Morgunblaðið - 16.12.1990, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1990
—f ■■ ' .•••■[ - -| "r“ -7—T“- i 1—i—TT7—i-—m
Þingforseti sagði síðan að nú
myndu menn taka til óspilltra mál-
anna og fara að vinna við að ganga
frá leyfum til handa þeim gestum
sem kysu að fara. Sjálfsagt vildu
sumir vera um kyrrt og þeim væri
það fijálst. Um kvöldið héldum við
Gísli upp á daginn og fengum okk-
ur gómsætan snæðing á kínversk-
um veitingastað í A1 Mansour-hótel-
inu. Við skáluðum fyrir frelsinu
fyrirsjáanlega og nú var bara
spurningin hvort Gísli fengi það
fljótt fararleyfi að við gætum orðið
samferða til Amman á sunnudag
en þá hafði ég ráðgert að fara enda
áritunin að renna út.
Ég hafði talað við herra Saa’doun
A1 Jadoni, yfirmann fjölmiðladeildar
upplýsingaráðuneytisins, um fram-
lengingu og skýrt fyrir honum af
hveiju ég óskaði eftir henni. Hann
tregðaðist við um stund en lofaði
síðan að horft yrði í gegnum fingur
með það af því ég hefði nú komið
til Iraks áður og þeir mætu það að
verðleikum. „Annars er ég hissa-á
þér. Þú ert búin að hitta þingforset-
ann og fara flest annað sem þú
baðst um. Og vilt nú vera lengur.
Svei mér ef ég botna í þér. Og ert
ekkert smeyk eins og sumir blaða-
mennirnir,“ sagði herra Jadoni. „ís-
lendingseðlið," sagði ég og sendi
honum fingurkoss fyrir greiðvikn-
ina.
Eins og ég hef sagt frá í frétt
frá Bagdad en sakar ekki að ítreka
fékk ég það sterklega á tilfinning-
una að fundurinn með þingforsetan-
um hefði verið undirbúinn áður en
ég kom. Margir diplómatar hvað
þá heldur blaðamenn þurfa að bíða
vikum saman eftir áheym hjá Saadi
Mehti Saleh og hún fæst ekki nema
stundum. Daginn eftir að ég kom
og hafði sagt þeim ráðuneytismönn-
um að ég óskaði eftir viðtali við
Saleh, glottu þeir og ég gat næstum
lesið hug þeirra; þeim fannst beiðn-
in fáránleg.
Nokkru síðar kom Gísli Sigurðs-
son svo á A1 Rasheed-hótelið þar
sem við hófum spjall okkar og ég
sendi síðan til Morgunblaðsins. Þá
var hringt upp á herbergi: gjörsvo-
vel og mæta hjá þingforseta kl.
9.30 í fyrramálið. Það lá við ég
ylti um koll af undrun og Gísli varð
eitt spurningarmerki þegar ég sagði
honum hvað til stæði. Þá sagði
hann mér að sænski sendiherrann
hefði beðið vikum saman eftir að
fá að hitta Saleh til að tala sínu
máli en það fengist ekki enn.
Morguninn eftir hittumst við
Saleh svo í fyrra sinnið og að hans
frumkvæði var ákveðinn * annar
fundur morguninn eftir. Hann sagði
á fyrra fundi okkar að hann gæti
ekki gefið mér loforð en mjög góð-
ar vonir. Það kom einnig fram í
máli Saleh þingforseta að honum
væri kunnugt um að Svíar hefðu
unnið ötullega að því að fá farar-
leyfi fyrir Gísla. Aðrir hefðu hreyft
því en aldrei formlega og írakar
kysu að rætt væri við þá milliliða-
laust.
Ég þurfti auðvitað ekki að vekja
athygli Saleh þingforseta á því að
ég var ekki opinber fulltrúi Islands
og talaði ekki fyrir hönd annarra
en sjálfrar mín. Við Gísli höfðum
rætt um það daginn áður að í reynd
hefði Ingvar Carlsson, forsætisráð-
herra Svía, ekki gefið neitt eftir
heldur aðeins sagt að Svíar vildu
að friðsamleg lausn næðist á deil-
unni. Gísli sagði að því hefði verið
töluvert slegið upp í Irak. Og mér
er svo sem spurn; Hver vill ekki
friðsamlega lausn? Á hinn bóginn
hafði ég enga heimild til að segja
þingforsetanum að utanríkisráð-
herra íslands væri þeirrar skoðun-
ar. Svo að ég lét duga að taka
rækilega fram að íslenska þjóðin
óskaði þess áreiðaniega öll sem ein
að málið leystist án þess að kæmi
til hernaðarátaka. „En jiið eruð i
NATO,“ sagði Saleh. Eg jánkaði
því náttúrlega en við hefðum engan
íslenskan her annan en landhelgis-
gæsluna til að passa fiskinn og því
hefði aldrei komið til tals að senda
skip til Flóans eins og fjöldamörg
ríki Atlantshafsbandalagsins hefðu
gert.
Ég sveif rugluð og í sæluvímu
út frá Saleh og hringdi í ritstjórann
Pendragon. 3ja sæta og 2 stólar.
Verö kr. 215.800,- stgr.
Borðstofuborð + sex stólar
kr. 107.800 stgr.
Glerskápur kr. 88.900 stgr.
Borðstofu- og vegghúsgögn fr;
PALAU á Spani eru stílhrein,
vel hönnuð gæðavara á mjög
mahonyskrifborð
fró AB8EYGBAFT.
Verö kr. 52.300,-
Wagner. Þýsk gæðavara. 3ja sæta
og 2 stólar.
Verð kr. 239.800,- stgr.
DIPLOMAT-leðursófasett frá
Pendragon. 3ja sæta og 2 stólar.
Verð kr. 178.900,- stgr.
Kommóða frá
ABBEYCRAFT.
Verð kr. 40.900,- stgr.
Glerskápur frá
ABBEYCRAFT.
Verð kr. 62.800,- stgr.
TresiUo
'l ela 57 %, poIitMsr, 33 % jdgqdón.
kviHChfwrd,
Cojincs Jc ynma cnpuma rccubkttá
<St dracór:.
Sofá 3 plaras l. 20) rA 7.Í* P 98
SOIón I. 100 x A 73 x P62
Mna rtrcl«ngut«r con t»bt<ro crtstal
L 9* \ A AO x P 62
Fl *<>fá %c fstnica coino tofi carr.a
RATTAN - sófasett frá Cerda á Spáni
3ja sæta og 2 stólar.
Verð kr. 197.600,- stgr.
Sófaborö —kr. 17.700,- stgr.
Lampi — kr. 21.400,- stgr.
4268 Mondiatl
MONDIAL — áklæðissófasett frá Wagner.
Þýsk gæðavara.
2ja sæta og 2 stólar.
Verð kr. 188.300,- stgr.
HUSGAGNAVERSLUN Síðumúla 20 - sími 688799
lí ■ 'lc-jLggí
ppí