Morgunblaðið - 12.12.1990, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 12.12.1990, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1990 35 Gatnamálastj óri: Strætisvagnaleið- ir verða saltaðar ÁKVEÐIÐ hefur verið að salta á ný strætisvag'naleiðir í tilraunareit á vegum gatnamálastjóra, í Fossvogs-, Smáíbúðar-, Háleitis- og Kringlu- mýrarhverfi, ef ástæða þykir. Vagnstjórar hjá SVR hafa í tvígang lagt niður ferðir um hverfin vegna hálku síðustu sólarhringa. Telja þeir að sandurinn, sem borinn var á göturnar í staðinn fyrir salt, komi ekki að sama gagni. Að sögn Inga Ú. Magnússonar gatnamálastjóra átti hann fund með fulltrúum vagnstjóranna í gærmorg- un og óskuðu þeir eftir að salt yrði borið á allar strætisvagnaleiðir á ný. „Osk þeirra kom ekki á óvart,“ sagði hann. „Þetta er sama reynsla og menn hafa orðið fyrir erlendis. Það verður að salta þar sem strætisvagn- ar aka um því sandur dugar ekki til. Ég sagði þeim að ekki væri hægt að bijóta í bága við ákvörðun borgar- ráðs og taka upp söltun á ný án samþykkis en að höfðu samráði við borgarverkfræðing þá hefur verið ákveðið að taka upp söltun næstu daga ef þörf þykir, þar sem borgar- ráð kemur ekki saman fyrr en á föstudag.“ Síðdegis í gær var svo tekin ákvörðun um að salta leiðina að Borgarspítalanum en aðrar strætis- vagnaleiðir í hverfinu verða saltaðar í dag ef þurfa þykir. FISKVERÐ Á UPPBOÐSMÖRKUÐUM - HEIMA 11. desember. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 118,00 98,00 106,86 1,748 186.784 Þorskur(ósL)- 86,00 86,00 86,00 0,205 17.630 Ýsa 115,00 104,00 111,78 0,707 79.028 Ýsa (ósl.) 87,00 81,00 82,62 1,453 120.048 Smáýsa 49,00 49,00 49,00 0,009 441 Saltflök 75,00 75,00 75,00 0,050 3.750 Langa 65,00 65,00 65,00 0,036 2.340 Tindab. 5,00 5,00 5,00 0,017 85 Koli 49,00 49,00 49,00 0,008 392 Karfi 25,00 25,00 25,00 0,006 150 Hlýri 30,00 30,00 30,00 0,005 150 Lýsa (ósl.) 49,00 49,00 49,00 0,052 2.548 Skata 5,00 5,00 5,00 0,006 30 Samtals 96,09 4,302 413.376 FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur(st) 113,00 90,00 105,37 18,245 1.940,742 Þorskur(ósL) 99,00 78,00 92,88 8,913 827,799 Ýsa (sl.) 114,00 58,00 101,51 11,998 1.217,984 Ýsa (ósl.) 99,00 45,00 91,36 8,189 748,183 Blandað 80,00 20,00 25,68 0,752 19.312 B landað 58,00 20,00 32,39 0,158 5.117 Grálúða 67,00 67,00 67,00 0,135 9.045 Karfi 50,00 50,00 50,00 0,141 7.050 Keila 45,00 43,00 43,84 0,553 24.245 Langa 74,00 74,00 74,00 0,361 26.714 Lúða 400,00 300,00 363,22 0,266 96.350 Lýsa . 57,00 20,00 52,77 0,967 51.028 Saltf.flök 215,00 200,00 206,02 0,295 60.775 Steinbítur 67,00 • 20,00 65,21 0,683 44.539 Ufsi 49,00 49,00 49,00 0,822 40.284 Undirmál 85,00 50,00 79,74 1,666 132.848 Samtals 97,00 54,145 5.252,016 FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 116,00 83,00 94,57 10,171 961.866 Ýsa 107,00 76,00 99,91 12,073 1.206.268 Blandað 49,00 49,00 49,00 0,048 2.352 Skata 90,00 90,00 80,00 0,030 2.400 Karfi 70,00 70,00 70,00 