Morgunblaðið - 16.12.1990, Blaðsíða 8
8
0661 H
MÖRGCNBLADlí) DAGBÓK sunnuðágiírWMsé MBER 1990
OHOM
T TT \ /"'er sunnudagur 16. desember, 3. sd. íjólaföstu,
1 L'livJ 350. dagurársins 1990. Áregisflóð íReykjavík
kl. 5.54 og síðdegisflóð kl. 18.10. Fjarakl. 12.11. Sólarupp-
rásíRvík kl. 11.17 ogsólarlagkl. 15.30. Myrkurkl. 16.48.
Sólin er í hádegisstað kl. 13.23 ogtunglið í suðri kl. 12.52.
(Almanak Háskóla íslands.)
Drottinn hefir heyrt grátbeiðni mína, Drottinn tekur á
móti bæn minni. (Sálm 6,10.)
ÁRNAÐ HEILLA
r7 JT ára afmæli. í dag 16.
I O desember er 75 ára
Guðríður Guðmundsdóttir
frá Viðey, Langholtsvegi
144, Rvík.
rj p' ára afmæli. í dag 16.
• t) þ.m. er 75 ára Sigur-
geir Sigurdórsson, Hrísa-
teig 14, Rvík. Næstkomandi
þriðjudag 18. þ.m. tekur hann
á móti gestum á heimili sínu.
HA ára afmæli. Mánudag-
I v/ inn 17. desember er 70
ára frú Hansína Sigurðar-
dóttir, Stóragerði 30, Rvík.
frá Urðateigi við Berufjörð.
Maður hennar var Magnús
Kristjánsson trésmíðameist-
ari, látinn fyrir nokkrum
árum.
r A ára afmæli. í dag, 16.
ÍJ U desember, er fimmtug-
ur Egill R. Friðleifsson,
kennari og kórstjóri, Öldu-
túni 7, Hafnarfirði. Hann
og kona hans, Sigríður
Björnsdóttir, taka á móti
gestum í félagsheimili Fóst-
bræðra, Langholtsvegi
109-111, Rvík kl. 16.30-19.
A ára afmæli. Fimmtug-
Ol/ ur er í dag, 16. þ.m.,
Jón William Magnússon,
forstjóri, Krossholti 6,
Keflavík. Hann tékur á móti
gestum á Víkurbraut 2 (Litla
milljón) kl. 17-19 í dag, af-
mælisdaginn.
SKIPIN_______________
RE YK JAVÍKURHÖFN:
Stuðlafoss fór tii útlanda í
fyrrakvöld og þá fór togarinn
Haraldur Kristjánsson út. í
gær var Esja væntanleg úr
strandferð og Amames lét
úr höfn. Þá fer danska'eftir-
litsskipið Hvidbjörnen út í
dag og væntanlegur er græn-
lenskur togari, til löndunar.
LÁRÉTT: — 1 raup, 5
ljúka, 8 hafa orð á, 9 snákar,
11 hindra, 14 afkvæmi, 15
grefur, 16 dýrsins, 17 ýlfur,
19 mjög, 21 illa venju, 22
rúmliggjandi, 25 þreyta, 26
poka, 27 for.
LÓÐRÉTT: - 2 ílát, 3
dvelja, 4 mætra, 5 snuðrar, 6
á frakka, 7 guð, 9 feikna-
kraftur, 10 milligöngumaður,
12 haldgóða, 13 svaraðir, 18
skott, 20 sukk, 21 mynni, 23
2000, 24 drykkur.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
LÁRÉTT: — 1 skegg, 5 valsa, 5 rætin, 9 hljoð, 11 napur,
14 iðn, 15 ertan, 16 iðrar, 17 góð, 19 miði, 21 iðni, 22 iðj-
unni, 25 rýr, 26 áma, 27 rit.
LÓÐRÉTT: — 2 kol, 3 gró, 4 gæðing, 5 vinnið, 6 ana,
7 sáu, 9 hremmir, 10 játaðir, 12 páraðir, 13 rýrðist, 18 ól-
um, 20 ið, 21 in, 23 já, 24 Na.
Uss, ég hefði líka alveg getað þetta, ef ég hefði ekki verið svona í lapparskömminni.
