Morgunblaðið - 19.12.1990, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1990
27
að koma inn í samtímann út úr
fyrri öld. Hún hefur ekki fengið að
taka þátt í mannh'finu á nokkurn
hátt og óvíst er hvort hún verður
fær um að mæta öllum þeim vanda
sem að henni steðjar en hennar
bíða ótrúlegustu verkefni. Það þarf
að glíma við vímuefnavanda, áfeng-
issýki og beijast fyrir náttúruvernd,
svo eitthvað sé nefnt. Þeir sem snúa
sér til kirkjunnar eru elsta fólkið,
yfir sextugu, og yngsta kynslóðin,
innan við 25 ára, en fólk á miðjum
aldri er gersamlega búið að eyði-
leggja að þessu leyti, það er álit
fleiri en mín.
í Moskvu heimsótti ég kirkjur
og bænahús allra trúarbragða-
hreyfínga, ekki bara kristinna. Nik-
ulásarkirkjan sem byijað var að
reisa 1679 stendur óbreytt og var
fægð upp fyrir 1000 ára afmæli
kirkjunnar 1988. Hún er eina kirkj-
an í Moskvu sem aldrei hefur verið
lokuð frá því fyrir byltingu.
Þar sem stærsta útisundlaug
Moskvu stendur núna stóð til 1935
ein stærsta og fegursta kirkja borg-
arinnar, Frelsarakirkjan. Hún var
sprengd 1935 og í stað hennar átti
að reisa Höll Sovétríkjanna, en það
varð aldrei og verður aldrei. En
sagt er að hugvitsömum mönnum
hafi dottið í hug að nýta sprengi-
gíginn til að gera sundlaug. I dag
er komin í gang geysilega öflug
hreyfing til þess að endurbyggja
Frelsarakirkjuna.
í synagógu gyðinga hitti ég unga
gyðinga og gamla og innti þá eftir
ástæðum fyrir þessum áhuga þeirra
á að flytja til ísraels. Það kom í
ljós að þeir vita ótrúlega lítið um
ástandið í ísrael en þeir voru ekki
feimnir við að viðurkenna að það
er fyrst og fremst von um betra
og þægilegra líf sem dregur þá
'þangað."
Ævikvöld í ríki kommúnismans
„í einni mosku borgarinnar ræddi
ég .við tatara um ástandið í Mið-
Asíulýðveldunum. Þeir telja að þar
sé mikil vakning meðal músiima og
áhugi á að segja'skilið við Sovétrík-
in. Hversu sterk sú hreyfing nær
að verða er ómögulegt að segja á
þessari stundu.
Loks kom ég í einu rómversk/
kaþólsku kirkjuna í Moskvu og hitti
þar 81 árs gamla þýska konu, sjö
barna móður frá Kazakstan. Ilún
var búin að vinna á samyrkjubúi í
51 ár en býr nú í herbergi með
dóttur sinni og hefur 45 rúblur í
eftirlaun. Það er jafnvirði þriggja
dollara á svarta markaðinum. Það
er ævikvöldið sem kommúnisminn
býður fólkinu upp á,“ sagði séra
Rögnvaldur Finnbogason.
*
Utsvarsprós-
entan lækkuð
á Skagaströnd
Skagaströnd.
HREPPSNEFND Höfðahrepps
hefur ákveðið að lækka útsvars-
prósentuna fyrir árið 1991 í
Höfðahreppi.
Á fundi nefndarinnar 7. desem-
ber var ákveðið að lækka útsvars-
innheimtuna úr 7,5% í 7,2%. Var
þetta ákveðið með hliðsjón af því
að landsmeðaltal útsvars er 7,2%.
Sé útsvarsprósentan hærri fær
fólk bakreikning frá skattinum í
ágúst þar sem staðgreiðsla er inn-
heimt samkvæmt landsmeðaltali.
Þessi lækkun útsvarsprósentunnar
táknar um tveggja milljóna króna
skerðingu á tekjum Höfðahrepps.
