Morgunblaðið - 12.12.1990, Qupperneq 4
oeei 5?3Hr/.apaa ,sr íi'jDAauJövaiM cnaAjaMunnoM
MORGUNBtAÐIÐ' MfÐVlKtfÐAGtJH'12. ÐESEMBER 1990
Guðmundur J. Guðmundsson:
Ág-óði banka á ári þjóðar-
sáttar nálægt 3 milljörðum
GUÐMUNDUR J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar og Verka-
mannasambands íslands, segir vaxtahækkun útlánastofnana stefna sam-
stöðunni um þjóðarsátt í stóra hættu. „Það fer að verða býsna erfitt
fyrir þá sem standa á bak við þessa þjóðarsátt að verja hana, á sama
tíma og bankar hækka vexti sína með jöfnu millibili," sagði Guðmundur
í samtali við Morgunblaðið.
Guðmundur sagði að tekist hefði
að slá á verðbólguna í skjóli þeirra
kjarasamninga sem tókust í febrúar-
mánuði, og vextir hefðu farið lækk-
andi vegna hjöðnunar lánskjaravísi-
tölunnar. „Hins vegar hafa raunvext-
ir ekki lækkað. Raunvextir af verð-
tryggðum skuldabréfum 1. febrúar
sl. voru 7,9%, en í haust voru þeir
komnir í 8,2%. Eins og frægt er orð-
ið rauk íslandsbanki til og hækkaði
nafnvexti og svo hafa aðrar lána-
stofnanir haldið í humátt á eftir og
hækkað, nú síðast sparisjóðirnir. Mér
er kunnugt um að bæði í bankaráði
Búnaðarbankans og Landsbankans
er verið að ræða það að hækka raun-
vexti og undanfama viku hefur verið
tekist á um það í bankaráðunum. I
Landsbankanum eru þeir 7,75% og
í íslandsbanka 8,75%. Því spyr mað-
ur hvort þessar stofnanir séu komnar
á vonarvöl," sagði Guðmundur.
„íslandsbanki er búinn að græða
á sjötta hundrað milljónir það sem
af er árinu, Búnaðarbankinn er búinn
að græða yfir 700 milljónir á þessu
ári og Landsbankinn ekki minna. Því
er spáð að ágóði af bankakerfinu á
ári þjóðarsáttar verði á milli 2,5 til
3 milljarðar króna. Eru nú þetta
aðilamir sem þurfa að hækka í dag?“
spurði Guðmundur.
Guðmundur sagði að vaxtahækk-
anir bankanna færu beint út í verð-
lagið og orsökuðu verðhækkun og
minnkandi kaupmátt. Fyrir utan
beinu áhrifin væru óbeinu áhrifin svo
mikil. Hluti kaupmanna notfærði sér
vaxtahækkanirnar til þess að hækka
meira heldur en slíkar hækkanir
gæfu tilefni til auk þess sem þeir
hækkuðu gamlar vömr.
„Að bankar sem græða hátt í þrjá
milljarða á árinu skuli núna koma
og hækka vexti kallar óhjákvæmi-
lega fram spurningu hins almenna
launamanns: Getum við ekki hækkað
eins?“ sagði Guðmundur. „Er það
virkilega meiningin að stefna þjóðar-
sáttinni í voða með hækkun vaxta.
Ég sé enga ástæðu til vaxtahækkun-
ar og mér er alveg sama þótt hag-
fræðingar, sem þyrfti reglulega að
biðjast afsökunar á en ekki einstöku
sinnum eins og nýlega í Seðlabank-
anum, séu hálfpartinn að forsvara
þetta,“ sagði Guðmundur, „það er
fólk hér í landinu sem er að beijast
við að komast af og halda sínum
íbúðum. Það er eins og bankarnir
standi nú skelfingu lostnir vegna
þess að þeir séu að tapa af verðbólg-
unni. Geta bankarnir ekki lifað án
verðbólgu? “
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 12. DESEMBER
YFIRLIT I' GÆR: Fyrir suðaustan land er 976 mb lægð sem hreyfist
í norðaustur en önnur lægð suðvestur af Hvarfí fer vaxandi og
mun hreyfast nokkuð hratt í austnorðaustur.
SPÁ: Með morgninum verður komin hvöss austan- og suðaustan-
átt með snjókomu um allt sunnan- og vestanvert landið og síðdeg-
is nær snjókoman einnig til Norðausturlands. Um hádegisbil er
líklegt að vindur snúist til sunnanáttar suðvestanlands og rigning
eða súld taki við af snjókomu eða slyddu. Veður fer hlýnandi, þó
verður líklega enn vægt frost á norðausturlandi fram eftir morgni.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Suðlæg átt og fremur
hlýtt, þó heldur kólnandi vestanlands-á föstudag, Súld eða rigning
um sunnan- og vestanvert landið en þurrt að mestu norðaustan-
lands.
TAKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
f Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
y Skúrir
*
V El
— Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
[T Þrumuveður
■* /
* ' f
IDAGkl. 12.00
Heimíld: Veðutstofa Islands
(Bygst á veöutspá kl. 16.151 gær)
*
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
Akureyri
Reykjav/k
hitl veður
+2 snjókoma
•s-2 léttskýjað
Bergen 4 alskýjað
Helsinki *r1 kornsnjór
Kaupmannahöfn 2 skýjað
Narssarssuaq 0 slydda
Nuuk +3 alskýjað
Osló +3 skýjað
Stokkhólmur 2 þokumóða
Þórshöfn 4 skur
Algarve 13 léttskýjað
Amsterdam 5 . alskýjað
Barcelona 11 hálfskýjað
Berlín 0 snjókoma
Chicago vantar
Feneyjar 8 léttskýjað
Frankfurt 0 snjókoma
Glasgow 8 rigning og súld
Hamborg 3 skýjað
Las Palmas 19 skýjað
London 6 skýjað
LosAngeles 13 skýjað
Lúxemborg +0 snjókoma
Madríd 9 skýjað
Malaga 12 skýjað
Mallorca 12 skúr
Montreal vantar
NewYork 0 skýjað
Orlando vantar
París 3 þokumóða
Róm 8 rignlng
Vín 4 skýjað
Washington vantar
Winnipeg +4 alskýjað
Morgunblaðið/Sverrir
Pétur Pétursson í Kjötbúri Péturs með kippu af jólamat.
