Morgunblaðið - 12.12.1990, Page 12
Almenna aufllýsmgastiSÍA
12
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1990
Fjallagrasapaté m/vínberjum
Reyktur lax m/eggjahlaupi
Marineruð síld og kryddsíld m/rúgbrauði
Rauðsprettuflök m/rernolaði
Danskar kjötbollur m/kartöflusalati
Nautagúllas m/kartöflumauki
Þýsk bjórpylsa m/paprikukartöflurn
ítalskur pastaréttur (Lasagna)
Londonlamb m/sveppasðsu
Rifjasteik m/rauðkáli
Léttsaltað uxabrjóst m/piparrótarsósu
FYRIR AÐEINS 980 KR
Nýi Askur býður starfsfólk stórra og smárra fyrirtækja velkomið í hadeginu!
Ef þið viljið vera út af fyrirykkur höfum við lítinn sal sem rúmar
10 -15 manns - en þá verðurað panta með fyrirvara.
XSKUR.
Suðurlandsbraut 4 • Sími 38550
„Hugur og hönd“
List og hönnun
Bragi Asgeirsson
Á hveiju ári, nánar tiltekið er
hður að jólum, kemur út vandað
rit um heimilisiðnað og listiðnir á
vegum Heimilisiðnaðarfélags Is-
lands, er ber nafnið Hugur og
hönd.
Listrýnirinn hefur árlega vakið
athygli á þessari framtakssemi,
enda er heimilisiðnaður um margt
hið sama fyrir sjónina og þjóðlög-
in fyrir eyrað, nema að notagildið
er meira. En góður og notadijúg-
ur heimilisiðnaður hefur í sér
óumdeilanlegt fegurðargildi, er
einhvers konar æðra stig föndurs.
Hefur það jafnvel komið fyrir
að ég hafi verið stöðvaður á götu
eftir að umsögn um ritið birtist
og ég spurður hví ég skrifaði um
jafn lítilsiglt efni, en hef ég að
sjálfsögðu ekki viljað kannast við
það. Nú bregður svo við að mynd-
verk, sem hafa svip af föndri, eru
komin í móð og hefur þess séð
stað á listsýningum hér í borg svo
sem Hannesar Lárussonar og
Svövu Björnsdóttur, sem er núver-
andi Borgarlistamaður! Jafnframt
hafa listsögufræðingar skrifað
lærðar greinar um listrænt inntak
föndurs og jafnvel tengt það hug-
myndafræði fornaldar og goða-
fræðinni!
Auðvitað er til æðra stig fönd-
urs ekki síður en lítilsvert, svona
eins og til eru bæði góð og vond
málverk og ekki er allt sem heyr-
ir undir gildan heimilisiðnað
ásamt því að sumt af því er nefn-
ist „hemslöjd“ eða heimilisfegurð,
eins og sumir hafa viljað nefna
hugtakið er hreint hnoð. Þannig
hafði ég lítinn áhuga á að skrifa
um samnorræna heimilisiðnaðar-
sýningu í Þjóðminjasafninu í sum-
ar fyrir það hve rislág hún var.
Þetta hefti flytur að venju ýms-
an fróðleik um list- og heimilisiðn-
að og ber sérstaklega að geta
greinar Rúnu Gísladóttur um ull-
arlist Önnu Þóru Karlsdóttur og
myndaröð af ausum Hannesar
Lárussonar, en sýning hans sl. vor
á ýmsum gerðum þeirra í núlistar-
legri útfærslu vakti drjúga at-
hygli.
Þá er Grænlendingum gerð
nokkur skil í tveim greinum eftir
Rúnu Gísladóttur og Sigríður
Halldórsdóttir heimsótti Færeyjar
og segir í stuttu máli frá ýmsu
markverðu sem hún sá. Elsa E.
Guðjónsson birtir ritsmfðar, sem
eru hluti af rannsóknum hennar
um íslenzka textíliðju og víkur að
heitinu Vefstaður — vefstóll og
íslenzkri hannyrðakonu á 17. öld,
Ragnheiði Jónsdóttur prófasts-
dóttur af Vestfjörðum og freyju
tveggja biskupa á Hólum þeirra
Gísla Þorlákssonar og Einars Þor-
steinssonar.
Þórir Sigurðsson gerir grein
fyrir grunnskólaverkefni í leik-
brúðugerð og brúðuleikhúsi og
Jakobína Guðmundsdóttir skrifar
um heimilisiðnaðarsýninguna
1921 og tréskurð Sigurðar Jóns-
sonar frá Harðbak á Melrakka-
sléttu.
Vikið er að Heimilisiðnaðar-
skólanum og ýmis nytsamur fróð-
leikur er í ritinu að venju, sem er
í vönduðum búningi og prýtt
ijölda ljósmynda, sem eru margar
í lit.
Þykir mér ritið ótvírætt vera í
sókn og vera öllum þeim sem
lögðu hönd að til mikils sóma.
■ ALÞJÓÐLEG kvikmynda-
hátíð Rauða kross Búlgaríu verð-
ur haldin í 14. skipti dagana 25.
maí til 1. júní nk. í Varna. Kjörorð
hátíðarinnar sem nú er orðin vinsæl
um heim allan eru Með mannúð til
friðar. Á síðustu kvikmyndahátíð
tóku 55 lönd þátt í hátíðinni og 6
alþjóðasamtök. Alls bárust 353
myndir og þar af voru valdar 141
mynd til sýningar. Myndirnar á
hátíðinni þurfa að vera framleiddar
eftir 1. janúar 1990. Þær eiga að
fjalla um Rauða kross-starf, heil-
brigði, vistfræði eða mannúðarmál.
íslendingum býðst að taka þátt í
hátíðinni og þurfa þátttökutilkynn-
ingar að berast til The Festival
Directorate í Sofia eigi síðar en 1.
febrúar nk. Allar nánari upplýsing-
ar eru gefnar á skrifstofu Rauða
kross Islands, Rauðarárstíg 18,
Reykjavík, s. 91-26722.
Hér sést hluti af úrvalinu,
sem við bjóðum af
BLOMBERG
kæliskápunum.
BLOMBERG er vestur-
evrópsk gæðaframleiðsla
á verði, sem fáir geta
keppt við.
Biðjið um nýja íslenska
60 síðna litprentaða
BLOMBERG
heimilistækjabæklinginn.
Einar Farestveit &Co.hf.
Borgartúni 28 ? 1 622901 og 622900