3,500 245.000 Keila 47,00 42,00 46,54 1,564 72.788 Skarkoli 60,00 60,00 60,00 0,006 0.360 Ufsi 45,00 24,00 44,67 0,508 22.692 Lúða 295,00 295,00 295.,00 0,164 48.380 Langa 69,00 63,00 66,60 1,388 92.444 Steinbítur 81,00 63,00 80,00 0,416 33.282 Lýsa 39,00 39,00 39,00 0,084 3.276 Samtals 89,85 29,952 2.691,108 Selt var úr dagróðrabátum og Þuríði Halldórsdóttur. Á morgun verður selt I úr dagróðrabátum og Skarfi GK. Olíuverö á Rotterdam-markaöi, síöustu tíu vikur, 1. okt. -10. des., dollarar hvert tonn Morgunbladið/Sturla Páll Sturluson Rúnar H. Vilbergsson og Margrét Gunnarsdóttir. Suðureyri: Tónleikar Rúnars H. Vilbergsson- ar og Margrétar Gunnarsdóttur Suðureyri. ÞRIÐJUDAGINN 4. desember voru Súgfirðingar sóttir heim af þeim Rúnari H. Vilbergssyni fagottleikara og Margréti Gunnarsdóttur píanóleikara. Héldu þau eina tónleika í Bjarnarborg, liúsi Verka- lýðs- og sjómannafélags Súganda. Á efnisskrá voru verk eftir er- lenda og innlenda höfunda. Góður rómur var gerður að tónlistarflutn- ingi þeirra af þeim sem á hlýddu, enda farið faglegum fingrum um hljóðfærin. Rúnar og Margrét eru bæði Is- firðingar. Rúnar starfar nú við Sin- Vonskuveður á Vesturlandi Borg í Miklaholtshreppi. HÉR gerði mikið vonskuveður í gærkvöldi, hvessti með norðaust- anátt. Nokkur snjóföl var á jörðu, urðu því aksturskilyrði bifreiða mjög slæm. Fólk sem var að koma með Baldri til Stykkishólms vestan af Barða- strönd lenti í slæmu veðri á Kerling- arskarði, varð að ganga á undan bílunum vegna þess að blindan var svo mikii að ekkert sást. Fólkið, sem var tíu manns í fjórum bílum, komst áð Lynghaga í fyrrakvöldi óg gisti þar í fyrrinótt. KK-Blús- kvartettnn á Púlsinum BLÚSÁHUGAMENN fá glaðning í kvöld því þá verður haldið blús- kvöld á Púlsinum þar sem frain kemur KK-blúskvartettinn. Þeir sem skipa KK-blúskvartettinn eru; Kristján Kristjánsson, söngur, gítar og munnharpa, Ásgeir Oskarsson, trommur, Þorleifur Gíslason, bassa og Björgvin Gísla- son á gítar. Tónleikarnir hcTjast upp úr kl. 21.30. Leiðrétting í grein Herdísar Sveinsdóttur í blaðinu í gær féllu niður stafir í tveimur skammstöfunum, sem breyta merkingu viðkomandi setn- inga. Þar átti að standa: „Af þeim sökum er eðlilegt að áhugi sé á því' að hálfu hjúkrunarfræðinga, að þeir sem lokið hafa prófi frá HSÍ (Hjúkrunarskóla Islands) eigi kost á að auka við nám sitt til að ljúka BS-prófi.“ (í blaðinu stóð HÍ). Og á öðrum stað átti að standa: „ ... námsbraut í hjúkrunarfræði hefur tekið að sér að fylgja stefnu um sérskipulagt nám til BS-prófs fyrir hjúkrunarfræðinga, sem mörkuð hefur verið annars staðar og að til- stuðlan HFÍ (Hjúkrunarfélags ís- lands).