Morgunblaðið - 12.12.1990, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDÁGUR 12. DÉSÉMBÉR 1990
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Þessir hringdu .. .
Óhugnanlegar fréttir
Guðrún Skúladóttir hringdi:
„Mér finnst það til skammar
fyrir Stöð 2 að sagt var frá flug-
slysinu sem varð á dögunum svo
skömmu eftir að það varð. Vélin
fannst kl. 17.35 en sagt er frá
slysinu í fréttunum klukkan hálf
átta, þegar ekki voru liðnir nema
tveir tímar. Mér finnst að frétta-
mennirnir hefðu átt að leyfa að-
standendum að jafna sig á þessu
- það er mjög ómekklegt að flytja
fréttina'svona skömmu eftir sly-
sið.“
Veski
Lítið seðlaveski með skilríkjum
tapaðist við Hagkaup í Skeifunni.
Pinnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 681884. Fundar-
laun.
Slæm umgengni
Björn Guðmundsson hringdi:
„Mig langar til að spyija hvort
nokkuð sé búið að opna útibú frá
sorphaugunum á auðri bygginalóð
við Brúarás þar sem mikið drasl
hefur safnast upp. Því var lofað
fyrir borgarstjórnarkosningarnar
I vor að þarna yrði tekið til hend-
inni en þarna hefur verið alls kon-
ar drasl síðustu 10 árin.“
Ákeyrsla
Keyrt var á grænan Mercedes
Bens fyrir utan fjölbrautarskólan
í Breiðholti milli kl. 5 og 6 síðdeg-
is á þriðjudag. Vitni eru vinsam-
legst beðin að hafa samband við
Andrés í síma 657464.
Úr
Flik flak barnaúr fannst í Skip-
holti fyrir nokkru. Upplýsingar í
síma 681101.
Flugbjörgunarsveitarmenn
Geir Þormar hringdi:
„Ég er að leita eftir nöfnum á
mönnum sem gengu í Flugbjörg-
unarsveitina þann 19. desember
1950 vegna verks sem ég vinn
að. Bið ég viðkomandi að hafa
samband við mig í síma 30057
eða Flugbjörngunarsveitina í síma
694550.
Barnagleraugu
Barnagleraugu í bleikri niálm-
umgjörð töpðust í Miðbænum ná-
lægt Kolaportinu sl. sunnudag.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 32735.
Góðþjónusta
Árný hringdi:
„Eg vil þakka fyrir afbragðs
þjónustu hjá B.V. búsáhöldum í
Hólagarði. Ég keypti þar aðventu-
kross rétt fyrir lokun en þegar
heim var komið kom í ljós að
ekki var hægt að láta kvikna á
honum. Ég hafði samband við
búðina og þeir brugðu strax við
og keyrðu nýjan til okkar. Þetta
kalla ég frábæra þjónustu."
Dúkaborð
Björg Eiríksdóttir hringdi:
„Fyrir nokkuð löngu rakst ég
á auglýsingu um dúkaborð í
Morgunblaðinu en týndi auglýs-
ingunni. Óska ég eftir upplýsing-
um um hvar þessi borð fást
keypt.“
Lyklar
Húslyklar fundust við strætis-
vagnabiðskýlið við Laugarnesveg
hinn 1. desember. Upplýsingar í
síma 37480.
Sólgleraugu
. Sólgleraugu töpuðust í leigubíl
aðfaranótt sl. sunnudags.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 679327.
Sokkar
Ásdís hringdi:
„Hver er framleiðandi karl-
mannasokka sem merktir eru G.
Helgason og framleiddir undir
vöruheitinu „Plagg". Síminn hjá
mér er 98-21555.
Rangt nafn
Hanna Jónsdóttir hringdi:
„í þætti Bryndísar Schram og
Jónasar Jónassonar, Veistu svar-
ið, var útvarpað rödd fösður míns,
Jóns Kristóferssonar, en stjórn-
endur sögðu að það væri rödd
Jóns Kristófers kadetts. Vil ég
hérmeð koma hinu rétta á fram-
. færi.“
Plötur
Plötur töpuðust í strætisvagni
fyrir skömmu. Finnandi er vin-
samlegast beðinn að hringja í
síma 676866.
Úr
Gullúr með gullspöng tapaðist
við Laugarveg eða í Hólahverfi.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 71424.
Keflavík heitir nú Keflavík
Til Velvakanda.
Yfirskrift fréttar blaðsins 6. þ.m.
um að Miðneshreppur hafi orðið að
Sandgerðisbæ var „Sandgerði heitir
nú Sandgerðisbær“. í því kemur
fram sá þráláti misskilningur, að
heiti sveitarfélags sé heiti byggðar-
lags. Slíkur misskilningur varð þó
ekki þegar Keflavíkurhreppur varð
að Keflavíkurbæ fyrir rúmum 40
árum, svo að tekið sé nálægt dæmi,
því að Keflavík heitir nú Keflavík.
Sömuleiðis heitir Borgarnes enn
Borgarnes, þótt Borgarneshreppur
hafi nýlega orðið að Borgarnesbæ,
og Stykkishóimur heitir enn svo,
þótt nafn sveitarfélagsins sé Stykk-
ishólmsbær.
Elzta dæmið í þéttbýli um að
ekki sé gerður greinarmunur á
nafni sveitarfélags og byggðarlags
ætla ég að sé frá Norðfirði. Þegar
Neshreppur varð að bæjarfélagi,
var það illu heilli nefnt Neskaup-
staður. Sem betur fer viðhafa Seyð-
firðingar eða Eskfirðingar ekki
þessa vitleysu. Þeir eiga heima á
Seyðisfirði og Eskifirði, og sveitar-
félögin þar eru Seyðisfjarðarbær
og Eskifjarðarbær. Síðan sitja
Norðfirðingar uppi með það í munni
ýmissa fréttamanna og annarra
sem í útvarp tala að vera sagðir
eiga heima á Neskaupstað.
Björn S. Stefánsson
Glæsilegt úrval af badmottu
settum og stökum mottum
Pana
V-Þýskalandi
Baðvogir
Mottur í
sturtubotna
Mottur í baðker
Eldhúsmottur
Ath.: Greitt er fyrir viðskiptavini
i bifreiðageymslu, Vesturgötu 7
fsíB
ei.
Ævisaga
hugmynda
Helgispjall
Matthías Johannessen
Engin hálfvelgja, enginn hörgull á
skoðunum, stundum reitt hátt til
höggs og kveðið fast að orði. Bók
sem fræðir, gleður, reitir þig til reiði
og agar hugsun, mál og mennsku.
Meitlaðar greinar og leiftrandi hug-
renningar skálds sem er hvort tveggja
í senn, sjáandi og rýnandi.
lnnlönd
Hannes Pétursson
Ein af fegurstu Ijóðabókum höfuðskálds
á okkar dögum. Hér er túlkuð sú skynjun
sem dýpst og innst stendur f persónu-
leikanum. Endurútgáfa ljóða eftir skáld
sem hefur varðveitt „upprunalegt eðli
sitt og tilfinningalíf í heimi nútímans sem
er margt betur gefið en að þyrma
slíku að fyrra bragði“.