Morgunblaðið - 16.12.1990, Qupperneq 60
EINKARE/KN/NGUR Þ/NN
/ LANDSBANKANUM m
Mk
MORGVNBLAÐIÐ, AÐALSTRÆT! 6. 101 REYKJA VÍK
TELEX 2127, PÓSTFAX 6S1811, POSTHÓLF 1.155 / AKUIŒYKI: HAFNARSTRÆTl 85
SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1990
VERÐ I LAUSASOLU 100 KR.
Happdrætti HÍ:
Skafmiðar
fyrir eina
milljón
daglega
SAMKVÆMT upplýsingum frá
Happdrætti Háskóla íslands er
áætlað að andvirði sölu á skafmið-
um happdrættisins verði 365
milljónir króna á þessu ári, eða
um ein milljón á dag. Helmingur
söluandvirðisins er greiddur út í
vinningum, en helmingurinn
rennur til happdrættisins.
Að sögn Birgis Ómarssonar hjá
Lukkutríói björgunararsveit
anna liggur ekki fyrir hvert andvirði
sölu skafmiða Lukkutríós verður á
þessu ári, en hann sagðist telja að
markaðshlutdeild Lukkutríós væri
um það bil 35% á móti 65% markaðs-
hlutdeild skafmiðahappdrættis HHÍ.
Miðað við það gæti söluandvirði
skafmiða Lukkutríós orðið um 195
milljónir króna á árinu, og andvirði
heildarsölu skafmiða á landinu því
um 560 milljónir króna.
Landsspítalinn:
Kaup á högg-
bylgjustein-
brjót íhuguð
STJÓRNARNEFND ríkisspítal-
anna íhugar nú kaup á höggbylg-
justeinbrjót til að brjóta steina í
nýrum og nýrnaþvagleiðurum.
Tækið kom fyrst á markað upp
úr 1980. Frá 1985 hafa íslenskir
sjúklingar verið sendir til með-
ferðar í slíkt tæki til Noregs eða
Danmerkur.
Undanfarin ár hafa 20 til 30 ís-
lendingar farið út á ári í slíka
meðferð, en að sögn Guðmundar
Vikars Einarssonar, sérfræðings við
þvagfæraskor Landsspítala, kæmi
tækið til með að gagnast fleirum
hérlendis ef það væri til.
Höggbylgjum er skotið úr tækinu
á steinana sem staðsettir eru með
röntgen greiningu eða ómskoðun.
Við meðferðina þarf ekki svæfmgu
og oft ekki deyfingu, einkum þegar
nýjustu tækjum er beitt.
DAGAR
TIL JÓLA
Isafjörður:
Sjómað-
ur slasast
Isafirði.
SKIP V'ERJI á línubátnum Stakka-
nesi ÍS 72 hlaut opið höfuðkúpu-
brot þegar fastsetningarendi slitn-
aði þar sem verið var að færa
bátinn í ísafjarðarhöfn á föstu-
dagskvöldið.
Endinn slóst um fætur mannsins
og felldi hann, svo hann lenti
með höfuðið á fastsetningarpolla á
hvalbak bátsins. Gert var að sárum
mannsins til bráðabirgða hér á
sjúkrahúsinu, en síðan var hann
sendur með sjúkraflugvél til
Reykjavíkur, þar sem hann gekkst
undir uppskurð um nóttina.
Maðurinn er nú á góðum batavegi
og er líðan hans góð eftir atvikum,
að sögn lækna.
Ulfar
Landhelgisgæzlan:
Sjúklingar
sóttir til
Lundúna
FOKKER-flugvél Landhelgis-
gæzlunnar sótti á föstudag tvo
sjúklinga til Lundúna. Um var að
ræða tvær konur, sem verið höfðu
í aðgerð í Lundúnum og eftir það
á gjörgæzludeild. Þær voru fluttar
á Landakotsspítala og Borgarspít-
alann.
Þetta er í fyrsta sinn sem Land-
helgisgæzlan er fengin til að
sækja sjúklinga til útlanda. Aðstoðar
gæzlunnar var leitað vegna þess að
í vélum Flugleiða var allt yfirbókað
og því ekki hægt að rýma fyrir sjúkl-
ingum.
