Morgunblaðið - 12.12.1990, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 12.12.1990, Blaðsíða 26
2jS MOKGUNBIAÐIU MlPyiKUDAGL[R,12. DESEMgER 19^0, 4 Gagnrýnandi lýsti ekki bók, heldur sjálfum sér eftir Þorstein Thorarensen í síðustu viku var einskonar dauðadómur kveðinn upp yfir Þor- varði Helgasyni, rithöfundi, og mér undirrituðum, sem útgefanda hans, af herrétti sem hirti hvoki um lög og rétt og skipaði hann ein herská kona, Súsanna Svavarsdóttir. Hún kvað upp dóm án viðeigandi for- senda, sem jafngilti því, að banna hefði átt útgáfu bókarinnar Bleik- fjörublús, þar sem hún væri klám- fengin og kúr og „föst í sköpunum á sögupersónunum". Að svo búnu var dómnum framfylgt (með birt- ingu í víðlesnasta fjölmiðli landsins) og við tveir, rithöfundur og útgef- andi, teknir af lífi. En hvað, ef við hefðum verið saklausir? Kannski lifum við þó enn hinum megin, annars gæti ég víst ekki komið fram þessum andmælum úr gröf minni. Ég mótmæli þessum dómi harka- lega og áfrýja honum til alls al- mennings og bið hann um að veita okkur Þorvarði uppreisn með því að kynna sér málavexti. Það er firra að bókin Bleikfjöru- blús sé klámfengin eða klúr. Hún hefði kannski verið sett undir borð- ið á 19. öld, en ekki nú, guð hjálpi mér. Bleikfjörublús er'þvert á móti að mínu einlæga áliti sem útgefanda gott bókmenntaverk, sem lýsir sam- skiptum kynjanna á nýstárlegan og harkalegan hátt. Nýstárlegan af því að bókin lepur ekki upp farsa SIEMENS kvennabókmenntanna, sem eru að byrja að verða æði einhæfar, og harkalegan, af því að hún lýsir m.a. hvað kynlíf getur verið inni- haldslaust, tilgangslaust og ógeðs- legt, þegar það hefur ekki inni að halda nein gildi manneskjulegrar ástar. Þessi harka getur einmitt nú á tímum firringar og sífelldra skyndikynna komið illa við kaunin á fólki, sem býr kannski með fimm til tíu manns til skiptanna með til- viljanabörnin á skotspónum, en hún á líka að gera það. Má ég taka smá dæmi: Síðdegis sama dag og þessi dómur hafði birst í blaðinu, skrapp ég á rakarastofuna á Laugavegi 178 og settist í stólinn hjá ungri og föngulegri konu, sem fór svo mjúkum höndum um hár mér og höfuð, að mér varð það á að dotta, hef sjálfsagt líka verið þreyttur, eftir að hafa yerið tekinn af lífi fyrr um daginn. Ég veit ekki, hvað lengi ég blundaði, en allt í einu hrökk ég upp og þótti þetta svo leiðinlegt að mér duttu ósjálf- rátt af vörum í afsökunartóni svo- . látandi orð: „Æ! Fyrirgefðu, er ég nú farinn að sofa hjá þér?“ Jafn- skjótt blygðaðist ég mín, því að mér varð ljóst, að orðin höfðu tvíræða merkingu. Persónulega fannst mér þetta leiðinlegt af því að ég met konur svo mikils, að mér finnst kynferðislegt áreiti í orðum eða káfi ógeðfellt. Þannig voru mín viðhorf, en sjálfsagt hefði ég getað verið önnur persóna, klámfenginn, kynóður graðfoli og þessi orð mín hefðu strax fengið allt aðra merk- ingu. En ekki nóg með það, því að það Fjölhœf hrœrivél! MK 4450 Blandari, grænmetiskvöm og hakka- vél fylgja með. • Allt á einum armi. • Hrærir, þeytir, hnoðar, blandar, brytjar, rífur, hakkar og sker. • ísl. leiðarvísir og uppskriftahefti. • Einstakt verð: 13,?$Q kr. SMmH & NORLAND NÓATÚNI4 - SÍMI28300 var líka mikið undir því komið, hver viðbrögð stúlkunnar yrðu, skyldi hún móðgast, skyldi hún roðna, eða skyldi hún nota tækifærið og bjóða mér til Ijúfra skyndikynna? Takið nú eftir því, kæru lesend- ur, hvernig viðbrögð stúlkunnar hefðu getað breytt innihaldi og merkingu orða minna. Ég meinti ekkert með þeim, en hún hefði með viðbrögðum sínum getað gert þau klúr og skyndilega gert úr mér dóna. En viðbrögð hennar voru ekki þannig. Rakarastúlkan svaraði bara ósköp blíð og umburðarlynd: „Allt í lagi, sofðu bara hjá mér!