Morgunblaðið - 12.12.1990, Síða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1990
Krókódílafár ráðu-
neytissljórans
eftir Guttorm P.
Einarsson
I sögulegri brandarakeppni
spaugstofumanna við Kjarvalsstaði
síðastliðið vor, vakti ráðuneytisstjóri
viðskipta upp krókódíladrauginn
margfræga, þegar hann trúði alþjóð
fyrir skopskyni sínu. Af alkunnri
mælskulist sýndi hann mörlandan-
um inn í hugljómun kímnigáfu
sinnar, þegar hann náðarsamlegast
deildi með honum því fyndnasta sem
hann vissi. Einhver hafði einhvers
staðar látið sér detta í hug að rækta
krókódíla á íslandi.
En að sjálfsögðu gat ráðuneytis-
stjórinn ekki verið þekktur fyrir að
senda drauginn frá sér ófeðraðari
og sem rökfastur og áreiðanlegur
embættismaður hafði hann eftirfar-
andi vísbendingar um faðernið.
Krókódílaræktina hafði borið á
góma á einhverjum atvinnumála-
fundi í Mývatnssveit. Sem starfs-
maður við mótun atvinnustefnu
hafði ég verið þar á slíkum atvinnu-
málafundi. Ótæpilegt hugmynda-
flug þarf til að fitja upp á krókódíla-
rækt hér uppi við heimskautsbaug
og þar sem ég hef gengið erinda
íslenskra hugvitsmanna, þurfti ekki
frekar vitnanna við. Skjáhrafnar
ráðuneytisstjórans hlutu að hafa
krunkað rétt, þegar þeir báru hon-
um söguna. Jafnvel landsins þekkt-
ustu skrímslafræðingar hefðu ekki
getað komist að annarri niðurstöðu,
og því var magnaður seiður,
krókódíladraugurinn upp vakinn og
mér sendur.
Vegna friðhelgi ráðuneytisstjór-
ans taldi ég ekki viðeigandi að end-
ursenda gjörninginn en freistaði
þess að svelta draugsa og setja
hann niður með þögn og þolin-
mæði. En þá brá svo við að níð-
skældinn sögutilberi gekk í lið með
andskota þessum og hefur hann
ólmast á húsum mínum æ síðan.
Tilberinn hljóp í blaðamanninn
Gunnar Smára Egilsson sem í ein-
feldni sinni tók spaugi ráðuneytis-
stjórans sem stórasannleik og hefur
síðan friðlaus gengið 'erinda
krókódílsins. Upp frá því hefur
mátt rekja slóð hans í skrifum Gunn-
ars Smára, allt frá starfsdögum
hans við DV, þar sem hann lífgaði
jafnóðum og magnaði kykvendi
þetta í mörgum smágreinum Sand-
korna. Eftir að Gunnar Smári hætti
störfum hjá DV, hvarf draugsi úr
þeim ritlingi. Þess í stað. hefur hann
nú tekið sér bólfestu í Pressunni,
eftir að Gunnar Smári gerðist rit-
stjóri hennar og. ábyrgðarmaður.
Á blaðsíðu 18 í Pressunni nú 6.
desember 1990 birtist grein undir
fyrirsögninni: „Krókódílamaðurinn
fundinn". Þar er því enn haldið fram
að ég sé upphafsmaður hugmyndar-
innar um krókódílarækt við Mývatn.
í sömu grein getur einnig að líta
samskonar rangfeðran á gamalli
hugmynd um víkingaþorp við Hvol-
svöll sem landskunnur útskurðar-
meistari setti fram, en þáð er önnur
saga.
En nú þegar jól fara í hönd og
helgar tíðir, er mér og mínum það
kappsmál hið mesta að kveða niður
draug þennan í eitt skipti fyrir öll,
svo við fáum notið friðhelgi há-
tíðanna, ótrufluð af hælaslætti
draugsa á húsþekju okkar. Því kalla
ég til liðsinnis alla gjörningamenn
er kunna galdur þann að kveða
Guttormur P. Einarsson
„En nú þegar jól fara í
hönd og helgar tíðir,
er mér og mínum það
kappsmál hið mesta að
kveða niður draug
þennan í eitt skipti fyr-
ir öll, svo við fáum not-
ið friðhelgi hátíðanna.“
sendingu þessa í kútinn hvað sem
tautar og raular, og jafnvel þótt
beita þurfi aðferðum rannsóknar-
réttarins til að kreista tilberann út
úr sálarfylgsnum Gunnars Smára.
Sem vopn og veganesti legg ég liðs-
mönnum mínum í hendur eftirfar-
andi vísbendingar.
Fyrir rúmu ári kom breskur
líffræðingur fram í íslensku sjón-
varpi og lýsti kostum þess að rækta
krókódíla við jarðhita.
Maður er nefndur Jón Illugason
»
UpDbvottavélar í miklu úrvali!
SIEMENS uppþvottavélar eru velvirkar,
hljóölátar og sparneytnar.
Breidd: 45 og 60 sm.
Verö frá 57.330,- kr.
SMITH & NORLAND
NÓATÚNI4 - SÍMI 28300
GULLFALLEGIR
PELSAR
MJÖG GOTT VERÐ
GREIÐSLUSKILMÁLAR
Safalinn, Laugavegi 25, 2. hæð. Sími 17311
>E
vAkortalish
DagS. 12.12.1990 Nr. 21
korl nr
5414 8300 1024 2104
5414 8300 1486 2105
5414 8300 1564 8107
5414 8300 2460 7102
5414 8301 0314 8218
5414 8301 0342 5103
Erlend kort (öll kort)
5411 07** **** ****
5420 65** **** ****
5217 0010 2561 2660
5217 9840 0206 0377
5217 9500 0114 5865
Olangreind korl eru vákort sem laka ber úr umfcrö.