“ Þar stóð einnig HI, sem er rangt. Blaðið biðst velvirðingar á þessum mistökum. fóníuhljómsveit íslands, en áður hefur hann leikið með ýmsum aðil- um svo sem Kammersveit Reykja- víkur, Hljómsveit íslensku óperunn- ar, Þursaflokknum óg Islensku hljómsveitinni svo eitthvað sé nefnt. Margrét er núna starfandi píanó- kennari á ísafirði. Hún hóf píanón- ám sitt í Tónlistarskóla ísafjarðar átta ára gömul hjá Ragnari H. Ragnar. Síðan hefur hún stundað nám bæði hér heima og erlendis. Að loknum tónleikunum voru tónlistarfólkinu færð blóm í þakkar- skyni. Þá var tónlistargestum boðið upp á kaffi að lokinni dagskrá. Sturla Stekkjarstaur íheimsókn í DAG klukkan 11 kemur fyrsti jólasveinnin í heimsókn á Þjóð- minjasafnið, en þeir munu líta þar við daglega fram að jólum. Það eru gömlu góðu jólasvein- arnir sem ætla að láta sjá sig þar og fyrstur er Stekkjarstaur. Sauðárkrókur: Vogar: Eldingu laust niður í jólatré ELDINGU laust niður í jólatré hreppsins í Kirkjuholti í Vogum á mánudagskvöld í suðaustan- roki og snjókomu. Ekki kveikn- aði í trénu en ljós voru tendruð á því síðastliðinn sunnudag. Þá kom mikill blár blossi frá raf- mangslínunni á Vatnsleysuströnd sem lýsti upp stórt svæði og stóð bjarminn nokkra stund. E.G. Eitl atriði úr myndinni Prakkar- inn. Laugarásbíó sýnir myndina „Prakkarinn“ LAUGARÁSBÍÓ hefur tekið til sýningar myndina „Prakkarinn". Með aðalhlutverk fara John Ritt- er, Jaek Warden og Amy Yas- beck. Leikstjóri er Dennis Dug- an. Ben og Flo Healy öfunda barna- fólk í grennd við sig af barnaboðun- um, sem efnt er til og þeim er ekki boðið í vegna barnaleysis. Þau ætt- leiða 7 ára dreng sem móðirin hafði yfirgefið sem ungbarn. Þau hjón eni ekki fyrstu fósturforeldrar drengsins því Junior eða Lilli, eins og hann er kallaður, hefur farið til 30 hjóna en þau öll skilað honum þar eð hann er of ódæli. Uppeldið gengur heldur brösulega hjá Ben og Flo og málin taka óvænta stefnu, en sumir verða a.m.k. ánægðir með málalokin. Lögreglan leitar vitna Slysarannsóknadeild lögregl- unnar i Reykjavík óskar eftir að hafa tal af manni sem varð sjón- arvottur að árekstri við Skipholt 24 mánudaginn 10. þessa mánað- ar. Þá var jeppabifreið ekið á rauða Toyota-sendibifre’ið og fór ökumað- ur jeppans af vettvangi án þess að ' láta af sér vita. Vitað er að maður nokkur varð vitni að árekstrinum og skráði hjá sér skráningarnúmer jeppans og biður lögreglan hann að hafa við sig samband. Fundur um sorgarviðbrögð Saudárkróki. HERRA Sigurbjörn Einarsson biskup mun flytja erindi sem hann nefnir Sorgin og Guð á fundi hjá nýstofnuðu félagi um Sorg og sorgarviðbrögð á Sauð- árkróki. Fundurinn verður hald- inn í safnaðarheimili Sauðár- krókskirkju miðvikudagskvöldið 12. desember kl. 21 og að sögn sr. Hjálmars Jónssonar mun fundurinn verða fluttur í kirkj- una ef húsrúm þrýtur. Þetta er þriðji fundurinn á þessu fyrsta starfsári félagsins þar sem fengnir eru fyrirlesarar til að fjalla um þetta viðkvæma efni, sorgina. Áður hafa fjallað um sorg og sorg- arviðbrögð á vegum félagsins þeir sr. Bragi Skúlason og sr. Sigfinnur Þorleifsson sjúkrahúsprestar í Reykjavík. Formaður félagsins er Pálmi Rögnvaldsson á Hofsósi og félagssvæði Skagafjarðarprófasts- dæmi. - BB
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.