Morgunblaðið - 12.12.1990, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1990
Aðventutón-
leikar kórs
Rangæinga
KÓR Rangæingafélagsins í
Reykjavík heidur aðventutón-
leika í kvöld, miðvikudaginn 12.
desember, kl. 20.30 í Seljakirkju.
Stjórnandi kórsins er Elín Osk
Óskarsdóttir. Einsöngvarar á tón-
leikunum eru Elín Ósk Óskarsdóttir
og Kjartan Ólafsson. Hljóðfæraleik
annast þau Þóra Fríða Sæmunds-
dóttir, Ingibjörg Lárusdóttir, Mar-
íanna Másdóttir og Kjartan Ólafs-
son.
mmm
&SAMBANDSINS
HOLTAGÖFfÐUM SlMI 68 55 50
VIÐ MIKLAGARÐ
• & KAUPFÉLQGIN
Kór Rangæingafélagsins í Reykjavík.
V erðlaunasam-
keppni Samvinnu-
ferða-Landsýnar
SAMVINNUFERÐIR-Landsýn
efna til verðlaunasamkeppni fyr-
ir alla farþega ferðaskrifstof-
unnar. Keppnin heitir Sprelllif-
andi minningar og byggist á því
að farþegar, ungir sem aldnir,
sendi inn hugleiðingar með
minngarbrot úr ferðalagi sínu
með Samvinnuferðum-Landsýn.
Til dæmis er lýst eftir teikningum
eða teiknimyndasögum, ljósmynd-
um, vísum eða ljóðum, smásögum,
stuttum myndböndum eða kvik-
myndum, lagstúf eða hljóðsnæld-
Stykkishólmur:
Sjálfsbjörg minnist 20 ára áfanga
Stvkkishólmi.
SJÁLFSBJÖRG, félag lamaðra
og fatlaðra, í Stykkishólmi,
efndi til fundar um málefni fé-
lagsins í Grunnskólanum 1. des-
ember sl. Þar var rætt um
framtíðarverkefni félagsins og
eins það sem áunnist hefur sl. ár.
Félagið hér í Hólminum er nú
20 ára gamalt og eru nú 25 félag-
ar í samtökunum. Gestir fundarins
voru Jóhann Pétur Sveinsson for-
maður aðalsamtakanna, Ólöf
Ríkharðsdóttir, Lilja Þorgeirsdóttir
og Tryggvi Friðjónsson, öll frá
Reykjavík. Þá var og mættur
Sturla Böðvarsson bæjarstjóri í
Stykkishólmi. Lárus Kr. Jónsson
formaður félagsins bauð fundar-
menn velkomna og ,þá sérstaklega
þá sem að voru komnir, lýsti tíma-
mótum samtakanna hér og helstu
viðfangsefnum. En þau felast aðal-
lega í merkjasölu, happdrættissölu
og bókasölu og kvað hann að mjög
vel hefði gengið undanfarin ár
enda væri skilnings og velvilja
bæjarbúa að mæta. Þá fluttu að-
komumenn erindi og svöruðu fyrir-
spurnum. Mest ræddu þau um fer-
limálin og byggingar til að gera
fötluðum sem bestan aðgang að
þeim. Væri unnið að bótum um
allt land og sveitárfélögin hefðu
sýnt mikinn skilning á þeim hlut-
um.
Sturla Böðvarsson ræddi um
hversu mikið hefði unnist í þessum
efnum hér í Stykkishólmi bæði
hvað opinberar byggingar og ann-
að áhrærði og margt stæði til bóta.
Allar nýbyggingar væru byggðar
þannig að allir hefðu sem greiðast-
an aðgang að þeim og margar eldri
byggingar hefðu verið bættar. Það
er talsvert eftir, sagði Sturla. Það
kemur ekki allt á sama degi, en
þetta vinnst. Aðkomumönnum var
síðan boðið að skoða nýju kirkjuna
og sjúkrahúsbygginguna og hafði
séra Gísli H. Kolbeins forgöngu
um það.
Margar fyrirspurnir komu fram
og ræddu menn mál Sjálfsbjargar
Tónlistarunnendur á Kirkju-
bæjarklaustri fengu góða heim-
sókn um daginn þegar lúðrasveit
barna og unglinga úr Vík kom
og hélt tónleika.
Nemendur tónlistarskólans í Vík,
þ.e.a.s. þau sem eru í lúðrasveit
skólans ásamt stjórnanda sínum,
Kristjáni skólastjóra, voru í nokkurs
konar æfingabúðum á Klaustri frá
föstudegi til sunnudags og luku
verunni með því að halda tónleika.
