Morgunblaðið - 19.12.1990, Side 20
20
VATNS ER
ÞÖRF
Sigurjón Rist
Um ár og vötn á ís-
landi. Litmyndir og
kort. Ómissandi upp-
flettirit.
MJÓ-
FIRÐINGA-
SÖGUR
Vilhjálmur
Hjálmarsson
MJhjálmur
Hjúltnarsson
Þriöji hluti. Búseta og
mannlíf í Mjóafirði
eystra. Fjöldi mynda.
HAF-
RANNSÓKNIR
VIÐ ÍSLAND
Jón Jónsson
HAFRANNSÓKNIR
ViÐ ÍSLAND
!L Eftir«37
Jón Jónsson
Síðara bindi. Tímabilið
1937 til nútímans.
Undirstöðurit um hafið
og fiskinn.
Bókaúlgöfa
/MENNING4RSJÓÐS
skAlholtsstíg 7» REYKJAVÍK
SÍMI 621822
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1990
Tákn og undur
__________Bækur________________
Kjartan Jónsson
Tákn og undur
Höf.: Sr. Halldór Gröndal
Útg.: Fíladelfía-forlag, 1990.
Stærð. 152 bls.
I jólabókaflóði hvers árs eru að
jafnaði allmargar bækur, sem fjalla
um dulræn mál. Oft reynast þær
góð söluvara. Fyrir þessi jól kemur
út bók um kristna trú, þá trú, sem
íslenska þjoðkirkjan byggir starf
sitt og kenningu á. Höfuðinntak
hennar er bænin, það tæki, sem
hjálpar mönnum öðru fremur til að
iðka trú sína. Það er ekki mikið um,
að slíkar bækur séu gefnar út, hvað
þá að þær nái athygli almennings.
Höfundurinn, sr. Halldór Grönd-
al, er landsmönnum löngu kunnur
orðinn fyrir störf sín sem sóknar-
prestur, lengst af í Grensássöfnuði.
Hann kom seint til starfa í presta-
stétt, hafði áður haslað sér völl sem
veitingamaður og _náð góðum ár-
angri í því starfi. í upphafi bókar-
innar greinir hann frá, hvað varð
þess valdandi, að hann söðlaði um.
Hann var í alvarlegri lífskreppu og
hafði misst lífslöngunina. I neyð
sinnj minntist hann þess, að gott
gæti verið að biðja_til Guðs. ,;Allt
í einu bað ég: Guð, ef þú ert til,
þá hjálpaðu mér. Annað gat ég
ekki sagt ... Þá gerist nokkuð. Ég
heyrði rödd. Hvaðan hún kom, veit
ég ekki ... En röddin sagði: Hall-
dór, þetta eru ekki endalokin, held-
ur byijun á nýju lífi með m ér. Síð-
an kom eitthvað yfir mig og því
fylgdi mikill friður, gleði og vellíð-
an. Batinn kom fljótt. Gangan með
Guði var hafin og á henni kom sterk
köllun að vera þjónn hans.“ (Bls.
11-12.)
Þessi reynsla breytti lífi Halldórs
gersamlega. Hann hlýddi kölluninni
og settist á skólabekk í guðfræði-
deild Háskóla íslands á sama tíma
og jafnaldrar hans unnu í spreng
við að klífa metorðastigann.
Bókin Tákn og undur er í senn
vitnisburður Halldórs um samfélag
hans við Guð, sem er honum meira
virði en allt annað og leiðbeining í
því hvernig hægt er að kynnast
Guði eins og hann. Höfundur gefur
mikið af sjálfum sér í þessari bók.
Það gefur henni mikið gildi umfram
aðrar kristilegar bækur. Ótalmarg-
ar fræðilegar bækur hafa verið
skrifaðar um hina kristnu trú, án
þess að þar sé nokkra hjálp að fá,
hvernig trúin er iðkuð í daglegu lífi.
Bók Halldórs er öðruvísi. Hún er
Sr. Halldór Gröndal
eins konár handbók í því að lifa sem
kristinn maður.
Bæn
Höfundur nálgast viðfangsefnið
út frá bæninni. Hann segir sjálfur:
„Það er fátt í Biblíunni, sem lögð
er meiri áhersla á en einmitt bænin
og bænalíf. Hvers vegna? Það er
vegna þess að bænin er sjálft hjart-
að í trúarlífinu ... Ég elska Guð og
hann elskar mig, á bænastund erum
við saman og það er gott.“ (Bls. 12.)
Bænin er erfitt viðfangsefni og
ekki á færi annarra en bænamanna
að fjalla um hana, svo að dýpt fáist
í efnið. Bókinni er skipt niður í 24
stutta kafla. Stíllinn er ljós, einfald-
ur og auðskilinn öllum. Höfundur
miðlar af reynslu sinni í hveijum
einasta kafla og undirstrikar þann-
ig, að það sem hannsk rifar um er
ekki dauð kenning, heldur veru-
leiki, sem hægt er að upplifa. Les-
andinn er tekinn skref fyrir skref
inn í heim bænarinnar.
í upphafi er tekist á við spurning-
una: Hvað er bæn? Forsenda bæn-
heyrslu er að trúa, að Guð sé til
og hlusti. Eigi menn ekki þessa trú,
þá er kafli um það hvernig hægt
er að eignast hana. Höfundur gefur
ýmsar hagnýtar leiðbeiningar um,
hvernig gott sé að biðja og hvað
geti hindrað bænheyrslur.
Tákn og undur
Sterk trú höfundar á Guð og
mátt hans á okkar dögum skín
hvarvetna í gegnum bókina. Hann
greinir víða frá sterkri reynslu á
bænastundum. Ein sú mikilvægasta
Ö/lum œttingjum, vinum og samstarfsfólki er
glöddu mig á afmœli mínu með gjöfum, skeyt-
um og heimsóknum, óska ég gleðilegra jóla.
