Morgunblaðið - 16.12.1990, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1990
__ ••
Enn ein Oldin
Bókmenritir
ErlendurJónsson
ÖLDIN OKKAR ERLENDIS.
Minnisverð tiðindi 1951-1960.
Nanna Rögnvaldsdóttir tók sam-
an. 225 bls. Iðunn. Reykjavík,
1990.
Bókaútgáfa er markaðssetning.
Svo sagði glöggur maður fyrir
skömmu. Þau orð komu mér í hug
við lestur bókar þessarar. Fj'örutíu
ár eru liðin síðan Gils Guðmundsson
tók saman ritið Öldin okkar. Tutt-
ugasta öldin var þá hálfnuð og því
þótti við hæfí að horfa um öxl og
rifja upp það sem liðið var. En það
voru minnisverð tíðindi innanlands
frá aldamótum til líðandi stundar
sem Gils valdi, dró saman og gerði
að samfelldri sögu. Gils bjó ritinu
þann búning sem honum sjálfum
hentaði. Aðferðin var hans, en hann
var þá síður en svo nýgræðingur í
sagnaritun. Skemmst er frá að
segja að ritið varð vinsælt og eftir-
sótt. Að fenginni þeirri reynslu var
ekki látið staðar numið. Næstu ára-
tugina voru að koma nýjar og nýjar
»aldir«. Og nú er það sem sagt
nýjasta módelið: Öldin okkar er-
lendis 1951-1960.
Þetta var kaldastríðsáratugur-
inn. Friður ríkti á Vesturlöndum,
ótryggur þó að flestra mati. Stalín
dó en kerfið lifði. Fjórða lýðveldið
franska varð sjálfdautt; de Gaulle
var til kvaddur að bjarga Frakk-
landi og færa því aftur fyrri sjálfs-
virðingu. Khrústsjov og Kennedy
urðu forystumenn risaveldanna.
Barist var í Kóreu og samið um
jafntefli. Nýlendustefnan fór hall-
oka. Undir lok áratugarins var sýnt
að hún teldist til liðna tímans. Þetta
má kalla heimsmálin í hnotskurn.
En bókin endar ekki á neinni heim-
spólitík heldur með því að »Cliff og
The Shadows stefna á toppinn«.
Strangt tekið má segja að aðferð
Gils sé hér enn í heiðri höfð. Vafa-
samt er þó að æsifréttir þær, sem
þarna eru birtar í tímaröð, veki
forvitni í líking við það sem gerðist
þegar hans rit kom út fyrir fjörutíu
árum. Margt hvað, sem lesa mátti
í samantekt hans, tengdist beint
viðburðum á líðandi stund. Fréttirn-
ar, sem rifjaðar eru upp í þessari
Nanna Rögnvaldsdóttir
bók, snerta okkur á hinn bóginn
sáralítið, og flest er það reyndar
NYTTUTIBU
BÚNAÐARBANKANS
ÁAKRANESI
Frá og með mánudeginum 17. desember 1990 verður sú breyting á bankaþjónustu Akraness
og nágrennis að útibú Samvinnubanka íslands á Akranesi hættir starfsemi sinni
og við tekur útibú Búnaðarbanka íslands. Útibúið verður til húsa að Kirkjubraut 28 þar sem
Samvinnubankinn var áður og starfsfólk verður það sama.
í tilefni af þessum tímamótum býður bankastjóm Búnaðarbankans íbúum Akraness
og nágrennis að líta inn mánudaginn 17. desember og þiggja kaffisopa og meðlæti.
Paddington heilsar upp á yngstu gestina. Verið velkomin í Búnaðarbankann á Akranesi!
BUNADARBANKI
ÍSLANDS
- Traustur bunki.
gleymt og grafið. Hveiju gegnir
t.d. að fara nú að lýsa spennunni
sem ríkti í frönskum stjórnmálum
vikurnar áður en de Gaulle tók við
völdum? Þetta er allt löngu liðið,
búið og gert. Valdaskeið hans er
auðvitað kapítuli í sögunni, og hann
af merkara taginu. Fjas og tauga-
titringur vegna þess að ein ríkis-
stjórn fer og önnur kemur skiptir
á hinn bóginn engu máli þegar þetta
er allt orðið saga. Sá sem vill kynna
sér franska stjórnmálasögu hefur
enda úr nógu að velja. Sama máli
gegnir um öll önnur dægurmál,
skemmtanalífið þar með talið.
»Hópur blaðamanna hefur um-
kringt skrifstofur hersins í Fort
Wood og spurt: Hvar er hann niður-
kominn? En hershöfðingjarnir
herpa saman varirnar og eru þöglir
sem gröfin.«
Já, hvar er nýliðinn Elvis Presley
nú niðurkominn? Hvílík brennandi
spurning árið 1990!
Segja má um bók þessa eins og
konan sagði um stofuna sína: Hún
er annaðhvort of stór eða of lítil.
Sem uppflettirit mun þetta fáum
gagnast því alfræði er þetta engan
veginn. Og fáir munu hafa áhuga
á öllum þeim sundurleitu fróðleiks-
molum sem þarna er að finna. Þetta
er einungis sitt lítið af hveiju.
(gauknecht
ÞÝSK GÆÐATÆKIÁ GÓÐU VERÐI
ww
&SAMBANDSINS
HOLTAGÖRÐUM SÍMI 68 55 50
VID MIKLAGARÐ
• & KAUPFÉLÖGIN