Morgunblaðið - 19.12.1990, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ MIÐ.VIKUDAGUR 19. DESEMBER 1990
Lifandi saga
Bækur
Bolli Gústavsson í Laufási
Sverrir Pálsson:
Saga Akureyrarkirkju
Utgefandi: Sóknarnefnd Akur-
eyrarkirkju
Hálf öld er liðin frá því Akur-
eyrarkirkja var vígð. Vígsludagur
hennar var 17. nóvember 1940.
Akureyri er ekki forn kirkjustaður,
enda hafa þar aðeins staðið tveir
helgidómar til reglubundinnar þjón-
ustu. Hér er Glerárkirkju hinni nýju
þó ekki gleymt, en hún er utan
hinna gömlu sóknarmarka, og íbúar
Glerárþorps áttu kirkjusókn í Lög-
mannshlíð til skamms tíma.
Eldri kirkjan á Akureyri, sem
rifin var haustið 1942, var byggð
í Fjörunni þar sem Minjasafnskirkj-
an (gamla Svalbarðskirkjan frá
1846) stendur nú. Þá horfnu kirkju
reisti söfnuðurinn, eftir miklar
vangaveltur um staðarval, á árun-
um 1862-’63 og var hún vígð
sunnudaginn 28. júní 1863, ári eft-
ir að Akureyri fékk kaupstaðarrétt-
indi í annað sinn. 15. júlí það sama
sumar var kirkjugarðurinn vígður
uppi á höfðanum fyrir ofan kirkj-
una, á Naustahöfða, og er hann enn
kirkjugarður prestakallsins.
Aður en þessi skipan komst á
sóttu Akureyringar kirkju og þjón-
ustu prests fram að Hrafnagili, en
þangað er klukkutíma reið í góðu
færi.
í fljótu bragði má ætla, að ekki
sé frá miklu að segja um kirkjur
og safnaðarstarf á Akureyri og
þeim fróðleik megi þá koma fyrir í
litlum bæklingi. Sverrir Pálsson
fyrrum skólastjóri hefur kveðið nið-
ur það álit svo um munar. Hefur
hann ritað ítarlega sögu Akureyrar-
kirkju og kom bókin út á fimmtíu
Frábær tónlist úr spennusögu Omars
Njóttu sögunnar til fulls - hafðu snælduna við höndina
í tengslum við glænýja skáldsögu Ómars Ragnarssonar, í einu
höggi, hefur verið gefin út samnefnd snælda með vandaðri tónlist
í flutningi íslenskra listamanna og með textum eftir Ómar. Öll
lögin leika stórt hlutverk í skáldsögunni en bók og snælda standa
vel fyrir sínu í sitthvoru lagi.
Meðal efnis á snældunni:
/ EINU HÖGGI
SOFÐU ÞÁ SIGGA MÍN
ELSKU STÚFUR
Ó RÓSA
GRÁTTU ÚR ÞÉR AUGUN
ERU EKKIALLIR í STUÐI?
JÓLAENGILL
Og fl. lög
Flutt af Ómari, Pétri Hjaltested, Birni Thoroddsen og
Pálma Gunnarssyni.
Flutt af Ómari, Grétari Örvarssyni og Gunnlaugi Briem.
Flutt af Guðrúnu Grétarsdóttur og Grétari Örvarssyni.
Flutt af Ara Jónssyni og Grétari Örvarssyni.
Sungið af Ellen Kristjánsdóttur.
Flutt af Ómari, Magnúsi Kjartanssyni og Árna Scheving.
Flutt af Helgu Möller, Eyjólfi Kristjánssyni og Grétari
Örvarssyni.
Verð á snældu
1.199 kr.
Verð á skáldsögu:
2.280 kr.
FRODI
BÓKA & BLAÐAÚTGÁFA
Sverrir Pálsson
ára vígsluafmæli yngri kirkjunnar,
17. nóvember 1990.
Saga Akureyrarkirkju skiptist í
10 meginþætti: I. Prestakallið, II.
