Morgunblaðið - 16.12.1990, Page 1
104 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
287. tbl. 78. árg. SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1990 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Leiðtogafundur Evrópubandalagsins í Róm:
Algjör samstaða um stjóm
mála- og efnahagssamviimu
Róm. Reuter.
LEIÐTOGAFUNDI Evrópubandalagsins (EB) lauk í Róm í gær með algjörri samstöðu
um yfirlýsingu varðandi stjórnmála- og efnahagssamvinnu aðildarríkjanna í fram-
tíðinni. „Fundurinn samþykkti samhljóða og án nokkurra fyrirvara ályktun um stefnu
ráðstefna bandalagsins um sljórnmála- og myntbandalög," sagði Pio Mastrobuoni,
talsmaður ítölsku ríkisstjórnarinnar, á fréttamannafundi.
Gimilegt mynd-
band fyrir ketti
NÚ GETA menn loksins glaðst yfir því
að hægt er að kaupa tilvalda jólagjöf
handa köttum sem eiga allt - 25
mínútna myndband í lit af smáfuglum,
íkornum og fleira ljúfmeti í nærmynd
sem fær munnvatnið strax til að
streyma. Galli er þó á gjöf Njarðar því
þessum hvalreka á fjörur katta fylgir
viðvörún: „Varúð! Þegar kötturinn
horfir á myndina kann hann að verða
æstur og reyna að komast inn í sjón-
varpið til að klófesta fuglana. Við
mælum þess vegna eindregið með því
að allir brothættir munir verði fjar-
lægðir frá sjónvarpinu." Bandaríkja-
maðurinn Steve Malarkey frá Vestur-
Virginíu framleiðir myndböndin, sem
kosta 20 dali (um 1.100 ÍSK) og hafa
runnið út eins og heitar lummur.
Breska dagblaðið Independent hefur
eftir framleiðandanum að framhalds-
myndar sé að vænta „með stærri fugl-
um, stærri íkornum og ef til vill máfum
í bland“.
Trump valinn leið-
indaskarfur ársins
New York. Reuter.
Fasteignabraskarinn og auðkýfing-
urinn fyrrverandi Donald Trump hefur
verið valinn leiðinda-
skarfur ársins í
Bandaríkjunum. Leið-
indastofnunin birti
árlegan lista sinn nú
í sjöunda sinn. Fast á
hæla Trumps kom
söngkonan Madonna,
„heimsins versta fyr-
irmynd kynslóðar
fólks sem vill líkjast öðrum“. I þriðja
sæti varð ,,rap“-hljómsveitin „2 Live
Crew“. Fleiri hljómlistarmenn voru á
listanum, þ.á m. írska söngkona Sinead
O’Connor og hljómsveitin „New Kids
on the Block“.
Japanir framleiða
pappír úr skolpi
Tókíó. Daily Telegraph.
JAPANIR hafa fundið aðferð til að
breyta skolpi í kaffisíur, nafnspjöld og
skrifblokkir. Endurvinnsluaðferðin var
þróuð sameiginlega af borgaryfirvöld-
um japönsku borgarinnar Yokohama
og stálfyrirtækisins Nippon Kokan til
að sporna við eyðingu regnskóga. Að-
ferðin er flókin og mjög kostnaðarsöm,
enn sem komið er, en til stendur að
ná hagkvæmni með stórum framleiðslu-
einingum. Heilbrigðisyfirvöld í Yoko-
hama hafa lýst yfir því að þau ætli að
leggja sitt af mörkum til að vernda
regnskóga heimsins og munu í fram-
tíðinni nota kaffisíur úr þessum pappír
eingöngu á skrifstofum sinum.
Niðurstaðan var mjög ólík niðurstöðu
síðasta leiðtogafundar EB i Róm í okt-
óber sl. þegar Bretar neituðu að styðja áætl-
un um evrópskt myntbandalag.
Mastrobuoni sagði að leiðtogarnir hefðu
ákveðið að þjóðþing aðildarríkjanna yrðu að
samþykkja áætlunina fyrir árslok 1992, en
það eru þau tímamörk sem bandalagið hafði
sett sér til að koma á sameiginlegum innri
markaði.
Leiðtogafundurinn fjallaði einnig um að-
stoð við Sovétríkin og yfirlýsingu um ástand-
ið við Persaflóa og í Mið-Austurlöndum.
Fréttamannafundi, sem boðað hafði verið til
við lok fundarins, seinkaði um eina klukku-
stund og sögðu embættismenn töfina stafa
af því að umræður um hvernig haga bæri
aðstoðinni við Sovétmenn hefðu dregist á
langinn. Leiðtogarnir voru ekki sammála um
Rabat. Reuter.
AÐ minnsta kosti tveir menn biðu bana
og 127 særðust er óeirðir brutust út í
tengslum við allsherjarverkfall í borg-
inni Fez í Marokkó í fyrrinótt. Fregnir
hermdu að mótmælendur hefðu kveikt í
nokkrum hótelum en tekist hefði að
bjarga gestum og starfsmönnum þeirra.
*
Oeirðirnar hófust er námsmenn réðust á
strætisvagna sem hermenn óku eftir
hversu stór hluti aðstoðarinnar ætti að vera
í styrkjum og hve stór í lánum.
Fundinum var slitið kl. 11 að ísienskum
tíma. Leiðtogarnir voru síðan viðstaddir setn-
ingarathöfn ráðstefnanna tveggja um stjórn-
mála- og myntbantalög ásamt utanríkis- og
fjármálaráðherrum sínum. Áætlað er að ráð-
stefnurnar standi í nokkra mánuði.
að strætisvagnastjórar höfðu efnt til verk-
falls. Verkalýðsleiðtogar sögðu að 20-30
manns hefðu beðið bana þegar öryggissveit-
ir hefðu hafið skothríð á mótmælendur úr
brynvörðum bifreiðum. Talsmenn stjórnar-
innar vísuðu þessu á bug. Marokkóska
fréttastofan MAP sagði að liðsmaður í ör-
yggissveitunum hefði verið stunginn til bana
og ungur mótmælandi látist í troðningi. 110
manns voru handteknir.
Donald Trump
Óeirðir og íkveikjur í Marokkó
VÍÐÞEKKT
FRÆDILÍKAN
LOKS A LEID
Gísli Sigurðsson
í Bagdad og á
heimleið.