Morgunblaðið - 19.12.1990, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1990
37
Stuttar þingfréttir:
Ellilífeyrir sjómanna
Frumvarp til laga um breyt-
ingu á lögum um almannatrygg-
ingar var á fundi neðri deildar
afgreitt til heilbrigðis og trygg-
inganefndar. Frumvarpið, sem
er stjórnarfrumvarp, gerir ráð
fyrir að hver sjómaður sem
stundað hefur sjómennsku í 25
ár eða lengur skuli eiga rétt á
töku ellilífeyris frá og með 60
ára aldri. Starfsár sjómanna skal
í þessu sambandi miðast við að
sjómaður hafi verið lögskráður á
íslenskt skip eða skip gert út af
íslenskum aðilum eigi færri en
180 daga að meðaltali í 25 ár.
Frumvarpið gerir því ráð fyrir
nokkurri rýmkun á gildandi régl-
um um sjómannalífeyri þannig
að heimildin nær einnig til þeirra
sjómanna sem sigla á skipum
gerðum út af íslenskum aðilum
undir svokölluðum „þægindafán-
um“. I athugasemdum með
frumvarpinu er m.a. greint frá
-því að Farmanna- og fiski-
mannasamband íslands hafi lagt
ríka áherslu á að þessi breyting
nái fram að ganga miðað við 1.
janúar 1991.
Fiskvinnsluf ólk
Ragnar Arnalds (Ab-Nv)
hefur lagt fram frumvarp um
breytingu á lögum um greiðslur
Atvinnuleysistryggingasjóðs __
vegna fiskvinnslufólks. Árið
1988 var samið um ákvæði sem
gilda um greiðslu Atvinnuleysis-
tryggingasjóðs vegna atvinnu-
leysisbóta fastráðins fiskvinnslu-
fólks þegar stöðva þarf vinnslu
vegna þess að hráefni er ekki
fyrir hendi til vinnslu. Ragnari
Árnalds þykir það galli á lögum
að hugtakið „fiskvinnslufólk"
hefur verið túlkað í mjög þröngri
merkingu; hafa þau t.d. ekki
verið talin ná til þeirra sem vinna
að síldar- eða loðnubræðslu, eða
niðursuðu og niðurlagningu.
Þingmaðurinn leggur því til að
á eftir 1. mgr. 1. gr. komi ný
málsgrein: „Til fiskvinnslufólks
teljast allir þeir sem starfa að_
vinnslu sjávarafurða hér á landi
en með því er átt við frystingu,
söltun, herslu, reykingu, súrsun,
niðursuðu, niðurlagningu og
hveija þá verkun sem ver fisk
og aðrar sjávarafurðir skemmd-
um, þar með talin bræðsla og
mölvinnsla.“
Leifur heppni
Þorvaldur Garðar Kristj-
ánsson (S-Vf) spyr forsætisráð-
herrann um áform um að minn-
ast landafunda Leifs Eiríkssonar
í Vesturheimi og vísar til frétta-
tilkynningar frá utanríkisráðu-
neytinu 6. desember 1990. Þor-
valdur Garðar spyr sérstaklega
um hvort íslensk yfii-völd geti
átt hlut að kynningarátaki Norð-
manna um íslendinginn Leif
heppna „nema staðinn sé vörður
um óskipta arfleið íslensku þjóð-
arinnar og fullur sómi sé sýndur
sögulegum staðreyndum sem
greyptar eru í þjóðarsögu og
þjóðarvitund um heimsögulegt
afrek Leifs heppna“.
Tekjur jafnar gjöldum
Ásgeir Hannes Eiríksson
(B-Rv) vill breyta lögum um
þingsköp Alþingis: „Við 18. gr.
laganna bætist svohljóðandi
málsgi-ein: Ef í lagafrumvarpi
er gert ráð fyrir útgjöldum úr
ríkissjóði 'má ekki taka það til
meðferðar nema einnig sé í frum-
varpinu ákvæði um samsvarandi
tekjur fyrir ríkissjóð.“ Ásgeir
Hannes segir að í mörgum ná-
grannaþingum okkar séu víða
ríkar hefðir fyrir því að þing-
menn geri ekki útgjaldatillögur
nema jafnframt sé séð/yrir tekj-
um á móti. „Á Alþingi íslendinga
virðist hins vegar ríkja sama
hefð með öfugum formerkjum.