Hrafnagilskirkja, III. Prestar, sem
þjónað hafa Akureyrarkirkju, IV.
Akureyrarkirkja hin eldri (við Aðal-
stræti), V. Eignarhald Akureyrar-
kirkju, VI. Akureyrarkirkja hin
nýja, VII. Sóknarnefnd og safnað-
arfulltrúar, VIII. Safnaðarheimilið,
IX. Kirkjugarðurinn og X. Minja-
safnskirkjan.
Þessir þættir eru mjög mislangir
og VI. þáttur, um Akureyrarkirkju
hina nýju, lengstur, svo sem vænta
má, og skiptist í marga kafla og
undirkafla. Er þar m.a. rakin bygg-
ingarsagan og gerð grein fyrir for-
ystu séra Friðriks J. Rafnar vígslu-
biskups, sem með hæglátri festu
og farsælli greind átti drýgstan
þátt í því, að ráðist var í það mikla
verk við upphaf seinni heimsstyij-
aldar. Var það einstök bjartsýni á
íjórða tug þessarar aldar, þegar
heimskreppan var í algleymingi og
ófriðarblikur á lofti. Og listamaður-
inn, Guðjón Samúelsson húsameist-
ari, kemur sem vænta má mjög við
sögu. Sagan opinberar á eftirtekt-
arverðan hátt, hversu starfið í kirkj-
unni er samofið menningarþróun í
vaxandi bæjarfélagi.
Þessi veglega bók er 516 blað-
síður og prýdd fjölda mynda. Er
verkið unnið af fágætri vandvirkni
og fræðilegri þekkingu. Hvergi slær
höfundur af kröfum sínum um
heimildir og gætir þess í hvívetna
að gera ljósa greín fyrir gildi þeirra.
Heimildaskrár í bókarlok eru miklar
að vöxtum og frágangur þeirra
lærdómsrík fyrinnynd öllum þeim,
sem leggja stund á sagnfræði og
vinna að ritverkum þeirrar gerðar,
sem nauðsynlegt er að hafa við
höndina til þess að fletta upp í. Það
verður hvað mikilvægast hlutverk
þessarar bókar og er ég þess full-
viss, að henni verður skipað í flokk
grundvallarrita, sem fræðimenn og
rithöfundar munu leita til. Og þó
er þessi umsögn ekki rituð til þess
að fæla almenna lesendur frá bók
Sverris. Það er einmitt ærin ástæða
til að vekja athygli á því, að les-
andinn getur heillast af textanum.
Framsetningin ber alls ekki svip
þess alkunna þyrrkings, sem alltof
oft gerir sagnfræðirit lík gamalli,
myglaðri töðu, firrtri þeim ljúfa
ilmi, sem menn vilja njóta á næðis-
stundum. Höfundur er tengdur sög-
unni á ýmsan veg á ofanverðu tíma-
bili hennar og hefur kynnst ýmsum
atburðum fyrri ára hjá ættmennum
sínum, m.a. afa sínum, Sigurgeir
Jónssyni, er var organisti og kór-
stjóri í báðum sóknarkirkjunum í
30 ár, frá 1911 til 1941. Mjög
margir eru kvaddir til sögunnar og
því birtast víða athyglisverðar per-
sónulýsingar í frásögninni. Ég tek
sem dæmi lýsingu á séra Pétri Sig-
urgeirssyni og starfi hans í söfnuð-
inum, ekki síst á meðal ungs fólks.
Þar er og stórfróðleg og lifandi
heimild handa þeim, sem rita munu
biskupasögur þessarar aldar. Og
persónuleiki þess biskups, sem að
líkindum mun hljóta heiðursnafnið
hinn góði, birtist ljóslifandi í heiðar-
legri og listrænni frásögn Sverris.
Útkoma þessarar fjölþættu
kirkjusögu er merkur atburður.
Prentverk Odds Björnssonar hf.
á Akureyri hefur annast prentun
og allan ytri búning bókarinnar.
Er þar næsta vel að verki staðið.
€
I
<
i
Q
c;
i
€
i
Í
s
i
i
i
J.