Æskilegt þótti að annast konurnar
hér heima, þar sem óhætt var að
flytja þær milli landa þótt báðar séu
mikið veikar.
Alverð lækkar og stefnir
í tap hjá ISAL á næsta ári
VERÐ á áli hefur
fallið stöðugt und-
anfarna mánuði, og
verð á kísiljárni
hefur verið lágt allt
árið. Að sögn Jak-
obs R. Möller, starfsmannastjóra
íslenzka álfélagsins, er vonazt til
að reksturinn verði í járnum þetta
árið, en tap er fyrirsjáanlegt á
næsta ári. Jón Sigurðsson, for-
stjóri ísienzka járnblendifélags-
ins, segir að búast megi við lítils-
háttar tapi á rekstrinum í ár.
Alverð er nú komið niður undir
fjórtánhundruð Bandaríkja dali
á tonnið. Þegar álverð var hæst á
árinu 1988 fór það í um 3.000 dali
á tonn. „Alverðið er búið að vera á
niðurleið í alinokkra mánuði, og það
er bara efnahagsþróunin í heiminum,
sem er að ýta því niður,“ sagði Jak-
ob R. Möller í samtali við Morgun-
blaðið. Hann sagði að í flestum
stærstu iðnríkjunum nema Þýzka-
landi væri samdráttur og eftirspurn
eftir áli hefði minnkað mikið.
1 haust spáði enska fyrirtækið
Billiton því að álverðið myndi verða
í kringum einn dalur á hvert enskt
pund árið 1991, eða um 2.200 dalir
á tonnið. Jakob segist telja að menfi
haldi sig ekki lengur við spár af þessu
tagi, enda hafi þær verið miðaðar
við að ekki yrði alvarlegur efna-
hagssamdráttur. Nú hafi svartsýnis-
spár komið í þeirra stað.
Aðspurður hvort þetta þýddi tap
á rekstri ÍSAL á þessu ári, sagði
Jakob að svo gæti farið að fyrirtæk-
ið slyppi nokkurn veginn á núlli. „En
það er fyrirsjáanlegt verulegt tap hjá
okkur á næsta ári miðað við verðið,
sem nú er,“ sagði hann.
Jón Sigurðsson, forstjóri íslenzka
járnbiendifélagsins, sagði í samtali
við Morgunblaðið að verð kísiljárns
hefði verið lágt allt árið og horfði
þar Iítið til betri vegar. „Það má
segja að við séum að skrapa botn-
inn,“ sagði hann.
Aðspurður um horfur í rekstri
Járnblendifélagsins sagði hann að
reksturinn hefði verið í járnum mest-
allt árið, væri aðeins undir núllinu í
nóvember. Líklega mætti búast við
2-3% tapi af heildarveltu, sem svar-
aði til 5-10 milljóna norskra króna í
reikningum félagsins, en þeir eru
færðir bæði í norskri og íslenzkri
mynt. Sú upphæð svarar til 50-100
milljóna króna taps, talið í íslenzkum
krónum.
Jón sagði að þetta væri ekki slæm
afkoma miðað við marga aðra kísil-
járnframleiðendur, af því að í Jám-
blendiverksmiðjunni á Grundartanga
væri tiltölulega lágur framleiðslu-
kostnaður. Hann sagði að í áætlunum
fyrir næsta ár gerði Járnblendifélag-
ið ekki ráð fyrir að verðið hækkaði
neitt. Hins vegar væri vitað að kísil-
jámverksmiðjur, sem hefðu miklu
hærri beinan framleiðslukostnað en
verksmiðjan á Grundartanga, hefðu
orðið að hætta framleiðslu vegna
mjög slæmrar afkomu, og þannig
myndi framboðið væntanlega
minnka. Á móti því kæmi að mikið
framboð hefði verið af kísiljárni frá
framleiðendum í Austur-Evrópu og
Kína, og það lækkaði verðið. Ekkert
væri vitað um hversu mikils kísiljárns
mætti vænta frá þeim Iöndum. „Það
eru til menn, sem eru farnir að spá
því að verðið muni styrkjast strax á
fyrsta ársflórðungi 1991, en því er
varlegt að treysta eins og öllum
spám,“ s'agði Jón.