- Ó.B.
r
HÝTT SÍMANÚMER
BIAÐAAFGRBÐSLU
Krabbameinsfélagið ráðstafar söfnunarfé
STJÓRN Krabbameinsfélags ís-
lands hefur ákveðið ráðstöfun
á fyrsta fjórðungi þess fjár sem
safnaðist í vor í Þjóðarátaki
gegn krabbameini, en gert er
ráð fyrir að söfnunarféð nýtist
í fjögur ár og fari til sérstakra
verkefna á vegum félagsins.
Fimm milljónum króna verður
varið til að kaupa íbúð í
Reykjavík fyrir aðstandeudur
krabbameinssjúklinga utan af
landi. Fimm milljónir eru veitt-
ar til grunnrannsókna á krabba-
meini í Rannsóknastofu í sam-
einda- og frumulíffræði. Tvær
milljónir eru ætlaðar til útgáfu
á bæklingi fyrir karlmenn um
helstu einkenni krabbameins,
en stefnt er að því að senda
hann til allra fullorðinna karl-
manna næsta vor. Loks verður
ein milljón veitt til að efla Rann-
sóknasjóð Krabbameinsfélags-
ins. Öðrum fjórðungi söfnun-
arfjár verður ráðstafað á miðju
næsta ári.
í framhaldi af þessari ákvörðun
hafa Krabbameinsfélagið og Rauði
kross íslands ákveðið að samein-
ast um kaup á húsnæði í nágrenni
Landspítalans og verður það til
afnota fyrir krabbameinssjúklinga
af landsbyggðinni og aðstandend-
ur þeirra meðan á sjúkdómsmeð-
ferð stendur. Ríkisspítalar eru til-
búnir til samstarfs um rekstur
þessa húsnæðis. Fyrir fjórum
árum átti Krabbameinsfélagið hlut
að því að kaupa íbúð við Leifsgötu
fyrir foreldra barna sem eru í
meðferð vegna krabbameins. Sú
íbúð hefur verið mikið notuð og -
reynslan af henni verið svo góð
að ástæða þótti til að létta undir
með öðrum krabbameinssjúkling-
um á hliðstæðan hátt.
(Fréttatilkynning)
Gleymdu ekki hlutabréfunum í ár !
HVÍB
HLUTABRÉFASJÓÐUR VÍB HF.
Einfalt, öruggt og arðbært
Hlutabréfasjóöur VÍB hf., HVIB var stofnaður
til þess að bjóða einstaklingum einfalda, örugga og
arðbæra leið til að ávaxta sparifé sitt í lilutabréfum
og njóta jafnframt skattafrádráttar.
Góð ávöxtun
Hlutabréfin eru ávísun á eignarhlut í íjölda
fyrirtækja og þar með hlutdeild í afrakstri þeirra.
Ávöxtun hlutabréfa HVIB fylgir því náið hag fyrir-
tækjanna og getur orðið mjög góð þegar vel árar.
s
Ahættudreifing
Áhætta hlutabréfa felst einkum í því að verð
hlutabréfa í einstökum fyrirtækjum getur verið
sveiflukennt. HVlB dregur úr þessari áhættu með
því að kaupa hlutabréf í mörgum fyrirtækjum, í
þeim hlutföllum sem sérfræðingar VIB telja
hagkvæmast hverju sinni. Með kaupum á
hlutabréfum HVIB fæst þannig veruleg áhættu-
dreifing.
Lægri skattar
Einstaklingum er heimilt að draga kaupverð
hlutabréfa í HVIB frá tekjuskatts- og útsvarsstofni
sínum að vissu marki.
Á árinu 1989 nam hámarkskaupverð til skatta-
frádráttar 115.000 kr. hjáeinstaklingúm og 230.000
kr. hjá lijónum. Hjón sem fullnýttu skattafrádrátt
sinn á síðasta ári fengu þannig endurgreiddar
röskar 86.000 kr. frá skattinum.
Verið velkomin í afgreiðslu VÍB í Ármúla 13a,
eða hringið í síma 91-681530.
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Ármúla 13a, 108 Reykjavík. Sími 68 15 30. Telefax 68 15 26.
HMARK-afgreiösla, Skólavörðustíg 12, 101 Reykjavík. Sími 21677.