FRÉTTIR/
MANNAMÓT
UTANRÍKISÞJÓNUSTAN.
í tilk. í Lögbritingablaðinu frá
utanríkisráðuneytinu segir að
þessir starfsmenn í utanríkis-
þjónustunni hafi verið skipað-
ir sendiráðsritarar og gildir
sú skipan frá því um síðustu
mánaðamót. Þetta eru sendi-
ráðsritaramir Gréta Gunn-
arsdóttir, LL.M. Guðni
Bragason M.A. og Þórður
Ægir Óskarsson.
BIFREIÐASTÖÐUR. í Lög-
birtingi birtir lögreglustjórinn
í Reykjavík tilk. um afnám á
banni við bifreiðastöðum og
tekur það gildi á morgun, 17.
desember. Afnumið er bannið
við bílastöðum við Skúlagöt-
una sunnanverða milli Höfða-
túns og Rauðarárstígs. Og þá
tekur gildi afnám á banni við
bílastöðum við Skálholtsstíg
að norðanverðu, milli Laufás-
vegur og Fríkirkjuvegar.
ÍSLENSKI lúðubankinn hf.
(The Icelandic Halibutbank
Ltd) heitir hlutafélag sem
slofnað hefur verið suður í
Höfnum. Tilgangur hlutafé-
lagsins er fiskeldi m.m. Stofn-
un félagsins er tilk. í nýlegu
Lögbirtingablaði. Hlutafé fé-
lagsins er 5,250 milljónir kr.
Stofnendur em einstaklingar
hérlendis og í Svíþjóð. Stjórn-
arformaður er P.G. Hjort,-
markar, búsettur í Svíþjóð.
Framkvæmdastjóri er Jón G.
Gunnlaugsson, Brekkukoti,
Bessastaðahreppi.
JÓLAMARKAÐUR íþrótta-
félags fatlaðra sendur yfír í
íþróttahúsi fatlaðra í Hátúni
14 og verður hann opinn dag-
lega til jóla kl. 13-18. Þar
hafa þeir heitt á könnunni.
FÉL. eldri borgara. í dag
er opið hús í Goðheimum við
Sigtún kl. 14. Frjáls spila-
mennska. Dansað kl. 20. Þar
verður lokað fram til 6. jan-
úar nk. í Risinu er lokað fram
til 3. janúar. Skrifstofa fé-
lagsins verður lokað mánu-
daginn og þegar hún verður
opnuð aftur að loknu jólaleyfi
verður hún flutt í húsnæði
Rissins á Hverfisgötu 105,
2. janúar. Laugardaginn 29.
desember kemur gönguhóp-
urinn Hana nú, úr Kópavogi,
í heimsókn. Hann kemur að
Kjarvalsstöðum kl. 10. Þaðan
verður gengið niður á Hverf-
isgötu 105 og drukkið kaffi
í Risinu.
LYFJAFRÆÐINGAR. í tilk.
frá heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytinu í Lögbirt-
ingablaðinu segir að það hafi
veitt Jónínu Salóme Jóns-
dóttur og Einari Birgi Har-
aldssyni starfsleyfi sem lyfja-
fræðingar hérlendis.
SAMVERKAMENN móður
Teresu halda mánaðaplegan
fund sinn á Hávallagötu 16,
mánudagskvöldið kl. 20.30.
REIÐSKÓLINN hf. er
hlutafélag sem stofnað hefur
verið í Reykjavík segir í
„Hlutafélagaskrá Lögbirt-
ings“. Það er tilgangur fé-
lagsins að reka reiðskóla,
vinna að kynningu á ísl. reið-
hestinum í víðasta skilningi,
eins og segir í blaðinu. Auk
þess er sýningahald á reið-
hestum m.m. Stofnendur eru
einstaklingar. Hlutafé er kr.
350.000. Stjórnarformaður er
Kári Arnórsson, Huldul-
andi 5, Rvík.
AGLOW, sem eru Kristileg
samtök kvenna í Rvík, halda
jólafund mánudagskvöldið kl.
20 í kaffisal Bústaðakirkju
og lýkur fundinum kl. 22.
Gestur jólafundarins verður
Samúel Ingimarsson. Guð-
rún Magnúsdóttir syngur.