“ Og auðvitað meinti hún heldur ekkert með því, nema örlítinn keim af gamansamri glettni. I stað þess að snúa öllu á verri veg, þá urðum við einhvem veginn vinir út úr þessu, saklausir vinir, sem er það besta af öllu. Milli okkar ríkti góðvild, umburðarlyndi, þakklæti og læt ég hana ábyggilega líka klippa mig næst. Þetta vil ég gera að líkingu um það hvernig gagnrýnandi bláðsins hefur lesið bók Þorvarðar. Vegna eigin viðhorfa snýr hún öllu við. Það því fremur sem dómur hennar er lítt rökstuddur, aðallega tilfinn- ingabundinn. Því leyfi ég mér með fullum rökum að mótmæla staðhæf- ingu hennar um að Bleikfjörublús sé klúr. Það eru að vísu í henni margar samfaralýsingar, en ef menn skoða þær nánar, sést að þær eru einmitt ekki klúrar, af því að þær miða ekki að því að vekja upp losta eða kynóra, heldur gegna þær þvert á móti æðra hlutverki og æðri merkingu og fela í sér að mínu áliti góða uppbyggingu bæði skáld- sögunnar í heild og persónusköpun- arinnar. Það sem er svo óvenjulegt við þessa sögu Þorvarðar er, að hann gerir þar athyglisverða tilraun til að skapa persónurnar í mögnuðum dráttum upp úr röð samfaralýsinga (sem þó eru ekki eiginlegar sam- faralýsingar, heldur miklu frekar skáldlegar blæmyndir). Þetta er kjarni skáldsögu hans. En hann, horfir ekki lostafullur á þessi atvik, SliíWsajja eítir PORVARD HKLGASON „Mér virðist það aug- ljóst, því meira sem ég velti þessu fyrir mér, að það er ekkiskáld- saga Þorvarðar Helga- sonar sem er klúr, held- ur er það viðhorf og hugmyndir gagnrýn- andans, sem snýr öllu við.“ heldur skoðar þau í ljósi manngildis og þroska til lífs eða dauða. Því oftar sem ég skoða framvinduna, verður mér þetta ljósara. Og mér finnst hreinlega furðulegt að lærður bókmenntafræðingur skuli ekki sjá þetta og það vekur upp grunsemdir um hroðvirknisleg vinnubrögð. Mér fínnst ég vera í heldur hjákátlegri aðstöðu að þurfa að skrifa sjálfur einskonar bókmenntalega gagnrýni um bók sem ég gef út, af því að gagnrýnandi blaðsins er bersýni- lega ekki fær um það. Á kápusíðu Bleikfjörublús segir þó: „Tvennskonar örlög eða tilvist- argátur, sem stefna sitt í hvora áttina, önnur til sælu í innilegri ást og virðingu fyrir manneskjunni, hin til hnignunar og tortímingar í fram- hjáhaldi, virðingarleysi og siðleysi." Hér er einmitt, án öfga eða of- mælgi, gefin vísbending um það, hvernig rökræða mætti þessa óvenjulegu bók, en gagnrýnandinn Ábyrg afstaða Sjálfstæðisflokksins eftir ViktorJens Vigfússon Ber að taka Stjórnarskrána al- varlega? Er ekki baráttan gegn verðbólgunni og tímabundinn vilji meirihluta þjóðarinnar rétthærri en Stjórnarskráin? Töluverðar umræður hafa átt sér stað eftir samþykkt þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að greiða atkvæði gegn setningu margum- ræddra bráðabirgðalaga. Þessi samþykkt er vissulega eftirtektar- verð, en sýnu eftirtektarverðari eru neikvæð viðbrögð ýmissa frammá- manna og raunar stórs hluta þjóðar- innar. Flestir virðast telja að málið snúist um hvort svokölluð þjóðar- sátt nái fram að ganga eður ei. Þetta er að mínum dómi alröng ályktun. Málið snýst um hvort við virðum Stjórnarskrá lýðveldisins íslands og þar með þrískiptingu Jtafamynd Gleðjið yngri börnin með oöðum og gagnlepum bökum á ári læsis. Gefið þeim Stafabók barnannaog Stafa- og myndabókina. Stafabók barnanna ríkisvaldsins í löggjafar-, fram- kvæmda-, og dómsvaldið. Ríkisstjórn Steingríms Her- mannssonar gerði kjarasamning við BHMR vorið 1989. í júní 1990 ákvað hún að sum ákvæði samn- ingsins kæmu ekki til framkvæmda. Félagsdómur dæmdi þá aðgerð stjórnarinnar ógilda. Þvert ofan í þennan dóm gaf forseti Islands út bráðabirgðalög, fyrir tilstilli ríkis- stjórnarinnar, , sem afnámu þær kauphækkanir félagsmanna BHMR sem Félagsdómur hafði dæmt ríkis- stjórnina til að greiða. í 2. grein Stjórnarskrárinnar seg- ir: „Dómendur fara með dómsvald- ið.