Hér er stöðugt ávísað á ríkissjóð
án þess að gera grein fyrir hvar
íjárins skal aflað.“ Þingmaður-
inn segir einnig að: „Nái þetta
frumvarp fram að ganga mun
öll fjárlagagerð á íslandi verða
bæði ábyrg og raunhæf. Tími
fjárlagahalla er þá væntanlega
allur og eftirsóttur jöfnuður ríkir
framvegis í þjóðfélaginu.“
Breyting á samvinnulögum
Sljórnarfrumvarp til breyt-
inga á samvinnulögum, sem lagt
hefur verið fram á Alþingi, ger-
ir ráð fyrir því að samvinnufé-
lögum verði gert kleift að afla
eigin fjár með sölu hluta í B-
deild stöfnsjóðs „sem að mörgu
svipar til sölu hluta í hlutafélög-
um. Eignarhaldi á hluta í B-
deild stofnsjóðs fylgir þó ekki
atkvæðisréttur á félagsfund-
um.“
Viðskiptaráðherra skipaði í apríl
sl. nefnd til að endurskoða sam-
vinnulögin. Nefndin hafði eldri
frumvarpsdrög til hliðsjónar „en
tók ákvörðun um að aðlaga frum-
varpið að lögum um hlutafélög
eftir því sem við á“. Sú breyting
er að framan greinir er viðleitni í
þá átt.
Systurfrumvarp, til breytinga á
lögum um sparisjóði, fylgir. Það
felur í sér heimild til samvinnufé-
laga til þess að stofna sparisjóði
í stað þess að reka innlánsdeildir
eins og nú _er heimilt, en gert er
ráð fyrir að sú heimild falli brott.
FRESTUR AÐ RENNA ÚT
TIL AD TRYGGJA SÉR
LÆKKUN Á TEKJUSKATTI
Sérstök ákvæði skattalaga heimila þeim sem fjárfesta í
hlutabréfum vissra fyrirtækja, að draga frá skattskyldum
tekjum að ákveðnu hámarki kaupverð hlutabréfanna.
Við höfum í sölu hlutabréf í nokkrum traustum fyrirtækjum.
Verið velkömin í afgreiðslu okkar að Suðurlandsbraut 18
eða að hringja í síma 688568. Við gefum ykkur góð ráð.
UERÐBRÉFAUIÐSKIPTI
V/ SAMUINNUBANKANS
SUÐURLANDSBRAUT 18 ■ SÍMI 688568
VÁKORTALISTI
DagS. 19.12.1990 Nr. 22
Kort nr
5414 8300
5414 8300
5414 8300
5414 8300
5414 8300
5414 8301
5414 8301
1024 2104
1192 2209
1486 2105
1564 8107
2460 7102
0314 8218
0342 5103
Erlend kort (öll kort)
"j 07** **** ****
5420 65** **** ****
5217 0010 2561 2660
5217 9840 0206 0377
5217 9500 0114 5865
Ofangreind kort eru vákort sem taka ber úr umferð.
VERÐL/YUN KR. 5.000,-
fyrir þann sem nær korti og sendir sundurklippt
til Kurocards.
ÚLtektarleyílssími Eurocards er 687899.
Þjónusta allan sólarhringinn.
Klippið auglýsinguna útoggeymið.
ALVORU SKIÐAVERSLUN
úrval merkja í skíöaútbúnaöi og skíðafatnaði J
Ódýrir skíðapakkar fyrri svig og göngu. KAUPIÐ ÞAR SEM ÚRVALIÐ ER!
Seníum gejn póXöfu um land allt. Skíði frá VÖLKL, KNELSSL, DYNASTAR
KaAPI crnjT Gönguskíöi frá KNEISSL og VÖLKL.
Wwl I Skíöaskórfrá LANGE, ROCES og DOLOMITE.
■ 7 1 J'I"3 WJ. 1.1 Tffrm Skíðastafir frá SCOTT, VÖLKL og KNEISSL.
‘ l =<-'■• Bindingar frá SALOMON og TYROLIA.
.. SkíÖagleraugu frá SCOTT.
medlCO fii. SJciðafatnaður frá VÖLKL, MEDICO,
CREBLÉT, LEISBAR, RYWAN og CODEBA.
Skíðahjálmar o.fl., o.jl. ,
pi|ROECKL líÖl
IhneissL ROKM Sporthandschuhe 9 M I
* q Verslunm \|/
'' 'RKlD
ARMULA 40 — SIMI 35320
um