Félagskonur geta tekið með
sér gesti, en fundurinn er
opinn öllum konum.
INNKAUPASAMBAND
bóksala-blaðdreifing heitir
hlutafélagið. Stofnun þess er
tilk. í nýlegu Lögbirtinga-
blaði. Stofnendur er fjöldi ein-
staklinga og bókabúða um
allt land. Hlutafé félagsins er
kr. 10.000.000. Stjórnarfor-
maður er Axel Bender,
Goðalandi 4, Rvík.
KIRKJA
ÁRBÆJARKIRKJA. Æsku-
lýðsfélagsfundur í kvöld kl.
20.
NESKIRKJA. Mömmumorg-
unn, þriðjudagsmorgun. Opið
hús fyrir mæður og börn
þeirra kl. 10-12. Jóla-
skemmmtun.
FELLA- OG HÓLA-
KIRKJA. Fundur í Æsku-
lýðsfélaginu mánudagskvöld
kl. 20.30.
LANGHOLTSKIRKJA.
Sýning 10-12 ára barna á
söngleiknum Óhamingjusöm
börn, verður nk. þriðjudag kl.
20. Veitingar eftir stundina í
boði kirkjunnar. Sýningin er
öllum opin.
SELJAKIRKJA. Æskulýðs-
fundur kl. 20 í kvöld.
SELTJARNARNES-
KIRKJA. Opið hús fyrir
10-12 ára mánudag kl. 17.
Opið hús fyrir foreldra ungi-a
barna nk. þriðjudag kl. 15-17.
MORGUNBLAÐIÐ
FYRIR 25 ÁRUM
Chaplinmyndin „Ein-
ræðisherrann“ var sýnd
í fyrsta skipti utan
Bandaríkjanna . Frum-
sýningin var í London
og var miklu lofsorði
lokið á myndina. Þótti
mikið koma til lokaræðu
Chaplins í lok myndar-
innar.
*
ÁHEIT
ÁHEIT á Strandarkirkju.
Afhent Morgunblaðinu: SA
20.000, NN 10.000, SE
10.000, SJS 10.000, BJ 5000,
STKJ 5000, ASJ 5000, SÞ
5000, HN 5000, KK 5000,
Ingibjörg 3200, IS 3000, VI
3000, IB 3000, ÓÓV 2500,
Lilja 2000, NN 2000, NN
2000, HSJ 2000, Mímósa
2000, Ónefnd 2000, TÓ 2000,
ORÐABÓKIN
Kíktu inn?
Fyrir stuttu var ég minntur
á so. að kíkja í svipuðu orða-
lagi og í fyrirsögninni. Jafn-
framt var nefnt nafn á út-
varpsþætti sem kallaður er
Kíkt í gegnum kýraugað.
Er viðmælandi minn lítt
hrifinn af þessu orðalagi.
Eg er algerlega sammála
honum um þetta, en vissu-
lega er það algengt í munni
margra. „Viltu kíkja inn í
kvöld?“, er oft sagt eða þá:
Kíktu inn“ eða „kíktu
við“,áður en þú ferð heim.“
Auðvitað fer betur að segja
sem svo: Viltu líta inn í
kvöld“ eða þá Líttu inn,
áður en þú ferð heim.“ So.
að kíkja er tökuorð úr
dönsku, og elztu dæmi um
hana frá 17. öld. í dönsku
heitir hún kigge eða kikke
og er þangað komin úr lág-
þýzku kiken. í íslenzku er
so. að kíkja í upphafi og enn
í dag höfð um það að skoða
e-ð lauslegar en átt er við
með so. að sjá eða horfa.
Frummerking so. að kíkja
er annars að gægjast, horfa
í kíki, en svo fór hún að
tákna það að líta snöggt á
eitthvað eða í flýti. Við segj-
um oft: „Ég skal kíkja á
þetta við tækifæri." Merk-
ingin að líta sem snöggvast
eða stutt inn til e-s er bein
þýðing á danska orðasamb.
at kigge ind til en, sem
haft er um hið sama. Ekki-
mun þessi notkun gömul í
málinu, a.m.k. verða í OH
einungis fundin dæmi frá
allra síðustu áratugum.
- JAJ