag Eyfirðinga og Söltun- arfélag Dalvíkur hafa framleitt ís fyrir fiskiskipin, en ísvélarnar eru orðnar gamlar og anna vart eftir- spurn. Þá þykir afgreiðsla á ís bæði tafsöm og kostnaðarsöm því aka þarf ísnum frá afgreiðslunni að skipshlið og moka af vörubílum með snigli sem flytur ísinn um borð. Með nýju ísstöðinni verður veruleg breyt- ing á, því ísinn vei'ður afgreiddur beint um borð í skip við norðurgarð. Unnið verður af krafti við bygg- inguna eftir því sem tíð leyfir, en hús stöðvarinnar verður byggt úr stálgrind og klætt stálplötueiningum frá Yleiningum hf. Verður húsið á 2 hæðum. Ráðgert er að Ijúka bygg- ingaframkvæmdum í mars og verður stöðin þá tekin í notkun. Keypt hafa verið tæki til stöðvarinnar og verða afköstin um 30-33 tonn af ís á sólar- hring. ísvélarnar eru keyptar notaðar frá Noregi, en afgreiðslubúnaður verður nýr. Tæki stöðvarinnar eru sjálfvirk þannig að ekki þarf meira en tvö störf við stöðina. Fréttaritari. K*«f>rál AfflYGUSVERÐAR p Vz Y*' .. vU\'» V \ X*Ít*r*Lstc& & , BÍLDUDALSKÓNGURINN ATHAFNASAGA PÉTURS J. THORSTEINSSONAR ÁSGEIR JAKOBSSON Þetta er saga Péturs J. Thorsteinssonar, sem var frumherji í atvinnulífi þjóðarinnar á síðustu áratugum nftjándu aldar og fyrstu áratugum þeirrar tuttugustu; saga manns, sem vann það einstæða afrek að byggja upp frá grunni öflugt sjávarpláss; hetjusaga manns, sem þoldi mikil áföll og marga þunga raun á athafnaferlinum og þó enn meiri f einkalífinu. SONUR SÓLAR RITGERÐIR UM DULRÆN EFNI ÆVAR R. KVARAN Ævar segir hér frá faraónum Ekn-Aton, sem dýrkaði sólarguðinn og var langt á undan s.inni samtfð. Meðal annarra rit- gerða hér eru t.d.: Sveppurinn helgi; Haf- steinn Björnsson miðíll; Vandi miðilsstarfs- ins; Bréf frá sjúklingi; Miðillinn Indriði Indriðason; Máttur og mikilvægi hugsun- ar; Er mótlæti f lífinu böl?; Himnesk tónlist; Hefur þú lifað áður? SKUGGSJA BÓKABÚÐ OLIVERS STEINS SF MYNDIR UR UFIPETURS EGGERZ, FYRRVERANDI SENDIHERRA GAMAN OG ALVARA PÉTUR EGGERZ Pétur Eggerz segir hér fyrst frá lífi sínu sem lftill drengur í Tjarnargötunni í Reykjavík, þegar samfélagið .var mótað af allt öðrum viðhorfum en nú tíðkast. Sfðan fjallar hann um það, er hann vex úr grasi, ákveður að nema lögfræði og fer til starfa í utanríkis- þjónustunni og gerist sendiherra. Pétur hefur kynnst miklum Ijölda fólks, sem hann segir frá f þessari bók. KENNARI Á FARALDSFÆTI MINNINGAR FRÁ KENNARASTARFI AUÐUNN BRAGISVEINSSON Auðunn Bragi segir hér frá 3 5 ára kennara- starfi sínu í öllum hlutum landsins. Hann greinir hér af hreinskilni frá miklum íjölda fólks, sem hann kynntist á þessum tíma, bæði til lofs og lasts. Hann segir hér frá kennslu sinni og skólastjórn á fimmtán stöðum, m.a. á Akranesi, Hellissandi, Bol- ungarvík, Ólafsfirði, Skálholti, Kópavogi og í Ballerup í Danmörku.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.