Morgunblaðið - 12.12.1990, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. DESÉMBER 1990
29
Jólatónleikar Kamm-
ersveitar Reykjavík-
ur haldnir í Askirkju
KAMMERSVEIT Reykjavíkur
mun sunnudaginn 16. desember
nk. halda sína árlegu jólatón-
leika í Áskirkju í Reykjavík. Hjá
Kammersveitinni hefur skapast
sú hefð að leika á jólatónleikun-
um tónlist frá barokk-tímanum
og gefa hljóðfæraleikurum
tækifæri til að koma fram sem
einleikarar í konsertum meist-
ara þess tíma.
Hallgrímskirkja:
Náttsöngur
og orgelleikur
NÁTTSÖNGUR verður haldinn
í Hallgrímskirkju í kvöld, mið-
vikudaginn 12. desember, og
hefst kl. 21.00. Hörður Áskels-
son, organisti Hallgrímskirkju,
leikur forleiki við aðventusálm-
ana Slá þú hjartans hörpu-
strengi, Vakna Síons verðir
kalla og Nú kemur heimsins
hjálparráð, alla eftir J.S. Bach.
Síðan verður sungin tíðagjörð.
Þetta er annað dagskráratriði á
9. starfsári Listvinafélags Hall-
grímskirkju sem hófst með aðvent-
unni. Næsta atriði er jólatónleikar
Mótettukórs Hallgrímskirkju, nk.
miðvikudag 19. desember, en þá
flytur kórinn, einsöngvarar og
hljómsveit Jólasöguna og Magn-
ificat eftir Heinrich Schiitz, auk
þess sem Marta Halldórsdóttir
sópransöngkona flytur einsöng-
skantötuna Jauchzet Gott in allen
Landen eftir J.S. Bach, sem samin
var fyrir sópran, strengjahljóðfæri
og einleikstrompett.
Að þessu sinnu munu koma
fram með Kammersveitinni fimm
ungir og efnilegir einleikarar.
Hafa þeir allir nýlega lokið fram-
haldsnámi erlendis og eru flestir
komnir heim til starfa hér í
Reykjavík.
Eiríkur Örn Pálsson trompet-
leikari mun hefja tónleikana með
trompetkonsert í D-dúr eftir G.
Torelli, þá leikur Guðmundur
Kristmundsson lágfiðluleikari
Konsert í G-dúr eftir G.P. Tele-
mann, Bryndís Halla Gylfadóttir
leikur sellókonsert í Es-dúr eftir
A. Vivaldi, Sigurður Þorbergsson
básúnuleikari leikur Konsert í B-
dúr eftir J.G. Albrechtsberger og
að lokum mun Áshildur Haralds-
Þrír smábátar
í vandræðum
áFaxaflóa
ÞRÍR smábátar áttu í.erfiðleik-
um á Faxaflóa á mánudags-
kvöldið þegar þeir voru á leið
til lands. Slysavarnarfélgas-
menn fóru á björgunarskipinu
Henrý Hálfdánarsyni til aðstoð-
ar.
Siglingatæki bátanna duttu út
þegar slyddan var hvað mest og
því brugðu þeir á það ráð að óska
eftir aðstoð Slysavamarfélagsins.
Þegar björgunarskipið kom að bát-
unum hafði birt til og því engin
hætta á ferðum. Henrý fylgdi þó
einum bátanna til hafnar til örygg-
is.
Gunnar Guðbjörnsson Jónas Ingimundarson
Malarastúlkan fagra í flutn-
ingi Gunnars Guðbjörnssonar
og Jónasar Jngimundarsonar
ÚT ER kominn geisladiskur á vegum Steina hf. með Gunnari Guð-
björnssyni og Jónasi Ingimundarsyni, þar sem þeir flylja Malarastúlk-
una fögru, Die Schöne Mullerin eftir Franz Schubert.