Hluta af tímanum notuðu þau til
að kynnast jafnöldrum sínum á
staðnum, sérstaklega þeim sem
fram og aftur.
Stjórn Sjálfsbjargar í Stykkis-
hólmi skipa Lárus Kr. Jónsson,
Bjarni Lárusson og Árni Helgason.
- Árni
skipa barnakór Prestbakkakirkju,
en á tónleikunum léku þau og sungu
saman og vita menn ekki til að
áður hafi barnakór sungið við undir-
leik lúðrasveitar. Þá komu einnig
fram á tónleikunum nokkrir nem-
endur tónlistarskólans á Klaustri.
Stjórnandi barnakórsins er Guð-
mundur Óli Sigurgeirsson og skóla-
stjóri tónlistarskólans á Klaustri er
Ari Agnarsson.
Mæltist þessi heimsókn vel fyrir
hjá báðum aðilum og hyggja á nán-
ara samstarf í framtíðinni.
- HSH.
Sérstök dómnefnd velur 7 athygl-
isverðustu verkin sem berast og
þeir sem þau gerðu fá að launum
utanlandsferð fyrir alla fjölskyld-
una. Síðan verða þrír aukavinnings-
hafar dregnir úr nöfnum allra sem
senda inn efni og fá þeir einnig í
verðlaun utanlandsferð fyrir alla
fjölskylduna.
Skilafesturertil lö.janúar 1991.
■ NÝALDARBÆKUR HF. er
nýtt bókaútgáfufyrirtæki og eru
tvær fyrstu bækur útgáfunnar komn-
ar út. Sú fyrri er Lifðu í gleði eftir
Sanaya Roman. í kynningu útgáf-
unnar segir m.a.: „Sanaya Roman
er miðill sem árið 1977 komst í sam-
band við Ljósveru sem kallar sig
Orin. Hann vill vinna að því að um-
breyta ríkjandi hugsunarhætti í
heiminum með því að hjálpa fólki til
að skilja eigin hug og tilfinningar
og meðþví að efla kærleikann í heim-
inum. I hveijum kafla bókarinnar
tekur Orin fyrir eitt ákveðið mál-
efni. Hann bendir á ríkjandi venjur
og hvernig unnt sé að breyta þeim.
Hann bendir okkur á að lifa í gleði,
breyta neikvæði í jákvæði, biðja um
hjálp því ekki sé hægt að veita eitt-
hvað sem ekki sé beðið um, auðsýna
þakklæti bæði fyrir það sem við höf-
um nú þegar, sem og það sem okkur
áskotnast dag hvern." Hin bókin er
Bók Emmanúels eftir Pat Rodeg-
ast og Judith Stanton. í kynningu
útgáfunnar segir m.a.: „Pat Rodeg-
ast er miðill sem komst í samband
við Emmanúel í hugleiðslu upp úr
1970. Með hveiju árinu sem leið í
samstarfi þeirra safnaðist meira og
meira efni sem á endanum varð uppi-
staðan í þessari bók. Emmanúel kem-
ur víða við í leiðbeiningum sínum
okkur til handa. Hann tekur á já-
kvæðan hátt á málum og útskýrir
lífið og dauðann, óttann sem virðist
fylgja manninum, myrkrið og hið
neikvæða, hið illa og syndina. Hann
ræðir um lífsreynslu okkar og ábyrgð
á því lífi sem við höfum valið að lifa
í þessari jarðvist. Hann hvetur okkur
til þess að líta á mannlegt eðli okkar
(langanir, vináttu o.s.frv.) sem
vísbendingu um sannleika Guðs og
varar okkur við að leita æðri sann-
leika annars staðar en í lífinu sjálfu."
Frá tónleikunum. Morgunblaðið/Hanna Hjartardóttir
Kirkjubæjarklaustur:
Heimsókn lúðra-
sveitar frá Vík
Kirkjubæjarklaustri.
GONGU
PAKKI
UNGLINGA
PAKKI
Atomic skíði
Koflac skór
Salomon bindingar
Atomic stafir
VERÐ FRÁ KR. 13.995,- VERÐ FRÁ KR. 19.990,
Atomic skíði
Saiomon skór
Salomon bindingar
Atomic stafir
Atomic skíði
Salomon skór
Salomon bindingar
Atomic stafir
VERÐ FRA KR. 14.400.