Fremur lítið framboð af rjúpu
í verslunum á höfuðborgarsvæðinu:
Veiðimenn vilja ekki
vita af þjóðarsátt
- segja kjötkaupmenn
FREMUR lítið framboð er af rjúpu í verslunum í höfuðborginni og
að sögn kaupmanna sem Morgunblaðið ræddi við í gær, er þar um
að kenna því að hópar veiðimanna viðurkenndu ekki þjóðarsátt og
hefðu bundist samtökum um að krefjast nú 40-50% hærra verðs
fyrir fuglinn en á síðasta ári. Kaupmenn kaupi ekki inn rjúpur á
því verði enda sé það ekki til neins því þær séu orðnar það dýrar
að fáir vilji nú kaupa þær.
„Það hættu mjög margir við að
kaupa ijúpu í fyrra vegna verðsins
og fleiri munu venja sig af því að
borða ijúpur um jólin núna,“ sagði
Júlíus Jónsson í Nóatúni. „Það hef-
ur verið talað um að það þurfi að
friða ijúpuna," sagði Pétur Péturs-
son í Kjötbúri Péturs, „en ef menn
heimta verð sem mundi leiða til
þess að hver ijúpa með virðisauka-
skatti kostaði 7-800 krónur út úr
búð, þá verður óþarfi að friða ijúp-
una því það mun enginn kæra sig
um hana.“
Báðir sögðust kaupmennirnir
bjóða veiðimönnum 350 krónur
staðgreitt fyrir fuglinn en hann
kostar óhamflettur 545 krónur út
úr búð í Kjötbúri Péturs. Veiði-
menn, einkum frá Norðuriandi og
Austfjörðum, virðast hins vegar
hafa bundist samtökum um að
krefjast um 500 króna fyrir fuglinn.
„Eg á til 1.200 ijúpur og þær
eru allar seldar fólki sem hefur
bókað pantanir í lok nóvember eða
fyrstu vikuna í desember. Þannig
kaupa flestir sínar rjúpur, og ef
fólki tekst ekki að festa sér ijúpur
þegar hálfur mánuður er til jóla
kaupir það eitthvað annað enda
stendur verð á annarri kjötvöru í
stað eða lækkar jafnvel," sagði
Pétur Pétursson.
A
Alviðræður í Atlanta:
Sáttir við árangiir-
inn af þessum fundi
- segir dr. Jóhannes Nordal
„VIÐ erum sæmilega sáttir við
það á hvaða stig samningavið-
ræður um orkusamninginn eru
komnar,“ sagði dr. Jóhannes
Nordal í samtali við Morgunblað-
ið í gær. Viðræðum Atlantsáls
og viðræðunefndar Landsvirkj-
unar um orkusamning vegna nýs
álvers lauk seint í fyrrakvöld í
Atlanta í Bandaríkjunum, en þeir
dr. Jóhannes Nordal formaður
álviðræðunefndar og Geir A.
Gunnlaugsson ræddu í gær við
fulltrúa Atlantsáls um stöðu
samninganna i heild.
Jóhannes sagði að viðræðurnar
um orkusamninginn hefðu gengið
það vel á þessum fundi í Atlanta,
að takast ætti að ljúka honum í
janúarmánuði. „Það eru engin sér-
stök atriði í orkusamningnum sem
ástæða er til þess að nefna sérstak-
lega, en þó má segja að samningar
varðandi endurskoðun og trygging-
ar eru komnir vel á veg, án þess
þó að þeim sé lokið," sagði Jóhann-
es.
Jóhannes sagði að enn væri þó
nokkur vinna eftir, en verkinu hefði
miðað vel áfram og því væru menn
sáttir við árangurinn af þessum
fundi.
Jóhannes og Geir A. Gunnlaugs-
son áttu svo fund með fulltrúum
Atlantsáls í gær þar sem farið var
yfir aðra þætti málsins, tímaáætl-
anir og fleira.
Næsti fundur aðila um orku-
samninginn hefur verið ákveðinn
8.-10. janúar og kvaðst Jóhannes í
gær telja líklegt að lokafundurinn
um orkusamninginn yrði haldinn
síðar í janúar.
Hékk utan á
bíl á 80 km
hraða
UNGUR maður var sviptur
ökuleyfi í fyrrinótt eftir að
hafa ekið um Hafnarfjörð í
fannfergi og hálku á um 80
kílómetra hraða og með kunn-
ingja sinn hangandi utan á bif-
reiðinni.
Lögreglumenn sáu hvar Dai-
hatsu-fólksbíl var ekið gegn
rauðu ljósi yfir gatnamót
Reykjavíkurvegar og Hjalla-
brautar og að aftan á bílnum stóð
ungur maður sem reyndi að halda
sér uppréttum. Aksturinn var
stöðvaður og kom í ljós að öku-
maðurinn, 18 ára piltur, ogkunn-
ingi hans höfðu ákveðið að kanna
af eigin raun hvort þetta væri
hægt.
Menn og bíll voru færðir á lög-
reglustöð þar sem ökumanninum
var gert að afhenda ökuskírteini
sitt.
L
b
i
\
»
»
i
i
t
i
1-