Gunnar Guðbjörnsson tenór-
söngvari og Jónas Ingimundarson
píanóleikari fluttu Malarastúlkuna
fögm eftir Franz Schubert í Nor-
ræna húsinú á tvennum tónleikum
síðastliðið haust og um líkt leyti
réðust þeir í að hljóðrita allt verkið
stafrænt undir stjórn Halldórs
Víkingssonar í Víðistaðakirkju í
Hafnarfirði. Þetta er í fyrsta sinn-
sem íslenskir flytjendur hljóðrita
þennan lagabálk í heild sinni, en
hann spannar rúmar 70 mínútur í
flutningi.
Gunnar Guðbjörnsson er aðeins
25 ára gamall. Hann starfar aðal-
lega í Bretlandi um þessar mundir
og hefur sungið á tónleikum í Card-
iff, Edinborg og Lundúnum og gert
hljóðritanir með Royal Philharm-
onic Orchestra og Academy of St.
Martin In the Fields.
Jónas lngimundarson hefur
starfað sem pianóleikari og tónlist-
arkennari í 20 ár. Hann hefur hald-
ið tónleika víða um' heim, komið
fram sem einleikari með Sinfóníu-
hljómsveit íslands og í útvarpi og
sjónvarpi. Hann hefur starfað með
ýmsum af þekktustu söngvurum
okkar og leikið inn á fjölda hljóm-
platna.
Halldór Hansen ritar formála að
verkinu í 20 blaðsíðna bók sem fylg-
ir geisladisknum og þar eru enn-
fremur öll ljóðin birt á frummálinu,
þýsku, auk þess sem íslenskar þýð-
ingar Þorsteins Gylfasonar á ljóðun-
um eru birtar með leyfi þýðanda.
Hönnun umslags gerði Helgi
Hafliðason, ljósmyndir tók Gunnar
L. Jónasson og umbrot annaðist
Örn Smári_ Gíslason. Steinar hf.
gefa geisladiskinn út.
Kammersveit Reykjavíkur og Áshildur Haraldsdóttir, flautuleikari, sem er meðal fimm einleikara á
tónleikum í Áskirkju á sunnudag.
dóttir flautuleikari flytja Konsert manna strengjasveit undir stjórn og hefjast klukkan 17, sunnudag-
í G-dúr eftir C.P.E. Bach. Rutar Ingólfsdóttur. Tónleikarnir inn 16. desember.
Með einleikurunum leikur 12 verða sem fyrr segir í Áskirkju (Frcttatiikynning)
ÁSTARSÖGURNAR
FÓRNFÚS IVLÓÐIR
ELSE-MARIE NOHR
Hún hefur aldrei verið mikið fyrir börn, en
í frfi sfnu verður hún ástfangin af manni
nokkrum ogkynnist lítilli dóttur hans, sem
er hjartveik og bíður eftir því að komast
undir læknishencfur.
ÆVINTÝRI f MAROKKÓ
BARBARA CARTLAND
Nevada Van Arden var bæði mjög falleg og
vellrík, og hún naut þess að kremja hjörtu
ungu mannanna. Tyrone Strome varð æva-
reiður, þegar hann komst að raun um.
f DAG HEFST LÍFIÐ
ERIK NERLÖE
Aðeins sautján ára gömul er hún að verða
fræg og rík. Og margt er að gerast í lffi henn-
ar. Hún fær tækifæri sem söngkona; hún
verður ástfangin; hún hittir móður sína,
sem hún hefur aldrei þekkt, en hefur svo
oft dreymt um.
HAMINGJU HJARTAÐ
EVA STEEN
hvernig hún fór með aðdáendur sína, og
hve laus hún var við alla tillitssemi og
hjartahlýju.
f SKUGGA FORTÍÐAR
THERESA CHARLES
Ilona var dularfull í augum samstarfsfólks
síns. Engu þeirra datt í hug, að hún skrifaði
spennusögur í frftfma sfnum, eða að þessi
„Nikulás" sem hún átti að vera trúlofuð,
væri aðeins til í hugarheimi hennar.
Hún er rekin úr ballettskólanum og fer því
til London, þar sem hún gerist þjónustu-
stúlka hjá Qölskyldu einni, og gætir lítillar
stúlku. Á leiðinni til London kynnist hún
ungum manni, sem sýnir henni mikinn á-
huga.
SKUGGSJÁ
BÓKABÚÐ OLIVERS STEINS SF