Guð blessi ykkur öll.
Gróa Ingimundardóttir.
Þakklætiskveðja til „Fáks“-félaga
og allra hinna fjölmörgu vina og samherja í
áratuga baráttu fyrir heimssigri íslenska gœð-
ingakynsins - þessarar dýrmœtustu perlu, sem
Guð hefur gefið okkur íslendingum í ríki náttúr
unnar, - og til ættingja og allra annarra, sem
með miklu örlœti og góðum huga samjognuðu
mér í 75 ára afmælisveizlu þeirri, sem Fáks-félag-
ar héldu mér í Víðidal þann 13. desember sl.
Guð gefi ykkur öllum hin gleðilegustu jól og
farsæld á ári komanda.
Gunnar Bjarnason.
HLUTABRÉFASÖLU LOKIÐ
Útgefandi: Útgerðarfélag Akureyringa hf.
Nafnvirði hlutabréfa: 33.418.100 krónur.
Heildaráskrift: 39.149.900 krónur.
Hlutur hvers kaupanda: Fyrstu 35.000 krónur að nafnverði koma
óskertar í hlut hvers kaupanda, en sú upphæð
sem óskað var eftir umfram 35.000 krónur
skerðist um 22,02%.
Gíróseðlar hafa verið póstlagðir til kaupenda og ber að greiða þá í síðasta
lagi 28. desember nk.
Nánari upplýsingar veita söluaðilar:
Kaupþing hf., Kringlunni 5, 103 Reykjavík, sími (91) 689080.
Kaupþing Norðurlands hf., Ráðhústorgi 1,600 Akureyri, sími (96) 24700.
Umsjón með sölu:
KAUPÞING HF
Löggilt verðhréfafyrirueki,
Kringlunni .5, W.i Reykjux'ik,
sinii vi-otimo
er, þegar hann „skírðist með heilög-
um anda og eignaðist gjöf hans,
tungutal" (bls. 75). Hann lýsirþess-
ari reynslu sinni þannig: „Mér
fannst eins og himnarnir hefðu opn-
ast og ég var baðaður í undursam-
legum krafti. Það fór hitastraumur
um mig ... síðan kom fögnuður og
gleði“ (bls. 75-76). Það, sem gerst
hafði í lífí hans hafði gerst í lífi
ótalmargra annarra í „gömlu“
kirkjunum um allan hinn vestræna
heim og hefur verið kallaður náðar-
gjafarvakningin. Þetta fyrirbrigði
var ekki lengur næstum einskorðað
við hvítasunnuhreyfinguna, heldur
sameign allra kristinna manna.
Höfundur lýsir hvernig hann
eignaðist gjöf tungutalsins skömmu
á eftir „skírn andans" og hvemig
hann hefur notað það í bænum sín-
um og fyrirbænum fyrir öðmm
sjálfum sér til mikillar blessunar
og hjálpar. í framhaldi af því grein-
ir hann frá því, hvernig boðskapur
Nýjatestamentisins um tákn og
undur varð veruleiki fyrir honum.
í starfi sínu sem fyrirbiðjandi hefur
hann séð mörg tákn og undur. Sjúkt
fólk hefur læknast og lífsleiðir eign-
ast lífsgleði. _
í seinni hluta bókarinnar er fjall-
að um bæn og erfiðleika. Hvers
vegna verðum við fyrir áföllum og
sorg? Höfundur gefur ekkert annað
svar en það, sem kirkjan hefur allt-
af gefið og það er: Veit ekki. En,
„ég trúi á Guð, hvemig sem allt
fer ... Jesús gaf fyrirheit um bæn-
heyrslu, lækningar, kraftaverk, frið
og huggun ... En það vora ekki öll
fyrirheitin“ (bls. 115).
í lokin er fjallað um nokkrar
aðferðir við bæn. Einn kaflinn heit-
ir t.d. „Bæn og slökun“.
Niðurstaða
Bókin Tákn og undur er góð og
uppbyggileg bók. Höfundi er mikið
í mun að gefa lesandanum hlutdeild
í trú sinni. Hann er einlægur og
ekta. Ég hefði kosið, að Halldór sem
lútherskur prestur hefði notað lúth-
erska hugtakið „fylling andans“
fyrir reynslu sína af heilögum anda
í stað „skírn andans“, sem er hug-
tak hvítasunnumanna um þessa
reynslu og tengist allt öðrum skírn-
arskilningi en þeim lútherska.
Ég fagna komu þessarar bókar
og hvet alla kristna menn á íslandi,
{ hvaða kirkju sem þeir eru, til að
taka henni vel. Hún hentar vel fyr-
ir leitandi fólk og er uppbyggileg
og fræðandi fyrir aðra. Bókin á
miklu meira erindi inn í jólapappír
en margt annað miður hollt.
Tákn og undur er hvatning til
kristinna manna á íslandi að gefa
út fleiri hagnýtar bækur um hina
kristnu trú.
-------*-t-t----—
Góðafkoma
hjá Islenzk-
um markaði
AFKOMA Islenzks markaðar á
Keflavíkurflugvelli mun vera
góð á árinu sem er að líða.
Aðalfundur félagsins verður
haldinn í janúar og að sögn Þrastar
Ólafssonar, stjórnarformanns, eru
menn þar á bæ ekki óánægðir með
afkomuna. „Við gefum ekki upp
neinar tölur um afkomuna fyrr en
á aðalfundinum en ég get sagt að
við erum ekki óánægðir,“ sagði
Þröstur.
Sterkurog
hagkvæmur
auglýsingamiðill!
;
v