VERÐIjAIJIM KR. 5.000,-
fyrir þann sem nær korti ogscndir sundurklippt
til Kurocards.
Úttektarleyfissími Eurocards er 687899.
Djónusta allan sólarhringinn.
Klippið auglýsinguna út og geymiö.
KREDITKORT HF.
Ármúla 28,108 Reykjavík, sími 685499
TILBOÐ
SEGA leikjatölvur á meiriháttar
tilboðsverði til jóla.
Aðeins kr. 13.330,-
Mikið
Allir leikir á sérstöku jólatilboðsverði.
Munið póstkröfusímann 91-680685.
S • K • I • F • A • N
Kringlunni, sími 600930,
Hljóðfærahúsi Reykjavíkur, sími 600935
forstjóri fyrirtækisins _ Eldár við
Mývatn. Er hann fyrsti íslendingur-
inn sem ég veit að hafi sýnt málinu
áhuga.
Á fundi í Reykjahlíð 19.4. 1990
bað Jón Illugason iðnráðgjafa Þing-
eyinga um að útvega sér skýrslu
líffræðingsins um krókódílarækt og
greiddi fyrir hana kr. 10.000,00,
sennilega án milligöngu viðskipta-
ráðuneytisins.
Á atvinnumálafundi á vegum
ríkisstjórnarinnar í Skjólbrekku
þann 9. maí 1990, þeim eina sem
ég hef komið á þar um slóðir, var
ekki rætt um krókódílarækt heldur
skýrt tekið fram að svo fjarlægar
hugmyndir þyrðum við ekki að
ræða.
Einhvetjir bunustokksmenn við
Kísiliðjuna hafa síðan verið að velta
þessum krókódílum fyrir sér, en
mér er það með öllu óviðkomandi.
I störfum mínum við mótun at-
vinnustefnu hef ég lagt ríka áherslu
á að menn standi traustum fótum
í íslenskum raunveruleika þegar
þeir velta fyrir sér nýjum valkostum
í atvinnumálum.
Með þetta í höndunum eggja ég
alla lögeggjan að kveða draug þenn-
an niður, þar með talinn hinn
níðskældna sögutilbera í Gunnari
Smára Egilssyni, því hann er hvorki
á vetur setjandi né vaxtanna virði
að framlengja lífdaga hans.
Höfundur starfar í
umhverfisráðuneytinu að mótun
atvinnustefnu.
■ EVRÓPUSAMTÖK hjúkr-
unarfræðinga í alnæmishjúkrun
(EANAC) voru stofnuð 24. nóv-
ember sl. 20 hjúkrunarfræðingar
frá 14 Evrópulöndum hittust í
Amsterdam til að ganga formlega
frá stofnun samtakanna, kosningu
stjórnar, markmiðum og stefnu-
skrá. Tildrögin að stofnun samtak-
anna má rekja til ráðstefnu um al-
næmishjúkrun sem haldin var í
Kaupmannahöfn í mars 1990. Þar
voru tilnefndir fulltrúar frá hveiju
þátttökulandanna til að vinna að
stofnun þessara samtaka. Eitt af
verkefnum samtakanna er að halda
árlega ráðstefnu um mál er lúta
að hjúkrun HlV-smitaðra og ai-
næmissjúklinga. Næsta ráðstefna
verður haldin í Hollandi í nóvember
1991. Fulitrúar íslands á stofnfundi
EANAC voru Ásdís Þórbjarnardótt-
ir og Hildur Helgadóttir, hjúkrunar-
fræðingar á Borgarspítalanum.
(Fréttatilkynning)
H SKUGGSJÁ hefur gefið út bók-
ina í skugga fortíðar eftir Ther-
esu Charles í þýðingu Skúla Jens-
sonar og Arnars Steinssonar.
Sagan er m.a. kynnt svona á bók-
arkápu: „Ilona Lantivet var dular-
full í augum samstarfsfólks síns.
Engu þeirra datt í hug að hún skrif-
aði spennusögur í frítíma sínum,
eða að þessi Nikulás sem hún átti
að vera trúlofuð væri aðeins til í
hugarheimi hennar. Þegar nokkur
dýrmæt skjöl hverfa af skrifstof-
unni virðist grunur vera felldur af
ásettu ráði á Ilonu. Henni til mikill-
ar furðu og andúðar var hún sökuð
um að tengjast óvinanjósnurum ...
og að tengjast raunverulegum
manni að nafni Nikulás." Bókin er
199 blaðsíður.
■ ÖRN OG ÖRLYGUR hafa gef-
ið út bókina Varenka, ævintýri
fyrir börn eftir Bernadettu í þýð-
ingu Vilborgar Dagbjartsdóttur.
Þetta er rússnesk sögn endursögð
og myndskreytt af höfundi. í kynn-
ingu útgefanda segir m.a.: „Það
geisar stríð í landinu og fólkið flýr
heimili sín, nema Varenka hún er
kyrr til þess að hugsa um dýrin og
hlúa að fólki. Stríðið færist nær og
Varenka biður Guð að byggja svo
háan vegg í kringum húsið sitt að
hermennirnir sjái það ekki. En læt-
ur Guð gerast kraftaverk?" í for-
lagsverslun Arnar og Örlygs í Síðu-
múla 11 eru myndir til sýnis sem
íslensk skólabörn teiknuðu undir
áhrifum frá sögunni.