“ Auk þess segir í 60. grein: „Dómendur skera úr öllum ágrein- ingi um embættistakmörk yfír- valda". Hér er skýrt kveðið á um vald dómstóla. Auk þess held ég að lögfræðingar séu almennt sam- mála um, og viðurkenndar réttar- reglur kveði á um, að niðurstaða dómenda er endanleg í hveiju ein- stöku máli. Af þessu leiðir að henni verður ekki breytt með lögum eftir á. Vissulega breytir setning bráða- birgðalaganna ekki dómsniðurstöð- unni. Hún stendur eftir sem áður óhögguð. Hins vegar koma bráða- birgðalögin í veg fyrir að fram- kvæmd dómsins nái fram að ganga. Það hlýtur að vera ljóst hversu al- varlegar afleiðingar það hefur ef hirðir ekkert um það, hún rökræðir hana ekkert. Mér finnst dapurlegt að þurfa að benda lærðum bók- menntafræðingi á svona einföld undirstöðuatriði. Kynferðisleg uppbygging per- sónanna í Bleikfjörublús kemur auðvitað skýrast fram í dofnum til- finningum aðalpersónanna Bjarka og Dagnýjar. Með þeim er byggð upp kennd vonleysis, hins lokaða sunds, þar sem kynferðislegir draumórar eru jafnvel farnir að spila meiri rullu en sjálfar samfar- irnar. (Bjarki í búðinni og Dagný á baðströndinni.) En athylisverðast er að gera bók- menntalegan samanburð á framhjá- höldum Bjarka og hinsvegar til- hugalífi Einars og Jórunnar. Lýsingin á framhjáhöldum Bjarka er að mínu áliti ekki klúr, heldur vekur hún lesandanum aðal- lega andstyggð á spillingu og hruni persónuleika Bjarka. Skyndikynní hans við hina sænsk-fínnsku stúlku, eiga að heita fijáls, en verða í raun- inni ögeðsleg í sníkjuferli og ímynd- uðu lágkúrulegu örlæti. Og ekki batnar það í framhjáhaldinu heima á íslandi, þar sem Bjarki lofar skrif- stofustúlkunni kauphækkun, en svíkur það auðvitað allt. Þessi ferill endar með dauðanum, og það er engin tilviijun. I samanburðinum verður ástalíf Einars og Jórunnar gjörólíkt, án þess að verða nokkuð væmið, fullt af fyrirheitum til framtíðar og finn- ur sér samhljóm í yndislegri ást, það sameinar og byggir upp per- sónuleika, þar sem karlmaðurinn og konan eru jafningjar. Jafnvel síðasta samfarasenan á eldhús- stólnum, svo stuttorð sem hún er, fær á sig fegurðarblæ í loforði jafn- ræðis og fórnfúsrar ástar til fram- tíðar. Þar með verður karlmaðurinn ekki aðeins lostafullur friðill, heldur raunverulegur unnusti og konan verður raunveruleg kona en ekki mella. Mér er það hreint ekki skiljan- legt, hvernig gagnrýnandinn Sús- anna Svavarsdóttir getur fundið það út, að þessi unaður sé klúr. Og þá er ég kominn aftur að atvik- inu á rakarastofunni. Mér virðist það augljóst, því meira sem ég velti þessu fyrir mér, að það er ekki skáldsaga Þorvarðar Helgasonar sem er klúr, heldur er það viðhorf og hugmyndir gagnrýnandans, sem snýr öllu við. Það kom mér á óvart að fá þessi viðbrögð gagnvart Bleikfjörublús Viktor Jens Vig-fússon þessi vinnubrögð hljóta samþykki löggjafarvaldsins, Alþingis. Þetta er ekki einungis spuming um sið- leysi heldur hitt, sem er sýnu mikil- vægara, hvort alþingismenn beri virðingu fyrir stjómskipun Islands. Hætta er á að það aðhald sem dóm- stólar veita öðrum stjórnvöldum yrði að engu. I ljósi þessa er hin ábyrga af- staða forystumanna stærsta stjórn- málaflokks landsins mikið fagnað- arefni. Ég tel að það yrði mikill álitshnekkir fyrir flokkinn, til lengri tíma litið, ef afstaðan væri önnur. Ýmsir hafa haldið því fram að betra væri fyrir flokkinn að sitja hjá við atkvæðagreiðslu um bráðabirgða- lögin og varpa ábyrgðinni af þeim
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.