Morgunblaðið - 19.12.1990, Blaðsíða 45
cee i aaíntaaaú ,ei ítj!&aciiihív<3 n/. <aöAJHWiíoaoi«
MORGÚNBLAÐIÐ MIÐvYkUDAGUR 19.’dESEMBER~Í99Ö
45
Ég skal andmæla Ryzhkov
eftir Árna Björnsson
í forystugrein Morgunbiaðsins
föstudaginn 7. des. var m.a. fjallað
um lofræðu Nikulásar Ryzhkovs
forsætisráðherra Sovétríkjanna um
hergagnaiðnaðinn þar í landi og
svardaga hans um að sú atvinnu-
grein skyldi ekki niður lögð meðan
hann lifði og héldi starfi sínu. Síðan
segir Morgunblaðið:
„Andstaða við viðhorf af þessu
tagi hafa (svo!) virst lífsskoðun
ýmissa helstu frammámanna her-
stöðvaandstæðinga hér á landi. Rísa
þeir nú upp og andmæla þessu við-
horfi?“
Eg skal fyrstur manna rísa upp
og andmæla, enda tel ég mér málið
nokkuð skylt. Ég sannfærðist nefni-
lega um það fyrir svo sem áratug
að hagsmunir hergagnaiðnaðarins
væru meginorsök vígbúnaðar-
kappsins, en gagnkvæm árásar-
hætta lítið annað en yfirvarp. Ég
tel ekki, „að ásókn hergagnafram-
leiðenda leiði óhjákvæmilega til
þess að auðvaldsríkin hefji styrjöld"
eins og Morgunblaðið segist oft
hafa séð haldið fram hér á landi
og annars staðar. Hagsmunir her-
gagnaframleiðenda nú á dögum
felast öðru fremur í því að láta
dæma vopn úrelt vegna ætlaðra
nýjunga óvinarins, svo að sífellt
þurfi að finna upp og framleiða
nýjar og fullkomnari tegundir. Að
sjálfsögðu vilja þeir í lengstu lög
komast hjá meiriháttar styrjöld. Um
þetta skrifaði ég meðal annars grein
í Morgunblaðið 17. apríl 1985.
Að þessari niðurstöðu þurfti að
komast af brjóstviti einu saman.
Ummæli Eisenhowers höfðu á
sínum tíma algerlega farið framhjá
mér og aldrei heyrði ég þess getið,
að forystumenn Sovétríkjanna
töluðu af þvílíku viti. Ekki vissi ég
heldur félaga mína meðal sósíalista
eða herstöðvaandstæðinga halda
þessu viðhorfi á loft. Þar mátti mun
frekar kynnast þeirri skoðun, að
Bandaríkin stefndu að heimsyfir-
ráðum og myndu ekki láta styijöld
afta sér frá því. Það virtist reyndar
álíka yfirboðsleg skýring og
hræðsluáróður herstöðvasinna um
yfirvofandi árás Rauða hersins.
Lengi vel ypptu menn á þessum
bæjum líka öxlum við kenningunni
um hagsmuni hergagnaiðnaðarins.
Hún þótti of langsótt og var jafn-
vel kölluð þjóðsaga. Samt hefur á
síðustu árum tekist að troða svo
sem einni málsgrein í þá átt inn í
ályktanir frá landsráðstefnum her-
stöðvaandstæðinga. Þær hefur leið-
arahöfundur Morgunblaðsins vænt-
anlega rekið augun í og talið vera
hefðbundið sjónarmið. Svo gæti
reyndar verið, ef grannt er skoðað,
Seinnabindið
erkomiðút
MYLLU KOBBI, forlag
Skemmuvegur6L, 200Kópavogur
SÍMI: 91-7 47 99
en því sjónarmiði hefur a.m.k. ekki
verið mikið hampað, síðan ég og
elsti ritstjóri Morgunblaðsins kom-
umst til vits og ára.
Morgunblaðið spyr í sömu for-
ystugrein, hvort andstæðingar her-
stöðva átti sig á muninum á stjórn-
kerfi lýðræðisríkja og einræðisríkja
í þessu sambandi.
Það er vissulega munur á hags-
munum vegna hergagnaiðnaðar í
vestrænum stórveldum annars veg-
ar og Sovétríkjunum hins vegar.
Vestan megin eru það eigendur
verksmiðja og rannsóknarstofnana
sem hagnast á hergagnaframleiðslu
og vopnasölu. Flestir herforingjar
„Herstöðvar á íslandi
voru að vísu ekki stór
biti handa bandarískum
fyrirtækjum, en þær
voru samt dálítið brot
af heimskerfinu.“
hafa þar ekki annað en rétt þokka-
leg laun miðað við forstjóra iðnaðar-
ins. Fyrir áustan eru það hins veg-
ar yfirmenn í sjálfum hernum, sem
hafa orðið eins helsta forréttinda-
stétt ríkisins. Öll skerðing á her-
væðingu myndi koma niður á þeím
forréttindum.
Forsendur herstöðva á íslandi
eru augljósar frá þessu sjónaiTniði.
Arásarhættan var aldrei annað en
yfirvarp þeirra sem gerst vissu,
þótt ýmsir mætir menn muni í ein-
lægni hafa trúað á hana. Aðalfor-
sendan var þörf íslenskra verktaka
á stanslausum verkefnum, sem þeir
höfðu komist á bragðið af í stríðinu.
Herstöðvar á íslandi voru að vísu
ekki stór biti handa bandarískum
fyrirtækjum, en þær voru samt
dálítið brot af heimskerfinu.
Höfundur er þjóðháttafræðingur.
kú
Árni Björnsson
PERSONBL
SVSTEM/g
SVÍTEM /I „ „ TMtMw « „„ ^
Sparaðu
60.000
krónur fyrir jólin
Sérstakt jólatilboð á
IBM PS/2. Aðeins
56.500 kr.
Panasonic 1180 prentari
á aðeins 24.900 kr.
Allt sem þarf: /
disklingar, hreinsiefni og
tölvupappír á 1.900 kr.
SAMEIND
BRAUTARHOLTI 8, SÍMI 61 58 33
V~